Morgunblaðið - 30.09.1988, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988
Minning:
Ingvar Þorsteinn
Vilhjálmsson
Fæddur 5. nóvember 1918
Dáinn 21. september 1988
Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður
og þú munt sjá, að-aðeins það, sem valdið
hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá
aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú
grætur vegna þess, sem var gleði þín.
(Kahlil Gibran)
Hann var afi okkar og hann var
líka góður vinur okkar. Hann var
þannig að við gátum talað við hann
um alla mögulega hluti og við fund-
um að hann skildi okkur. Það var
eins og þegar jafnaldrar tala saman.
Þannig átti hann sérstaklega
auðvelt með að setja sig í spor við-
mælanda síns. Þó var langt frá því
að við værum alltaf sammála um
það sem við töluðum. Og þegar svo
var komið að engin sættanleg niður-
staða fékkst, eftir alllangt þras,
stóð hann hlæjandi upp, hristi höf-
uðið og labbaði afsíðis með bók í
hönd og fór að lesa.
Hann var sílesandi og átti mikið
af alls konar bókum og blöðum.
Þegar við vorum lítil sagði hann
okkur ófáar sögumar og báru þar
hæst þjóðsögur Jónasar Amasonar.
Sumar hveijar vom all-dularfullar,
og þegar hann sá á okkur ótta-
blandinn svipinn, sagði hann að við
skildum ekkert mark taka á þessu.
Þetta varð náttúrulega til þess að
þegar við komum í heimsókn til afa
og ömmu sátum við og lásum þjóð-
sögumar.
Hann tók stundum að sér hrein-
gemingar í Hafnarbíói á laugar-
dags- og sunnudagsmorgnum og
þótti okkur systkinunum fátt
skemmtilegra en að vera með hon-
um á meðan. Það var auðvitað und-
ir því yfírskini að við væmm að
hjálpa til. En staðreyndin var sú
að okkur fannst bara svo skemmti-
legt að vera návistum við hann.
Það fór einstaklega vel á með
okkur þremur og hann sagði okkur
sögur og við spjölluðum og hlógum
saman.
Afi var í mörg ár rakari en á
seinni ámm vann hann sem dyra-
vörður í kvikmyndahúsi á Hverfis-
götunni. Það átti vel við hann því
hann hitti mikið af fólki og oftar
en ekki þekkti hann annan hvem
mann sem kom í bíó.
Það er okkur dýrmæt reynsla að
hafa þekkt hann og alist upp návist-
um við hann. Við minnumst hans
með söknuði en viljum umfram allt
minnast hans eins og hann var;
góðlátlega glettinn og skemmtileg-
ur.
Blessuð sé minning hans.
Sigrún og Jón Óskar
Miðvikudaginn 21. september
hringdi eiginkona mín til mín í vinn-
una og greindi mér frá láti föður
síns. Mér brá óneitanlega, þó að
mér væri ljóst að hann gekk ekki
heill til skógar síðasta árið. Hjá
honum hófst dagurinn eins og hver
annar virkur dagur, hann fór að
heiman í sínum venjulegu morgun-
erindum og átti ekki afturkvæmt,
því laust fyrir hádegi var hann all-
ur. Mig langar til að minnast
tengdaföður míns með fáeinum orð-
um.
Ingvar var sonur hjónanna Vil-
hjálms Vigfússonar frá Hamrakoti
í Húnavatnssýslu, f. 1878, d. 1942,
kominn af Grundarætt í Skorradal
og Fjallsætt á Skeiðum og Þórdísar
Þorsteinsdóttur, f. 1878, d. 1963,
frá Reykjum á Skeiðum, af hinni
kunnu Reykjaætt. Þau hjón eignuð-
ust níu böm, en aðeins sex komust
til fullorðins ára, fímm dætur, þær
Vilhelmína, gift Sigtryggi Eiríks-
syni, sem er látinn, Ingiríður, gift
Salbergi Guðmundssyni, sem er lát-
inn, Valgerður, sem er látin, gift
Eyþóri Gunnarssyni, sem einnig er
látinn, Svanlaug, gift Sigurði F.
Ólafssyni, sem er látinn, og Sigríð-
ur, gift Einari G.E. Sæmundssen,
sem er látinn, og Ingvar, sem var
yngstur.
