Morgunblaðið - 30.09.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988
Guðrún Helgadóttir ekki ráðherra:
Formennska í þing-
flokki jafiivel mikil-
vægari en ráðuneyti
- segir Ólafur Ragnar Grímsson
Nj ósnahnötturinn
hrapar í næstu viku
Hnötturinn fer einu sinni til tvisvar
á dag yfir landið
STJÓRNLAUS sovéskur
njósnahnöttur með kjarnakljúf
innanborðs fellur sennilega tU
jarðar í næstu viku samkvæmt
nýjum og áreiðanlegum spám.
Líklegustu hrapdagarnir munu
vera miðvikudagurinn 5. og
fimmtudagurinn 6. október.
Gervihnötturinn fer einu sinni
til tvisvar á dag yfir ísland, en
Almannavarnir fá daglega kort
með ferli hans.
Evrópska geimferðastofnunin
teiur líklegast að hnötturinn hrapi
6. október, en reiknar með óvissu
upp á sex daga til eða frá. Sam-
kvæmt þeirri spá gæti fall gervi-
hnattarins jafnvel borið upp á
morgundaginn. Bandaríska geim-
ferðastofnunin, NASA, telur mið-
vikudaginn 5. október líklegasta
hrapdaginn, með nokkurra daga
óvissu þó, og sovéska fréttastofan
TASS segir gervihnöttinn munu
falia til jarðar 4.-8. október.
Algengasti ferill gervihnattar-
ins yfir Island er eftir 65. breidd-
argráðunni, frá Snæfellsnesi til
Reyðarfjarðar. Þegar hann fer
tvisvar yfir fer hann yfirleitt líka
yfír Suðurland frá Reykjanesi til
Hafnar. Hnötturinn er nú í um 202
km hæð, en ekki mun vera hægt
að sjá hann að næturlagi, að sögn
Hafþórs Jónssonar hjá Almanna-
vömum.
Líkumar á að hnötturinn hrapi
á ísland era minni en 1 á móti
700. Sovétmenn segja að sjálf-
virkur sprengibúnaður eigi að gera
hnöttinn og kjamakljúfinn óskað-
legan, en skýrsla sem Almanna-
vömum barst um málið dregur
áreiðanleik þessa búnaðs í efa.
Fyrir nokkram áram dreifðust
geisiavirk brot úr sovéskum gervi-
hnetti yfir stórt svæði í óbyggðum
Kanada.
Morgunblaðið/Gísli Úifarsson
Kuml stendur á sjúkrahústúninu neðan við Túngötu. Á myndinni flytur Ólafúr Kristjánsson bæjarstjóri
í Bolungarvík og fyrrum nemandi Ragnars H. Ragnar ræðu.
Isafiörðnr;
Listaverkið Kuml afhjúpað
LISTAVERKIÐ Kuml eftir Jón
Sigurpálsson i minningu Ragnars
H. Ragnar fyrrverandi skóla-
stjóra Tónlistarskólans og heið-
ursborgara ísafjarðar var af-
hjúpað fimmtudaginn 27. sept-
ember en þann dag hefði Ragnar
orðið 90 ára hefði hann Iifað.
Sigríður Jónsdóttir ekkja Ragn-
ars afhjúpaði verkið.
Listaverkið er gert úr átta tonna
grásteini sem sagaður hefur verið
í femt og ryðfrýjum stálteinum sem
ganga upp úr steininum:' Pétur Kr.
Hafstein bæjarfógeti á ísafirði flutti
ávarp en hann ásamt Jóni Páli
Halldórssyni framkvæmdastjóra og
Kristjáni Haraldssyni orkubússtjóra
era frumkvöðlamir að gerð minnis-
varðans. Kostnaðurinn við verkið
er greiddur af frjálsum framlögum
fyrirtækja og einstaklinga.
Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri í
Bolungarvík, skólastjóri tónlistar-
sk'ólans þar og fyrrverandi nemandi
Ragnars H. Ragnar, flutti ræðu.
Gat hann þess mikla árangurs sem
Ragnar náði á ferli sínum sem
skólastjóri Tónlistarskóla ísafjarðar
og kórstjóri Sunnukórsins og Karla-
kórs ísafjarðar. En Ragnar stóð að
mjög þróttmiklu tónlistarlífi á
ísafirði í 40 ár.
Sunnukórinn söng við upphaf og
lok athafnarinnar undir stjóm Be-
ata Joó. — Úlfar
VEÐUR
ÍDAGkl. 12.00: , / / 7°
Heimild: Veðurstofa islands
////// / / (Byggt á veðurspá kl. 16.15 I gær)
VEÐURHORFUR íDAG, 30. SEPTEMBER
YFIRLIT f GÆR: Yfir Noröur-Noregi er 978 mb víðáttumikil lægð
sem þokast austur og skammt suðaustur af Hvarfi er 1007 mb
lægð, sem þokast norðaustur, en 1019 mb hæð yfir Norðaustur-
Grænlandi. Smám saman hlýnar í veðri, fyrst Vestanlands.
