Morgunblaðið - 27.07.1988, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.07.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 1988 19 Að vera hugsjónaríkur og baráttuglaður atvinnu- rekandi er bilun Það sagði mér gamall og greinar- góður íþróttamaður að menn þurfi að vera léttklikkaðir til þess að ná toppárangri í íþróttum. Sama má trúlega segja um íslenska atvinnu- rekandann. Baráttan blindar menn. Sama gera hugsjónir. Að vera hug- sjónaríkur og baráttuglaður at- vinnurekandi er því einhvers konar bilun. Þessi bilun er þó ómissandi næring fyrir þjóðfélagið. Af henni spretta allar framfarir og öll ný- sköpun sem ryðja öðrum braut. Stundum fara þeir á hausinn bless- aðir og eru úthrópaðir glópar. Stundum tekst þeim betur til og fara ekki á hausinn. Þá eru þeir hundeltir eins og glæpamenn, með sköttum, skýrslugerð og svívirðing- um í fjölmiðlum og manna á með- al. Islenskur ráðherra, úr Sjálfstæð- isflokknum í þokkabót, kallaði þá „gróðapunga". Það er talað um að veita þurfí meira eigin fé í íslensk fyrirtæki. Til hvers? Til að þau geti tapað því líka, eins og öllu hinu sem þau eru þegar búin að tapa? Á það fjármagn sem sett er í atvinnurekst- ur ekki að skila a.m.k. sama arði og Jjármagn sem sett er í banka- bók? Vitaskuld, og reyndar gott betur. Af hveiju í ósköpunum eiga atvinnurekendur sífellt að miða af- komu sína við hinn fræga núll- punkt. Núllið er nú ekki mikils virði sem fyrsti stafur í tölu. Hin nýja stétt Meðal okkar er risin upp ný stétt, verðbréfaspekúlantar. Þar er lífið ekki saltfiskur, heldur verð- bréf. Þar er lífssýnin afföll og vext- ir, skattfijáls arður, tvöföldun á raungildi höfuðstóls á 5 ára fresti. Lífsgleðin er þar mæld með láns- kjaravísitölu. Hamingjan felst í vax- andi höfuðstól. Hefðbundin upp- bygging atvinnulífs telst hégóminn einn. Mesti óvinur láglauna- mannsins Eitt af stærstu vandamálum íslenskra fyrirtækja er launakostn- aðurinn. Hann er alltof hár. Vanda- málið er ekki láglaunamaðurinn, sem með hálfgerðum töfrabrögðum tekst að framfleyta sér og sínum, heldur hinir sem ævinlega ryðjast inn um hurðina sem þjóðfélagið telur sig vera að opna fyrir lág- launamanninum. íslenski láglauna- maðurinn er notaður sem trójuhest- lyftí* vognar 'a Eigum ávallt fyrirliggjandi r.................... ■ hina velþekktu BV-hand- lyftivagna meö 2500 og1500kílóa lyftigetu. UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN B/LDSHÖFÐA 16 SÍML 6724 44 ur fyrir þá sem í raun halda kjörum hans niðri. Hafi menn talið að það séu atvinnurekendur sem halda kjörum láglaunamanna niðri, hljóta þeir að komast að öðru, þegar fyrir- tækin fara nú á hausinn hvert af öðru. Mesti óvinur láglaunamanns- ins er verkalýðsfélag hálauna- mannsins, sem af ótrúlegri óbilgirni herðir að hálsi atvinnulífsins með skæruverkföllum, hópuppsögnum og vinnutöfum, allt í skjóli þeirra samninga sem menn voru sammála um að óhjákvæmilegt væri að gera við láglaunahópana. „Tölvustýrðirjarðskjálfta- mælar“ íslenskir fjölmiðlar tíunda sam- viskusamlega fyrir okkur ná- grannakritur út á annesjum, skýra frá sinubruna í