Morgunblaðið - 30.09.1988, Síða 18
'i8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988
FRANKFURT
2 x í viku
Nú bjóða Flugleiðir helgarpakkaferðir
til Frankfurt á hagstæðu verði,
frá kr. 19.019.*
Frankfurt hefur ótal margt að bjóða og nú í haust er hún vett-
vangur fjölda glæsilegra vörusýninga:
Automechanika (bíiaiðnaður)
Frankfurter Gartenbaumesse (garðyrkja)
BÁKO (fagsýning bakara)
Frankfurter Buchmesse (bækur)
IKA/HOGA (matargerðarlist, hóteirekstur)
Interstoff (fataiðnaður)
13.09.- 18.09.
24.09.-25.09.
02.10.-04.10.
05.10.-10.10.
16.10.-20.10.
25.10.-27.10.
Fáið allar nánari upplýsingar á söluskrifstofum Fiugleiða,
Lækjargötu, Hótel Esju og Kringlunni, og hjá ferðaskrifstof-
unum. Upplýsingasími 25100.
* 3 nætur í 2ja manna herbergi á Hotel Europa, miðað við
gengi 1.9.1988.
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
*
Ráðstefna um
framleiðni
Framleiðniátak Iðnaðarráðuneytisins og Iðn-
tæknistofnunar íslands boða til ráðstefnu um
leiðir til að auka framleiðni fyrirtækja.
Dagskrá:
13.00-14.30 Fyrirlestur um framleiðniaukandi
aðgerðir.
14.30-15.00 Fyrirspurnir og umræður.
15.00-15.20 Kaffihlé.
15.20-16.30 Lýsing á raunverulegum verkefn-
um (Case studies)
Fyrirkomulag - Framkvæmd -
Árangur.
Kynning á Framleiðniátaki Iðnað-
arráðuneytisins og Iðntækni-
stofnunar íslands.
Fyrirlesari: Mark Flordes, sér-
fræðingur hjá American Produc-
tivity Center, sem náð hefur
verulegum árangri í framleiðni-
aukandi aðgerðum hjá fyrirtækj-
um og stofnunum víða um heim.
Mark Hordes
16.30-17.00
Staður:
Tími:
Skráning
Upplýsingar:
Verð:
Hótel Saga, salur A
4. október kl. 13.00 til 17.00
Iðntæknistofnun íslands, sími
(91)-687000
Ingvar Kristinsson og Þorsteinn
Ingi Víglundsson
Kr. 1.800,-
Aukin framleiðni -
Betri rekstrarafkoma
V
IÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSLANDS
✓
Morgunblaðið/Bjami
Frá uppsetningu sýningar lyá íslenskum Heimilisiðnaði.
Heimilisiðnaðarfélag íslands:
Aftnælissýning
opnuð á morgun
Heimilisiðnaðarfélag íslands
varð 75 ára á þessu ári og efii-
ir af því tilefhi til sýningar í
verslun sinni „íslenzkur heimili-
siðnaður“ Hafiiarstræti 3. Sýn-
ingin verður opnuð laugardag-
inn 1. október og er þá opin frá
kl. 14:00-18:00.
Markmið félagsins er og hefur
verið að efla handlistir og stuðla
að því að ýmis gömul og góð vinnu-
brögð falli ekki í gleymsku. Þess-
um markmiðum sínum hefur fé-
'lagið reynt að ná m.a. með
fræðslu- og útgáfustarfsemi og
verslunarrekstri. Frá því fyrir
1920 hefur félagið staðið fyrir
námskeiðahaldi, bæði úti á landi
og í Reykjavík, en árið 1979 var
settur á stofn skóli í húsi félagsins
að Laufásvegi 2 og eru þar haldin
margvísleg námskeið fyrir al-
menning og einnig hafa verið hald-
in námskeið fyrir leiðbeinendur á
vistheimilum.
Stúdentar
predika
ÞRÍR guðfiræðistúdentar flylja
lokapredikanir í kapellu Há-
skóla íslands í dag, föstudag.
Stúdentamir eru þau Guðlaug
Helga Ásgeirsdóttir, Jóna Kristín
Þorvaldsdóttir og Þorarinn Bjöms-
son. Predikanir þeirra hefjast kl.
16 og er kapellan opin almenningi.
Sett var á stofn verslun 1951
og heitir hún „íslenzkur Heimili-
siðnaður". Um árabil vom verslan-
imar 2, en nú er aðeins verslun
að Haftiarstræti 3. Þama getur
fólk selt sín viðfangsefni og feng-
ið efni og áhöld til þeirra. Ætíð-
hefur verið gerð krafa um vandaða
gripi.
Arið 1966 hóf félagið útgáfu á
ritinu „Hugur og hönd“ og kemur
það út einu sinni á ári og fá félags-
menn það sent Einnig er hægt að
gerast áskrifandi eða kaupa það
í versluninni. Tilgangurinn með
ritinu er að miðla fróðleik og fyrir-
myndum til framleiðslu.
