Morgunblaðið - 07.09.1988, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1988
17
verður gjaman tortrygginn, þung-
lyndur, kvíðinn eða óstýrilátur. Sá
sem lokaður er af með sínum líkum
verður öryggislaus { samskiptum
við aðra og heimur hans, heims-
mynd og sjálfsmynd, verður brengl-
aður. Það hindrar þó ekki að sá sem
einungis lifír með sínum líkum geti
lært að láta sér það vel Kka, en
hann veit þá aldrei hvers hann fór
á mis og enginn veit af hvaða
þroskamöguleikum hann missti —
og hver er sá sem tekur á sig slíka
ábyrgð.
Það var gjaman svo að því meir
sem bamið var fatlað þeim mun
betur var það vemdað og því þyngra
varð áfall þess þegar það kom út
meðal annarra manna.
Það er sem sé upp úr 1950 sem
ný viðhorf tóku að ryðja sér til rúms,
samskipan, blöndun, normun („in-
tegrering") voru hugtök sem svifu
yfir heimsbyggðina. Foreldrar tóku
víða höndum saman og óskuðu eft-
ir stuðningi til þess að geta haft
fötluð böm sín heima. Samtök að-
standenda, áhugamanna, fag-
manna og leikmanna þinguðu og
ræddu og síðast en ekki síst fór að
bera á því að fatlaðir sjálfír létu frá
sér heyra — fyrst þeir sem gátu
komið hugsunum sínum hjálpar-
laust frá sér, svo sem lamaðir, blind-
ir og heymarlausir en síðar einnig
þeir alvarlega hreyfihömluðu
og/eða þroskaheftu sem með aðstoð
eftir áralanga þjálfun gátu miðlað
hugsunum sínum til umheimsins.
Þau skilaboð sem komu frá fötl-
uðum vom og eru ótvíræð, ég nefni
hér nokkur þeirra sem látið hafa
frá sér heyra meira af handahófí
en að um skipulagða upptalningu
sér að ræða, en þó til sérstakrar
undirstrikunar. Fyrst nefni ég
ungu, íslensku stúlkumar Ásdísi
Jennu Ástráðsdóttur og Sigríði Ósk
Jónsdóttur, báðar alvarlega hreyfí-
og málhamlaðar sem talað hafa til
okkar með ljóðum sínum.
Christopher Nolen, írskur ungl-
ingur með sömu fötlun og stúlkum-
ar sem ég nefndi áðan, gaf út
sjálfsævisögu stna, „Under the Eye
of the Clock", og vann með henni
til verðlauna í Bretlandi fyrir bestu
ævisöguna árið 1987. Hann lýsir
lífi sinu og segir m.a: „Taktu mark
á mér eins og ég er og ég skal
taka mark á þér eins og tekið er
mark á þér“.
Suður-afrfski-breski rithöfundur-
inn David Wright varð heymarlaus
sjö ára gamall. Hann gaf út bókina
„Defness a Personal Account" árið
1969, þá tæplega fímmtugur, en
þar lýsir hann hve erfítt það er
fyrir heymarlausan að nálgast heim
hinna heyrandi en jafnframt hve
mikilvægt og lífsnauðsynlegt það
er.
Sænski rithöfundurinn Gunnel
Enby lamaðist upp að mitti á ungl-
ingsaldri. Hún gaf út bókina „Vi
máste fá falska" árið 1972, þá 31
árs að aldri þar sem hún, fyrir hönd
allra fatlaðra spyr m.a. hveijum
eigi að auðnast ást.
Sænski lýðháskólaneminn Elisa-
beth Broberg, sem fædd er mongo-
liti (down-syndrome) og hreyfí- og
málhömluð, hélt ræðu.á þingi nor-
rænu samtakanna um málefni
þroskaheftra, NFPU, í Uppsölum í
ágúst sl. Ég hef áður vitnað ( hana
og geri það enn, en hún sagði með-
al annars: „Ég veit að ég er þroska-
heft og get ekki talað eins og þið
og gert alía sömu hluti og þið en
ég veit að ég er samt alveg jafn
mikilvæg.
