Morgunblaðið - 30.09.1988, Síða 9
MORGUNBUABIÐ, FÖSTUDÁGUR 30.'’ÖÉPTÉ'MBÉft 1988
Þaklö sem þolir
noiölœgt veöuríar
Snöggar hitabreytingar, snjór og ís í dag,
regn og þíða á morgun eða sterkt sólskin.
„PLAGAN POPULÁR" er framleitt til að standast
erfiðustu veðurskilyrði.
,,PLAGAN POPULÁR" er meðfærilegt og
traust þak- og veggklæðningaefni úr galvaniser-
uðu stáli með veðrunarþolinni GAULE ACRYL
íS&S^
BYKO
Skemmuvegi 2, Kópavogi.
Simi 41000.
Dalshraun 15, Hafnarfirði.
Sími 54411 — 52870.
-*T fifi ifi éfi fii fifi fifi fiffl
Bk
Fríkirkju
vinir
Mætum öll í allsherjaratkvæðagreiðslu Frikirkjusafnaðarins
dagana 1. og 2. október í Álftamýrarskóla
og krossum við „JÁ“.
Safnaðarstjórn.
UMBERTO GINOCCHIETTI
PELSINN
Kirkjuhvoli, sími 20160.
Hreinsanir
Jafiian þegar Alþýðu-
bandalagið sest í ríkis-
stjóm ganga forystu-
menn þess fram með þvi
hugarfari, að þeir þurfi
að sanna getu sína með
því að ráðast á einhveija
hópa. Hið sama á við
þegar málefhi Reylga-
víkurborgar ber á góma
og alþýðubandalags-
menn telja sig eygja
möguleika á ítökum í
stjóm hennar. Þá gera
þeir þvi jafiian skóna, að
þegar þeir nái völdum
verði þeir til að mynda
ekki lengi að hreinsa til
i embættismannakerfi
borgarinnar. Við inn-
göngu í ríkisstjóm að
þessu sinni hafa alþýðu-
bandalagsmenn ekki í
heitingum vegna þeirra
sem í ráðuneytum starfa,
ekki opinberlega að
minnsta kosti. A hinn
bóginn er hinn nýi flár-
málaráðherra Ólafur
Ragnar Grímsson farinn
að tala um að ná i menn-
ina með breiðu bökin eins
og þeir haia oft verið
kallaðir i Þjóðviljanum
en Ólafiir Ragnar kallar
nú „gróðaöflin" og „Qár-
magnseigendur “.
Þessi árátta Alþýðu-
bandalagsins að segjast
ætla að hefla skipulega
sókn gegn einhveijum
ákveðnum einstaklingum
eða hópum er að sjálf-
sögðu i ætt við uppruna
flokksins og gömlu
flokksvinnubrögðin, sem
ekki er hampað á manna-
mótum. Það er ekki að-
eins austan fjalds sem
gripið er til hreinsana
stundum að þvi er virðist
fyrst og fremst til að
upphefja leiðtogana i
augum þeirra sjálfra sin
og annarra. í stjómar-
mynduninni hafa alþýðu-
bandalagsmenn hvað eft-
ir annað einmitt talað um
hinn mikla aga sem ríki
og hafi jafiian rikt i
flokki þeirra. Fyrr á
árum voru hreinsanir i
Kommúnistaflokki ís-
lands tfðar eins og í
slíkum flokkum í öðrum
löndum enn f dag.
Við stjómarmyndun-
ina að þessu sinni var
Guðrúnu Helgadóttur ýtt
þlÚÐVILIINN
Gróðaöflinlátin borga
Dai..an a ihvAiihnnJuJnpi. Albíðuflokks. FranuókMUÍlokkiog «*/«*** flJjrjlM*""-
ROdsUjóm Alþýöubandalagi, AlþýOujlokks, Framsóknarflokksft^
U ndirstöðuatvinnuvegir reistir úrnistum, staða landsÞyggoanit
Alþýðubandalagsstjórn
Þegar oddvitar stjórnarflokkanna þriggja svöruðu spurningum í
sjónvarpssal á miðvikudagskvöld, gat það ekki farið fram hjá
neinum, að Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubanda-
lagsins, vildi ekki síst þakka það skipulegum vinnubrögðum að
stjórnarsamstarfið komst á laggirnar. Síðast á sunnudagskvöld
var Ólafur þó þeirrar skoðunar, að hann hefði aldrei kynnst
öðrum eins vinnubrögðum og ruglandi við stjórnarmyndun.
