Morgunblaðið - 30.09.1988, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988
N Á M S K E I Ð
SAMSKIPTI
FORELDRA OG BARNA
Nú er að hefjast námskeið þar sem foreldrum
gefst kostur á að kynnast og tileinka sér
ákveðnar hugmyndir og aðferðir í samskiptum
foreldra og barna. Þar verður m.a. fjallað um
hvað foreldrar geta gert til að:
• aðstoða börn sín við þeirra vandamál
• leysa úr ágreiningi án þess að beita valdi
• byggja upp jákvæð samskipti innan fjöl
skyldunnar
Námskeiðin byggja á hugmyndum Dr. Thomas
Gordons sálfræðings, höfund bókarinnar
„Samskipti foreldra og barna.“
Leiðbeinendur hafi hlotið þjálfun til að halda
þessi námskeið á íslandi.
Námskeiðin verða 3 klst. í einu, í 8 skipti.
Upplýsingar og skráning S: 82804 • 621132
Hugo Þórisson,
sálfræöingur.
Wilhelm Norðfjörð,
sálfræðingur
saMskipti
FRÆDSLA OG RÁDGJOF SF.
Samskipti forddra og barna Samskipti unglinga. Samskipti á vinnustað
Samskipti við viðskiptavini Samskipti kennara og nemenda
Samskipti stjórncnda og starfsmanna Mannlcg samskipti/ákvcðniþjálfun
Sigríður Sigurðar
dóttir — Minning
Fædd l.júlí 1921
Dáin 22. september 1988
Það er erfitt að skilja að amrna,
Sigríður Sigurðardóttur, skuli vera
dáin. En það er víst staðreynd. Við
vissum reyndar að hún hafði verið
mikið veik en einhvem veginn var
tilfinningin alltaf sú að amma hlyti
að verða frísk og tæki á móti okkur
næst þegar við kæmum í heimsókn,
með sömu hlýjunni og áður.
Við krakkamir höfum alltáf
hlakkað til að fara í heimsókn til
afa og ömmu í Hafnarfirði. Við
fundum að þeim fajinst gaman að
fá okkur í heimsókn og við fundum
líka að þeim þótti mjög vænt um
okkur. Alla tíð fylgdist amma vel
með því hvemig okkur leið, hvort
við væmm nokkuð lasin eða með
kvef eða hvort við hefðum nú ör-
ugglega klætt okkur nógu vel og
væri ekki kalt. Einnig var passað
upp á að í hvert sinn sem við kom-
um í heimsókn færum við ekki
öðruvísi en vel södd.
Síðustu mánuðina sem amma
lifði var hún mjög veik og leið oft
illa. Við treystum því hins vegar
að erfiðleikar hennar séu nú á enda
og henni líði vel.
Við munum alltaf minnast henn-
ar með þakklæti fyrir þá ástúð og
hlýju sem hún sýndi okkur.
Bamabörn
Sálin er gullþing geymd í keri
geymist þó kerið sé veilt.
Bagar ekki brestur í keri
bara ef gullið er heilt.
Þessi orð góðskáldsins fóru um
hugann þegar féttin barst að Sigríð-
ur Sigurðardóttir, mágkona mín,
hefði fengið lausn frá langvarandi
þjáningastríði.
Hún var fædd 1. júlí 1921 og
andaðist hinn 22. september sl.
Foreldrar hennar voru heiðurshjón-
in Ástríður Jónsdóttir og Sigurður
Kjartansson, kaupmaður við
Laugaveg. Hún var því Reykjavík-
urstúlka í húð og hár og er nú
kvödd frá Dómkirkjunni í Reykjavík
í'dag.
Sigríður átti fjögur systkini: Guð-
finnu, verslunarstjóra, sem ógift bjó
heima hjá foreldrum sínum og var
þeim stoð og styrkur alla tíð þar
til hún lést um aldur fram og var
hennar gerð þannig að hún var
hörmuð af öllum sem kynntust
henni.
Önnur systkini eru: Haukur,
verslunarmaður, kvæntur Brynhildi
Olgeirsdóttur, kaupkonu, Atli,
verslunarmaður, kvæntist Sigrúnu
Guðmundsdóttur, þau skildu. Yngst
er Guðrún, tækniteiknari. Öll eru
þau búsett í Reykjavík.
Sigríður fékk sína menntun í
gagnfræðaskóla og var létt um
nám. Hún giftist eftirlifandi manni
sínum, Brynjólfi Þorbjamarsyni,
vélsmíðam. frá Geitaskarði, 1943,
og hafa þau búið mestan hluta
þeirra 45 ára hjúskapartíma í Hafn-
arfirði, Iengst af á Mánastíg 2.
