Morgunblaðið - 23.09.1988, Side 22

Morgunblaðið - 23.09.1988, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1988 Fundur Alþjóða gjaldeyrissjóðsins í V-Berlín: Krafist róttækra lausna á vanda þriðja heimsins Vestur-Berlín. Reuter. Framkvæmdastjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, Michel Cam- dessus, sagði á blaðamannafundi áður en árlegur fundur stofhun- arinnar og fulltrúa Alþjóðabank- ans hófst í gær i Vestur-Berlín að gripa yrði til róttækra aðgerða til að leysa skuldavanda ríkja i þriðja heiminum. Sagði hann nauðsynlegt að aðildarríkin 151 ylgu verulega ráðstöfunarfé sjóðsins svo að hann gæti stutt betur við bakið á þurfandi ríkjum. Samanlagðar skuldir þriðrja- heimsríkja nema nú um 1200 mill- jörðum Bandaríkjadala og taka full- trúar þriðjaheimsríkja undir með Camdessus. Þeir krefjast róttækra lausna á vandanum sem verið hefur ofarlega á baugi síðan 1982 ergjald- þrot ógnaði Mexíkó, einu skuldug- asta ríki heims. Camdessus segir skuldunauta jafnt sem lánardrottna nú þurfa að koma sér niður á lausn áður en málið verði enn erfiðara við- ureignar. Hann sagði að tími væri kominn til þess að bankar afskrifuðu hluta lánanna en slík lausn hefur ekki verið höfð í hámæli fram til þessa meðal helstu lánardrottna. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn ræður nú yfir u.þ.b. 115 milljörðum Banda- ríkjadala en Camdessus sagði nauð- synlegt að auka þessa §árhæð um 50% aðeins til að halda í við hagvöxt í heiminum síðastliðin fimm ár. Camdessus sagðist bjartsýnn hvað snerti efnahagsmál í heiminum almennt og taldi mögulegt að hag- vöxtur iðnríkja gæti orðið að meðal- tali 4 af hundraði á þessu ári. Gagn- rýnendur Alþjóða gjaldeyrissjóðsins halda því fram að sjóðurinn setji of ströng skilyrði fyrir aðstoð við þurf- andi ríki og kvarta einnig yfír því að þróunarverkefni á vegum Al- þjóðabankans hafí valdið umhverfís- spjöllum. Vestur-þýskir biskupar hafa verið meðal gagnrýnendanna og átti Camdessus fund með þeim í gær. Hann kvaðst hafa sagt biskup- unum að það væri út í hött að lána ríkisstjómum fé ef þær gerðu engar umbætur í efnahagsmálum sínum. Nútímakveðskap- ur í kulda og trekkí Amsterdam. Reuter. ALLIR vita hversu biðin efltir strætó getur verið löng og ströng. Nú þegar vetur gengur í garð hafa yfirvöld í Amsterdam fundið heillaráð til að stytta far- þegum með almenningsfarar- tækjum biðina. Spjöld með hol- lenskum nútimakveðskap hafa verið sett upp víða í biðskýlum borgarinnar. í vikunni var sýnishomum af kveðskap tiu hollenskra ljóðskálda komið fyrir í um það bil 300 spor- vagnabiðskýlum. Með fylgir sú orð- sending til vegfarenda að þeir skuli tilnefna uppáhaldsskáldið sitt úr þessum hópi. Sigurvegarinn fær 15 þúsund gyllini í verðlaun (330 þús. íslenskar krónur). „Það er nýbúið að endumýja bið- skýlin og þegar við sáum að enn var dálitlu plássi óráðstafað ákváð- um við að fylla í það á skemmtileg- an og nýstárlegan hátt,“ sagði Harold Ytsma, borgarstarfsmaður, aðspurður um tildrög þessarar ráð- stöfunar. Reuter Ottast blóðbað á Haiti Hefhigjarnir Haitibúar halda áfram að elta uppi menn úr hinu hataða Tonton Macoute-lögregluliði fyrrum einvalds landsins, Francois Duvalier, og eru mennirnir oft drepnir án dóms og Iaga. Talið er að 20 manns hafi týnt lífi síðan ungir herforingjar steyptu stjórn Namphys hershöfðingja um síðustu helgi. Virtur