Morgunblaðið - 30.09.1988, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988
35
Stiörnu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri Gunnlaugur. Fæðing-
ardagur minn er 15. ágúst
1963. Staður og stund er
Reykjavík kl. 3.45 að nóttu.
Mig iangar til að vita hvaða
störf þú myndir telja að hent-
uðu mér samkvæmt þessu.
Fyrirftam þakkir."
Svar;
Þú hefur Sól, Venus og
Rísandi í Ljóni, Tungl í
Tvíbura, Merkúr í Meyju,
Mars í Vog og Fiskamerkið
á Miðhimni.
Hlý ogfalleg
Sem margfalt Ljón má segja
að þú sért hlý og einlæg, en
jafnframt föst fyrir og ráðrík.
Þú hneigist til þess sem er
glæsiiegt og þarft að vera
áberandi í umhverfí þínu. Þú
þarft t.a.m. að njóta vissrar
virðingar fyrir það sem þú
gerir.
Lifandi
Þar sem þú ert Ljón þurfa
störf þín að vera lifandi og
flölbreytt. Þú þarft að geta
gefíð af þér persónulega og
haft persónuleg áhrif á það
sem þú fæst við. Dauð vana-
binding á því iila við þig.
Hömlur
Það sem getur háð þér er
mótstaða frá Satúrnusi yfír á
Sól og Venus. Það táknar að
þú hefur sterka ábyrgðar-
kennd og fullkomnunarþörf
sem getur haldið þér og þar
með Ljóninu niðri. Hættan
er sú að þú gerir það miklar
kröfur að þú verðir óánægð
með sjálfa þig. Versti mögu-
leikinn er sá að þú fyllist
vanmáttarkennd, takir að ef-
ast um eigin getu og þorir
ekki að framkvæma það sem
þú ert fullfær um að gera.
Fjölbreytni
Tungl í Tvíbura táknar að þú
ert tilfínningalega jákvæð og
glaðlynd. Það táknar einnig
að þú ert félagslynd og þarft
á því að haida að hafa tölu-
vert af fólki í umhverfí þínu,
geta tjáð þig og skipst á skoð-
unum. Daglegt líf þitt þarf
einnig að vera fjölbreytt, m.a.
fela í sér að þú getir hreyft
þig og skipt um umhverfí.
Nákvœm hugsun
Merkúr í Meyju táknar að þú
hefur jarðbundna og
raunsæja hugsun og getur
verið nákvæm og gagnrýnin
ef því er að skipta. Ég tel
ekki ólíklegt að þú hafír
ágæta tungumálahæfíleika.
Félagslegt samstarf
Mars í Vog táknar að þér
ætti að henta einna best að
vinna með öðrum í félagslegu
samstarfi. Hann táknar einn-
ig að þú ert frekar róleg og
ljúf í orkubeitingu og tillits-
söm í vinnu.
Starf
Ef kort þitt er skoðað í heild,
með tilliti til starfs, dettur
mér eftirfarandi í hug. Vinna
þín þarf að vera lifandi og
skemmtileg (Ljón) og hún
þarf að gefa kost á hreyfan-
leika, flölbreytni og félagslífi
(Tvíburi/Vog).
SkemmtanaiðnaÖur
Störf sem eru á einhvem
hátt listræns eðlis, eða tengj-
ast skemmtanaiðnaðinum
(t.d. leikhúsi) gætu átt ágæt-
lega við þig. Störf sem hafa
með félagslega stjómun og
skipuiagsmál gætu átt vel við
þig, eins og t.d. það að vinna
hjá íþróttahreyfingu eða
stóru féiagi sem stendur fyrir
ýmiss konar uppákomum.
Júpíter í 10. húsi gefur siðan
til kynna áhuga og hæfileika
til að vinna að ferðamálum.
GARPUR
GRETTIR
!il.!!!l.!!!?!!?l.lS!IS!!?!!!!H!!!l!H!l!?!l!!!Sii!l!!H!!!Sl.l!!i!l!i!!i!lii!!!ii!!!!»»»
SEE7 l*M MA1LIN6 ALL MV CHRI5TMA5 CARP5.. _
w/ * fiL Y /c. ^ íyi lc-
Sjáðu! Ég er að póstleggja
ðll jólakortin mín ...
I5THE ONE VOU'RE^
5ENPIN6T0ME IM /
VTMER.E, TOOT^/
Er kortið til mín þarna
lika?
Komið beint í gamla póst-
kassann...
SMÁFÓLK
Vá!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Tim Seres, risinn í áströlskum
brids, sýndi hvemig hægt var
að hrifsa til sín frumkvæðið og
þar með vinninginn í hjartageim-
inu hér að neðan:
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ ÁK93
V 865 -
♦ Á86
♦ 1076
Vestur
♦ DG10764
♦ 73
♦ D52
♦ D2
Austur ^
♦ 102
♦ K10943
♦ ÁG9854
Suður
♦ 852
♦ ÁKDG94
♦ G7
♦ K3
Vestur Norður Austur Suður
2 spaðar Pass Pass 3 hjörtu
Pass 4 hjörtu Pass Pass
Pass
Útspil: spaðadrottning.
Opnun vesturs lofaði sexlit og
6—10 punktum, svo Seres sá í
hendi sér að austur lá með eyð-
una fyrir aftan blindan. Samn-
ingurinn virtist því dauðadæmd-v
ur strax frá upphafí. Þó svo að
laufásinn væri þægilega stað-
settur leit út fyrir að vömin fengi
fjóra slagi: eina spaðastungu,
annan slag á spaða með tíman-
um, einn á tígul og einn á lauf.
Sú hefði líka orðið niðurstað-
an ef Seres hefði stungið upp
hámanni í fyrsta slag. En hann
dúkkaði! Tilgangurinn var sá að
vinna tíma til að fría spaðaníuna
til að sjá um tígultaparann.
Vestur varð að spila spaðanum
áfram til að gefa makker sínurit
stungu, en þá var orðið of seint
að skipta yfir f tígul.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Esbjerg í
Danmörku í júlí kom þessi staða
upp í skák danska alþjóðameistar-
ans Jens Kristiansens og sovéska
stórmeistarans Rafacls Vagapj-
ans, sem hafði svart og átti leik.
Hvítur Iék síðast 17. g3—g4??,
sem reyndist vera vel heppnað
harakiri:
17. — Bxg4!, 18. hxg4 — Rxg4,
19. He2 - Bh2+, 20. Khl -
Dh4, 21. Hdl - He6, 22. Rel -
Bg3+, 23. Kgl - Bxf2+! og
hvítur gafst upp.
Sovéska óiympiuliðið I Novi Sad
mun verða þannig skipað: Ka-
sparov, Karpov, Jusupov, Salov,
Beljavskíj og Ivantsjúk. Þeir
Salov, sem reyndar hefur átt við
veikindi að stríða upp á síðkastið,
og hinn tvítugi Ivantsjúk, em
nýliðar í liðinu.