Morgunblaðið - 16.07.1988, Síða 39

Morgunblaðið - 16.07.1988, Síða 39
enda, sem aðrir flokkar gátu ekki gerst fulltrúar fyrir á trúverðugan hátt eða án þess að stofna sam- stöðu innan þeirra í hættu. Hann tengir einnig fylgismöguleika bændaflokka við þau kosningakerfi sem voru við lýði og sýnir hvemig breytingar á þeim áttu stóran þátt í myndun flokkanna. Hann sýnir fram á hvernig þessir þættir ásamt því að ný pólitísk mál urðu til í fýrri heimsstyijöldinni eru þau meginatriði sem skýra uppruna flokkanna. í lok kaflans gerir Gunnar sam- anburð á uppruna bændaflokkanna. Niðurstöður eru m.a. þær að meðan bændaflokkar í Svíþjóð og Noregi hafi fengið fylgi á kostnað stjórnar- flokkanna hafí málið verið nokkuð flóknara á íslandi. Verðhækkanir í kjölfar fyrri heimsstyijaldar hafi kallað á íhlutun ríkisstjómarinnar til að rétta hlut kjósenda í þéttbýli. Þetta hafi leitt til þess að þingið klofnaði í tvær fylkingar, þ.e. með og móti bændum. Sjálfstæðisflokk- urinn langsum hafi tekið afstöðu gegn bændum en Sjálfstæðisflokk- urinn þversum og Bændaflokkurinn með bændum. Heimastjórnarflokk- urinn klofnaði í málinu. Gunnar álítur að áhrifin á bændur hafi sennilega verið tvíþætt. Annarsveg- ar hafi margir stuðningsmenn Heimastjómarflokksins misst tiltrú á flokkinn þó ekki á þá þingmenn hans sem voru bændur. Hins vegar hafi þeirri skoðun vaxið fylgi að einu áreiðanlegu fulltrúar 'bænda væru bændur. I kosningunum 1916 missti Heimastjórnarflokkurinn fylgi til Óháðra bænda. Bænda- flokkurinn náði hins vegar fylgi frá Sjálfstæðisflokknum. Skýringuna á því telur Gunnar vera þá að þótt Sjálfstæðisflokkurinn þversum hafi stutt bændur hafí honum ekki tek- ist að verða trúverðugur fulltrúi þeirra þar sem flestir þingmenn flokksins voru ekki úr röðum bænda og þá staðreynd að flokkurinn gaf sjálfstæðismálinu algeran forgang. Skiptingin milli þéttbýlis og dreif- býlis verður greinilegri 1915-1916 og fulltrúar bændahreyfingarinnar sameinast í Framsóknarflokknum 1916. Gunnar ræðir jafnframt ástæð- umar fyrir því að stjómmálaflokkar í Svíþjóð, Noregi og á íslandi hafi ekki getað verið fulltrúar bænda í fyrri heimsstytjöldinni og veikleika bændaflokkanna vegna skiptra skoðana um aðra málaflokka en þá er lutu að hagsmunamálum bænda. Þá ræðir hann í stuttu máli upp- mna bændaflokka í öðmm löndum, Finnlandi, Sviss, írlandi og Ástralíu og jafnframt lönd þar sem sérstak- ir bændaflokkar urðu ekki til. Kaflinn er að allri uppbyggingu mjög vandað verk og á það við hvort sem er með hliðsjón af því hvernig höfundur nálgast viðfangs- efnið, vinnur úr gögnum sem hann hefur greinilega leitað víða eða af framsetningu sem er mjög skýr. Kaflinn nær yfir tímabilið frá lokum síðustu aldar fram á þriðja áratug tuttugustu aldar. Rannsóknarskýrsla Gunnars, „The Adaptation of Farmers’ Parti- es in Norway and Sweden", tekur ti) tímabilsins 1944-1973. Efnislega fjallar hún um strategíu flokkanna, hvemig hún þróaðist, hvers vegna og hvaða áhrif það hafði á stefnu og samvinnu við aðra flokka. Skýrslan er grandvöllur fyrir annan hluta í doktorsritgerðinni. Skýrslan sýnir ömgg tök á viðfangsefninu þar sem markvisst er leitast við að flétta saman í eina heild umQ'öllun um ýmsar hliðar á bændaflokkum: ákvarðanatöku þeirra, skipulag, kosningastrategíu og stuðnings- gmndvöll. Hannes Hólmsteinn Gissurarson (f. 19.2.1953). Umsækjandi lauk stúdentsprófi 1972, BÁ-prófi i heimspeki og sagnfræði frá Háskóla íslands 1979 og Cand.mag.