Ánægjan á miðvikudaginn stafaði af því að Ólafur Ragnar var
orðinn fjármálaráðherra og var jafnframt þeirrar skoðunar að
hann sæti í alþýðubandalagsstjórn. í Staksteinum er vikið nánar
að þessu með vísan til viðtals við flokksformanninn í Þjóðviljan-
um.
frá ráðherrastóli á
siðasta stigi málsins og
Svavar Gestsson, fyrrum
flokksformaður, tekinn
fram yfir hana. Lýsir
Guðrún vel ástandinu
innan flokksins, þegar
hún segir í samtali við
Morgunblaðið: „. . . það
er greinilegt að Ólafiir
leggur meira upp úr
óvinaheijum sinum en
vinaheijum þessa dag-
ana.“
í stjómstöd-
iimi
Á undanfomum árum
liafa þeir alþýðubanda-
lagsmenn gert mikið veð-
ur út af þvf, sem þeir
kalla kjaraorkuhelda
stjórnstöð á Keflavíkur-
flugvelii. Hefði enginn
getað ætlað að óreyndu
að þeir báðir Steingrím-
ur J. Sigfiísson og Ólafur
Ragnar Grimsson settust
i ríkisstjórn án þess að
setja það sem algjört úr-
slitaskilyrði að hætt yrði
við að smiða þessa stöð.
Ástæðan fyrir því að ekk-
ert slíkt skilyrði er sett
kemur firam f Þjóðvilja-
viðtali við Ólaf Ragnar
Grfmsson, Qármálaráð-
herra. Hann telur sig
þrátt fyrir vankanta eins
og þessa hafit undirtökin
í stjóniarsamstarfinu.
Ólafiir Ragnar segir:
„Alþýðubandalagið
hefiir nyög sterka stöðu
í þessari stjóra. Fjár-
málaráðuneytið er nokk-
urs konar stjómstöð
ríkiskerfisins og lykilstöð
við stjóm efhahagsmála
í landinu. Innganga Al-
þýðubandalagsins i
stjómarráðið hefiir það
í för með sér að' flokkur-
inn er orðinn einn helsti
áhrifitaðilinn um mótun
efiiahagsstefiiunnar.**
Ekki nóg með það.
Samkvæmt viðtalinu við
Ólaf Ragnar er Alþýðu-
bandalagið einnig hug-
myndasmiðurinn á bak
við efiiahagsstefiiuna.
Hann segir:
„Þegar sú ríkLsstjóra
[Þorsteins Pálssonar] fór
f sundur og Framsóknar-
flokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn lýstu reynslu
sinni af þessari hægri
samvinnu og vora reiðu-
búnir að fara að feta sig
aðrar leiðir, þá var óþjá-
kvæmilegt að Alþýðu-
bandalagið léti á það
reyna hvort einhver al-
vara væri í þeim efiium.
Þingflokkur Alþýðu-
bandalagsins mótaði á
nokkurra daga fundi á
Hallormsstað i byijun
mánaðarins, tillögur um
aðgerðir í efiiahagsmál-
um, sem byggðar voru á
vinnslu efiiahagsnefitdar
flokksins. Á sfðustu vik-
um hefiir komið í [jós að
þær hugmyndir sem Al-
þýðu- og Framsóknar-
flokkur vora tilbúnir til
að fallast á, vora i sama
stíl og reyndar eru þær
tillögur sem forseti Al-
þýðusambandsins lagði
fram á formannafundi
ASÍ fyrir skömmu einnig
byggðar upp á svipaðan
hátt“
Af þessum orðum má
sjá, að formaður Al-
þýðubandalagsins eignar
sér og flokki sfnum þá
meginstefhu sem rikis-
stjórain fylgir f efita-
hagsmálum og sjálfur
segist hann nú vera i
stjórastöðinni og einn
heLsti áhrifitaðilinn um
mótun efhahagsstefii-
unnar. I öllum löndum
hafa menn valið þá kosti
hin síðari ár sem ganga
þvert á hugmyndafræði
Alþýðubandaiagsins i
efnahags- og atvinnu-
málum vegna þess að
afleiðingar þeirra fræði-
kenninga hafa leitt til
stöðnunar, einangrunar,
versnandi afkomu og fá-
tæktar.
Áhættulaus og aróbær ávöxtun
Kominn er út nýr flokkur verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs.
Hægt er að velja um: 3ja ára bréf með ársávöxtun 8,0%, 5 ára bréf með árs-
ávöxtun 7,5% og 8 ára bréf með ársávöxtun 7,0%.
Spariskírteini eru í 5.000, 10.000, 50.000, 100.000 og 1.000.000
króna einingum. Þau eru ríkistryggð og fyrir einstaklinga utan
atvinnurekstrar eru þau tekju- og eignarskattsfrjáls og því bæði
örugg og arðbær fjárfesting.
Spariskírteini ríkissjóðs fást á afgreiðslustöðum
Landsbanka íslands og þar er jafnframt séð um
innlausn eldri spariskirteina.
Nánari upplýsingar fást hjá Verðbréfaviðskiptum,
Laugavegi 7 og hjá verðbréfadeildum í útibúum
bankans um land allt.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna