Morgunblaðið - 30.09.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988
27 -
Olga Guðrún gengur ur
Alþýðubandalaginu:
Óverjandi að flokkur-
inn fór í þessa stjórn
OLGA Guðrún Árnadóttir hefúr
sagt sig úr Alþýðubandalaginu
og í framhaldi af því hefúr hún
sagt sig úr öllum þeim trúnaðar-
stöðum sem hún gengdi fyrir
flokkinn. Hún segir að það sé
óveijandi að sínu mati að flokk-
urinn hafi farið inn í núverandi
ríkisstjórn.
„Ég tel það óvetjandi af sósíalísk-
um flokki að ganga til ríksstjómar-
samstarfs þar sem virtur er að vett-
ugi samningsréttur launafólks og
launafrystingu viðhaldið um nokk-
urra mánaða skeið," segir Olga
Guðrún. „Slíkt brýtur í bága við
Myndin tekin
í Þorskafirði
Á baksíðu Morgunblaðsins síðast-
liðinn sunnudag var stór litmynd,
sem sögð var úr Gilsfírði. Þetta
mun ekki vera rétt, heldur er mynd-
in úr Þorskafírði. Staðkunnungur
maður segir að myndin sé tekin í
hlíðinni fyrir ofan Kollabúðir og
sjái út fjörðinn.
sannfæringu mína og réttlætis-
kennd."
Olga Guðrún segir einnig að hún
geti ekki sætt sig við þau vinnu-
brögð sem flokksforystan viðhafði
í þessu máli. Segja mætti að fulltrú-
um á miðstjómarfundinum í fyrra-
kvöld hafi verið stillt upp við vegg.
„Við stóðum frammi fyrir orðnum
hlut og stór hluti miðstjómar
flokksins taldi að hann ætti þess
ekki annan kost en samþykkja
hann. Þar með hafði flokksforystan
gengið á bak orða sinna og fyrri
yfírlýsinga."
Olga Guðrún segir að henni fínn-
ist sem hún hafí verið blekkt og
að hún telji það litla sijómvisku af
hálfu flokksforystunnar að ganga
inn í þetta ríkisstjómarsamstarf á
þeim forsendum sem gefnar em.
„Mér var þessi ákvörðun mín
mjög þungbær. Hinsvegar hefur
verið gengið mjög mikið á sjálfs-
virðingu launafólks undanfarin ár
og mér þótti ekki á bætandi að
Alþýðubandalagið gerði slíkt hið
sama,“ segir Olga Guðrún.
Olga Guðrún var varamaður í
stjóm menningarmálanefndar
Reylq'avíkur og sat í stjóm Ásmund-
arsafns.
FiskverA á uppboðsmörkuöum 29. september.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 55,00 50,00 53,38 5,622 300.066
Ýsa 92,00 68,00 71,95 6,258 450.257
Steinbitur 47,00 47,00 47,00 0,059 2.797
Langa 38,00 38,00 38,00 0,090 3.401
Lúða 190,00 190,00 190,00 0,088 16.815
Keila 18,00 18,00 18,00 0,584 10.512
Samtals 61,72 12,701 783.848
Selt var úr Stakkavík ÁR og Hásteini ÁR. í dag verða meðal
annars seld 14 tonn af þorski og 12 tonn af ýsu úr Sandafelli
HF, KristínuÁR og Hafbjörgu HF.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 50,00 46,00 49,05 1,663 81.572
Ýsa 72,00 45,00 54,86 1,290 70.774
Karfi 31,50 29,00 30,00 15,133 453.934
Ufsi 27,50 26,50 26,83 7,480 200.715
Hlýri 36,00 36,00 36,00 0,055 1.980
Langa 33,00 33,00 33,00 0,311 10.263
Lúða 145,00 145,00 145,00 0,126 18.270
Skarkoli 45,00 45,00 45,00 0,010 450
Samtals 32,15 26,068 837.957
Selt var úr Þrymi BA og Freyju RE. í dag verða meðal annars
seld um 8 tonn af þorski úr Farsaeli SH og 3,5 tonn af hlýra og
0,5 tonn af-löngu úr Skipaskaga AK.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 52,00 37,50 46,98 22,115 1.038.923
Ýsa 71,50 35,00 63,99 2,653 169.775
Ufsi 27,50 25,50 26,29 1,156 30.390
Karfi 28,00 19,00 27,18 1,093 29.712
Steinbítur 16,00 16,00 16,00 0,035 535
Hlýri+steinb. 30,00 30,00 30,00 0,380 11.400
Langa 30,00 24,00 27,21 3,300 89.800
Blálanga 20,50 20,50 20,50 0,027 554
Skarkoli 40,00 35,00 39,93 0,608 24.280
Lúða 170,00 65,00 112,77 0,172 19.453
Keila 14,00 12,00 12,91 2,700 34.850
Skötuselur 85,00 85,00 85,00 0,015 1.275
Samtals 42,36 34,254 1.450.947
Selt var aðallega úr Sæmundi HF, Eldeyjar-Boða GK, Sigrúnu
GK og Ólafi GK. í dag verða meðal annars seldir 100 kassar
af blönduðum afla úr Bergvík KE.