Á alþjóðlegri ráðstefnu (Jerúsal-
em 1968 sem alþjóðasamtök for-
eldra og styrktarfélaga þroska-
heftra stóðu að, var gefin út yfirlýs-
ing þess eðlis að stefna bæri að
fullu jafnrétti á öllum sviðum og
hæfíngu að samfélaginu. Allir
þroskaheftir ættu rétt á fíillkominni
þjónustu sem gengi út frá hug-
myndum samskipunar, þ.e. að
þroskaheftir skulu búa við eðlilega
lifshætti og axla ábyrgð (samræmi
við getu við svipuð skilyrði og aðrir
í samfélaginu. Yfírlýsingin gekk
þvert á þá stefnu sem vlðast var
fylgt og búseta á stofnun er ( al-
gerri andstöðu við hana. Yfírlýsing
samtakanna var birt ( skýrslu sem
gefin var út á vegum Sameinuðu
þjóðanna 1976.
Fleiri félagasamtök hafa gefið
út sambærilega stefnuyfírlýsingu
og er nærtækast að nefíia Lands-
samtökin Þroskahjálp og norrænu
samtökin NFPU sem Þroskahjálp á
aðijd að.
í greinargerð sem fýlgir lögum
um málefni fatlaðra segir orðrétt:
„Á þrítugasta og fyrsta allsheij-
arþingi Sameinuðu þjóðanna árið
1976 var samþykkt að lýsa því yfír
að árið 1981 skyldi vera alþjóðlegt
ár fatlaðra. Með þessari samþykkt
ákvað þingið að það ár skyldi helg-
að þeim markmiðum að bæta hag
fatlaðra á ýmsum sviðum sem nán-
ar greindi í ályktun þingsins undir
kjörorðinu „Full þátttaka og jafn-
rétti“. í ályktun allsheijarþingsins
var langt til að sú grundvallarregla
ætti að gilda að fyrirbyggjandi að-
gerðir, úrbætur á kjörum fatlaðra
og félagsleg og starfsleg endur-
hæfíng ættu að verða mikilvægir
þættir f félagslegri áætlunargerð í
hveiju landi og að hinar sérstöku
þarfír fatlaðra bæri að virða á öllum
stigum efnahagslegrar og félags-
legrar áætlunargerðar. Af þeim
sökum var talið að alþjóðaár fatl-
aðra gæti gegnt mikilsverðu hlut-
verki sem hvati á ríkissijómir til
að gefa nægilegan gaum að bættum
kjömm þessa þjóðfélagshóps og
virkjuðu hann í félagslegri og efna-
hagslegri þróun landa sinna. Enn-
fremur var lagt til að athyglinni
yrði beint að hinum sérstöku vanda-
málum sem ýmsir einstaklingar
eiga við að stríða til að tryggja
þeim öllum viðeigandi meðferð án
þess þó að það leiddi til einang-
mnar viðkomandi." Síðar í sömu
greinargerð segir:
„Meðal þeirra aðgerða sem lagð-
ar vom til var að endurskoðuð yrði
gildandi löggjöf er snertir málefni
fatlaðra og gerðar tillögur um ný
ákvæði varðandi þá, sérstaklega
þau sem fjalla um vemd gmndvall-
arréttinda fatlaðra, t.d. menntun,
endurhæfíngu, atvinnu og fram-
kvæmd á markmiðum alþjóðaárs-
ins.“
Og þá höfum við aðdragandann
að setningu laga um málefni fatl-
aðra sem undirrituð vom árið 1983
og að þeirri hugmyndafræði sem
höfð var til viðmiðunar. Þótt fínna
megi ýmsa hnökra á þessum lögum,
þá á andi þeirra samhljóm með
þeim viðhorfum til fatlaðra sem
hlotið hafa alþjóðlega viðurkenn-
ingu, þ.e. að fatlaðir skuli búa við
sömu skilyrði og aðrir ( þvf sam-
félagi sem þeir lifa (.
