Morgunblaðið - 23.09.1988, Page 34

Morgunblaðið - 23.09.1988, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1988 Minning’: Kjartan Guðmunds son tannlæknir Fæddur 16. janúar 1914 Dáinn 16. september 1988 Foreldrar: Nikólína Hildur Sig- urðardóttir frá Seli í Reykjavík og Guðmundur H. Guðnason gullsmiður. Við strákamir á „Lóðinni" (Óð- insgötu 8, 8A og 8B) kölluðum hann Bóbó. Og það var Bobó hér og Bóbó þar — fremstur allra í íþróttum, fyndnastur í svörum og óhræddur við alla óvini okkar, enda Lóðin ósigrandi í þá daga. Svo sprettharður var hann, að hann sannaði kvæði Steins Steinars um flóttann, meðan Steinn var enn að Iáta Jóhannes úr Kötlum lemja sig til lesturs með spýtu. Sem sagt hann gat flúið svo hratt undan ofur- eflinu, að hann var kominn aftan að því, áður en nokkur vissi af, og olli slíkri skelfingu og uppnámi í liðinu, að hver þótti sælastur, sem gat flúið undir pilsfald móður sinnar, óskandi þess að fá að dvelja þar alla sína daga upp frá því. En fleiri þóttust eiga erindi und- ir þá pilsfalda — og flóttamanninum var stuggað með harðri hendi úr sínu trygga skjóli og skipað að sækja sykur og brauð til Hallgríms hafragrauts, sem verslaði á homi Spítalastígs og Bergstaðastrætis. Hræddari menn hafa ekki sést aust- an Lækjar. Ekkert mein var þeim gert, en Lóðarpeyjamir ætluðu að springa af hlátri, enda var það til- gangurinn, því að fyndnin sigraði ævinlega fangbrögðin með yfir- burðum hjá Bóbó. Svona liðu árin og hvor fór sina leið til menntunar. Fundum okkar bar aftur saman í Kaupmannahöfn, hann þá orðinn tannlæknir, en ég busi í minni grein, enda fjórum árum yngri. Og nú hét hann ekki lengur Bóbó, heldur Kjartan. Annað hafði ekki breyst. Það var sem fyrr Kjartan hér og Kjartan þar, alltaf góðviljaður og fyndnastur allra. Alla ævi fylgdi það honum að velja sér að vinum menn, sem voru á margan hátt sér á parti, eins og sagt er — ekki til lasts, miklu frem- ur hins gagnstæða. Ég gæti jiefnt þá í tugatali. Besti vinur Kjartans á Hafnarár- unum var Láms Pálsson leikari. Ekki er Láms nefndur hér vegna þess, að hann falli undir það, sem sagt var hér á undan um kynlegu kvistina, sem Kjartan var svo laginn við að kynnast. Aftur á móti var Láms Pálsson stórsnillingur, og í raun og vem held ég, að menn hafí þurft að hafa eitthvað sérstakt til brunns að bera, svo að þeir vektu áhuga hans. Stórt? Smátt? Það skipti ekki máli. Þeir vinimir tóku mig strax í sína föðurlegu umsjá — kenndu mér, hvar ég gæti fengið „biksemad", sem nægði ijorum, fyrir krónu, og hvemig maður gat sýnt dömum sanna riddaramennsku fyrir túkall. Og þeir kunnu allar skemmtilegustu vísur, sem Danir og Svíar áttu í fómm sínum, og sungu þær eins og englar. Kjartan hafði þetta yndislega geð, sem gerði návist hans svo nota- lega — auðvitað alltaf smástríðinn, en fyndni hans var öll úr móðurætt- inni, og meira þarf ekki að segja þeim, sem þessi orð em ætluð. „Aldrei skaltu aftur líta,“ sagði einhver spekingurinn. En ég held það líði varla sá dagur í lífí mínu, að þetta góða fólk, sem í æsku minni bjó á Lóðinni, komi ekki í huga mér. Fyrir mann eins og Kjartan verð- ur aldrei fullþakkað. Ástvinum hans vona ég, að hann verði minnisstæð- astur með glettni í auga og spaugs- yrði á vör. Atli Már Vinur okkar, Kjartan Guðmunds- son, Búlandi 4, er látinn. Þó