Verð á loönuafuröum
FÉLAG ÍSLENSKRA FISKMJÖLSFRAMLEIÐENDA
Cif-verð fyrir prótíneininguna af loönumjöli er nú um 9,40 Banda-
ríkjadalir, eða 30.700 krónur fyrir tonnið, en meöalverð fyrir
tonnið af loðnulýsi er um 400 Bandaríkjadalir (18.700 krónur).
Hins vegar hefur lítið veriö selt af loðnuafurðum að undanförnu.
Graenmetisverð á uppboðsmðrkuðum 29. september.
SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA
Gúrkur 150,00 1,115 167.170
Sveppir 455,00 0,400 181.640
Tómatar 137,00 4,620 631.668
Paprika(græn) 271,00 0,660 179.145
Paprika(rauð) 333,00 0,525 174.625
Hvítkál 66,00 2,180 143.880
Rauðkál 86,00 0,150 12.900
Gulrætur(ópk-) 76,00 1,100 83.600
Gulrætur(pk.) 86,00 2,060 177.160
Salat 63,00 0,405 25.515
íssalat 143,00 0,015 2.145
Dill 43,00 0,200 8.500
Blaðlaukur 152,00 0,200 30.380
Blómkál 86,00 1,008 85.792
Kínakál 82,00 1,440 118.500
Sellerí 152,00 0,125 18.975
Samtals 2.123.300
Einnig voru seld 1.996 búnt af steinselju fyrir 64.752 krónur
eða 32 króna meðalverð. Næsta uppboö verður á þriðjudaginn.
Sinfóníuhljómsveit æskunnar með tónleika
Sinfóníuhljómsveit æskunn-
ar heldur tónleika á morgun,
laugardaginn 1. október, kl.
14.00 og verða þeir í Há-
skólabíói.
Á efnisskránni eru tvö verk
eftir J. Brahms. Fyrra verkið er
tilbrigði um stef eftir Haydn op.
56 og seinna verkið er Píanókvart-
ett í g-moll, op. 25 í hljómsveitar-
búningi Schönbergs. Stjómandi
er Paul Zukofsky.
Þessir tónleikar eru afrakstur
tveggja vikna rjámskeiðs sem
haldið var á vegum Sinfóníuhljóm-
sveitar æskunnar. Námskeiðið
sóttu 70 tónlistamemendur hvað-
anæva af landinu.
150 þús-
und gosdós-
um skilað
Sigurður Bragason, Erla Gígja Garðarsdóttir og Guðjón Óskarsson.
Operutónleikar í Njarðvík
Óperutónleikar verða í
Njarðvíkurkirkju á sunnudag, 2.
október, kl. 17. Fram koma Erla
Gígja Garðarsdóttir, sópran, Sig-
urður Bragason, bariton og Guð-
jón Óskarsson, bassi. Undirleikari
á píanó er Úlrik Ólason.
