Morgunblaðið - 07.09.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1988
31
Pósturinn hleðst upp
Reuter
Póstmannaverkfallið í Bretlandi nær nú til um 60 af 80 flokkunarstöðvum póstþjónustunnar þar í landi og
bréf og bögglar hlaðast upp. Aðeins um, ein af hverjum þremur póstsendingum fær eðlilega afgreiðslu.
Deila póstmanna og húsbænda þeirra hefur staðið í heila viku eða frá því að póstmenn efndu til sólar-
hrings verkfalls til að mótmæla aukagreiðslum til nýliða í Suðaustur-Englandi, þar sem erfíðlega hefur
gengið að fá fólk til starfa. Þegar ákveðið var að ráða viðbótarstarfskraft til að flýta fyrir afgreiðslu á
þeim pósti, sem safnaðist fyrir í verkfallinu, gengu póstmenn út af vinnustöðum sínum tugþúsundum sam-
an. Myndin er tekin í Mount Pleasant-flokkunarstöðinni í miðborg Lundúna.
Sovétríkin;
Bein útsend-
ing frá flokks-
fundi í Gorkíj
Moskvu. Reuter.
FUNDI flokksráðs kommúnista-
flokksins í Gorkjj var sjónvarpað
á laugardag og áhorfendum
gafst færi á að bera fram spurn-
ingar í sima, að sögn sovéska
dagbiaðsins Izvestiu á sunnudag.
Blaðið greindi frá því að fundin-
um, sem stóð í sjö klukkustundir,
hefði verið sjónvarpað beint í heild.
Um 50 manns hefðu hringt, borið
fram spumingar og lagt fram til-
lögur fyrir fundinn.
„Við vonum að umræða um að-
steðjandi vandamál með þátttöku
almennings, ásamt sjónvarpsút-
sendingum, verði að venju í flokks-
starfínu," sagði I. Tsjapanov, hátt-
settur embættismaður flokksins í
Gorkíj, í samtali við Izvestiu. Blað-
ið greindi ekki frá því hvort áform
væm um að hefja útsendingar frá
flokksfundum í Kreml, sem eru
venjulega haldnir fyrir luktum dyr-
um. Hluta ráðstefnu sovéska
kommúnistaflokksins í júní síðast-
liðnum var reyndar sjónvarpað, en
sú útsending var klippL
*
Ovæntur
guUfundur
í Noregi
Ósló, frá Helge Serensen fréttaritara
Morgunblaðains.
RUNE Thorbergsen hefur
fundið næstum eitt kíló af
hreinu gulli undir gólfi í sumar-
húsi fjölskyjdu sinnar aðeins
fáeina kílómetra frá miðbæ
Harstad í Norður-Noregi. Sér-
fræðingar segja um þennan
gullfund, að hann sé hreint
ótrúlegur og óskiljanlegur í
senn.
Thorbergsen, sem er 21 árs
gamall, segir að fyrir nær sex
árum hafí hann fundið fyrsta gull-
molann. Hann hafí verið um einn
sentimetri á stærð. Ifyrst hélt
hann, að þetta væri brennisteinn.
Við nánari athugun kom í ljós að
auðvelt var að rispa molann og
þá grunaði hann, að þetta kynni
að vera gull. Gullsmiður staðfesti
síðar að grunurinn væri á rökum
reistur. Sérfræðingar í Björgvin
komust að sömu niðurstöðu.
í sex ár hefur sem sé verið graf-
ið eftir gulli undir sumarbústaðnu-
mog hefur nærri eitt kíló af eðal-
málminum nú verið hreinsað.
Thorbergsen, sem er áhuga-
maður um jarðfræði og steinasafn-
ari, er ekki í minnsta vafa um að
hann eigi eftir að fínna meira.
Hann vill auðskiljanlega ekki
skýra frá því, hvar hann stundar
gröftinn. Ottast hann gullæði og
umsátur um sumarbústaðinn segi
hann frá því hvar hann er. Hefur
ungi gullgrafarinn tryggt sér
vinnsluréttindi á öllu svæðinu.
Sérfræðingar segja, að gullkíló-
ið sé um 100.000 norskra króna
virði (670 þús. ísl. kr.). Thorbergs-
en segir að hann sé ekki rekinn
áfram af gróðasjónarmiðum: —
Spennan er fyrir öllu, segir hann.
ERLENT
Par sm vMism
Haustnámskeið hefst
12. september
Síðast komust færri að en vildu.
Jazz, modern, ballett og nýjasta
nýtt, Jazz-funk. Námskeiðin eru
fyrir byrjendur jafnt sem fram-
haldsnema frá 5 ára aldri.
Kennarar:
Tracy Jackson frá N.Y.
Bryndís Einarsdóttir
Guðrún Helga Arnarsdóttir
Sóley Jóhannsdóttir. S
Innritun er hafin í sfmum:
687701 og 687801
Pantaðu strax.
HREYFING SF. ENGJATEIGI 1,
SPECIAL“
Ódýrt en best
Kjúklinga - hnetusúpa
Kr.225,-
Rjómahumarsúpa
Kr. 395,-
Ferskt salat , 'r
með rækjum og núðlum
Kr. 295,-
Grafinn regnbogasilungur
með sinnepssósu
Kr.395,-
Smjördeigsbakaður saltfiskur
með rjómasósu
Kr. 750,-
Skötuselur og ferskt grænmeti
á teini með kryddgrjónum
Kr. 810,-
Steikt hámeri
með gráðostasósu
Kr.695,-
Kjúklingabringa fyllt
með hvítlaukssmjöri
Kr. 840,-
Smokkfiskur og pasta
í chili-kryddsósu
Kr. 795,-
Léttsteiktar
lundabringur með
ferskum kryddjurtum
í njólablaðasósu
Kr. 695,-
Að sjálfsögðu er einnig boðið uppá
okkar rómaða „a la carte“.
ARNARHÓLL
RESTAURANT
eropinn á kvöldin frá kl. 18:00
þriðjud. til laugard.
Hverfísgötu 8-10
pantanasimi 18833