að við nábúar og vinir Kjartans höfðum gert okkur ljóst um nokkurt skeið að hverju stefndi, em þó allir ávallt óviðbúnir dauðanum er hann kveður dyra. Kynni okkar hófust á vordögum 1974 er við hjónin fluttum í nábýli við þau elskulegu hjón Kjartan og Svövu. Síðan hefur ávallt verið mjög náin vinátta og mikill hlýhugur ríkt á milli heimila okkar. Margar era þær ánægjustundir sem við höfum átt á hinu fallega heimili þeirra hjóna. Kjartan var ávallt glaður og kát- ur þó vitað væri að heilsan væri ekki sem best. Hann var mikill unnandi fagurrar tónlistar eins og annarra lista. Hann var afar minn- ugur á menn og málefni og hafði frá mörgu skemmtilegu að segja á gleðistundum. Ekki viljum við láta hjá líða að bera fram þakklæti okkar fyrir vin- áttu þeirra hjóna í garð bama okk- ar frá því við kynntumst fyrst. Öðmm látum við eftir að skrifa ævisögu Kjartans, en þessar fátæk- legu línur em aðeins þakklætisvott- ur fyrir trausta vináttu hans í okk- ar garð gegnum árin sem við hefð- um óskað að yrðu fleiri. Við vottum Svövu og bömum hennar okkar dýpstu samúð og biðj- um Guð að styrkja þau á þessari sorgarstundu. Haukur og Guðrún Fyrir um það bil tíu ámm þurft- um við hjónin að fá skjóta úrlausn hjá tannlækni, en það reyndist ekki hlaupið að því, þótt hringt væri í allar áttir. Tannlæknirinn sem við höfðum haft var nýlátinn og nú var hvergi hægt að fá hjálp með litlum fyrirvara, þar sem við áttum hvergi pantaðan tíma. En þegar við fómm að huga betur að tannlæknatali í símaskránni rákum við augun í einn lækni sem hafði stofu í vesturbæn- um, og þangað vomm við einmitt nýlega flutt. Þetta var Kjartan Guðmundsson og var með stofu á homi Öldúgötu og Garðastrætis. Þar vora viðbrögð með allt öðmm hætti, þegar hringt var til að spyrj- ast fyrir. Sjálfsagt var að hjálpa upp á sakimar umsvifalaust. Þegar við komum inn á biðstofuna leist okkur undir eins vel á. Hún var óvenjulega notaleg þessi biðstofa, jafnvel heimilisleg. Fólk hefði getað gleymt því að það var að fara til tannlæknis. Þama vom listaverk á veggjum, þægileg sæti til að sitja í og nóg af blöðum sem gaman var að blaða í (ekki þetta venjulega: Læknablaðið, Fijáls verslun og ann- að slíkt). Er ekki að orðlengja það að uppfrá þessu var Kjartan Guð- mundsson orðinn tannlæknir fjöl- skyldunnar. Til aðstoðar Kjartani á stofunni var Svava kona hans sem einnig gerði umhverfíð nofalegra með létt- leika og hlýlegri framkomu og vita- skuld hefur hún átt góðan þátt í því hve biðstofan var smekklega útbúin og menningarlega. Kjartan Guðmundsson var farinn að reskjast, hafði lært í Kaup- mannahöfn fyrir síðustu heims- styijöld og gat sagt mér frá Páli Sveinssyni, frönskukennara, sem enn var við kennslu í Menntaskólan- um í Reykjavík, þegar Kjartan var þar við nám, en þannig spjölluðum við oft svolítið saman, þegar ég kom á stofuna til hans, og mér þótti gaman að heyra um þessa horfnu skólamenn sem sumir vom dálítið sérvitrir eins og fyrmefndur Páll sem vildi ekki láta nota orðið franska, heldur átti að segja frakkneska. Kjartan var svo hæg- látur í framkomu að fyrst þótti mér sem hann mundi vera feiminn, jafn- vel enn feimnari en ég sjálfur. Hann fór þó fljótlega að tala við mig um menninguna, þar sem hann vissi að ég hafði verið einn af ritstjómm Birtings og hann átti allan Birting fyrir utan eitt eða tvö hefti sem ég gat því miður ekki útvegað honum. Og þegar við fómm að spjalla um bókmenntir og einstaka höfunda var auðheyrt að Kjartan lét ekki bókmenntafræðinga segja sér hvaða skoðanir hann ætti að hafa í þeim efnum. Svava var ekki síður vel að sér í menningarmálum, en hitt kunnu þau hjón ekki: Að smyija á reikninginn. Hann var alltaf í lág- marki. í hvert skipti sem eitthvert okkar þriggja, ég, kona mín eða dóttir okkar, kom í tannlæknaerindum til þeirra hjóna, hvort sem það var við Öldugötu, þar sem þau vom fyrst eftir að við kynntumst þeim, eða að austanverðu við Garðastræti, þangað sem þau fluttu þegar þau þurftu að fara af Öldugötunni, þá var ævinlega talað um bókmenntir og listir eða málefni Reykjavíkur, borgarinnar sem við höfðum öll tek- ið ástfóstri við, hvemig bjarga mætti henni frá vandalisma eins og meðferðinni sem fyrirhuguð var á Tjöminni og nú blasir við. Bæði hjónin höfðu skynjað fegurð Tjám- arinnar, bæði höfðu þau skynjað fegurð í listaverkum samtíðarinnar. Nú söknum við öll góðs drengs og sendum Svövu innilegar kveðjur. Jón Óskar Nú þegar afí okkar er farinn frá okkur langar okkur til þess að minnast hans í örfáum orðum. Þeg- ar við lítum til baka minnumst við svo margra gleðistunda hjá afa og ömmu í Búlandinu. Á góðviðris- dögum úti í garði og í fjölskylduboð- um um jól og páska var afi alltaf hrókur alls fagnaðar og nutum við bamabömin óskiptrar athygli afa. Fyrir tveimur og hálfu ári slösuð- ust afi og amma í bílslysi, sérstak- lega afí. Meiðsli afa urðu til þess að heilsu hans hrakaði mjög mikið, og síðasta ár var hann oft mjög veikur, en hann kvartaði þó aldrei. Þó okkur hafí bmgðið mjög við að heyra um lát afa emm við þó viss um að honum líður vel núna. Við minnumst afa með miklum söknuði, en það er þó léttir að vita að þegar við deyjum þá eigum við von á að hitta mjög góðan mann hinum megin. Kjartan og Anna Svava Hvert eitt skref lífsins er í áttina til dauðans. Og ekkert er í raun eðlilegra. Þó er það jafnan svo að manni bregður ávallt í brún í hvert skipti þegar hann heggur skarð í vinahópinn. Nú er æskuvinur minn Kjartan Guðmundsson, tannlæknir, fallinn frá og þegar um slíka góðvini er að ræða verður eftir undarleg ang- urværð og sárbeittur söknuður. Ég vil minnast þessa vinar míns með örfáum orðum. Við kynntumst bamungir í skóla og sátum saman allan bamaskólatímann, vomm heimagangar í Gagnfræðaskóla Reykvíkinga, en þá breyttust sam- skiptin um tíma. Hann hélt áfram í námi og tók próf í tannlækningum í Kaupmannahöfn 1940 og setti þá upp tannlæknastofu í Reykjavík þegar hann kom heim með Esju í hinni frægu „Petsamo-ferð“ haustið 1940, en ég fór á sjóinn. Eftir það hófust kynni okkar að nýju, þegar ég var í landi, og héldust til hans hinstu stundar. Kjartan var með allra skemmti- legustu mönnum, sem ég hefí kynnst og með óvenjulega aðlað- andi skopskyn. Enda listrænn með afbrigðum, unni mjög góðri tónlist og góðum bókmenntum, og átti ekki langt að sækja það. Öll hans fjölskylda var þessum indælu hæfí- leikum búin. Hann var einnig virkur félagi í Knattspymufélaginu Víkingi og keppti með Víkingi á yngri ámm og hélt mikilli tryggð við það félag alla ævi. Enda var trygglyndi og drengskapur meðal hans höfuð- kosta. Hann var sá, sem maður kaus helzt að skála við á