Morgunblaðið - 07.09.1988, Side 30
► o
<TfrrrT>rrTmrfr^p r»
a a rrTT'STnr/TT^f mci a tcjt/ttacta**
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1988
Sovétríkin:
Reynt að fylla í
„eyður“ sögunnar
Moskvu. Reuter.
EFTIR áramót munu sovéskir
framhaldsskólanemar fá í hend-
ur viðauka við sögubækurnar og
er honum ætlað að fylla upp í
„eyðumar" í sögu lands og þjóð-
ar.
Vladimir Shadríkov, varaformað-
ur í menntamálanefndinni sovésku,
sagði, að í viðaukanum yrði fjallað
um valdabaráttuna fyrir byltinguna
1917, um kúgunina á Stalínstíman-
um og um Níkíta Khrústsjov, sem
Leoníd Brezhnev steypti af stóli.
„Mikil áhersla verður lögð á ein-
staka byltingarmenn, á ólíkar skoð-
anir þeirra á byltingunni og á þró-
unina síðan," sagði Shadríkov.
Sagði hann, að nú yrði loksins
sagt frá þeim flokkum öðrum, sem
verið hefðu keppinautar Leníns og
bolsévika, frá þeim, sem flúið hefðu
land á dögum borgarastyrjaldarinn-
ar og frá Nýju efnahagsstefnunni
(NEP), sem Lenín beitti sér fyrir,
en henni er oft jafnað til þeirra
umbóta, sem Míkhaíl Gobatsjov
Sovétleiðtogi reynir nú að koma á.
Júgóslavía:
Ottast upplausn og
allsheijarverkfall
Belgrað. Reuter.
KOMIÐ hefur til verkfalla víða
í Júgóslaviu nú i vikunni og ótt-
ast landsfeðurair, að vegna þess
ófremdarástands, sem ríkir i
efnahagsmálum, megi búast við
miklum mótmælum og allsheij-
arverkfalli i haust.
Á mánudag gengu 500 hundruð
verkamenn í vefjariðnaði fylktu liði
að þinghúsinu í Belgrað og kröfð-
ust þess, að launin yrðu hækkuð
Bretland:
Hætt við
rannsókn
á skaðsemi
pillunnar
St. Andrews, frá Guðmundi Heiðarí
F rímannssyni fréttaritara Morgunblaðs-
ins.
Að likindum verður að
hætta við viðamestu rannsókn
fram að þessu á skaðsemi
getnaðarvarnarpillunnar
vegna þess að ekki fæst nægi-
legt fé til hennar að þvi er
segir i The Sunday Times sl.
sunnudag.
Rannsóknin hefur lengi verið
í undirbúningi. I henni áttu 3
þúsund heimilislæknar í Bret-
landi að taka þátt og halda skrár
um heilsu 120 þúsund kvenna í
5-10 ár. Það átti að prófa hvort
nýjustu gerðir pillunnar hefðu
skaðvænleg áhrif.
Um 60 milljónir af getnaðar-
vamapillum eru notaðar í heimin-
um árlega og um 3 milljónir í
Bretlandi. Rannsóknaráætlunin
hafði hlotið stuðning víða að í
veröldinni. Bandarísk stofnun
hafði lofað að greiða stóran hluta
árlegs kostnaðar, sem nam um
20 milljónum króna. Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin hafði einnig hei-
tið framlögum, en rannsóknar-
ráðið í læknisvísindum í Bret-
landi segist ekki geta greitt þær
sex og hálfa millj. króna sem á
vantar árlega.
Rannsóknarráðið segir að aðr-
ar og þarfari rannsóknir hafí
haft forgang og auk þess greiði
það nú þegar töluvert fé til
langtíma rannsókna á áhrifum
pillunnar á blóðstorknun hjá kon-
um sem taka pilluna og reykja.
Markmiðið með þessari rann-
sókn átti að vera að sjá hvort
lægri aldur kvenna sem taka pill-
una nú, skipti máli og hvort efn-
in, sem nú eru í pillunni, hefðu
einhveijar langtíma aukaverkan-
ir. Sérstaklega átti að rannsaka
hættu á bijóstakrabbameini.
um helming. Eru 'þau nú innan við
3.400 ísl. kr. á mánuði. Þá hefur
verið skýrt frá verkföllum í fjórum
af sex lýðveldum Júgóslavíu. Verð-
bólgan er nú 200% og fyrir skömmu
sagði Stefan Korosec, aðalritari
stjómmálaráðsins, að ástandið í
efnahags- og þjóðfélagsmálum væri
á suðupunkti og gæti endað með
sprengingu.
