Morgunblaðið - 30.09.1988, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988
7
Jónas Ingimundarson píanóleikari:
Tónleikar á Vestflörð-
um og Stykkishólmi
JÓNAS Ing’imundarson píanó- leikaferðir" og Chaconnette. Tón-
leikari heldur nokkra tónleika í leikunum lýkur svo með Túngl-
byrjun október. Tónleikarnir skinssónötu Beethovens.
verða á ísafirði, Flateyri, Bol-
ungarvík og Stykkishólmi.
"\
Safnaðarstjóm Fríkirkjunnar
skorar á safnaðarfólk að greiða atkvæði
í allsherjaratkvæðagreiðslunni
1. og 2, október nk. í Álftamýrarskóla
og krossa við JÁ. Bílasími 27270.
Þeir fyrstu verða sunnudags-
kvöldið 2. október í sal frímúrara
á Ísafírði og eru haldnir til minning-
ar um Ragnars H. Ragnars tón-
skálds á ísafirði. Flutt verður verk
Atla Heimis Sveinssonar, „Óður
steinsins". Verkið tengist ljósmynd-
um steinasafnarans Agústar Jóns-
sonar á Akureyri og ljóði Kristjáns
frá Djúpalæk. Við flutning verksins
verða myndimar sýndar og ljóðið
lesið.
Jónas leikur í mötuneytissal
Hjálms á Flateyri mánudaginn 3.
október og þriðjudaginn 4. október
í félagsheimilinu í Bolungarvík.
Báðir tónleikamir hefjast klukkan
21.
Fimmtudaginn 6. október verður
Jónas með tónleika í Stykkishólmi.
Efnisskrá þeirra tónleika er allt
önnur en á ísafirði. Fýrst leikur
hann Partíta í tíu pörtum eftir
Gunnar Reyni Sveinsson, er nefnist
„Við reisum nýja Reykjavík". Næst
leikur hann nokkur verk eftir F.
Chopin: Polonesu í c-moll, séx
marzurka og Ballötu nr. 2. Eftir
hlé eru verk eftir Snorra Sigfús
Birgisson, „Sigfús ... á ári jarðdrek-
ans...“ Síðan verða tvö stutt verk
eftir Þorkel Sigurbjömsson: „Tón-
Samtök
gjaldþrota
einstaklinga
í Morgunblaðinu í gær birtist
auglýsing um fyrirhugaða stofii-
un landssambands gjaldþrota
einstaklinga. Sá sem stendur að
baki þessari auglýsingu er Grét-
ar Kristjónsson og sagði hann í
samtali við Morgunblaðið að hér
væri um einstaklingsframtak að
ræða, markmið sitt væri að ná
sambandi við aðra gjaldþrota
einstaklinga og liefja baráttu
fyrir hagsmunamálum þeirra.
Grétar sagðist hafa fregnað að
slík samtök væm til í Japan, en
hann ætti eftir að kynna sér starf-
semi þeirra nánar. Gjaldþrota ein-
staklingar væru í mjög erfiðri að-
stöðu, fengju hvorki lögfræðiaðstoð
né lánafyrirgreiðslu og mættu ekki
eignast neitt fyrr en tíu ámm eftir
að síðasta krafa bærist í þrotabúið.
„Það er hugmyndin að mynda
samtök sem gætu barist fyrir aukn-
um réttindum gjaldþrota fólks, t.d.
í húsnæðismálum, en hvemig bar-
áttu samtakanna verður háttað
ræðst af undirtektum. Ég hvet alla
sem em gjaldþrota til að hafa sam-
band, við verðum að snúa bökum
saman. Það er engin lausn að flytj-
ast úr landi,“ sagði Grétar Kris-
tjónsson að lokum.
Samtök spari-
fjáreigenda:
Fundur á
Hótel íslandi
Ranghermt var í frétt í Morgun-
blaðinu að fundur Samtaka spa-
rifjáreigenda yrði á Hótel Borg
á morgun. Hið rétta er að firnd-
urinn er á Hótel íslandi og hefst
hann kl. 14. Er beðist velvirð-
ingar á þessum mistökum.
A Gullfarrými líður þér eins og í
stofunni heima hjá þér
Gullfarrými Arnarflugs er fyrir þá sem greiða hærri fargjöld.
Farþcgar á Gullfarrými sem búa á Rcykjavíkursvæðinu eru sóttir
hcim og ekið að dyrum flugstöðvarinnar.
Sérstök innritunarborð eru á öllum áfangastöðum Arnarflugs.
Þeir sem fara í tcngiílug gcta innritaðsigogfengiðsætisnúmer
alla leiðina, í Keflavík.
Leyfilegur farangur er 30 kíló í stað 20.
Farþegar á Gullfarrými hafa aðgang að sérstökum setustofum á
öllum áfangastöðum Arnarflugs.
Allir drykkir um borð cru ókeypis.
Sérstakur matscðill cr á Gullfarrými. Maturinn cr borinn fram á
bæheimsku postulíni og veigar í kristalglösum.
Farþegar fá aðild að Arnarflugsklúbbnum, sem veitir þeim ýmis
forrétlindi.
Við kvcðjum með dálitlum minjagrip.
Gullfarrýmið. Þægilcgasti ferðamátinn.
Söluskrifslofa Arnarnugs og KLM Austurstræti 22, sími 623060. Söluskrifstofa Arnarílugs iJtgmúla 7, sínii 84477.