Morgunblaðið - 30.09.1988, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988
33
Minning:
Eiríkur Guðlaugs-
son frá Fellskoti
Fæddur 14. apríl 1914
Dáinn 20. september 1988
Þegar ég var í skóla á Laugar-
vatni fyrir um þremur áratugum, þá
voru skólafélagar mínir einkum
Sunnlendingar, svo og Reykvíkingar
eins og ég með skrykkjótta fortíð
úr skólakerfínu.
Sunnlendingamir voru ýmist úr
þéttbýliskjömum fjórðungsins eða
hreinir og beinir sveitamenn sem
þóttu merkilegustu pappíramir sök-
um ættgöfgi og gáftiafars.
Af sveitamönnunum þótti mér
mest koma til Tungnamanna, og
fannst mér afleitt að geta með engu
móti rakið ættir mínar til þeirra.
Við þessum vanda brást ég með
besta leiknum í stöðunni, þ.e. að
sækja mér kvonfang af traustum
Tungnaættum og varð fyrir valinu
dóttir Eiríks Guðlaugssonar 'bifreiða-
stjóra frá Fellskoti sem nú er kvadd-
ur hinstu kveðju.
Allt frá fyrstu kynnum okkar
Eiríks tengdaföður míns myndaðist
með okkur traust vinátta sem óx og
dafnaði alla tíð.
Eiríkur stundaði ævistarf sitt,
akstur og útgerð leigubifreiða, af
þeirri alúð, vinnusemi, reglusemi og
metnaði sem fáum er gefin. Hann
var í senn maður einfaldra, traustra
lífskoðana og fjölbreyttur að at-
gervi. Nú er ekki endilega víst að
allir séu með það á hreinu hvað átt
er við með orðinu atgervismaður, en
í mínum huga og þeirra sem til
þekktu uppfyllti hann öll þau skilyrði
sem þarf til að vera þar fremstur
meðal jafningja.
Lífsstíll og skoðanir Eiríks voru á
þann veg, að ef aðrir hefðu fylgt
fordæmi hans þá væri engin þörf á
stjómmálamönnum. Það væru ein-
faldlega engin vandamál að fást við.
Heiðarleika hans og áreiðanleika
var við brugðið. Allir reikningar voru
greiddir á gjalddaga og sama gilti
um skatta og aðrar skyldur. Aldrei
vanskil, aldrei dráttarvextir. Lán
voru aldrei tekin nema af brýnustu
nauðsyn, og jafnan greidd upp eins
hratt og fjárhagurinn frekast leyfði.
Hagsýni og vandvirkni voru ein-
kunnarórð Eiríks alla tíð. Hann hélt
svo vel utan um eigur sínar að unurt
var á að horfa. Bílamir hans vom
svo vel þvegnir, bónaðir og við hald-
ið, að hann var jafnan kallaður til.
fyrstur manna ef aka þurfti stór-
höfðingjum. Það var enda svo að
þegar Eiríkur þurfti að selja bíl upp
í nýjan þá fékk hann fyrir hærra
verð en aðrir höfðu kynnst. Sumir
gengu svo langt að halda því fram
að bílar sem Eiríkur hafði átt og
farið höndum um væm betri en nýir
bílar.
Þeir eiginleikar Eiríks, sem að
framan em taldir, urðu honum giftu-
dijúgir í einkalífínu. Hann efnaðist
ágætlega án þess að verða óþarflega
ríkur, sá vel fyrir sínum án þess að
bmðla og tókst að feta hinn gullna
meðalveg, fjölskyldu sinni til hag-
sældar.
Eiríkur var mikill gleðimaður án
þes að verða nokkumtíma fótaskort-
ur í þeim efnum frekar en öðmm.
Fjölskyldusamkomumar hófust
ævinlega á því að Eiríkur upphóf
rödd sína með „Hvað er svo glatt sem
góðra vina fundur", og svo var sung-
ið meðan raddböndin leyfðu. Eiríkur
hafði geysimikla og bjarta tenórrödd
sem barst yfír í næstu byggðarlög
og aftur til baka ef því var að skipta.
Þá hópuðust allir söngelskir tvífætl-
ingar kringum hann og létu vel að
stjóm undir forsöng hans.