Flugumferðarstjórar hafa boðað
til verkfalls síðar í mánuðinum og
einnig kennarar í Króatíu og marg-
oft hefur komið uppþota meðal
fólks, sem beðið hefur klukkustund-
um saman fyrir utan verslanir eftir
algengustu nauðsynjum. Þá er einn-
ig mikil spenna milli þjóðarbrott-
anna, einkum í Kosovo þar sem
Serbar og Svartfellingar saka fólk
að albönsku bergi brotið um yfir-
gang og kúgun.
Vestur-Þýskaland:
Reuter
Siglt um Ameríku bikarinn
Bandaríska skútan Stars and Stripes að æfingum undan San
Diego, en þar hefst einvígi hennar og nýsjálenzku skútunnar New
Zealand um Ameríkubikarinn í dag.
Vogel óumdeildur for-
ingi jafnaðarmanna
TILLAGA um að konur skuli
gegna 40% embætta í Jafnaðar-
mannaflokki Sambandslýðveldis
Þýskalands (SPD) í framtíðinni
var samþykkt með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða á landsfundi
flokksins í Miinster í síðustu viku.
Aðeins 54 af 440 fulltrúum
greiddu atkvæði gegn tillögunni.
35% fulltrúa á landsfundinum
voru konur en um 26% flokks-
bundinna jafnaðarmanna eru
kvenmenn. Stefnt er að því að
konur skipi 40% þingsæta flokks-
ins á Sambandsþinginu árið 1998.
Ándstæðingar reglunnar vöruðu
við að hún kynni að bijóta í bága
við stjóraarskrá landsins. Gild-
istími hennar var því takmarkað-
ur við 25 ár, eða til ársins 2013.
Konu, Hertu D&ubler-Gmelin,
var bætt í leiðtogasveit flokksins
og er nú varaformaður ásamt
Johannesi Rau og Oskari La-
fontaine.
Efnahags- og vamarmál voru
annars helstu umræðuefni lands-
ERLENT
fundarins. Lafontaine, forsætisráð-
herra Saarlands, reitti marga til
reiði með ræðu sinni. Hann fjallaði
einkum um atvinnumál og sagði að
flokkurinn yrði að fínna nýjar leiðir
til að draga úr atvinnuíeysi. 2,3
milljónir manns eru atvinnulausar
í Vestur-Þýskalandi. Lafontaine
sagði að nauðsyn þess að skapa
fleiri störf yrði að hafa í huga við
samningagerð um hærri laun og
styttri vinnuviku. Hann lagði til að
eftir- og helgarvinna yrði aukin svo
að meiri atvinna yrði í boði og benti
á að störf kynnu að opnast ef vel-
launaðir starfsmenn hins opinbera
féllu frá kröfum um launahækkanir.
Verkalýðsleiðtogar kvöddu sér
hljóðs á eftir Lafontaine og gagn-
rýndu hann harðlega. Franz
Steinkúhler, formaður Sambands
málmverkamanna, sagði hann tala
máli atvinnuveitenda og varaði við
klofningi milli verkalýðshreyfingar-
innar og Jafnaðarmannaflokksins.
Rau og Vogel reyndu að stilla til
friðar og lögðu báðir áherslu á mik-
ilvægi náinnar samvinnu fylking-
anna í ræðum sínum.
Kosið í trúnaðarstöður
Óánægja með Lafontaine kom
skýrt í ljós við atkvæðagreiðslu.
Hann var fyrst kjörinn varaformað-
ur flokksins fyrir fimmtán mánuð-
um og hlaut þá 83,5%. Nú hlaut
hann hins vegar aðeins 293 at-
kvæði eða 68,5%. Johannes Rau,
forsætisráðherra Nordrhein West-
falen, hlaut 398 atkvæði og Dáubl-
er-Gmelin 352. Hans-Jochen Vogel,
formaður flokksins, var endurkjör-
inn með 426 atkvæðum eða 98,8%.
Það var stórsigur. Willy Brandt,
forveri hans, hlaut aðeins einu sinni
betri formannskosningu í 23ja ára
valdatíð sinni.
