Morgunblaðið - 27.07.1988, Page 56
Tork þorrkor.
Þr#ar hrrínla-tf rr oatuHyo.
«6
Vesturgötu 2 Pósthólf 826
121 Reykjavik Simi (91) 26733
Nýtt
numer
692500
SJOVfl
MIÐVIKUDAGUR 27. JULI 1988
VERÐ I LAUSASOLU 70 KR.
Frankfurtflug Flugleiða:
Flogið með 5 tonn
af fiski í hverri ferð
SAMFARA auknu flugi Flugleiða til Frankfurt við Main í Þýska-
landi mun fyrirtækið hefja flutninga með ferskan fisk til borgarinn-
ar. Flugleiðir munu einnig bjóða upp á framhaldsflutninga með bílum
og flugvélum til annarra markaðssvæða í Þýskalandi frá Frank-
furt, sem er ein helsta flutningsmiðstöð Evrópu. Að sögn Sigmars
Sigurðssonar, forstöðumanns fragtsviðs Flugleiða, verður fyrsta
flugið 11. september, og upp frá því tvö flug á viku.
Að sögn Sigmars verða svokölluð
„pallaflug" til Frankfurt; fragtrými
fremst í flugvélunum en farþega-
rými fyrir aftan. Reiknað er með
að hægt verði að flytja um fimm
tonn af fiski í hverri ferð. Fiskinum
er pakkað í einangraða kassa og
plastfilmu, þannig að ekki er hætta
á að físklykt ónáði farþegana, að
sögn Sigmars.
„Við höfum reyndar flutt fisk til
flestra áfangastaða okkar í Evrópu,
en Frankfurt verður ný tengimið-
stöð við meginlandið," sagði Sig-
mar. Hann sagði að flugið til Frank-
furt kæmi á vissan hátt í stað flutn-
inga tii Lúxemborgar, en ferðum
þangað verður nú fækkað vegna
endurskipulagningar hjá Flugleið-
um. „Það verða að einhveiju leyti
viðskiptamenn, sem notað hafa
Lúxemborgarflugið, sem munu
senda fisk með vélum okkar, en
allmargir hafa sýnt þessum flutn-
ingum áhuga,“ sagði Sigmar.
T myí f r f&rfíjfjjjji
1 f ***■ * * ~
Morgunblaðið/KGA
Miklar skemmdir hafa orðið á þeim hluta Laugavegar, sem end-
urnýjaður var í fyrra.
Malbikað yfir nýju
steinana á Laugavegi
Kostnaður 2,2 milljónir króna
AÆTLAÐUR heildarkostnaður vegna viðgerða á skemmdum á
Laugavegi milli Frakkastígs og Klappastígs er 2,2 milljónir
króna. Að mati Inga Ú. Magnússonar gatnamálastjóra, er erfitt
að draga einhvem einn aðila til ábyrgðar fyrir skemmdum og
leggur hann til að kostnaði vegna viðgerða verði haldið í lág-
marki með malbiki í stað steinlagningar á svipaðan hátt og milli
Skólavörðustígs og Klapparstígs.
Þetta kemur fram í greinargerð
gatnamálastjóra, sem lögð hefur
verið fram í borgarráði. Þar segir
enn fremur að Verkfræðistofan
Línuhönnun hafi kannað ástæður
skemmda á Laugavegi og komist
að þeirri niðurstöðu að þær séu
margþættar og erfitt að greina
hvað hafí valdið þeim. Til að lag-
færa skemmdirnar þarf að taka
upp steina í götunni, hellur á bif-
reiðastæðum og fjarlægja þurr-
steypulag. Þá má reikna með að
hitalögn hafi skemmst þegar
steinar í yfírborði gengu til.
Með því að malbika yfír stein-
lögnina verður komist hjá lokun
götunnar á versiunartíma.