útvarps- maður hvatti í gær fólk til að gæta stillingar og sagði (jölda saklauss fólks hafa orðið fómarlömb múgæsinga. Stjórnleysi virð- ist ríkja víða innan raða hersins þar sem óbreyttir hermenn hafa sett suma yfirmenn sína af. Heimildarmenn segja að hinn nýi forseti landsins, Prosper Avril, sé í raun aðeins leikbrúða og raunveruleg völd séu í höndum 27 ára gamals liðþjálfa, Josephs Hebreux, sem stjómaði uppreisninni gegn Namphy. Tvístigið í Póllandi: Segjast vilja breyta lög- imum um verkaJýðsfélög - en útiloka að Samstaða komist til fyrri áhrifa Varsjá. Reuter. Stjómvöld i Póllandi era reiðubúin að breyta gildandi lög- um um verkalýðsfélög. Kom þetta fram í opinberri yfirlýs- ingu, sem gefin var út í gær, en Ástandið í Armeníu og Nagorno-Karabakh: Tílfinningaþrungið ákall til almennings Moskvu. Reuter. YFIRVÖLD í Armeníu og Nagomo-Karabakh i Azerbajdzhan hafa skorað á almenning að gæta stillingar til að komist verði hjá átökum á borð við þau, sem þar hafa verið að undanförnu. Var áskorununum útvarpað á miðvikudagskvöld og sagði þar meðal annars, að lægði ekki öldurnar skjótt gæti það valdið Arm- enum miklum hörmungum. Hér fara á eftir glefsur úr þess- um áskorunum: „Frá kommúnistaflokknum, þingi og stjómvöldum í Armeníu til kommúnista og verkamanna í lýðveldinu: Það ástand, sem nú ríkir í landinu, getur gert að engu allt, sem áunnist hefur á síðustu mánuðum, og leitt þjóðina sjálfa í alvarlegar ógöngur. Stórhættu- leg slagorð, sem eiga ekkert skyit við vandamál fólksins í Nagomo- Karabakh, hafa skotið upp kollin- um á útifundum. Stjómmálalega Moskva: Ekkí sama og herlög — segirtaJsmaöur utanríkisráðuneytisins Moskvu. Reuter. Neyðarástandslögin, sem nú gilda í Nagorno-Karabaldi, hafa stuðning í sovésku stjómarskránni og jafhgilda ekki herlögum. Kom þetta fram þjá talsmanni sovéska utanríkisráðuneytisins í gær. Vadím Perffljev, talsmaður ut- bakh og nágrannahéraðinu Agd- anríkisráðuneytisins, sagði á fréttamannafundi, að hann gæti ekki skýrt nákvæmlega hvað í neyðarástandslögunum fælist en tilgangur þeirra væri sá einn að tiyggja öiyggi almennra borgara og stjómarskrárbundin réttindi. „Hér er ekki um ræða herlög," sagði Perfíijev en nefndi, að út- göngubann væri í Nagomo-Kara- am og verkföll og mótmælafundir bönnuð. Neyðarástandslögin voru sett á miðvikudagskvöld eftir að 48 menn höfðu slasast og einn látist í átökum milli Armena og Az- erbajdzhana. Rúmlega 30 bygg- ingar hafa verið brenndar til grunna og önnur skemmdarverk unnin. vanþroska fólk hefur spilað á strengi ættjarðarástarinnar og samúðar Armena með bræðmm sínum í Nagomo-Karabakh og kynt undir óöldinni með ólöglegu athæfí. Félagar! Öldum saman börðust Armenar fynr sjálfstæði sínu, fyr- ir varðveislu armenskrar menn- ingar, tungu og þjóðlegra ein- kenna. Frelsishetjur vorar bundu alltaf vonir sínar við hina rússn- esku þjóð, fullveldi okkar og sigra í 70 ár getum við þakkað sovét- skipulaginu. Við skoram á ykkur að minn- ast þess, að við berum öll, hvert og eitt, ábyrgð á framtíð bama okkar, á framtíð þjóðarinnar, per- estrojku, aukins lýðræðis og glasnosts. Megi mannvit og skiln- ingur leiða ykkur á þessum örlag- aríku tímum." í áskoraninni til íbúa í Nag- omo-Karabakh sagði meðal ann- ars: „Flokkurinn og stjómvöld sam- hryggjast þeim, sem eiga um sárt að binda, og harma það, sem orð- ið er. Nú þegar á okkur reynir sem aldrei fyrr megum við ekki láta tilfínningamar taka völdin. Sú alræmda kenning, „Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn“, er að leiða okkur í sjálfheldu, sem erfítt er að komast úr. Grætum ekki mæðumar, verum á verði og snú- um baki við þeim, sem vilja leiða okkur á villigötur.