Morgunblaðið - 07.09.1988, Side 45
88fir HUJIMUTTaR .V HUOAamíIVQIM .aiQAJaHUOflOM ___ ______________________________”
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1988 45
Henderson Dores í faðmi suðurríkjafjölskyldunnar í myndinni Breti í Bandaríkjunum.
Ekkí er allt sem sýnist
Kvlkmyndlr
Arnaldur Indriðason
Breti f Bandaríkjunum („Stars
and Bars“). Sýnd í Stjörnubíói.
Bandarísk. Leikstjóri: Pat
O'Connor. Handrit: William Boyd
eftir eigin skáldsögu. Framleið-
andi: Sandy Lieberson. Kvik-
myndataka: Jerzy Zielinski. Tón-
list: Stanley Myers. Helstu hlut-
verk: Daniel Day Lewis, Harry
Dean Stanton, Joan Cusak,
Clenne Headly, WiU Patton,
Martha Plimton' og Maury
Chaykin.
Bretinn og listfræðingurinn
Henderson Dores (Daniel Day Lew-
is) hefur komið til Bandaríkjanna
með öll sín bresku alúðlegheit,
háttvísi og buktandi kurteisi af þvl
hann vildi breyta til og breytast
sjálfur. „Bandaríkin eru stór og til-
breytingarík," segir hann við svert-
ingjann sem hann sækir skylminga-
tíma með. Dores elskar þetta land
en stundum er ástin ekki gagn-
kvæm segir svertinginn í varúðar-
tón. Og kannski eru Bandaríkin
aðeins of stór og tilbreytingarík
fyrir hinn eilíft prúða og sakleysis-
lega Henderson Dores. Þegar hópur
manna hleypur að honum eitt rign-
ingarkvöld þar sem hann er á gangi
með vinkonu sinni, varpar hann
henni í ruslabing og tekur til fót-
anna en mennimir hlaupa framhjá
honum og stökkva inní bfl sem bíður
þeirra.
Hann kemur úr gamla heiminum
og lffíð og hið sérkennilega fólk sem
hann kynnist í nýja heiminum gæti
hréinlega riðið honum að fullu. Lið-
ið í kringum hann er flest langt frá
því að vera eðlilegt. Það kemur
best í ljós þegar listaverkasalinn,
sem Dores vinnur hjá, sendir hann
til Suðurrflqanna að semja um sölu
á Renoir-málverki, sem talið var
löngu glatað en í ljós kemur að er
í eigu sérvitringsins Loomis Gage
(Harry Dean Stanton) og afar
brenglaðrar suðurríkjaflölskyldu
hans.
Furðuferð Dores oní Suðurríkin
er kjami gamanmyndarinnar Breti
í Bandarflqunum („Stars and
Bars"), sem sýnd er í Stjömubíói
og Pat O’Connor leikstýrir kostu-
lega eftir orðmörgu, óvenjulegu og
oft bráðfyndnu handriti Williams
Boyds. Gage-Qölskyldan gæti aldrei
hafa orðið til hjá Tennessee Will-
iams. Blútó ætti vel heima í henni.
„Ekki er allt sem sýnist," segir
dóttir Gage og ratast satt orð á
munn. Hún þykist vera blind og á
bróður sem þykist hafa klikkast í
Víetnam. Hún á líka bróður sem
þykist vera Elvis Presley. Kasólétt
konan hans sleppir ekki viskípelan-
um. Þau búa í gersamlega nið-
umíddum húsræfli og eru öll græn-
metisætur af því eldabuskan heimt-
ar það.
