Morgunblaðið - 30.09.1988, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988
CERES
^’ALDEILIS
/MAKALAUS
MJÖÐUR’l
Sauðflárslátrun
hafin í Saurbænum
Hvoli, Saurbæ.
SauðQárslátrun hófet hjá Kaupfélagi Saurbæinga í sláturhúsi fé-
lagsins að Eyrarlandi 19. september. Ráðgert er að þar verði slátr-
að um 11 þúsund flár og er það nokkuð svipað og í fyrra. Áætlað er
að slátrað verði um 600 Qár á dag. Þá er reiknað með að fé verði
skorið niður vegna riðuveiki af einum bæ á félagssvæðinu, Ytri-
Fagradal á Skarðsströnd. Fannst einkenni veikinnar þar í einni kind
og er það nóg til þess að skera verður allt fé hjá Steinólfi bónda
Lárussyni. Síðast var skorið niður hér í Dölum vegna riðuveiki á
Hornsstöðum í Laxárdal fyrir nokkrum árum.
Búið er að slátra hér í nokkra
daga og virðist fallþunginn í sæmi-
legu meðallagi og ekki lakari en
verið hefur, en meðallfallþungi dilka
í fyrrahaust varð 14,7 kg. Að sögn
Guðjóns Kristjánssonar kaupfélags-
stjóra er það að vísu með nokkrum
ugg, sem gengið er til slátrunar að
þessu sinni, því ríkisvaldið virðist
ekki ætla að standa við sinn hlut
samkvæmt búvörulögunum, og
mætti því ætla að það gerði sitt til
að koma sláturleyfishöfum í erfiða
aðstöðu.
Messur á lands-
byggðinni
ODDAKIRKJA. Guðsþjónusta
sunnudaginn 2. október kl. 14.
Aðalsafnaðarfundur Odda-
sóknar eftir messu. Sr. Stefán
Lárusson.
AKRANESKIRKJA. Bama-
samkoma laugardag kl. 13.
Kirkjuskóli yngri bamanna í
safnaðarheimilinu Vinaminni,
laugardag kl. 13. Séra Bjöm
Jónsson.
Það hefur gengið vel að manna
sláturhúsið að þessu sinni, en þar
starfa að jafnaði yfir sláturtíðina
um 40 manns og em nánast þar
að störfum menn frá hveiju heimili
í hreppnum og aðeins einn aðkomu-
maður.
Kjötið er flutt daglega til Búðar-
dals í frystihús sláturhússins þar
og einnig að hluta til Reykjavíkur
og innmatur fer einnig í Búðardal
auk þess sem fer í sölu beint hér á
félagssvæðinu. Góð aðstaða er til
slátrunar á Eyrarlandi, en þó er
þetta hús eitt af þeim, sem rætt
hefur verið um að leggja beri nið-
ur, þó ekki sé það gamalt, enda
byggt árið 1964 og á síðasta ári
og þessu hafa verið gerðar þar vem-
legar endurbætur, byggt nýtt gæm-
söltunarhús og lokið hefur verið við
innréttingu og frágang á frystihús-
inu og er það tilbúið til að setja í
það frystitæki. Að sögn kaupfélags-
stjóra er verið að útbúa húsið til
þess að það fullnægi kröfum um
stórgripaslátmn, en ekki hefur ver-
ið slátrað þar stórgripum síðan í
vetur. Áætlað er að sauðfjárslátmn
ljúki um miðjan október.
- IJH
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Frá blaðamannafúndi sem Fóstrufélags íslands hélt í tilefiii af könn-
un kjaranefndar félagsins á atvinnuþátttöku fóstra og viðhorfi þeirra
til náms- og starfehátta.
Fóstrufélag íslands:
7 0% útskriíkðra fóstra
eru í fóstrustörfum
SAMKVÆMT könnun kjara-
nefiidar Fóstrufélags íslands eru
70% þeirra sem útskrifuðust frá
Fósturskóla íslands á árunum
1947 til 1987 í fóstrustörfúm.
70% starfandi fóstra er í beinu
uppeldis- og kennslustarfi en
30% eru í stjórnunarstörfum. Á
höfuðborgarsvæðinu búa 79%
fóstra en 65% allra dagvistar-
rýma á landinu voru á höfúð-
borgarsvæðinu í desember 1987.
Á Stór-Reykjavíkursvæðinu eru
57% fóstra í fóstrustörfúm en
13% á landsbyggðinni. Valdir
Ó.Johnson&
jUglýsinga-
síminn er 2 24 80
MITSUBISHI J COLT
BÍLL FRÁ HEKLU BORGAR SIG 1 s
HEKLAHF verdfrakr. L ^.hlbaugavegi 170-172 Simi 695500 5 ( f .QOO
Nú getur þú ferðast á ódýran
og þægilegan hátt með áætlunarflugi
SAS milli íslands og annarra landa
m
voru 666 þátttakendur af handa-
hófi, eða 60% þeirra sem útskrif-
uðust frá skólanum á ofan-
greindum árum. Alls náðist i 490
fóstrur sem er 73,4% af úrtakinu.
Rúmlega helmingur starfandi
fóstra er í fullu fóstmstarfi en
45,1% í hlutastarfi. 20,2% fóstra,
sem vinna við fóstmstörf, em með
1 til 4 ára starfsaldur, 34,7% em
með 5 til 9 ára starfsaldur, 28,4%
em með 10 til 15 ára starfsaldur,
12,2% em með 16 til 20 ára starfs-
aldur og 4,5% em með 21 til 40
ára starfsaldur. 19,5% starfandi
fóstra vinna launaða aukavinnu
með fóstmstörfunum og tæplega
helmingur þeirra vinnur verka-
mannastörf.
Alls vom 30% aðspurðra fóstra
ekki við fóstmstörf. 29,4% þeirra
vinna við uppeldis- og kennslustörf,
um 25% vinna við verslunar- og
skrifstofustörf, um 30% við heimil-
isstörf, um 10% em við nám og
6,3% vinna við eigin atvinnurekst-
ur.
66,1% aðspurðra taldi að stúd-
entspróf ætti skilyrðislaust að vera
inntökuskilyrði í Fósturskólann en
32,4% töldu að ekki væri rétt að
krefjast þess skiljrðislaust. 46%
töldu að skólinn ætti að vera á
háskólastigi og tæplega 31% taldi
að skólinn ætti að vera sérskóli með
stúdentspróf sem inntökuskilyrði.
Laugavegi 3, símar 21199 / 22299
Listasafii Islands:
Syningn
fimmlista-
manna
aðljúka
SÝNINGU fimm ungra
myndfistarmanna í Lista-
safiii íslands lýkur á sunnu-
dag, 2. október, en hún var
opnuð þann 3. september sl.
Listamennimir fimm, sem
sýna málverk og skúlptúra, em
Georg Guðni Hauksson, Hulda
Hákon, ívar Valgarðsson, Jón
Óskar og Tumi Magnússon. í
frétt frá Listasafni íslands seg-
ir að myndlistarmennimir séu
allir í hópi áhugaverðustu
myndlistarmanna af þeirri kyn-
slóð sem komið hefur fram á
sjónarsviðið á síðustu ámm.
Þeir hafi sýnt bæði sjálfstæði
og fmmleika í sköpun sionni
og gefi þau 25 verk sem sýnd
em, góða hugmynd um þá fjöl-
breytni og vídd sem ríki í ungri
íslenskri myndlist í dag.
Listasafn íslands er opið alla
daga, nema mánudaga, kl.
11-17 og er veitingastofa
safnsins opin á sama tíma.