“ í næsta mánuði ætla þau að setj- ast að samningaborði með fúll- trúum Samstöðu. Stanislaw Ciosek, sem fer með verkalýðsmál í umboði miðstjómar kommúnistaflokksins, sagði í við- tali, sem birt var í nokkram opin- beram málgögnum, að „okkur verður aldrei fyrirgefíð ef við kom- um tómhentir frá viðræðunum". Er þeim orðum augljóslega beint til harðlínumanna, sem ekki vilja leyfa Samstöðu. Ciosek, sem telst til umbótasinnanna í pólska kom- múnistaflokknum, sagði hins veg- ar, að það væri bamaskapur að halda, að Samstaða fengi sömu völd og hún hafði fyrir herlögin 1981. í yfírlýsingu frá stjómmálaráð- inu sagði, að nauðsynlegt væri, að verkalýðshreyfíngin skipulegði starfsemi sína og fyrir því ætti að greiða með því að breyta gildandi lögum. Með lögum frá 1982 er Samstaða bönnuð og aðeins eitt verkalýðsfélag lejrft á hveijum vinnustað, verkalýðsfélag komm- únistaflokksins. I yfírlýsingunni var ekki minnst á í hveiju laga- breytingin ætti að vera fólgin en Ciosek sagði, að taka yrði tillit til veikleika pólsks efnahagslífs og „koma í veg fyrir hættuleg átök og pólitíska ævintýramennsku á vinnustöðum". í yfírlýsingu stjómmálaráðsins var ekki minnst á þann augljósa ágreining, sem nú er kominn upp meðal flokksfoiystunnar og birtist í því, að Czeslaw Kiszczak inn- anríkisráðherra sat hjá þegar sam- þykkt var að láta stjóm Zbigniews Messner forsætisráðherra fara frá. Stjómmálaráðið tók fram, að Samstöðunefndir, sem myndaðar hefðu verið á ýmsum vinnustöðum, gætu spillt fyrir samkomulagi, ekki síst með „eitruðum" slagorðum eins og þeim, sem var veifað nýlega á Samstöðufundi. Er haft eftir blaða- mönnum, að á einn borðann hafí þetta verið letrað: „Mannvonska kommúnismans sameinar okkur." Afganistan: Skæruliðar segj- ast hafa náð Pagh- man-bæ á sitt vald Islamabad. Reuter. AFGANSKIR skæruliðar kváðust í gær hafa náð bænum Paghman, 20 km vestan Kabúl, á sitt vald eftir tveggja vikna harða bardaga. Talsmaður Jamiat-i-Islami skæmliðahreyfingarinnar sagði að þeir hefðu náð bænum á sitt vald á mánudag eftir að hafa gert lofltárás- ir og barist með langdrægum vopnum. Hann sagði ennfremur að and- ennfremur að einn „mujahedin" kommúnískir skæraliðar réðu nú yfír mestum hluta Paghman-hér- aðs. Stjómarhermenn hafa enn sjö herstöðvar sem staðsettar era á milli Paghman og Karghavatns, á sínu valdi. Talsmaður Jamiat-hreyfíngar- innar vitnaði í bréf frá herforingjan- um Mullah Ezatullah í gær, þegar hann sagði að 18 herflokkar stjóm- arinnar hefðu verið teknir höndum og yfír hundrað stjómarhermenn hefðu fallið eða særst. Hann sagði skæruliði hefði fallið og 25 orðið sárir en aðrar heimildir í Pakistan herma að tala fallinna skæruliða sé mun hærri. Leppstjómin í Kabúl og vestræn- ir stjómarerindrekar skýrðu frá því að miklir bardagar hefðu átt sér stað í héraðinu undanfamar vikur. Útvarpsstöðin í Kabúl greindi frá því á laugardag að 52 skæraliðar hefðu fallið í Paghman-héraði en samkvæmt sovésku fréttastofunni TASS féllu 13 skæruliðar í öðram bardaga á þriðjudag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.