Öblíður heimur heilsaði litla
drengnum við fæðingu hans, því
Spánska veikin geisaði þá sem
hæst.
Þórdís móðir hans var flutt
skömmu síðar á Landakotsspítala,
en yngstu bömin, Ingvar, koma-
bam, og Sigríður um það bil 2 áram
eldri, vora lögð inn á sjúkraskýli,
sem komið hafði verið upp í Mið-
bæjarbamaskólanum. Þegar Ingvar
kom heim, eftir nokkra vikna dvöl
á sjúkraskýlinu, var hann ekkert
nema skinn og bein, vegna næring-
arskorts og ijarvera frá móður
sinni.
Þá varð honum til bjargar elsku-
leg nágrannakona, sem hafði ný-
lega fætt barn og var með mjólk í
bijóstum og miðlaði drengnum af
hjálpsemi, sem einkenndi samskipti
fólks á þessum hörmungartímum.
Ingvar óist síðan upp fyrstu árin á
Bergstaðarstræti 7. Hann var í
skóla á vetuma og sveit á sumrin.
Um tvítugsaldur liggur leið hans
til Keflavíkur til náms í rakaraiðn
hjá Guðjóni rakara. Þar vann Ingv-
ar meðan stríðið geisaði. Eftir stríð
kom hann aftur til Reykjavíkur og
fór að vinna hjá Páli Einarssyni,
rakarameistara, sem lengst af var
með rakarastofíi á Njálsgötu 87.
Sumarið 1947 brá hann undir sig
betri fætinum og fór í heimsókn til
systur sinnar, Sigríðar, og mágs,
Einars G.E. Sæmundssen, skógar-
varðar að Vöglum í Fnjóskadal. Þar
var þá við skógræktar- og heimilis-
störf Sigrún Sigurgeirsdóttir, ung
og efnileg heimasæta, dóttir hjón-
anna á Amarstapa í Ljósavatns-
skarði, sem þar bjuggu hlýlegu
búi, þau Anna Guðmundsdóttir,
húsfreyja, og Sigurgeir Jóhannsson,
bóndi.
Þannig urðu fyrstu kynni Sigrún-
ar og Ingvars. Veturinn eftir lágu
leiðir þeirra aftur saman í Reykjavík
og gengu þau í heilagt hjónaband
21. maí 1948. Árið eftir féll þeim
sú gæfa í skaut að eignast dóttur
sem skírð var Þórdís í höfuðið á
föðurömmu sinni, sem hún mat
mikils, enda hafði amma hennar
mikið dálæti á sonardóttur sinni.
Ingvar starfaði sem rakari, bæði
sjálfstætt og hjá öðram, allt fram
á miðjan áttunda áratuginn, en eins
og flestum er kunnugt varð mikill
samdráttur í hárskeraiðn og hættu
margir hárskerar og snera sér að
öðram störfum. Ingvar fór þá að
starfa sem dyravörður í Hafnarbíói
og síðar í Regnboganum og kunni
hann mjög vel við það starf. í því
starfi komst hann í snertingu við
eitt af hans mörgu áhugamálum,
kvikmyndir, auk þess hve mann-
blendinn hann var veitti það honum
mikla ánægju, allt fólkið, sem á
vegi hans varð, bæði samstarfs-
menn oggestir kvikmyndahússins.
Annað mikið áhugamál Ingvars
vora bækur og bóklestur. Má segja
að hann væri alæta á lesefni, allt
frá tímaritum upp í ævisögur og
þjóðlegan fróðleik. Átti hann orðið
dágott bókasafn. Einnig veittu aðr-
ar listgreinar honum ómælda
ánægju. Ekki get ég skilið svo við
áhugamál tengdaföður míns að
minnast ekki á áhuga hans á íþrótt-
um og þá sérstaklega knattspymu.
Þær vora ófáar vallarferðimar sem
við fóram saman eftir að ég tengd-
ist ijölskyldunni.
Þá má ekki gleyma dálæti hans
á heimsóknum þeirra hjóna til
tengdafólksins á Norðurlandi, en
þangað fóra þau á hveiju sumri
alla þeirra sambúð og mér er ekki
kunnugt um að ferð hafí fallið þar
úr enda vora þau aufúsugestir hvar
sem þau komu þar.