'Á undanfömum ámm hefur al-
mennt félagsstarf aukist, þ.e.
haldnir em fræðslu- og skemmti-
fundir og farið í vorferðalag. Efnt
verður til hátíðafundar á næstunni
í tilefni af 75 ára afmælinu. Eitt
af markmiðum félagsins hefur
verið að safna sýnishomum góðra
gripa og hafa ýmsir velunnarar
lagt því máli lið. Eitt af framtí-
ðaráformum félagsins er að búa
safni þessu veglegan sess í von
um að það muni aukast og eflast.
Á sýningunni em munir úr safni
þessu ásamt munum úr „Halld-
óm-safni“, fengnir að láni hjá
Búnaðarfélagi Islands. Þá em
einnig sýndir gripir sem fjallað
hefur verið um í ritinu og munir
únnir í skólanum.
Er þess vænst að sýning þessi
veki áhuga fólks á íslenskum
heimilisiðnaði og að einhverjir fái
e.t.v. hugmyndir að nýjum verk-
efnum, sem okkar kynslóð varð-
veitir, segir að lokum í frétt frá
Heimilisiðnaðarfélagi íslands.
Dómkirkjan:
Bamastarf-
ið að heflast
BARNASTARF Dómkirkjunnar
hefst með samkomu á morgun,
laugardag, kl. 10.30 f.h. í kirkj-
nnni Egill Hallgrímsson guð-
Eræðinemi og Ólafia Siguijóns-
dóttir hjúkrunarfræðingur munu
leiða starfíð. Stefiit er að því að
bamasamkomurnar verði á hveij-
um laugardagsmorgni í vetur.
Bömin munu fá afhenta möppu
sem þau koma síðan með á hveija
samkomu og fá nýtt efni í hana í
hvert skipti sem þau mæta. Þannig
verður mappan smám saman að
bók. Efnið sem bömin fá í möppuna
samanstendur af texta, myndum og
verkefnum. Það tengist biblíutextan-
um og því umræðuefni sem tekið
er fyrir á hverri samkomu. Jafnframt
verður efnið útskýrt með loðmyndum
og öðru skýringarefni. Á samkomun-
um verða sagðar sögur, beðnar bæn-
ir og mikið sungið. Auk þess verður
ýmislegt fleira gert til uppbyggingar
og skemmtunar.
Konur úr kvenfélagi safnaðarins
munu verða þeim Agli og Ólafiu til
aðstoðar. Sóknarprestamir hvetja
foreldra og forráðamenn bama til
að stuðla að því að bömin sæki þess-
ar samkomur. Með því að koma
reglulega í hús Guðs, eiga þar helga
stund og taka á móti fagnaðarboð-
skápnum, munu þau eignast fjársjóð
sem verða mun þeim til blessunar í
lífinu.
(Frá Dómkirkjunni.)
Þýskur
háðfug'l í
heimsókn
ÞÝSKI háðfugl-
inn Martin Ros- / V
enstiel, sem [
þekktur er fyrir
það sem Þjóð-
veijar kalla
pólitíksan kaba-
rett, verður með
skemmtun í
Gerðubergi á
morgun, laugar- Hartin Rosenstíel.
dag, kl. 17. Hann er staddur hér
á landi í boði Goethe-Institute
og þýsk-íslenska félagsins Germ-
aníu og er skemmtunin opin öll-
um.
í frétt frá Germaníu segir, að
söngvar Rosenstiel einskorðist ekki
við dægurflugur stjómmálanna,
heldur lýsi hann þýsku hugarfari
og almennum einkennum þjóðar
sinnar á gamansaman hátt. Þá seg-
ir að í hópi aðdáenda hans sé fyrr-
um kanslari Vestur-Þýskalands,
Helmut Schmith og í stjómartíð
hans hafí Rosenstiel skemmt á
tveimur árlegum kanslarahátíðum.
Kjalarnesprófastsdæmi:
„ Saftiaðaruppbygging4 4
verður rædd á héraðsfiindi
Héraðsfundur Kjalamespró-
fastsdæmis varður haldinn á
morgun, laugardag 1. október,
og hefst klukkan níu árdegis i
Álftanesskóla. Þar mun séra
Bragi Friðriksson, prófastur,
leggja firam skýrslu sína. Einnig
verða lagðar fram skýrslur
safhaðanna og reikningar
kirknanna og héraðssjóðs.
Aðalumræðuefni fundarins
verður „Safnaðaruppbygging".
Framsögumenn verða Ragnheiður
Sverrisdóttir, djákni, og dr. Gunn-
ar Kristjánsson. Fundarmönnum
verður skipt í hópa til að fjalla um
þetta efni.
Sóknamefnd Bessastaðasóknar
býður fundarmönnum til hádegis-
verðar í Garðaholti. Formaður
nefndarinnar, Birgir Thomsen,
flytur ávarp. John Speight, óperu-
söngvari, syngur einsöngslög.
Síðdegis sitja fundarmenn boð
forseta Islands, frú Vígdísar Finn-
bogadóttur, að Bessastöðum.
Guðsþjónusta verður í Bessa-
staðakirkju klukkan hálf sex
síðdegis. Þar predikar séra Birgir
Snæbjömsson, prófastur, en hann
og kona hans verða gestir héraðs-
fundarins. Þar fara og fram slit
héraðsfundarins.