Erla Gígja lauk 8. stigi í söng frá
Tónlistarskólanum á Akranesi sl.
vor. Hún tók þátt í námskeiði hjá
Pier Miranda Ferraro á Ítalíu í sum-
ar. Sigurður hefur sungið á tónleik-
um víða um land og erlendis. Hann
lauk námi hjá Ferraro á ítalíu árið
1986. Guðjón er við nám í akade-
míunni í Osimo á Ítalíu. Síðasta vet-
ur söng hann eitt aðalhlutverkið í
Rigoletto í Frakklandi. Hann mun
syngja eitt af aðalhlutverkunum í
uppfærslu Þjóðleikhússins og ís-
lensku óperunnar á Ævintýrum
Hoffmans nú í október. Úlrik er org-
anisti í Kristskirkju í Reykjavík.
Hann stundaði framhaldsnám í Vest-
ur-Þýskalandi á ámnum 1976-1980.
Frá 1980-1981 kenndi hann við
Tónlistarskólann á Akranesi og var
síðan skólastjóri Tónlistarskóla
Húsavíkur í sex ár.
EINN liður í hreinsunarátakinu
sem byrjaði um miðjan septem-
ber, var að krakkar hafa getað
safiiað tómum gosdósum, og.-np.
skilað gegn tveggja króna skila-
gjaldi á hveija dós. Móttöku-
staðir hafa verið allar félag-
smiðstöðvar og nokkrir skólar
í borginni.
Söfnunin hefur gengið vel og
hafa samtals 150.000 dósir safn-
ast þá tvo laugardaga sem liðnir
eru af átakinu.
Laugardaginn 1. okt. milli kl.
14:00—17:00 er síðasti móttöku-
dagur fyrir tómar dósir á vegum
hreinsunarátaks Reykjavíkurborg-
ar. Allar félagsmiðstöðvar borgar-
innar, Breiðholtsskóli, Foldaskóli,
Ölduselsskóli, Laugamesskóli og '*mt
Fríkirkjuvegur 11 taka á móti
tómum gosdósum.
Baldvin E. Albertsson, Isleifúr Árnason og Olafúr Sigurgeirsson
undirbúa perusöluna.
Perusala Lions-
manna í Hafimrfirði
LIONS-klúbbur HafúarQarðar
verður með sína árlegu perusölu
1. og 2. október. Allur ágóði af
sölunni rennur til líknarmála í
Hafnarfirði.
Klúbburinn hefur m.a. styrkt
heimili fyrir þroskahefta, svokall-
aða kisudeild sem er deild innan
bamaheimilis í Norðurbænum í
Hafnarfirði. Einnig heimili fyrir
vangefna á Klettahrauni 17. Svo
og hefur klúbburinn styrkt St. Jós-
efsspítala í Hafnarfírði með tækja-
kaupum, svo eitthvað sé nefnt.
Á síðastliðnum vetri vom t.d.
keypt verkfæri við tæki, sem notað
er til að skera upp við bijósklosi í
baki, þannig að nú geta læknar í
Hafnarfirði framkvæmt þær að-
gerðir. Einnig styrkir Lionsklúbbur
Hafnarfjarðar ýmis málefni innan
Lionshreyfíngarinnar.
(Úr fréttatilkynningu.)
Döguná
uppboði hjá
Gallerí Borg
GIFSSTYTTA af Dögun, eftir
Einar Jónsson, verður meðal
verka sem boðin verða upp á
16. listmunauppboði Gallerí
Borgar á Hótel Borg næstkom-
andi sunnudag. Þar verður
einnig vatnslitamynd efltir Jó-
liannes S. Kjarval frá 1918 og
olíumynd efltir Jón Stefánsson
af hrossastóði í haga, að því er
fram kemur í frétt frá Borg.
Alls verða boðin upp rúmlega
70 verk. Auk þeirra sem að fram-
an greinir verða m.a. boðnar upp
5 Kjarvalsmyndir, túss og krít^-^,
vatnslitamynd og olíumynd eftir
Gunnlaug Scheving, stór olíumynd
eftir Gunnlaug Blöndal og blóma-
mynd eftir Kristínu Jónsdóttur.
Uppboðið hefst klukkan 15.30
á sunnudag, 2. október. Myndimar
eru til sýnis í Pósthússtræti 9 í
dag, föstudag, frá 10 til 18 og á—"
morgun frá 14 til 18.