Nú er höggvið stórt skarð í okk-
ar litiu fjölskyldu með fráfalli Ingv-
ars tengdaföður míns, því sam-
skipti okkar heimila vora óvanalega
náin sem skapaðist ekki síst af
áhuga Ingvars fyrir bamabömun-
um og þar af leiðandi er missirinn
sárari fyrir þau. Þungbærastur er
þó missirinn fyrir Sigrúnu, eigin-
konu hans, sem var hans stoð og
stytta alla þeirra sambúð, og
Þórdísi, dóttur þeirra, sem hefur
borið hag foreldra sinna mjög fyrir
bijósti. A þessari kveðjustund er
mér efst í huga þakklæti fyrir þær
mörgu góðu minningar um sam-
verastundir sem við áttum saman.
Tengdaföður minn kveð ég með
söknuði og óska honum góðrar
heimkomu að handan og megi góð-
ur Guð veita okkur styrk við þessi
vegamót.
Sverrir Guðmundsson
Bróðir okkar, t
GÍSLI JÓNSSON
fré ÞjórsárhoKi,
er látinn.
Systkini hins látna.
t
Sonur okkar, bróðir og mágur,
HALLFREÐ INGI HREINSSON,
lóst 18. september sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Hafdfs Ellertsdóttir,
Hreinn Nfelsen,
Ellert Hreinsson, Harpa Hilmarsdóttir,
Karl Hreinsson, Margrét Gfsladóttir,
Ragnar Guðmundur Ragnarsson,
Oagbjört Margrét Pálsdóttir.
t
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, afi og langafi,
JÓN ÁRMANN HELGASON,
Stekkjarholti 13,
Akranesi,
andaðist í Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 18. september. Jarð-
arförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Svanborg Magnúsdóttir,
Helga Jónsdóttlr,
Hörður Jónsson,
Sigurður M. Jónsson,
Svanborg Eyþórsdóttir, Ólafur Erlendsson,
Björgvin Ó. Eyþórsson, Ragnheiður Gunnarsdóttir,
Marfa Ólafsdóttir, Beinteinn Bragason
og barnabarnabörn.
t
Maðurinn minn og faðir okkar, tengdafaöir og afi,
ÓSKAR SIGURÐSSON
bóndi,
Hébsa,
Þykkvabæ,
verður jarðsunginn frá Hábæjarkirkju laugardaginn 1. október kl.
14.00.
Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á minningarsjóð Ólafs
Björnssonar, Hellu eöa Hábæjarkirkju.
Ágústa Árnadóttlr, Tómas Guftmundsson,
Sigurlfn Óskarsdóttir,
Jóna Birta Óskarsdóttir, Gfsli Jónsson,
Ragnhiidur Óskarsdóttir, Svavar Gu Abrandsson,
Elsa Tómasdóttir, Valdima; Jónsson
og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóöir og amma,
ÞÓRDfS GISSURARDÓTTIR,
Bólstaöarhlfö 58,
éður húsfreyja f Arabæ,
verður jarðsungin frá Gaulverjabæjarkirkju á morgun laugardaginn
1. október kl. 14.00.
Ingunn Stefénsdóttir, Sigurjón Jónsson,
Sigmundur Stefénsson, Hafdfs Sigurgeirsdóttir,
Margrét Stefénsdóttir, Geir Ágústsson,
Hannes Stefánsson, Helga Jóhannesdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og vin-
áttu við andlát og útför sonar okkar og bróður,
GUÐMUNDAR ÁRNASONAR,
Miöengi 20,
Selfossi.
Árni Guftmundsson,
Jóhann Árnason,
Guftrún Guðmundsdóttir,
Árný llse Árnadóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóöir og amma,
GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
Flókagötu 10,
Reykjavfk,
verður jarðsungin í Fossvogskirkju föstudaginn 30. september
kl. 13.30.
Sigurður Lýftsson, Sæunn Gunnarsdóttir,
Guðmundur Lýftsson, Inga Ágústsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
KRISTJÖNU SVEINSDÓTTUR,
Hjallabraut 23, Hafnarfirði.
Jóhann Rúnar Guftbergsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Lokað
e.h. í dag, föstudaginn 30. september, vegna jarðarfarar.
Björn Kristjánsson - heildverslun,
Grensásvegi 8.