-prófí í sagnfræði frá sama skóla 1982. Hann hlaut dokt- orsgráðu (Politics) frá Oxford- háskóla 1985 fyrir ritgerðina „Hay- ek’s Conservative Liberalism". Umsækjandi var gistifræðimaður við Hoover-stofnunina í Stanford í Kaliforníu 1983, 1984 og 1986 og sumarfélagi í Institute for Humane Studies (George Mason University í Virginíu) 1984 og 1986; hefur flutt marga fyrirlestra m.a við Háskóla íslands og Oxford-háskóla. Um- sækjandi hefur verið stundakennari í viðskiptadeild og heimspekideild HÍ frá janúar 1986; hefur hann kennt samanburð hagkerfa og hug- myndasögu. Hann kenndi einnig sameiginlegt námskeið heimspeki- deildar og félagsvísindadeildar haustið 1987. Rannsóknarlektor í heimspekideild frá september-des- ember 1986. Frá 1983 hefur hann verið framkvæmdastjóri Stofnunar Jóns Þorlákssonar og frá 1985 rit- stjóri rannsóknarrita stofnunarinn- ar. Hann er aðstoðarritstjóri rit- safns F.A. von Hayeks sem verður gefíð út á næstu ámm. Umsækjandi leggur fram „skrá um rit og rannsóknarverk". Þar er að fínna bækur, bæklinga, ritgerðir og greinar; útgefin verk og óútgef- in. Umfangsmestu verk Hannesar em doktorsritgerð, cand. mag.- ritgerð og tvö rit. Um þau verður sérstaklega fjallað: Hayek’s Conservative Liberal- ism. Garland Publishing, Inc. New York & London 1987. Ritgerð þessa varði höfundur til doktorsprófs við Háskólann í Ox- ford árið 1985. Þar tekur hann til rannsóknar þá stjómspekihugmynd sem hann nefnir íhaldssama fijáls- hyggju. Em stjómspekihugmyndir austurríska lögfræðingsins og hag- fræðingsins Friedrichs von Hayeks teknar til greiningar sem dæmi um þessa hefð. Með kenningu sinni um sjálfsprottið skipulag sætti Hayek ýmsar öndverðar skoðanir áhang- enda fijálshyggju og íhaldssemi. Er skoðun höfundar sú að kenning Hayeks sé heilsteypt þrátt fyrir fáeinar brotalamir því að hvor tveggja félagsleg íhaldssemi og efnahagsleg fijálshyggja miði við sömu forsendur, óhjákvæmilega vanþekkingu manna og þjóðfélag sem orðið er svo stórt að menn hljóti að skorta yfírsýn. Ekki þykir ástæða til að fjalla ítarlega um þessa ritgerð. Hún hef- ur þegar fengið viðurkenningu við Oxford-háskóla og, þrátt fyrir ein- staka athugasemdir, lofsamlegan vitnisburð dómnefndar um hæfi til að gegna lektorsstöðu í heimspeki við heimspekideild dags. 20. ágúst 1986 sem fræðirit á sviði stjóm- málaheimspeki. Stofnun Sjálfstæðisflokksins, starfsemi og skipulag. Ritgerðin var lögð fram við cand. mag.