Þau hjón eignuðust sex mann-
vænlega syni. Elstur er Sigurður
Kjartan, stórkaupm., kvæntur Unni
Einarsdóttur, skrifst.stj., Þorbjöm,
véltæknir, ókvæntur, Stefán Heið-
ar, líffræðingur, kvæntur Svövu
Þorsteinsdóttur, kennara, Jón,
læknir, kvæntur Grethe Have,
lækni, Magnús Bjöm, Iögfræðingur,
kvæntur Sigrúnu Karlsdóttur, lyfla-
fræðingi, en yngstur er Guðmund-
ur, vélvirki, ókvæntur. Synimir,
sem allir em búsettir og starfandi
í Reykjavík, áttu tíðar ferðir í
„Fjörðinn" þar sem miðstöð fjöl-
skyldunnar var í foreldrahúsi á
Mánastígnum og þau hjón vom
samtaka í öllu því, sem til heilla
mátti horfa fyrir þá. Sigríður fylgd-
ist vel með því sem gerðist í fjöl-
skyldunni, þrátt fyrir að hún hin
síðari ár ætti erfitt með að fara í
Magnús Gunnlaugs-
son — Minning
Fæddur 28. maí 1953
Dáinn 23. september 1988
Hann í bemsku hlýðni lærði,
heimilisins prýði var,
gleði og yndi öðrum veitti,
engan skugga líf hans bar.
Með örfáum orðum langar mig
að minnast míns elskulega frænda
og vinar Magnúsar Gunnlaugsson-
ar, sem lést í hörmulegu bílslysi í
Noregi föstudaginn 23. september.
Hann fæddist á Ákranesi 28.
maí 1953, sonur hjónanna Selmu
og Gunnlaugs Magnússonar, á
Vesturgötu 25, Akranesi. Magnús
var elstur ásamt tvíburabróður
sínum Gunnlaugi.
Þar sem bara ár var á milli okk-
ar og við alin upp í sama húsi urð-
um við miklir vinir og leikfélagar.
Það væru svo margar stundimar
sem hægt væri að minnast á frá
æskuámm okkar. Hver hefði trúað
að við ættum eftir að missa hann
í svo hræðilegu slysi, hann sem var
svo varkár og gætinn.
Magnús flytur til Bergen í Nor-
egi árið 1971, stuttu á eftir foreldr-
um sínum og systkinum. Þar kynn-
ist hann góðri íslenskri stúlku, Önnu
S. Magnadóttur frá Akureyri. Þau
heimsóknir til frænda og vina eins
oft og fyrr á ámm. Við sem þekkt-
um Sigríði vel, munum hana sem
sérstæðan persónuleika. Hún hafði
einnig sérstæðar skoðanir að ýmsu
leyti, sem hún hélt mjög fast við
allt til hins síðasta, sem e.t.v. hafa
gert henni lífið erfiðara en til stóð,
og öðmm ekki eins auðvelt að létta
henni baráttuna við hrakandi
heilsufar, sem markaði mjög útlit
þessarar fríðu konu.
Við sem munum hana viljum
geyma mymd af ljóshærðri fagur-
eygðri konu sem átti það gull í sínu
hjarta að vilja gleðja aðra með því
að gefa af því sem hún átti og sýna
aðra hugulsemi sem yljar á vegferð-
inni.
Ef það er rétt sem sagt er, að
hver sé sinnar gæfu smiður, þá má
segja, að Sigríður mágkona hafi
fundið gæfu sína í velgengni sona
sinna, tengdadætra og stómm hópi
vel gerðra bamabama.
Nú er hún horfin sjónum hún
Sigríður mágkona. Ég þakka henni
samfylgdina og bið henni blessunar
Guðs. Ástkæmm bróður, sonum og
fjölskyldum þeirra færi ég hjartans
samúðarkveðjur frá mínum manni
og fjölskyldu okkar.
Hildur Þorbjarnardóttir
DÚNDUR ÚTSALA
í Gardfnubúðinni, Skipholti 35
Gluggatjaldaefni, stórisefni og nú iíka
fataefni
í miklu úrvali.
Opið Gardínubúðin
.. Skipholti 35
Manudaga - fostudaga
frákl. 9-18 (við hliðina á Borgarblóminu),
Laugardaga frá kl. 10-16 sími 35677.
reisa sér hús í Granvin nærri Voss,
þar vann hann sem bifvélavirki og
verkstjóri og síðan sölumaður hjá
Ford-umboðinu í Voss, og var hann
mikils metinn enda traustur og
góður drengur.
Þau eignuðust 3 böm; Róbert,
13 ára; Ingvar, 8 ára, og Elisabet,
5 ára. Mikill harmur er kveðinn að
fjölskyldunni.
Elsku Anna og böm, Selma,
Laugi, Gunnlaugur, Rúnar, Björg
og Qölsk., Guð styrki ykkur og
styðji í ykkar miklu sorg.
Blessuð sé minning Magnúsar
Gunnlaugssonar. Magnús verður
jarðsettur í Granvin föstudaginn 30.
.september 1988.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Fríða Sigurðardóttir