Morgunblaðið - 16.07.1988, Side 54
54
MORGUNBLAÐDD IÞROTTIR LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
„Þumalfingurinn blés
út eins og blaðra"
- sagði Guðmundur Hreiðarsson, markvörðurVíkings
GUÐMUNDUR Hreiðarsson,
markvörður Víkingsliðsins,
meiddist á þumalfingri á æf-
ingu á fimmtudagskvöldið og
mun hann að öllum líkindum
ekki leika með Víkingsliðinu
gegn KR í 1. deildarkeppninni
annað kvöld.
umalfmgurinn stakkst ofan í
grasið, þannig að það teigðist
á liðböndum og blæddi inn á lið.
Fingurinn blés út eins og hann
væri blaðra," sagði Guðmundur,
sem fór á slysadeild Borgarspítal-
ans, þar sem fingurinn var settur
í gifs. I gær var gifsið tekið af og
fingurinn teipaður. „Það eru litlar
líkur á að ég geti leikið með Víking-
um gegn KR. Vonandi verð ég orð-
inn góður fyrir bikarleikinn gegn
FH á miðvikudaginn kernur," sagði
Guðmundur. Það kemur í ljóst eftir
helgina hvort að liðböndin séu rifin.
„Ég vona að svo sé ekki.“
Víkingsliðið í sókn
Guðmundur sagði að Víkingsliðið
væri í sókn eftir slaka byrjun. „Eft-
ir að breytingarnar voru gerðar hjá
okkur, þá hefur orðið uppgangur
og hart barist um stöður í liðinu.
Það var barátta hjá okkur gegn
Þór og einnig í leiknum gegn
Keflavík, sem við unnum, 3:1.“
Framarar eru búnir að rústa
mótinu
„Ég var svo sannarlega svekktur
þegar ég fékk fréttimar frá Hlíð-
arenda, þar sem ég var á slysadeild-
inni. Framarar eru búnir að rústa
mótinu - spennan er búin. Nú er
aðeins eftir baráttan um annað
sætið og svo að sjálfssögðu fallið.
Það hefur komið mér svo sannar-
lega á óvart hvað Valsliðinu hefur
gengið illa. Valsmenn eru með
sterkasta kjamann. Menn þurfa
ekki annað en líta á bekkinn hjá
Valsmönnum, til að sjá hvað þeir
em með sterkan mannskap.
Framarar eru einnig með góðan
hóp. Ellefu til þrettán mjög
skemmtilega leikmenn, sem hafa
mjög gaman að því sem þeir eru
að fást við,“ sagði Guðmundur.
Guðmundur Hreiðarsson, mark-
vörður Víkings.
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Bjarni Sigurðsson, landsliðsmark-
vörður í knattspymu, sem leikur með
Brann.
Bjami Sig-
urðssoná
heimleið?
BJARNI Sigurðsson, landsliðs-
markvörður sem leikur með
Brann í Noegi, mun að öllum
líkindum koma heim til íslands
næsta sumar og leika í 1. deild-
inni.
Æ'
Eg hef haft það mjög gott hér
í Bergen. Ég klára skólann
næsta vor og þá fer maður senni-
lega heim,“ sagði Bjami Sigurðsson
ggm í samtali við Morg-
Frá unblaðið. „Sonur
Sigurjóni okkar fer að komast
Einarssyni 4 skólaaldur og við
iNoregi „íu„™ „a v,a„„
í íslenskan skóla svo maður fer að
hugsa að heimferð fyrir alvöru.“
Bjarni sagðist veratilbúinn í slaginn
í haust með íslenska landsliðinu ef
farið verður fram á það við hann.
Um möguleika íslendinga í undan-
keppni HM sagði Bjarni, að riðillinn
væri að sjálfsögðu mjög erfiður.
„En við getum gert usla, og ekkert
lið er lengur öruggt með sigur gegn
•okkur, einkum og sér í lagi á heima-
vellisagði Bjami. Eins og menn
muna þá hafnaði Bjarni tilboði frá
IFK Gautaborg á dögunum.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Fimmtán leikmenn fara á
Ólympíuleikana í Seoul
FIMMTÁN handknattleiks-
menn fara á Ólympíuleikana
í Seoul. Það er nokkuð Ijóst
hvaða leikmenn það verða,
enda er lokaundirbúningurinn
kominn á fulla ferð og fyrsta
verkefni landsliðsins stendur
yfir í A-Þýskalandi, þar sem
sautján leikmenn eru.
ir leikmennimir sem fara til
Seoul verða valdir úr hópn-
um, sem er í A-Þýskalandi.
Fimmtán leikmenn em nær
öryggir með farseðilinn til Seoul.
Markverðirnir Einar Þorvarðar-
son 0g Brynjar Kvaran. Homa-
mennimir Jakob Sigurðsson,
Bjarki Sigurðsson, Karl Þráinsson
og Guðmundur Guðmundsson.
Línumennimir Þorgils Óttar
Matthiesen og Geir Sveinsson.