-próf í sagnfræði við Háskóla íslands árið 1982 og er .272 bls. að lengd. Í formála gerir höfundur grein fyrir efnismeðferð sinni og tekur fram að hann miði við „for- sendur sjálfstæðismanna" þótt hann reyni einnig „að gera grein fyrir forsendum hinna, sem hafa ólíkar skoðanir á stjómmálum" (bls. IV). Ekki kemur hinsvegar neitt fram um á hvaða fræðilegum gmnni rit- gerðin á að byggja; við hvaða kenn- ingar er stuðst né hverskonar að- ferðafræði er notuð. í fyrsta kafla sem ber heitið Stofnun Sjálfstæðisflokksins er byijað á að lýsa flokkaskiptingu á íslandi til 1916. Er þar fylgt hefð- bundnum greinargerðum um það efni. Heimildagmnnur er mjög tak- markaður og sums staðar er farið rangt með staðreyndir. Þannig em Landvamarmenn sagðir hafa komið til sögunnar á stjómarámm Hann- esar Hafstein sem varð ráðherra 1. febrúar 1904, en í raun var flokk- ur Landvamarmanna stofnaður 11. ágúst 1902. í seinni köflum ritgerðarinnar kemur fram margs konar fróðleik- ur, einkum um innra starf Sjálf- stæðisflokksins; er það mest byggt á óútgefnum heimildum. Hugtakanotkun höfundar er oft ómarkviss og hlutdræg fremur en nákvæm og fræðileg. Stefnuskrá Fijálslynda flokksins fær t.d. þá einkunn að hún sé ekki til marks um „mjög þroskaða stjórnmálavit- und“ (bls. 39). í heild rýrir það gildi ritgerðarinnar hversu gjarn höfund- ur er að koma einkasjónarmiðum sínum að og gera þau nánast að algildum mælikvarða. Á nokkmm stöðum em felldir niðrandi persónu- legir dómar um menn án nægilegs , LAUGARDAGUR 16. .11 rökstuðnings. Ritgerðin er óskipu- leg og gefur ekki heilstæða mynd af viðfangsefninu. Þannig er enginn kafli þar sem dregnar em saman helstu niðurstöður og ályktanir. Engu að síður hefur ritgerðin ýmsa kosti. Þar er saman kominn mikill fróðleikur, höfundi er lagið að bregða upp eftirminnilegum svip- myndum af flokksstarfinu og þeim aldaranda sem ríkjandi var á hveij- um tíma auk þess sem hún er prýði- lega skrifuð. Hvergi í ritgerðinni er vísað til kenninga í stjórnmálafræði um stjómmálaflokka og ekki kemur fram að höfundur hafi einhveija þekkingu í stjómmálafræði enda hafði hann ekki stundað háskóla- nám í þeirri grein. Stjórnarskrármálið. Ritið er 86 bls. og gefið út 1987 af Stofnun Jóns Þorlákssonar, en höfundur er framkvæmdastjóri hennar. Ritið ber undirtitilinn „hug- leiðingar um tilgang íslensku stjómarskrárinnar, stjórnmálaþró- un síðustu áratuga og hugsanlegar stjómarskrárbreytingar”. I fyrsta kafla reifar höfundur til- drög um tilgang stjórnarskrárinnar. Um tilgang hennar og annað hlut- verk fer hann fáum orðum, en kemst þó svo að orði að stjómar- skrá ríkis sé „með vissum hætti yfirlýsing um það hvernig lög ríkis eigi að vera úr garði gerð, til þess að þau geti talist fullgild lög“ (bls. 13-14). Þetta er ófullkomin lýsing á hlut- verki stjómarskrár. Þeim er ætlað- ur miklu rýmri tilgangur sem stjómarská íslands er meðal annars til marks um. í fyrsta kafla hennar em fyrirmæli um sjálft stjómar- formið og þær gmndvallarreglur sem það hvílir á, í öðmm kafla um forseta, ráðherra, um samninga við önnur ríki, um þingrof og staðsetn- ingu laga, í þriðja kafla um skipan Alþingis, kosningarétt til þess og kjörgengi, í ijórða kafla um sam- komur Alþingis og störf þess, þar á meðal um réttindi og skyldur þingmanna, í fímmta kafla er fjallað um dómsvaldið, í hinum sjötta um