Ljósmynd/Óskar Sæmundsson
Mávur stelur steikum af grillum borgaranna
MÁVUR nokkur hefur undanfarnar þijár vikur ver-
ið staðinn að verki við þjófnað af grillum Breið-
hyltinga. Mávurinn er greinilega góðu vanur því
hann sækir mest í grillað nautakjöt og pylsur. Að
sögn Óskars Sæmundssonar, sem náði að mynda
mávinn þegar hann bjóst til að krækja sér í bita
af grilli í næsta húsi, hefur hans orðið vart víðar í
Breiðholtinu. Þannig varð vinafólk Óskars fyrir bú-
sifjum þegar mávurinn stal fínni nautasteik af grilli
fjölskyldunnar í Flúðaseli. „Það er eins og hann finni
á lyktinni að verið sé að grilla því að hann sveimar
um þolinmóður og bíður þess að fólk skreppi frá.
Þá lætur hann til skarar skríða og sest á grillið,
grípur góðgætið í gogginn og flýgur upp á næsta
húsþak og gæðir sér á velgjörningnum," sagði Óskar.
Siglufjörður:
Tveggja manna á
gimimíbát saknað
TVEGGJA manna frá Siglufirði var saknað í gærkvöldi. Leit hófst
þegar en hún hafði ekki borið árangur þegar Morgunblaðið hafði
síðast fregnir eftir miðnætti í nótt. Mennirnir sem saknað er, eru
báðir á þrítugsaldri.
Mennimir fóru frá Siglufirði á
15 feta gúmmíbát með utanborðs-
vél um klukkan 15.30 í gær. Talið
var að þeir hafi aðeins ætlað stutt
út. Hins vegar sást til bátsins við
Sauðanessvita rétt fyrir klukkan 6
í gærkvöldi og virtist hann þá vera
á leiðinni inn til Siglufjarðar.
Björgunarsveitin Strákar í Siglu-
fírði hóf leit í gærkvöldi. Þrir bátar
fóru til leitar en urðu að snúa við
vegna veðurs. Komu þeir inn til
Siglufjarðar rétt um miðnætti.
Norðaustan fímm til sex vindstig
voru við Sauðanessvita í gærkvöldi
og haugabrim, að sögn Trausta
Magnússonar vitavarðar. Skyggni
var mjög slæmt. Björgunarsveitar-
menn gengu einnig fjörur í gær-
kvöldi en sú leit hafði engan árang-
ur borið.
Mjög slæmt veður var I Siglufirði
í gær, rok og úrhellis rigning. Veg-
ir fóru sundur í vatnavöxtunum og
torveldaði það björgunarmönnum
leitarstörf.
Veðurhorfur um verslunarmaimahelgina:
Bjart sunnanlands
Morgunblaðió/ AM
GERT er ráð fyrir svipuðu veð-
urfari næstu daga allt fram á
laugardag. Ekki var komin spá
fyrir sunnudaginn, þegar haft
var samband við Veðurstofuna í
gærkvöldi.
Föstudagurinn verður með svip-
uðu veðri og nú, en dregur þó úr
vindi, norðan- og norðaustanátt
ríkjandi. Á laugardag verður norð-
austanátt, líkur á léttskýjuðu veðri
sunnanlands, en skýjuðu með úr-
komu norðan- og austanlands.
Sex útihátíðir verða um helgina,
í Bjarkalundi, á Melgerðismelum, í
Atlavík, Galtalæk, Vík í Mýrdal og
Hetjólfsdal í Vestmannaeyjum og
búast má við þúsundum gesta á
hveija. Forráðamenn „Fjörs ’88“ á
Melgerðismelum búast til dæmis við
8.000 manns á hátíðina. Auk þess
er búist við fjölda manns á aðra
ferðamannastaði. Tugþúsundir
verða því á faraldsfæti eða í tjöldum
þessa helgi.
Sjá upplýsingar um útihátíðir
á siðu 22.
fHtfgtsnttbiMfe
Auglýsend-
ur athugið
Athygli auglýsenda er vakin á
því að síðasta blað fyrir verzl-
unarmannahelgi kemur út
laugardaginn 30. júlí. Auglýs-
ingar, sem birtast eiga í blað-
inu, þurfa að berast auglýs-
ingadeild Morgunblaðsins fyrir
kl. 16 fimmtudaginn 28. júlí.
Fyrsta blað eftir verzlunar-
mannahelgi kemur út miðviku-
daginn 3. ágúst og þurfa aug-
lýsingar í það blað að berast
fyrirkl. 17 föstudaginn 29.júlí.