Morgunblaðið - 16.07.1988, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988
41
1 *
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
7. hús
í dag er röðin komin að um-
fjöllun um 7. húsið. Lykilorð
eru náið samstarf, hjónaband,
maki og óvinir. Það er skylt
Vogarmerkinu og Venusi.
Félagslegu sviÖin
Hús eitt til sex fjalla um per-
sónulega mótun einstaklings-
ins. f 6. húsi, sem er síðasta
persónulega húsið, lýkur þess-
ari mótun. Frá og með 7. húsi
snýr þróunin við og við tökum
að móta líf okkar með tilliti til
umhverfísins og þjóðfélagsins.
AÖrir
7. húsið táknar þá orku sem
við viljum fá frá öðrum, en
segir einnig til um það, ásamt
Venusi, hvernig við göngum til
samskipta. Ef við höfum
Vatnsbera í 7. húsi löðumst við
að skynsömu og yfirveguðu
fólki en viijum um leið sjálf
vera skynsöm og yfirveguð.
SkilyrÖi sambandsins
Plánetur og merki í 7. húsi
segja einnig til um það hvaða
Væntingar við gerum til sam-
banda. Ef Satúmus er í 7.
húsi viljum við að hjónabandið
byggi á ábyrgð og skyldu-
rækni. Merkúr í 7. húsi getur
táknað að við löðumst að „gáf-
uðu“ fólki, eða þeim sem er
gaman að tala við, og setjum
því þau skilyrði að væntanlegur
maki sé fróður og skemmtileg-
ur.
Óvinir
7. húsið er táknrænt fyrir óvini
okkar. Það sem átt er við er
að orka þess er oft ómeðvituð,
ekki kannski síst vegna þess
að hún er það i okkur sem við
sækjumst eftir í fari annarra.
Yfirvörpun, það að varpa ein-
hvetju sem er i eigin fari yfir
á aðra og lifa þann þátt í gegn-
um aðra, en án ábyrgðar, því
það er hinum að kenna, hefur
mikið með 7. húsið að gera.
Maður sem hefur Úranus f 7.
húsi laðast þvf kannski að óút-
reiknanlegu og óáreiðanlegu
fólki sem vill spennu og breyt-
ingar, vegna þess að slíkt er í
hans eigin fari. Þegar hann er
síðan „svikinn" þá kennir hann
hinum um.
Skuggahlið
persónuleikans
7. húsið er andstaða Rfsandi
merkis, eða persónulegs stfls
okkar. Það er þvf einnig tákn-
rænt fyrir skuggann sem
myndast vegna framkvæmda
fyrsta hússins. Maki eða náin
samstarfsaðili er sá sem kynn-
ist okkur best og verður mest
var við skuggahliðamar. Á
meðan allt leikur f lyndi, er
þetta f góðu lagi, en þegar erf-
iðleikar steðja að í sambandi
tekur makinn að benda okkur
á veikleikana. Hann getur þvi
hæglega orðið að óvini, ef við
neitum að viðurkenna þá. Þeir
sem lenda oft f deilum ættu
því að skoða 7. húsið og Ven-
us, og afstöður á þessa þætti
og athuga hvaða ómeðvituð
orka það er í eigin fari sem
kallar á neikvæð viðbrögð frá
öðrum.
AÖ vinna meö öörum
Þeir sem hafa margar plánetur
f 7. húsi þurfa á nánu sam-
starfi að halda. S61 í 7. húsi
táknar að finna ég-ið f gegnum
náið samstarf. Þeir þurfa ein-
ungis að gæta þess að vera
sjálfstæðir f því samstarfi og
gera sér grein fyrir hvað er
þeirrá og hvað annarra. Venus
f 7. húsi er táknræn fyrir mann
sem á auðvelt með að vinna
með öðrum og er þægilegur f
samstarfi. Venus f 7. húsi get-
ur einnig táknað það að laðast
að listamönnum. Júpiter í 7.
húsi segir aftur á móti að sam-
skipti eigi að víkka sjóndeildar-
hringinn og getur því laðast
að útlendingum eða þeim sem
eru af ólíkum uppruna.
GARPUR
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
UÓSKA
FERDINAND
• ..iiMiniMiiMiiiiini
SMÁFÓLK
I WA5 JU5TTHINKING...
UIHATIF YOU PECIPE TO
5ENPME AVALENTINE?
HOU) OUILL YOU KNOLU1
. UUHERE TO 5ENP IT?
r^t
*
% var að liugsa ef þú
skyldir senda mér Valentí-
usar-kort.
Hvernig veistu hvert á að
senda það?
I U)0N T 0ECAU5E
YOU NEVERTELL ME
YOUR APPR BS5ÍÍ
ÉG SENDIÞAÐ EKKIÞVÍ
ÞÚ SEGIR MÉR ALDREI
HVAÐ ÞÚ ÁTT HEIMA!!
Af hverju ertu svona œst-
ur?
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Stundum er hægt að koma í
veg fyrir yfírvofandi stungu með
því áð klippa á samgang vamar-
innar áður en trompið er hreyft.
Slík spilamennska er kölluð
„skærabragð".
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ K5
VK72
♦ ÁD10765
♦ 74
Vestur
▲ OQ
Igg* ......
♦ ÁG1053
Austur
♦ Á74
VÁ4
♦ K94
♦ KD982
Suður
♦DG10962
V D8653
♦ 3
*6
Vestur Norður Austur Suður
— — 1 lauf i spaði
2 lauf 2 tíglar 3 lauf Pass
Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Útspil: hjartagosi
Komi lauf út vinnst samning-
urinn með réttri íferð í hjartað.
Sagnhafi spilar fyrst litlu á
drottninguna og svo smáu frá
báðum höndum. Eftir útspilið
er hjartaíferðin ekki lengur
vandamál, en annað kemur í
staðinn — stunguhætta. Austur
drepur á ásinn og spilar aftur
hjarta.
Nú má ekki fara beint af aug-
um í trompið. Austur drepur á
kónginn, spilar vestri inn á lauf
og fær fjórða slag vamarinnar
með því að trompa hjarta. Þetta
er hægt að fyrirbyggja með því
að taka fram skærin. Spila strax
tígli á ás og síðan drottning-
unni. Austur leggur væntanlega
kónginn á og þá er laufeinspilið
heima látið í slaginn. Þannig
rofnar samgangurinn f laufínu
og vestur kemst aldrei inn til
að gefa félaga stungu.
Eftir sagnir er þessi spila-
mennska sjálfsögð. Það eru allar
líkur á því að austur eigi bæði
spaðaás og tígulkóng.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á móti í Ungveijalandi f vetur
kom þessi staða upp í skák al-
þjóðlega meistarans Forgacs, sem
hafði hvftt og átti leik, og Csikos.
17. Bxf7+! - Kxf7 18. Rg5+ -
Kg8 (18. - Kf6 19. Rxh7+ -
Kf7 20. Db3+ var engu betra) 19.
Db3+ og svartur gafst upp, því
hann er kæfingarmát eftir 19. —
Kh8 20. Rf7+ - Kg8 21. Rh6++
- Kg8 22. Dg8+ - Rxg8 23. Rf7.