þjóðkirkjuna, trúfrelsi og trúfélög, í sjöunda kafla um réttindi þegn- anna og hversu vald handhafa ríkis- valdsins skuli takmarkað og í loka- kafla hvernig stjórnarskránni verði breytt. I rit höfundar skortir greinargóða lýsingu á þvi hvaða þáttum stjóm- arskrárinnar hann ætli sérstaklega að gera skil. í reynd ræðir hann aðallega um efni sem lúta að fyrsta og sjöunda kafla og em vissulega mjög mikilvæg. Verkið í heild ber þess mjög merki að viðfangsefnið er í upphafi illa afmarkáð; ekki er ljóst hvað á að athuga og hvemig. Ályktanir em gjaman dregnar án þess að á bak við liggi neinar rannsóknir. Þannig em íslenskir dómarar sagðir hafa „tilhneigingu til að dæma sam- kvæmt bókstafstrú lögfræðilegra framhyggjumanna" (bls. 14-15), en ekki vísað til neinna rannsókna á íslensku réttarfari. Heimildanotkun er einnig ábóta- vant. Þannig vísar höfundur til greinar um íslenska þjóðveldið (Skímir 1984) og segir að þar komi fram, að „lög hafi verið skilin öðmm skilningi með íslendingum á þjóð- veldisöld en víða annars staðar" (Stjómarskrármálið bls. 21). Ekki er hægt að fínna þessari staðhæf- ingu neinn stað í þeirri heimild sem vitnað er til. í ritinu er gerð tilraun til að fjalla um tilgang íslensku stjómar- skrárinnar með tilvísan til þeirra gmndvallarhugmynda sem liggja þar að baki. Ritið er lipurlega skrif- að og ýmislegt er skynsamlega at- hugað og skýrt fram sett. Fræðilegt gildi verksins er engu að síður mjög takmarkað, ekki síst vegna þeirrar tilhneigingar höfund- ar að setja fram órökstuddar al- hæfíngar. Á einum stað segir hann: „frelsisréttindi rekast óhjákvæmi- lega á félagsleg réttindi" (bls. 16); skömmu síðar er sagt að svo þurfí ekki alltaf að vera (bls. 21) án þess að gerð sé grein fyrir þessari mót- sagnakenndu röksemdarfærslu. Yfir höfuð er ekki ljóst hvort höf- undur sækir rök sín í íslensku stjómarskrána eða til eigin hug- 1988_______________________________ mynda um það sem þar ætti að vera. Höfundur telur t.d. að af- skipti ríkisins af „þeirri tekjuskipt- ingu, sem hlýst af frjálsum markað- sviðskiptum“ rekist „tvímælalaust á stefnu íslensku stjórnarskrárinn- ar“ (bls. 39). Ekki vísar höfundur til ákvæða í stjórnarskránni sem hindra slík afskipti en síðar í ritinu, bls. 67-68 kemur fram að höfundur gerir tillögu um að slíkt ákvæði verði sett. Einnig telur höfundur að sú nið- urstaða fræðimanns, að lög um endurgjaldslausa þegnskylduvinnu brjóti ekki í bága við atvinnufrels- isákvæði stjórnarskrárinnar sé „óskiljanleg" (bls. 78). Engin til- raun er gerð til að hrekja þessa niðurstöðu með fræðilegum rökum. I verkinu er ekki að finna um- fjöllun um stjórnmálaþróun síðustu áratuga eins og þó segir í undir- titli. Ekki kemur heldur fram að höfundur kunni til verka á því sviði í stjómmálafræði sem fæst við rannsóknir á ákvarðanaferli og stofnanaþróun (public policy studi- es). Markaðsöfl og miðstýring. Reykjavík 1988, 215 bls. I riti þessu ræðir höfundur um ólíkar lausnir á þeim vanda að skortur er á flestum gæðum heims- ins og þau þarf að skammta með einhveijum hætti. Við þá skömmtun má fara ýmsar leiðir og er megin- efni rits höfundar að fjalla um þijár leiðir sern helst em farnar að því marki: leið sjálfstýringar, leið mið- stýringar og millileið sem kennd er við blandað hagkerfí. Þarna er einkum fjallað um hag- fræði. Meginefni ritsins er lýsing á hugmyndum ýmissa hagfræðinga um samanburð á hágkerfum. Rannsóknir á hagkerfi og stjóm- kerfí geta skarast. Þannig lýsir höfundur þeirri kenningu Hayeks „að í blönduðu hagkerfi komi til sögu öfl, sem færi það smám saman til miðstýrðs hagkerfis. Með víðtækum ríkisafskiptum hrindi menn af stað þróun sem þeir ráði síðan ekki við“ (bls. 72). A íslandi er blandað hagkerfi sem og í (nær) öllum löndum Vestur-Evrópu. Kenningin gerir sem sagt ráð fyrir að slík þjóðfélög þróist yfir í alræð- isríki því að miðstýrð hagkerfí og almennt frelsi einstaklinganna em — samkvæmt sömu kenningu — ósamrýmanleg. Þarna tengjast kenningar um hagkerfi og stjórn- kerfi með þeim hætti að eðlilegt væri að íslenskur fræðimaður tæki íslenskt þjóðfélag til sérstakrar umfjöllunar í þessu samhengi og leitaðist við að svara þeirri spurn- ingu hvort kenning Hayeks eigi við hér á landi. I heild er Markaðsöfl og miðstýr- ing lýsing á ýmsum hagfræðikenn- ingum en telst ekki nema að nokkm leyti til fræðirita í stjórnmálafræði. Sem fyrr skrifar höfundur lipran texta. Auk þessara verka má nefna þijár ritgerðir: Um réttlætishugtak Hayeks og Nozics. Skírnir, 160. árg. 1986, bls. 231-281. í ritgerðinni fjallar höfundur um réttlætis- og frelsishugmyndir ofan- greindra fræðimanna. Er tilefnið ritgerðin „Hvað er réttlæti?" eftir Þorstein Gylfason sem birtist í Skími 1984, en þar gagnrýndi hann hugmyndir þeirra harðlega. Svarar höfundur gagnrýni Þorsteins og útskýrir jafnframt kenningar þess- ara manna ítarlega. Loks gagnrýn- ir hann kenningu Þorsteins um rétt- læti. Er ritgerðin vel skrifuð og af mikilli þekkingu á viðfangsefninu. John Locke og mannréttinda- hugtakið. Tímarit lögfræðinga, 37. árg. 1987. Hér lýsir höfundur helstu kenn- ingum Johns Lockes sem hann set- ur fram í ritinu „Ritgerð um ríkis- vald“. Er ritgerðin þarft innlegg í mannréttindaumræðuna þótt sumar kenningar höfundar séu umdeilan- legar, svo sem það sem hann segir um félagsleg réttindi. Gengishækkunin 1925. Lands- hagir, þættir úr íslenskri at- vinnusögu. Landsbanki íslands. Reykjavík 1986, bls. 199-232. Höfundur greinir hér frá aðdrag- anda og orsökum gengishækkunar- innar 1925 og eftirmálum á Al- 39 þingi. Höfundur skoðar þessa að- gerð í nokkuð öðm ljósi en hingað til hefur verið gert. Er ritgerð hans gott innlegg í hagsögu og stjórn- málasögu þessa tímabils þótt hún verði varla talin innlegg í eiginlega stjórnmálafræði. ^ Ólafur Þ. Harðarson (f.12.12. 1951). Stúdent 1973; lauk BA-prófi (stjórnmálafræði) frá Háskóla ís- lands 1977 og M.Sc.-prófi í stjóm- málafræði (Politics) frá London School of Economics and Political Science 1979. Náminu lauk með skriflegum prófum í þremur nám- skeiðum („Revolutions and Social Movements", „Political Behaviour", „Theories and Concepts of Political Sociology"); hefur lokið viðvem- skyldu vegna doktorsnáms við sama skóla. Umsækjandi var kennari á *■ gmnn- og framhaldsskólastigi; stundakennari í stjómmálafræði við HÍ frá ársbyijun 1980; lektor í stjórnmálafræði 1981-1985; að- junkt í stjórnmálafræði 1.6. 