í einkalífinu varð Eiríkur mikill
hamingjumaður enda var ekki t kot
vísað þar sem hann og eiginkonan
Liv Jóhannsdóttir réðu húsum. f
meir en hálfa öld vom þau í ham-
ingjusömu hjónabandi og stóðu sam-
an gegnum þykkt og þunnt. Bömin
urðu fímm en elstu dóttur sína misstu
þau á fyrsta ári. Hin fjögur em;
Guðlaug Emilía verslunarmaður, gift
Pétri Elíassyni húsasmið; Hanna
, Matthildur bankamaður, gift Edgari
Guðmundssyni verkfræðingi; Katrín
bankamaður, gift Helga Karlssyni
skrifstofustjóra og Jóhann Grétar
verslunarstjóri kvæntur Þóreyju Jón-
mundsdóttur flugfreyju. Bamaböm-
in em níu og bamabamabömin tvö.
Foreldrar Eiríks vom hjónin Guð-
laugur Eiríksson bóndi í Fellskoti
Biskupstungum f. 1867 — d. 1940,
og Katrín Þorláksdóttir f. 1870 —
d. 1945 frá Hafnarfirði. Systkini
Eiríks em Þóra, Eiríkur eldri, Eyþór,
Margrét, Þorlákur, Eimý, Guðrún,
Þórarinn og Sigríður Lilja en Eiríkur
yngri, sem nú er kvaddur, var yngst-
ur af systkinum sínum. Af systkinun-
um í Fellskoti em á lífí Þóra, Guð-
rún, Þórarinn og Sigríður Lilja.
Eiríkur var heilsuhraustur framan
af ævi, en þegar tók að halla í sex-
tugt fór heilsunni að hraka. Hjartað
var lélegt, síðan tók við höfuðveiki,
þá sykursýki og að lokum krabba-
mein sem varð honum að aldurtila.
Undir það síðasta hafði hann á orði
í léttum dúr að nú kæmust bara
ekki fleiri sjúkdómar fyrir í skrokkn-
um, þar væm öll sæti upptekin. Þrátt
fyrir þetta barðist hann hetjulegri
baráttu við dauðann til hinsta dags.
Hann hélt fullri meðvitund og and-
legri reisn þar til yfir lauk.
í júníbyijun dvöldumst við hjónin
ásamt Eiríki og Lív eina viku í sumar-
bústað í Fnjóskadal. Veðrið var for-
kunnarfagurt allan tímann enda var
víða farið um nágrennið. Þótt Eiríkur
væri þá sárþjáður lét hann ekkert
tækifæri ónotað til að slá á létta
strengi tilvemnnar. Hvar sem farið
var um hémð þekkti hann deili á
Qöllum og fimindum, ám og vötnum,
fólki og ferfætlingum. Allt varð að
tilefni til umræðu í einhverri mynd.
Þannig var Eiríkur bæði sérlega fróð-
ur, ræðinn og skemmtilegur. Tæpum
þremur mánuðum seinna var hann
allur.
Allir afkomendur og ástvinir
sakna hans mikils en mega þó vita
að hann mun búa í haginn fyrir okk-
ur hina í efra með sömu vandvirkni
og elskusemi og hann stundaði í
jarðlífínu.
Blessuð sé minning míns elskulega
tengdaföður Eiríks Guðlaugssonar.
Edgar Guðmundsson
Tökum höndum saman
Vetjum hagsmuni
sparifjáreigenda!
OPINN FUNDUR Á HÓTEL ÍSLANDI
Laugardaginn 1. október 1988, kl. 14:00
1. Fundur settur
Skýring á tilurð og tilgangi fundarins
Sigurður Gunnarsson, framkv.stj.
2. Fundarstjóri tekur við stjórn fundar
Helgi K. Hjálmsson,
framkvæmdastjóri
3. Framsöguerindi
a. Gunnar Helgi Hálfdanarson,
framkvæmdastjóri
b. Guðmundur Magnússon,
prófessor
c. Kristján J. Gunnarsson,
fyrrverandi fræðslustjóri
í Reykjavík
4. Almennar umræður
Spariíjáreigendur eru allir þeir sem eiga
eignir t.d. í bönkum, sparisjóðum, lífeyr-
issjóðum eða verðbréfum.
Sparifjáreigendur skipta tugum þúsunda.
Þeir eru t.d. eldra fólk og lífeyrisþegar,
unglingar og börn, og allir þeir, sem eru
að reyna að koma sér upp sjóði, til örygg-
is eða annarra nota síðar.
Sparifjáreigendur eru ekki fámenn klíka
sem hefur safnað sér óhóflegum gróða.
Spariíjáreigendur úr öllum stjórnmála-
flokkum, öllum starfsstéttum og á öllum
aldri verða að taka höndum saman og
vinna gegn ábyrgðarlausum aðgerðum
stjórnvalda og stjórnmálamanna.
Það á að verðlauna þá sem spara
en ekki að refsa þeim!
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Samtök sparifjáreigenda
Hægt er að skrá sig í samtökin í síma 680021. Símsvari allan sólarhringinn.