Vangaveltur um kanslaraefni
flokksins í þingkosningunum 1990
hófust þegar að atkvæðagreiðslunni
lokinni. Möguleikar Lafontaines
hafa minnkað verulega en Vogels
aukist. Hann hefur aflað sér vin-
sælda með því að koma aga á flokk-
inn og auka orðstír hans út á við.
Setningarræða hans á flokksþing-
inu þótti einkar góð. En það sópar
meira að Lafontaine og hann getur
huggað sig við að Helmut Schmidt
hlaut aðeins 66% atkvæða í varafor-
mannslg'öri 1973, ári áður en hann
varð kanslari flokksins.
ÁmótiNATO
Vamarmálaumræða landsfund-
arins fór friðsamlega fram. Flokk-
urinn tók afstöðu gegn stefnu
NATO og mótmælti að skamm-
drægar kjarnorkueldflaugar banda-
lagsins yrðu endurnýjaðar. Hann
samþykkti tillögu um að hefð-
bundnum vopnum í Evrópu yrði
fækkað og herafli austurs og vestr
urs myndi miðast við helming þess
afla sem NATO ræður nú yfir.
Israel:
Helmingur
kjós enda
vill viðræð-
ur við PLO
Jerúsalem. Reuter.
HELMINGUR ísraelskra kjós-
enda vill að viðræður fari fram
milli ríkisstjóraar ísraels og
PLO, samkvæmt nýrri skoðana-
könnun, sem gerð var fyrir
stjóraarflokkana í ísrael. Sljóra-
völd í ísrael hafa hingað til neit-
að slíkum viðræðum á þeim
grundvelli að PLO séu hryðju-
verkasamtök.
Leiðtogar Verkamannaflokksins
hétu því í fyrradag að endi yrði
bundinn á hemám Israela á Gaza-
svæðinu og mestum hluta Vestur-
bakkans, ynni flokkurinn kosning-
amar í haust. „Hinn \. nóvember
mun þjóðin velja milli ísraels, sem
siglir hraðbyri í átt að stríði, og
ísraels, sem siglir seglum þöndum
í átt að friði," sagði Shimon Perez,
formaður Verkamannaflokksins.
Upp á síðkastið hafa nokkrir
áhrifamenn í Verkamannaflokkn-
um, sem situr í ríkisstjóm ásamt
Likud-bandalaginu, sagt að viðræð-
ur kæmu til greina ef PLO-samtök-
in breyttu stefnuskrá sinni. Bæði
Peres og Yitzhak Shamir, forsætis-
ráðherra og formaður Likud-banda-
lagsins, hafa þó margítrekað þá
afstöðu sína að slíkar viðræður
komi ekki til greina.
Talsmaður Dahaf-stofnunarinn-
ar, er framkvæmir skoðanakannan-
ir fyrir Likud-bandalagið, sagði
kannanir undanfarin tvö ár benda
til þess að 50% ísraela vilji viðræð-
ur við PLO ef samtökin viðurkenndu
tilvemrétt ísraels. Tveir þriðju kjós-
enda væru hins vegar vantrúaðir á
að PLO myndi fallast á þá skilmála
og 80% vom andvígir sjálfstæðu
palestínsku ríki.
Hans-Jochen Vogel, formaður
jafnaðarmanna í Vestur-Þýska-
landi, hlaut stuðning 98,8% í
formannskjöri á flokksþingi i
síðustu viku.
Hann lagði til að æfíngar með lág-
flugi hervéla yfír Sambandslýðveld-
inu yrði bannað. NATO telur flugið
nauðsynlegt til að tryggja hæfni
flugmanna á hugsanlegum ófrið-
artímum. Fundurinn samþykkti enn
fremur að vestur-þýskir hermenn
ættu ekki að taka þátt í störfum
friðarsveita Sameinuðu þjóðanna.
Skoðanakannanir, sem vom
gerðar skömmu áður en hinn fjög-
urra daga landsfundur hófst, benda
til að samsteypustjórn CDU/CSU
og FDP sé búin að missa meirihluta
fylgis. 40% aðspurðra sögðust
styðja kristilegu bræðraflokkana en
9% frjálslynda. Jafnaðarmenn hlutu
hins vegar 54% í könnuninni og
Græningjar 7%.