1985 til 1.2. 1986; var þá settur í hálfa stöðu lektors í aðferðafræði við fé- lagsvísindadeild en jafnframt sinnt umfangsmikilli kennslu í stjóm- málafræði. Umsækjandi annaðist útgáfu þriggja ritá í ritröðinni „ís- lensk þjóðfélagsfræði"; hefur átt sæti í stjóm Félagsvísindastofnunar Háskóla Islands frá stofnun hennar 1985. Umsækjandi leggur fram rita- skrá og er hér fjallað um helstu ritverk: Conservative Voting — The Icelandic Case in North- European Context. M.Sc. dissert- ation. London School of Economics and Political Science 1979,74 bls. Rit þetta var lagt fram við meist- arapróf í stjórnmálafræði við ofan- greindan skóla árið 1979. Fjallar það um flokkakerfið á íslandi og það borið saman við flokkakerfi í þremur öðmm ríkjum: Bretlandi, Noregi og Svíþjóð. Aðalefni þess er þó fræðileg greinargerð um þá sem kjósa hægri flokka, þar með talinn Sjálfstæðisflokkinn hér á landi. Mest áhersla er lögð á stétta- skiptingu, en minni á annars konar skiptingu, svo sem eftir trúarvið- horfum, menningammhverfi eða lífsskoðunum almennt. í inngangskafla hefði verið æski- legt að taka betur á þvi hvort til em einhver almenn lögmál um sam- setningú flokkakerfa eða viður- kenndar kenningar þar að lútandi. Þá hefði umsækjandi mátt gera gleggri grein fyrir en hann gerir á bls. 3 af hveiju flokkaskipting fram- angreindra ríkja er tekin til saman- burðar við íslenska flokkaskipun. Það er t.d. óljóst við hvað er miðað þegar umsækjandi segir að flokka-^ kerfin í Svíþjóð og Noregi séu dæmigerðari fyrir flokkaskipan á Norðurlöndum („approximate to a greater extent to a „pure“ model of a „Scandinavian system“) en flokkaskipan í Danmörku og Finn- landi. Loks hefði það verið til bóta ef umsækjandi hefði gert grein fyrir þeim aðferðum sem almennt em viðurkenndar í stjórnmálafræðinni við slíkan samanburð á flokkum og kjósendahegðun i ólíkum löndum. Slík greinargerð er einkar nauðsyn- leg þegar ísland er tekið til saman- burðar vegna margvíslegrar sér- stöðu þess, m.a. fámennis, sem ein- ^ mitt má ætla að hafi áhrif á við- fangsefni eins og það sem hér er tekið fyrir. I öðmm kafla ritsins er skýrt og lipurlega lýst flokkakerfinu í ríkjun- um fjómm og þess freistað að draga fram hið helsta sem áþekkt er og ólíkt. Á bls. 17 dregur umsækjandi fram þijú viðmiðunaratriði sem kunni að varpa ljósi á það sem á skilur með flokkakerfunum til við- bótar þeim sem þegar em rædd, en sá hluti kaflans hefði þó mátt vera ögn skipulegri miðað við þessi atriði. I þriðja kafla er einkum lýst tengslum milli stéttaskiptingar, nánar til tekið skiptingar í starfs- stéttir, og kosningahegðunar. í þeim þætti sem fjallar um ísland er einkum stuðst við opinberar tölur úr manntali á íslandi 1974. Nýrri tölur virðast ekki hafa verið tiltæk- ar. í kaflanum eru töflur um kjós- Sjá næstu síðu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.