Morgunblaðið - 30.09.1988, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988
11
Hringnr Jóhannesson
lUlyndlist
Bragi Ásgeirsson
Listrýnirinn hefur verið erlendis
undanfamar vikur og þar með
óvirkur á tímabilinu, þótt hann
héldi, að hann hefði bjargað mál-
um, sem þó ekki gekk eftir. Hér
var um að ræða að ljúka verki, sem
hann hafði ætlað sér að gera í
frímánuði sínum, sem ekki varð
vegna ófyrirsjáanlegra atvika og
hann fékk frestað um nokkra mán-
uði, en þá var heldur engin leið til
baka.
Ein þeirra sýninga í borginni,
sem ekki var fjallað um á síðum
blaðsins, en ég náði þó að skoða
í tvígang, var sýning Hrings Jó-
hannessonar í Gallerí Borg og
lauk nú á þriðjudag. Að sjálfsögðu
er tómt mál að fjalla um hana í
beinum listdómi, þar sem hún er
afstaðin, en mér þykir rétt að fara
um hana nokkrum orðum.
Hringur hefur löngu skapað sér
sérstöðu á íslenzkum listvettvangi
málari að sýna eitthvað svipað í
galleríi úti í Kaupmannahöfn nú
nýlega, svo að gerandinn stendur
ekki einn í heiminum við þessa
iðju sína.
Ég hef ekkert á móti raunsæi
af neinni tegund, en helst vil ég,
að það sé raunsæi umhverfísins,
sem listamaðurinn velur sér að við-
fangsefni, eða að það séu táknræn-
ir draumórar svo sem hjá Gustave
Moreau. Þessi tegund raunsæis
virkar einhvem veginn svo fram-
andi og á köflum ósönn, þótt ég
efíst ekki eitt andartak um ein-
lægni listamannsins. Þá virkar
tæknin ekki nógu sannfærandi á
heildina litið — smáatriði eins og
hendur verða á stundum krampa-
kennd í útfærslu. í málaralist
skiptir hin samanlagða heild mestu
máli en ekki hvert atriði fyrir sig.
Minnisstæðust er mér myndin Eg
- Ég ...
4________________________________
Hringur Jóhannesson.
og á sér ófáa trygga aðdáendur,
en mörgum finnst einnig list hans
of slétt og felld auk þess að vera
fljótmelt.
List Hrings er skyld ljósmynda-
raunsæinu ameríska, en hann fer
um margt eigin leiðir, og það er
að mínu mati einmitt þá, er hann
gefur mest af sjálfum sér, að hann
nær mestum árangri. A þessari
sýningu kom það helst fram í
myndum eins og „Suðvestanátt"
(4), „Var fyrir norðan" (6), „Sinu-
bruni" (7), „Gamli baunapottur-
inn“ (13) og „Vor við Neshvamm".
í öllum þessum myndum sýndi
Hringur sínar bestu hliðar, og þær
staðfesta, að hann stendur sterkt
í list sinni um þessar mundir og
er enn vís til afreka á komandi
árum ...
HLUTABREFISKELJUNGIHF.
TILBOÐ ÓSKAST
Höfum í umboðssölu hlutabréf í Skeljungi hf. Um er
að ræða hlutabréf að nafnvirði samtals 1 milljón kr.
Upplýsingar eru veittar hjá Fjárfestingarfélagi Islands
í síma 28466.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
FIARFESTlNGARFELAGIDi
Hafnarstræti 7 - 101 Rvík. ® 28566.
Söngmenn
Kartakórinn Fóstbræður getur bætt við sig söng-
mönnum.
Upplýsingar í síma 40174 eftir kl. 19 í kvöld og næstu
kvöld.
tveir dagar eftir
Hinn eini og sanni stórútsölumarkaður
DRAGHALSI 14-16
UMlARKAf)
Láugardag frá kl. 10-16
OPAL
PLASTPRENT -
. Karnabær- Garbo - Bonaparte -
Hummej T Gefjun - Madam - Stein-
: ar h/f - Nafnláusa Búöin - Mílanö ;
' - Yrsa - Magnea Bergmann - Skó-
glugginn - Radíóbær% Kári - Theo-
; dóra- Mærá (snýrtivörur) - Blóma-
liöt