stundum vel- gengni, en gekk hinsvegar hægt um gleðinnar dyr. Kjartan fæddist í Reykjavík 16. janúar 1914, sonur hjónanna Ni- kólínu Sigurðardóttur og Guðmund- ar Guðnasonar, gullsmiðs, sem lengi bjuggu á Óðinsgötu 8a. Kjart- an kvæntist 24. júní 1950 Svövu Jónsdóttur frá Ærlæk í N-Þing- eyjarsýslu. Það var hamingjustund. Svava var dóttir Jóns Sigfússonar bónda að Ærlæk og konu hans, Halldóm Gunnlaugsdóttur. Svava var Kjartani mikil hjálpar- hella, bæði sem húsmóðir og aðstoð- armaður á tannlæknastofu hans. Þau eiga þijú böm, elst er Ásthild- ur, f. 5. október 1950, fyrmrn starfsmaður Ríkissjónvarpsins, nú við Ríkismat sjávarafurða, Kjartan, f. 11. desember 1951, vinnur hjá vélsmiðjunni Steinar, og Guðmund- ur Jón, f. 27. apríl 1958, skrifstofu- stjóri hjá Miðlun hf., upplýsinga- þjónustu í Reykjavík. Ég og kona mín, Gréta Sveins- dóttir, sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til Svövu og bama þeirra og óskum þeim velf amaðar. Kristján Jónsson, loftskm. Kollegi okkar, Kjartan Guð- mundsson, tannlæknir, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag. Hann andaðist 16. september sl. á Landakotsspítala eftir langvarandi veikindi, sem hann bar með stöku þreki. Kjartan var fæddur í Reykjavík 16. janúar 1914, sonur hjónanna Guðmundar H. Guðnasonar, gull- smiðs og Nikolínu H. Sigurðardótt- ur, húsmóður. Hann lauk stúdents- prófí frá MR 1934 og hóf síðan nám við Tannlæknaskólann í Kaup- mannahöfn. Lauk hann tannlækna- prófi þaðan 1938. Hann starfaði í fyrstu í Danmörku en kom heim með síðustu ferð þaðan í byijun stríðsins. Hann hefur rekið tann- læknastofu í Reykjavík síðan 1940. Kjartan Guðmundsson var vel gefínn maður, hlédrægur, en naut sín vel í góðra vina hópi. Hann fylgdist ætíð vel með félagsmálum og var einn af stofnendum Inn- kaupastofnunar tannlækna, Dent- aiíu 1957 og sat í stjóm þess félags um árabil sem gjaldkeri. Að leiðarlokum þakkar Tann- læknafélag Islands Kjartani Guð- mundssyni samvemna og vottar eftirlifandi eiginkonu hans, frú Svövu Jóhannsdóttur tækniteikn- ara, bömum og öðram ástvinum, samúð sína. Blessuð sé minning Kjartans Guðmundssonar. Sigurgeir Steingrímsson formaður. t Systir okkar og mágkona, SNJÁFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR matráðskona frá Vinaminni, Stokkseyri, andaðist 7. september. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Anna Jónsdóttir, Jón Jónsson, Sigrfður Sigurðardóttir. t Faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, JÓN BJARNASON, Hraunteigi 13, andaðist í Landakotsspítala þann 10. september sl. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Inga Birna Jónsdóttir, Gunnar Jónsson, Erla Hjartardóttir, Ólöf Jónsdóttir, Vaiur Egilsson, barnabörn og barnabarnabörn. -■ ■ II l .IHilllItli 11/1 nntxtt i t Eiginkona mín, móðir, tengdamóöir, amma og langamma, GUÐLEIF SVEINSDÓTTIR, er látin. Jarðarförin hefur farið fram. Ellert Helgason, Sveinn Elierts, Anna Ellerts, Erlingur Ellertsson, Þórhiidur Ellertsson, Bergljót Ellertsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, INGVAR ÞORSTEINN VILHJÁLMSSON fyrrverandi rakari, Flókagötu 12, Reykjavfk, andaöist í Borgarspítalanum þann 21. september. Sigrún Sigurgeirsdóttir, Þórdfs Ingvarsdóttir, Sverrir Guðmundsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.