Vinstrihandarskytturnar Kristján
Arason og Sigurður Sveinsson.
Hægrihandarskyttumar Alfreð
Gíslason og Atli Hilmarsson.
Stjómendurnir Páll Ólafsson og
Sigurður Gunnarsson. Aðeins
meiðsli geta komið í veg fyrir að
þessir leikmenn detti úr hópnum.
Þá er eitt sæti eftir. Júlíus Jónas-
son eða Þorbergur Aðalsteinsson
fá það sæti.
Óneitanlega er þetta geysilega
öflugt landslið, sem hefur mikla
reynslu að baki. Liðið er eitt
reynslumesta landslið heims.
ÁSGEIR
Framliðið hefur náð Mbærum árangri undir stjóm Asgeirs
Hans mottó er að tefla fram til sigurs hveiju sinni
Ásgeir er þjálfari sem allir bera mikla virðingu fyrir
Framliðið hefur náð ótrúleg-
um yfirburðum í 1. deildar-
keppninni í knattspymu, þegar
deildarkeppnin er rétt hálfnuð.
Liðið hefur leikið mjög vei.
Skipulagða og agaða knatt-
spymu. Leikmenn
liðsins hafa látið
knöttinn ganga
manna á milli og
sóknaraðgerðir Iiðs-
ins hafa byijað frá
aftasta manni. Það
er ekki oft sem
markvörður liðsins
spyrnir knettinum
frá marki - hann
kastar knettinum
yfirleitt til næsta
manns og þar með
hefjast sóknarað-
gerðir Framliðsins.
Maðurinn á bak við
árangur og vel-
gengni Fram er Ás-
geir Elíasson, hinn
hægláti og yfirveg-
aði þjálfari liðsins.
Ásgeir, sem er
landsliðsmaður í
knattspymu, hand-
knattleik og blaki,
er geysilega út-
sjónasamur. Ásgeir
er drengur góður,
sem vinnur eftir
mottóinu: „Komdu
fram við aðra, eins
og þú vilt að komið
sé fram við þig.
Hroki og mikillæti
þekkjast ekki í framkomu Ás-
geirs, sem hefur yfir fomstu-
hæfíleikum að ráða.
Ásgeir er mjög fjölhæfur og
til sigurs.
Ásgeir, sem lék með Framliðinu
á ámm áður, sýndi strax hæfi-
leika sína sem þjálfari hjá Þrótti,
en undir stjórn hans náði lið
Þróttar mjög góðum árangri í
1. deild og lék skemmtilega
knattspymu. Ásgeir kom svo
aftur til Fram 1985 og undir
stjórn hans hefur Framliðið náð
ÁSGEIR Elíasson
hefur ekki veriö meö mikiilæti, þó aö Framliöiö
hafi náö góöum árangri undir hans stjórn. Þaö er
hugsun bak viö hvern leik hans viö „skákboröið. “
ÁSGEIR
hefur skotið mörgum erlendum þjálfurum ref fyrir rass á undanförnum
árum. Hér sést hann með Jim Barron, fyrrum þjálfara Skagamanna.
klókur keppnismaður. Þegar
hann setur upp „prakkarasvip-
inn“ - tottar pípu sína og glott-
ir, þá vita þeir sem hann þekkja,
að eitthvað óvænt er í uppsigl-
ingu. Ásgeir er einn af gömlu
góðu „refunum." Það er sama
hvaða leik hann tekur þátt í -
fljótlega kann hann ýmsa galdra
leiksins. Honum finnst gaman
að spila bridge 0g golf, var
snjall knattborðsspilari og er
lunkinn við taflborðið.
Hæfíleikar Ásgeirs að tefla hef-
ur komið fram í leik Framliðs-
ins, enda er það styrkur fyrir
þjálfara að vera góður í skák.
Ásgeir hefur teflt leikmönnum
sínum rétt fram í sumar og hann
les leikinn vel. Vanhugsaður
leikur sést afar sjaldan í leik
Framliðsins. Ásgeir sættir sig
ekki við stórmeistarajafntefli -
hans takmark er að tefla fram
mjög góðum árangri. Fram hef-
ur einu sinni orðið Islandsmeist-
ari - 1986, tvisvar bikarmeist-
ari - 1985 og 1987. Tvisvar
Reykjavíkurmeistari - 1985 og
1986. Tvisvar hefur Fram unnið
Meistarakeppni KSÍ - 1985 og
1986.
Það er mikill styrkur fyrir
íslenska knattspyrnu að fá að
njóta hæfileika Asgeirs, sem er
tvímælalaust landsliðsþjálfari
framtíðarinnar. Ásgeir er maður
sem kemur sér beint að efninu,
er ekki með „kafbátastarfs-
semi.“ Hann hefur ekki barið á
bumbur, verið með mikillæti og
gert lítið úr leik andstæðinga
sinna. Þessa framkomu ættu
sumir að taka sér til fyrirmynd-
ar.
Sigmundur Ó.
Steinarsson