Morgunblaðið - 03.09.1988, Side 52
52
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988
ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA / ÓLYMPÍULEIKAR
Fjórtán íslend-
ingar til Seoul
ÓLYMPÍULEIKARfatlaðra, þeir
8. í röðinni, verða haldnir í
Seoul í S-Kóreu dagana 15.-24.
október. Keppendur verða alls
um 4000 en aðstoðarmenn um
1000. Notaðir verða sömu vell-
ir og sömu hótel og á hinum
hefðbundnu Ólympíuleikum.
Fjórtán íslenzkir íþróttamenn
taka þátt í leikunum, tíu sund-
menn, þrír frjálsíþróttamenn
og einn borðtennismaður. Með
þessum fjórtán íþróttamönn-
um fara þjálfarar, fararstjórar
og aðstoðarmenn, samtals níu
talsins.
Þetta er í þriðja sinn sem Island
tekur þátt í Ólympíuleikum
fatlaðra. Árið 1980 fóru leikamir
fram í Hollandi og unnu íslenzku
^■■■■1 keppendurnir þá til
Guðmundur einna gullverðlauna
Jóhannsson 0g einna bronsverð-
skrifar launa. Árið 1984
fóm leikamir fram
í tveimur löndum, Bandaríkjunum
og Bretlandi. Þá unnu íslenzku
keppendumir tvenn silfurverðlaun
og níu bronsverðlaun. Gullið 1980
fékk Sigurrós Karlsdóttir fyrir 100
m bringusund.
íslenzku þátttakendumir und-
irbúa sig nú af krafti fyrir leikana
og hafa meðal annars verið starf-
ræktar æfíngabúðir fyrir þá tvisvar
í sumar. Einnig er stefnt að því að
þeir komist allir á mót erlendis fyr-
ir Ieikana. Sundmennimir fóm fyrir
skömmu á opna hollenzka meistara-
mótið í sundi en fijálsíþróttamenn-
irnir fara á mót í Þýzkalandi seinni
hluta septembermánaðar. Erlingur
Jóhannsson hefur að mestu annast
þjálfun sundmannanna en fijálsí-
þróttamennimir hafa notið leið-
sagnar Stefáns Jóhannssonar, þjálf-
ara.
Góðir möguleikar
Keppendumir íslenzku em á
aldrinum 14-32 ára og þar af flest-
ir í yngri kantinum. Vonast er til
að þeir nái sínu bezta á leikunum.
Miklar vonir em bundnar við Hauk
Gunnarsson en hann á heimsmet í
400 m hlaupi í sínum flokki og á
auk þess góða möguleika á sigri í
100 m hlaupi og 200 m hlaupi.
Kristín R. Hákonardóttir og Geir
Sverrisson eru líkleg til afreka í
sundi en þau settu heimsmet opna hollenzka meistaramótinu á dögun- um. Aðrir sundmenn eru einnig líklegir til að ná góðum árangri. Eftirtaldir íslendingar fara á Ólympíuleika fatlaðra: Sundmenn:
ÍFS
UMFN
Lilja M. Snorradóttir ...Tindastóli
ÍFA
ÍFR
ÍFR
ÍFR
ÍFR
ÍFR
Fijálsar fþróttír:
Haukur Gunnarsson Ifr
ÍFR
Borðtennis: Elvar Thorarensson ÍFA
Aðalfararstjóri:
Ólafur Jensson
Þjálfarar:
Markús Einarsson
Erlingur Jóhannsson
Stefán Jóhannsson
Sveinn Áki Lúðvíksson
Aðstoðarmenn:
Ólafur Magnússon
Anna K. Vilhjálmsdóttir
Sigrún Kjartansdóttir
Enn vantar mllljón
íþróttasamband fatlaðra hefur
eigin ólympíunefnd sem annast
undirbúning og fjáröflun fyrir leik-
ana. Áætlaður kostnaður við þátt-
töku er um 3,5 milljónir króna. Ein
milljón króna hefur fengizt á §ár-
lögum ríkisins og ein og hálf milljón
hefur safnazt hjá ýmsum aðilum,
svo sem sveitarfélögum, fyrirtækj-
um og góðgerðafélögum.
Ennþá vantar því um eina milljón
króna til að dæmið gangi upp. Von-
ast er til að endar náist saman á
næstu vikum.
„Æfi tvisvar á dag
fram að leikunum"
- segir Geir Sverrisson, sem setti nýlega
heimsmet í 200 m bringusundi
„ÉG byrjaði að æfa fyrir einu
og hálfi ári en fyrir þann tíma
hafði ég bara verið í skóla-
sundi. Nú æfi ég tvisvar á dag
fyrir leikana og á aðeins frí á
sunnudögum", sagði Geir
Sverrisson, sundmaður í
samtali við Morgunblaðið.
Geir er einn þeirra tíu sund-
manna, sem keppa munu á
Ólympíuleikum fatlaðra í Seo-
ul íhaust.
Geir keppir í flokki sund-
manna sem vantar framan á
hægri handlegg rétt framan við
olnboga. Hann er 17 ára, á heima
í Keflavík en stundar æfingar með
UMFN og stundar nám við Fjöl-
brautaskóla Suðumesja. Hann
stundar æfíngar hjá Friðriki Ól-
afssyni, sem einnig hefur þjálfað
Eðvarð Þór Eðvarðsson og Ragn-
heiði Runólfsdóttur. Auk þess
æfir Geir í Reykjavík undir stjóm
Erlings Jóhannssonar, sundþjla-
fara.
Bringusund er sérgrein Geirs
og nýlega setti hann heimsmet í
200 m bringusundi í sínum flokki,
3.03,55 mín. Hann er fjölhæfur
og tekur þátt í fleiri sundgreinum.
„Eg geri mér vonir um að komast
á verðlaunapall. Það þýðir ekkert
annað en að vera bjartsýnn á
þetta", sagði Geir, sem stöðugt
hefur verið að bæta sig upp á
síðkastið.
á Laugardalsvelli í dag kl. 14.00
Tryggir Fram sér íslandsmeistaratitilinn í dag?
Munið Evrópuleik Fram gegn Barcelona á miðvikudag.
Haukur Gunnarsson.
Morgunblaðið/KGA
Er ekki eins
taugaóstyrkur
ogfyrst
- segirHaukurGunnarsson, heimsmethafi
Í400 m hlaupi
,u
„ÉG er orðinn vanur því að
keppa og er ekki eins taugaó-
styrkur og ég var fyrst. Mór
hef ur gengið vel í mótum en
veit samt að ég á við nokkra
erfiða keppinauta að eiga“,
sagði Haukur Gunnarsson
hlaupari í samtali við Morg-
unblaðið.
Haukur keppir í ákveðnum
flokki „spastfskra" hlaupara.
Hann setti nú í sumar heimsmet
í 400 m hlaupi, 61,01 sek og á
einnig góðar vonir um sigur í 100
m hlaupi og 200 m hlaupi. Hauk-
ur er 21 árs. Hann er í Iþróttafé-
lagi fatlaðra í Reykjavík en æfir
mikið með Ármanni undir stjóm
Stefáns Jóhannssonar, ftjálsí-
þróttaþjálfara.
„Hættulegustu keppinautar
mínir í 400 metrunum eru tveir
Kanadamenn en í 100 og 200
metrunum er það Dani sem er
erfíðastur. Það verður svo bara
að koma í ljós hvemig mér geng-
ur á leikunum en ég er bjartsýnn
og ætla að gera mitt bezta", sagði
Haukur.
Geir Sverrisson heimsmethafi í 200 m bringusundi.
Morgunblaðið/KGA