SPÁ: Austlæg eða suöaustlæg átt, vlðast kaldi. Rigning eða súld
víða um land en snjókoma til fjalla um norðanvert landið. Hiti 2—3
stig norðanlands en 5—7 stig syðra.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á LAUGARDAG: Hvöss austan og suðaustanátt og rign-
ing víða um land, einkum þó sunnanlands og austan. Hiti 6—12 stig.
HORFUR Á SUNNUDAG: Snýst í hvassa norðanátt og kólnar, fyrst
um vestanvert landið. Rigning og síðar slyddaum norðanvert landið
en styttir upp að mestu sunnanlands.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 i gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hhi 0 3 veður alskýjað skýjað
Borgen 9 skýjað
Helsinki 14 skýjað
Kaupmannah. 14 skýjað
Narssarssuaq 1 skýjað
Nuuk 0 skýjað
Osló 14 léttskýjað
Stokkhólmur 13 skýjað
Þórshðfn 6 rignlng
Algarve 27 léttskýjað
Amsterdam 13 skúr
Barcelona 24 mistur
Chicago 14 mistur
Feneyjar 20 þokumóða
Frankfurt 14 skýjað
Glasgow 9 skúr
Hamborg 14 hálfskýjað
Las Palmas vantar
London 14 léttskýjað
Los Angeles 15 þoka
Lúxemborg vantar
Madríd 25 mistur
Malaga 24 rykmistur
Mallorca 27 léttakýjað
Montreal 3 skýjað
New Vork 9 háltskýjað
Parfs 15 skýjað
Róm 23 heiðskirt
San Diogo 16 þoka
Winnipeg 5 skýjað
„ÚT FRÁ pólitísku mikilvægi
vegur formennska í þingflokkin-
um jafnvel meir í mínum huga
en embætti ráðherra í einhveiju
fagráðuneyti, ef málið er metið
út frá __ hagsmunum flokksins,“
sagði Ólafur Ragnar Grímsson,
formaður Alþýðubandalagsins
aðspurður um ummæli Guðrúnar
Helgadóttur í Morgunblaðinu i
gær. Hún sagði þar að Ólafúr
Ragnar legði meira upp úr óvina-
heijum sínum en vinaheijum og
gengið hefði verið fram hjá
henni sem ráðherraefni meðal
annars vegna þess að hún byggi
í Reykjavík og hefði stutt Ólaf
Ragnar til formanns í Alþýðu-
bandalaginu.
„Það er hvoragt sakarefni,"
sagði Ólafur Ragnar um þau um-
mæli. „Ég tel mig ekki eiga neina
óvinaheri innan Alþýðubandalags-
ins. Það er hins vegar eðlilegt að
menn hafi þar mismunandi skoðan-
ir á ýmsum atriðum, en mitt hlut-
verk er að vera formaður flokksins
og ég er mjög ánægður með hve
breið samstaða hefur tekist innan
Alþýðubandalagsins um inngöngu
í þessa nýju ríkisstjóm.
Guðrún Helgadóttir er glæsilegur
fulltrúi okkar Alþýðubandalags-
manna og mun í framtíðinni eins
og hingað til gegna mikilvægu
pólitísku forystuhlutverki innan Al-
þýðubandalagsins. Ég gerði tillögu
um það að hún tæki við formennsku
í þingflokki Alþýðubandalagsins, en
það embætti er eitt af þremur helstu
pólitísku forystuembættum flokks-
ins. Þegar flokkur er í ríkisstjóm
er það embætti jafnframt forystu-
embætti flokksins á Alþingi og enn
mikilvægra en á stjómarandstöðu-
tímum.
Pólitík er ekki bara ráðuneytin
og margir flokkar hafa gert þá
skyssu að líta fyrst og fremst á
ráðuneytin sem miðdepil stjóm-
málanna. Ég tel að með þessari til-
lögu hafi ég verið að horfast í augu
við þá brýnu nauðsyn að sterkur
pólitíkus gegndi forystu í þingflokki
okkar á þeim tímum sem fara nú
í hönd,“ sagði Ólafur Ragnar.
Jón norrænn
samstarfs-
ráðherra
JÓN Sigurðsson viðskiptaráð-
herra verður samstarfsráðherra
Norðurlandanna í nýju ríkis-
stjórninni. Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra ósk-
aði eftir því, á ríkisstjórnarfúndi
í gær, að Jón tæki þetta embætti
að sér.
í embætti samstarfsráðherra
felst að vera tengiliður íslands við
Norðurlandaráð. Fram til 1980 var
þetta hlutverk í höndum forsætis-
ráðherra en þegar Gunnar Thor-
oddsen tók við því embætti skipaði
hann Friðjón Þórðarstm samstarfs-
ráðherra. Matthías Á. Mathiesen
var samstarfsráðherra í síðustu
ríkisstjóm.