Við trúum því að einhver tilgang-
ur sé með lffí okkar þótt við sjáum
hann misvel. Margir sjá ekki að um
sumt hefur fatlaður stærra hlutverk
en hinn sem ófatlaður er. Það er
mikilvægt fyrir hveija þjóð að gagn-
kvæmur skilningur rfki meðal þegn-
anna innbyrðis þvf sá skilningur
eykur líkur á gagnkvæmum skiln-
ingi þjóða ( milli og þar með frið-
samlegu lífí. Þann skilning upp-
skerum við betur ef við sameigin-
lega, svo ól(k sem við erum, tökum
þátt f daglegu lffí.
Gamli maðurinn leit ströngum
augum á dóttur sfna og sagði:
„Skildu drenginn eftir hjá mér
þegar þú ferð í heimsókn á þetta
heimili. Hann getur skaðast á sál-
inni við að fara til þeirra."
„Mamma, af hveiju er afi svona
hræddur við þroskahefta? Veit hann
ekki að við erum öll einhvem veg-
inn öðruvísi og að það er ekkert
hættulegt?" spurði sjö ára drengur-
inn skömmu sfðar, en hann hafði
verið þijú ár á leikskóla með tveim-
ur fötluðum bömum, hreyfihaml-
aðri stúlku og mongolita, auk þess
sem hann var á öðra ári í grann-
skóla og sat við hlið þroskaheftrar
stúlku.
Snáðinn hefði sjálfsagt tekið
undir málsháttinn sem stóð f dag-
bókinni minni 24. ágúst sl., en þann
dag skrifaði ég þessar Ifnur. Ég
geri þennan málshátt að lokaorðum
mfnum, en hann er svona: „Notaðu
alla hæfíleika þína. Skógurinn væri
þögull ef þar syngi enginn fugl
nema sá sem best syngur.“
Höfundur er sálfræðingur hjif
Svæðisstfóm Norðurlands eystra.
Grein þessi var upphaflega flutt
sem erindi A aukkþingi Þroska-
hjÁlpjir og öryrkjabsndslsgsins
hinn 27. Agúst sl.
Opnum í dag hina árlegu haustútsölu okkar,
á veiðifatnaði, þar á meðal jökkum, vestum,
kuldafatnaði, regnfatnaði, peysum og o.m.fl.
20-40% afsláttur
Hausttilboð
Bjóðum viðskiptavinum vorum
afslátt af öllum öðrum vörum meðan
útsölunni stendui
Langholtsvegi 111
104 Reykjavik i 6870'90
.. 'W —...-.---..
Þegar þú innleysir spariskírteini
í Búnaðarbankanum færðu
trausta leiðsögn í peningamálum
Búnaðarbankinn veitir alla þjónustu við innlausn á spari-
skírteinum ríkissjóðs, kaup á nýjum spariskírteinum eða val á öðrum
spamaðarleiðum.
Bankinn annast innlausn spariskírteina í öllum afgreiðslustöðum
sínum, en nú í september eiga margir eigendur spariskírteina kost á
að innleysa þau.
Sérfmðingar bankans veita góð ráð í peningamálum. í mörgum
tilvikum er tvímœlalaust rétt að innleysa spariskírteini og huga að
kaupum nýrra skírteina eða öðrum spamaðarkostum. í öðrum
kemur til álita að fresta innlausn.
Við bendum þeim sem innleysa spariskírteini
sín á eftirfarandi spamaðarkosti.
1. Gullbók og Metbók sem báðar gáfu mjög
góða raunávöxtun á fyrra árshelmingi.
2. Bankabréf Búnaðarbankans til 2-5 ára með
9,25% raunávöxtun á ári.
3. Ný spariskírteini rikissjóðs sem fást í
Búnaðarbankanum. Pau eru til 3-8 ára
og gefa 7-8% raunávöxtun.
Bankinn hefur opnað nýja afgreiðslu í
Hafnarstmti 8, 1. hœð, sem annast viðskipti
með Bankabréf Búnaðarbankans og spari-
skírteini. Leitaðu ráðgjafar í traustum banka.
BIJNAÐARBANKI ÍSLANDS
Frumkvæði - Traust