Henderson Dores á skiljanlega
frekar erfítt með að eiga viðskipti
við þessar furðuskepnur og fleiri til
þegar hann af vanmætti reynir að
fá málverkið í sínar hendur. Daniel
Day Lewis leikur Dores frábærlega
vel. Breti í Bandaríkjunum er þriðja
myndin með honum sem hér er
sýnd og hann er gersamlega óþekkj-
anlegur frá einni til annarrar. Það
er eins og Lewis geti leikið allt: í
Herbergi með útsýni gaf hann
ógleymanlega mynd af bresku yfír-
stéttarmerkikerti, í Fallega þvotta-
húsið mitt var hann hommi og hér
leikur hann breskan herramann af
fullkomnu öryggi þess sem ekkeíT'
virðist þurfa að hafa fyrir hlutun-
um. ímynd hins háttprúða Breta
skín útur hveiju hans orði, æði og
athöfn næstum í hvaða undarlegu
kringumstæðum sem er. Það ec
hreinasta unun að horfa á hann.
Leikaravalið í mjmdina er annars
mjög forvitnilegt og leikararnir allir
falla mjög vel í hlutverkin, sérstak-
lega Hariy Dean Stanton sem fjöl-
skyldufaðirinn ljómandi af alúð og
vingjamleik eins og hann sé eini
maðurinn með réttu viti í kringumw
Dores, Joan Cusak sem kærasta
Dores, Glenne Headly sem blinda
dóttirin sem ekki er blind, Maury
Chaykin sem Elvis Presley-eftir-
herman og Will Patton sem grað-
hestarokkarinn, þriðji sonur Gage.
Þá kemur Spalding Grey lítillega
inn í myndina í hlutverki héraðs-
prests. Hér eru persónulýsingar all-
ar með eindæmum sérkennilegar
og fyndnar.
Leikstjórinn, Pat O’Connor, fer
léttilega úr satíru í farsa í gaman-
saman þriller þegar óvandaðir menn
þykjast eiga vantalað við Dores um
málverkið dýra. Bandaríkin eru
sannarlega furðuríki í augurry
óbreytts Breta. Eitt af bestu atrið-
um myndarinnar er þegar Hender-
son Dores skráir sig inná risastórt
hótel í Atlanta og kemst að raun
um að hann verður að ganga í gegn-
um frumskóg, framhjá indíánaþorpi
og róa yfír lítið fljót til að komast
að lyftunum.
„Stars and Bars“ er það sem
bíóbuffin kalla stundum grundvall-
armynd.
INNRITUN HAFIIM
SKÓLAARIÐ ’88-’89 SEPT-MAÍ
KENNSLA HEFST 19. SEPT.
SKAPANDI
LISTGREIN
MARKVISS
ÞJÁLFUN
Nú geta allir stundað jazz-
ballett af fullum krafti. Greiða
má einn mánuð i einu. Kredit-
kortaþjónusta.
6-8 ára, 40 mín. Tími 1x i viku
kr. 900,- per. mánuð.
9-11 ára, 60 mín. Tími 2x í
viku kr. 2.000,- per. mánuð.
12 ára og eldri. Byrjendur -
framhald kr. 2.400,- per. mánuð.
SKEMMTILEG Hraunberg ath:
VIÐBÓT VIÐ Breyttir tímar í vetur -
DANSINN HJÁ nú einnig tímar í miðri
BESTA viku.
STEPPARA
LANDSINS, ^
DRAUMEY
KLASSISK
TÆKNI
NAUÐSYN-
LEG
GÓÐUM
DANSARA
Mæðurath. samræmingu
tíma. Barnaskólinn i Suð-
urveri uppi 10% fjöl-
skylduafsláttur.
Kennarar: Karl Barbee frá
New York verður i allan
vetur ásamt Báru, Önnu,
Möggu, Irmu, Nadiu og
Agustu.
fh
SKIRTEINA AFHENDING LAUGARDAGINN17. SEPT.
frá kl. 13-17. Myndband i gangi allan daginn,
nemendasýning ’88 og fl.
NEMENDASÝNING I V0R.
INNRITUN í SÍMA 83730
HRAUNBERG í SÍMA 79988
^ MILLI KL. 10-18 ALLA DAGA.
F.Í.D. Félag ísl. danskennara.
STEPP
BALLETT