Morgunblaðið - 30.09.1988, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988
Djass í Sjallanum
Djasstónleikar verða haldnir
í Sjallanum sunnudagskvöld, og
heQast þeir klukkan 21.00. Þá
leiku kvartett sem skipaður er
þeim Jóni Páli Bjarnasyni gítar-
leikara, Finni Eydal baritón- og
tenórsaxafón og klarinettuleik-
ara, Tómasi R. Einarssyni
bassaleikara og Guðmundi R.
Einarssyni trommuleikara.
Þessir fjórmenningar hafa ekki
leikið opinberlega saman áður, en
munu taka létta sveiflu fyrir tón-
ieikana á morgun til að samæfa
krafta sína, að sögn Finns, Finnur
sagði að frumkvæðið að tónleikun-
um væri komið frá Jóni Páli
Bjamasyni, sem byggi og starfaði
í Los Angeles í Bandaríkjunum,
mestmegnis við hljóðversvinnu þar.
Jón Páll væri nú í heimsókn á ís-
landi og vildi nota tækifærið til
að leika góðan djass með hinum
þremur hljóðfæraleikurunum.
Morgunblaðið/GSV
Gnóttafijúpu
Rjúpnaveiði má heQast þann 15. október nk. og
búast má við góðri ijúpnavertíð miðað við þann
fjölda, sem sést hefur á Norðurlandi að undanf-
örnu. Að sögn Ævars Petersen fuglafiræðings
hjá Náttúrúfræðistofnun íslands virðist meira
af ijúpu á Norðurlandi í ár en í fyrra og tiltók
Ævar svæðið allt firá Skagafirði austur í Suður-
Þingeyjarsýslu. Vel bar í veiði þjá ijúpnaveiði-
mönnum í fyrra og ef að líkum lætur verður
veiðin ekki minni í ár, en að sögn Ævars eru
veiddar þetta 150 til 200 þúsund ijúpur árlega.
Mynd þessi var tekin í miðju íbúðahverfi á Akur-
eyri fyrir skömmu, nánar tiltekið við íbúðablokk
við Múlasíðu sem tilheyrir Glerárþorpi, þar sem
hópur ijúpna var á vappi.
Minjasafii Akureyrar:
Guðrún Gerður
Gunnarsdóttir
ráðin minjavörður
Guðrún Gerður Gunnarsdótt-
ir fornleifa- og þjóðháttafræð-
ingur frá Reykjavík hefiir verið
ráðin forstöðumaður Minja-
safnsins á Akureyri. Hún mun
hafa hlotið atkvæði meirihluta
stjórnar safnsins.
Upphaflega sóttu þijár konur
um stöðu minjavarðar Minjasafns
Akureyrar. Auk Guðrúnar sóttu
þær Aðalheiður Steingrímsdóttir
sagnfræðingur og Elísabet Guð-
mundsdóttur fomleifa- og þjóð-
háttafræðingur um stöðuna, en
Elísabet dró umsókn sína til baka
af persónulegum ástæðum. Fyrr-
um minjavörður Bjami Einarsson
fomleifafræðingur hélt í fyrra í
framhaldsnám til Svíþjóðar og var
Út er komið sönglagahefti eftir
Askel Jónsson fyrrverandi org-
anista og kennara á Akureyri.
Áskell Jónsson
Kirkjukór Lögmannshlíðarsókn-
ar á Akureyri stendur að útgáfu
þessari í virðingar- og þakklætis-
skyni við Askel, en hann var organ-
isti við Lögmannshlíðarkirkju í 42
ár samfleytt og lét af því starfi
haustið 1987. Áskell er þjóðkunnur
fyrir áratuga störf að tónlistarmál-
um og er góður fengur að þessari
bók, segir í fréttatilkynningu frá
kómum.
I bókinni eru nítján lög ætluð til
einsöngs, tvísöngs og kórsöngs.
