Morgunblaðið - 30.09.1988, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988
39
CHILE
Fimmtíu
ogníu
barna
móðir
Leontina Albina, sem er 62ja ára
gömul, er nefnd í heimsmeta-
bók Guinness, sem fijósamasta
konan sem er núlifandi. Hún hefur
alið 59 böm og geri aðrir betur!
Bömin em öll tví- eða þríburar. „Ég
er reiðubúin að eignast fleiri ef Guð
ætlar að senda þau til mín“ segir
Leontina.
Fyrstu börn hennar vom þríbura-
drengir en þau fjögur yngstu em
tvennir tvíburar, sem fæddust nú á
síðustu þremur ámm. Afmælis-
dagar og nöfn bamanna hafa alltaf
verið höfuðverkur hennar og föður
þeirra, Gerardo, sem er 67 ára,
enda heita mörg þeirra sama nafn-
inu. Þrettán böm em enn heima
við, þijátíu og fímm em vaxin úr
grasi, og búa víðs vegar um heim-
inn, en ellefu em látin.
Máltíðir hafa alltaf verið vanda-
mál. „Það komast ekki fleiri að en
sex við borðið svo við verðum að
Leontina með nokkur barna sinna!
skiptast á. Þeim yngstu er gefið
fyrst, þá þeim næst yngstu og þeir
elstu fá síðast að borða. Meðan ég
elda mat, í risastómm pottinum,
baða þau eldri yngri börnin fyrir
mig eða hjálpa þeim að læra. Allir
hafa verk að vinna. Þau skiptast á
að þvo þvotta og hengja upp, sækja
heitt vatn, og búa um rúmin þeirra."
Aðeins em sex rúm á heimilinu,
níu manns sofa á dýnum á gólfínu.
Ekkert barnanna var fætt á
sjúkrahúsi. „Ég hef bara ekki haft
tíma til þess að vera að heimsækja
lækna og liggja á fæðingardeild.
Ég fór einu sinni í mæðraskoðun
og þá var reynt að tala mig frá því
að eignast fleiri böm.“ segir Leont-
ina. Sum bama hennar em vel
menntuð í dag, einn er til dæmis
læknir og annar lögfræðingur.
Ekki hefur fjölskyldan úr miklu
að moða. Fjölskyldufaðirinn er
borgarstarfsmaður á eftirlaunum,
en einhvem styrk fá þau með böm-
um sem em undir 18 ára aldri.
Virðingarstaða Chilebúa er að hluta
til metin eftir fjölda barna og er
Leontina opinberlega titluð „þjóð-
arfjársjóður".
Nú bregðum við á betri leik
með fleiri og flölbreyttari möguleikum Lottó 5/38
36
5 tölur,
en nú af 38 mögulegum.
Eðli leiksins er hið sama
og áður og vinningamir ganga
allir til þátttakenda.
■■■
Það er nýjung sem segir sex. í
hverjum útdrætti verður dregin út
sjötta talan, svokölluð bónustala. Þeir
sem hafa hana og að auki Qórar réttar
tölur fá sérstakan bónusvinning.
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
cn
>
Sparisjóður Reykjavíkurog nagrennis
í BREIÐHOLTINU
ÁLFABAKKA 14 • SÍMI 670500