Fossvogi og sýna magnað hugvit í endalausri viðleitni sinni við að etja saman barnalegum ráðherrum. Á meðan brennur Róm íslenska hagkerfisins, atvinnulífið, sem allt stendur og fellur með, án þess að menn á fjölmiðlabænum rumski. Athyglisvert er t.d. að lesa baksíðu Mbl. laugardaginn 23. júlí 1988. Þar standa hlið við hlið ein- dálka frétt af fíkniefnasmyglara í Leifsstöð og önnur eindálka frétt um að „Gjaldþrot séu komin langt yfir eðlileg mörk“. Hálf baksíðan, með fjögurra dálka frétt, er þessi: „Tölvustýrðir jarðskjálftamælar reyndir við Kröflu“. Það mega íslenskir fjölmiðlar vita að það er víðar heitt undir fæti en við Kröflu. Stærsta auðlindin ónotuð í sjálfsævisögu Lee Iacocca, hins litríka forstjóra Chrysler-bílaverk- smiðjanna í Bandaríkjunum, segir hann frá baráttu sinni við að endur- reisa fjárhag verksmiðjunnar, en þar blasti hrun við. Hann boðaði til fundar með fulltrúum launþega- samtakanna. í stað þess að láta framleiðsluna stöðvast vildi hann freista þess að ná samstöðu um að launin yrðu lækkuð um stundarsak- ir svo takast mætti að fá hjól fyrir- tækisins til að snúast. Launþegar mátu stöðuha svo að betri væru lægri laun en engin laun. Á stuttum tíma var síðan vöm snúið í sókn og í dag stendur fyrirtækið með mikl- um blóma og greiðir sínu fólki góð laun. Fyrir nokkrum árum nefndi ég það við þýskan athafnamann, sem hér hefur starfað í áratugi og víða farið, að ég dáðist mjög að dugnaði Þjóðverja. Hann svaraði að bragði að íslendingar væru miklu duglegri, það kæmist engin þjóð í hálfkvisti við þá. Trúlega er þetta ekki fjarri sanni. Við höfum öll skil- yrði til þess að afla vel, en þá verð- um við líka að róa. Það dugar ekki að hanga í landi og rífast um hvern- ig skipta eigi ófengnum afla. Við kveinkum okkur undan því að fiski- miðin séu ekki lengur sú auðlind sem var. Það má rétt vera, en við eigum samt okkar stærstu auðlind rétt við bæjardyrnar. Það er vinnu- friður og samstaða launafólks, at- vinnurekenda og stjórnmálamanna. Stærstur hluti íslenskra atvinnurek- enda eyðir vinnudegi sínum í aðkall- andi björgunaraðgerðir af margvís- legu tagi og vinnst hreinlega ekki tími til að skipuleggja betur rekst- urinn. Smáu málin verða stórmál — stóru málin verða að bíða. Ná- kvæmlega sama virðist vera að ske á stjórnarheimilinu. Ráðherrar hafa ekki vinnufrið hver fyrir öðrum. Það væri óskandi að okkur tækist að standa saman. í því felst von okk- ar. Þar bíður okkar stærsta auðlind- in. Höfundur er héraðsdómslögmað- ur og rekur fasteignasöluna Húsa- kaup. SKYWDIHAPPORJÍTTI Et sJiml I) aihÆom birtxit fwtivar. Kafió dí'nanhjf lienutr Það er engin tilviljun hvað Happaþrennan nýtur mikilla vinsælda - ástæðan er einfaldlega sú að það vinna svo margir! Á undanförnum 15 mánuðum hafa samtals fimm hundruð milljónir verið greiddar út í vinninga! Þar af hafa 150 þátttakendur hreppt stærsta vinninginn, 500.000 kr., 750 manns hafa fengið 25.000 kr. og svo hafa þúsundir hlotið lægri vinningana. mm Q □ HAPPAÞRENNAN HAPPAÞRENNA HEFUR VINNINGINN! HAPPDRÆTTIS HÁSKÓLANS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.