Textar eru eftir ýmsa höfunda og
má þar nefna Sverri Pálsson skóla-
stjóra, Daníel Kristinsson og marga
fleiri. Ágóði af sölu bókarinnar
rennur í orgelsjóð Glerárkirkju á
Akureyri. Bókin fæst keypt í Skó-
verslun M.H. Lyngdal, í verslunar-
miðstöðinni Sunnuhlíð og einnig hjá
kórfélögum Kirkjukórs Lögmanns-
hlíðar og söngstjóra kórsins Jó-
hanni Baldvinssyni.
Húsmæðraskólinn að Laugum.
Laugar:
Húsmæðraskólinn afhent-
ur Kvenfélagasambandinu
Húsavík.
FORMLEG afhending Hús-
mæðraskólans að Laugum
(gamla húshlutans) sem ríkis,
sýsla og Húsavikurbær hafa gef-
ið Kvenfélagasambandi Þingey-
inga hefiir nú farið fram.
Fræðslustjóri, Sigurður Hallm-
arssson, afhenti stjóm sambandsins
tiiicía A íAlíMrn at.höfn að Ti](,-
um um miðjan þennan mánuð.
Stjóm sambandsins undir forystu
Jóhönnu A. Steingrímsdóttur hélt
þar sinn fyrsta fund og ræddi um
framtíðamotkun hússins en það
mál er í athugun og ekki fullmótað.
Nokkrar lagfæringar og breyt-
ingar þarf að gera vegna þess að
nú er gamla húsið skilið frá nýbygg-
ingunni. Fréttaritari.
í ársleyfi frá safninu. Á meðan
sinnti Aðalheiður Steingrímsdóttir
störfum hans og þegar fyrir lá að
Bjami ætlaði sér lengri tíma í
framhaldsnámið, ákvað stjóm
safnsins að auglýsa starfíð laust
til umsóknar.
Guðrún Gerður hefur að undan-
fömu starfað við Árbæjarsafnið í
Reykjavík og tekur hún við starf-
inu á Akureyri um miðjan október.
Nýtt sönglagahefti
eftir Askel Jónsson
isúMítf
HOTEL
KEA
Fjölskyldu-
tilboð
sunnudag
Rósakálssúpa
Reyktur grísakambur
með ananas og rauðvíns-
sósu
Verð aðeins kr. 750,-
Frftt fyrir börn 0—6 ára
V2 gjald fyrir 6-12 ára.
Wnabwg
Norðlendingar!
Stofnfundur SÁÁ - N
Samtaka áhugamanna um áfengisvandamáliö - Norðurlandi
verður haldinn í Borgarbíói kl. 14.00 laugardaginn
1. október. Allir áhugamenn velkomnir.
Kaffisala á hótel Varðborg.
Fyrirlestur
Þórarinn Tyrfingsson formaður SÁÁ flytur erindi
um forvarnarstarf og horfur í áfengismálum.
Allirvelkomnir.
Undirbúningsnefnd.
Gítartónleikar í
Tónlistarskólanum
ERIK Júlíus Mogensen heldur
gítartónleika í sal Tónlistarskól-
ans á Akureyri laugardaginn 1.
október kl. 16.00.
Þar flytur Erik verk eftir Alonso
Mudarrá (f. 1546), Femando Sor
(1778—1839), Isaac Albeniz
(1860-1909), H. Villa-Lobos
(1887—1959), Alexandre Tanzman
(1897—1986) og síðast en ekki síst
Noctumal op. 70 eftir Benjamin
Britten (1913—1976) sem skrifað
var fyrir og frumflutt af Julian
Bream á Aldeburgh-hátíðinni árið
1964).
Erik hefur numið gítarleik víða,
svo sem við Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar undir handleiðslu
Gunnars H. Jónssonar og síðar einn
vetur hjá Amaldi Amarsyni. Á
Spáni lærði Erik við Conservatorio
Superior de Música Oscar Esplá
undir leiðsögn Jóse Tómas. Þá hef-
ur Erik sótt tíma hjá meisturum
eins og Jóse Luis Gonzales og
Manuel Barrueco.
Erik Júlíus Mogensen