Morgunblaðið - 30.09.1988, Page 46
46
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988
r
KORFUKNATTLEIKUR
Rrfum körfuna upp!
Undirhandar-aftur-fyrir-bak-sending frá áhugamanni
— eftir Öm Þórisson
„Bjartir tímar framundan í körfuboltanum hér á landi," segir grinarhöfundur.
Um þessar mundir eru körfu-
knattleiksmenn að leggja
síðustu hönd á undirbúning
sinn fyrir keppnistímabilið.
Reykjavíkur- og Reykjanes-
mót eru nýbúin og Islandsmó-
tið hefst á sunnudaginn. Á
síðasta þingi KKÍ var umtal-
aðasta málið hvort leyfa
skyldi útlendinga aftur í
íslenskum körfubolta. Töldu
fylgjendur útlendinganna þá
nauðsynlega til að rífa upp
aðsókn að leikjum og jafnvel
auka gæði boltans. Að sumu
leyti minnti þessi umræða
mig mest á lækni sem myndi
aflima fót sjúklings þegar
hann kvartaði yfir krankleika
í hendi. Sem betur fer höf n-
uðu margir greindir menn
þessu útlendinga tali, ákváðu
að reyna nýtt kepnnisfyrir-
komulag í úrvalsdeild, skipa
nýja stjórn og ráða erlendan
landsliðsþjálfara. Ergó; góðir
tímar framundan.
Síðan þetta var ákveðið hefur
lítið farið fyrir nýjungum í
stjóm körfuknattleiksmála, að-
eins hefur þó nýráðinn þjálfari
landsliðsins, Laslo Nemeth, gefíð
tóninn varðandi stjómun þess.
Vonandi er þó boðun á fýrstu
æfingar undir hans stjóm ekki
fyrirboði fyrir vinnbrögðin sem
stjóm KKI ætlar að ástunda í
vetur. Mér er kunnugt um að ein-
stakir leikmenn hafí í ágúst verið
boðaðir með 3 daga fyrirvara í
helgar æfíngabúðir að Laugar-
vatni og beðnir að taka með sér
3000 kall og svefnpoka!! Bæði
leikmenn og þjálfari hljóta að eiga
betra skilið og verður að vona að
hér hafi aðeins verið um slys að
ræða. Gera verður kröfu til þess
að boðun á landsliðsæfingar sé
með ákveðnum fyrivara og þeim
fylgi ekki einhveijar uppákomur
sem minna helst á skátaútilegur.
En hver em stærstu verkefnin
fyrir stjómendur körfuknattleiks-
mála? Fyrir áhugamann sem hef-
ur fylgst lengi með þróun mála
virðist blasa við að eftirfarandi
verkefni verði leyst:
Markaðssetning á körfuboita
Vinsældir körfubolta hafa
dvínað á undanfömum ámm.
Færri stunda körfubolta, aðsókn
hefur minnkað og jafnvel hefur
félögum fækkað. a.m.k. á höfuð-
borgarsvæðinu. Þrátt fyrir það
fullyrði ég að gæði körftiboltans
hafi aldrei verið meiri, því lið em
jafnari en áður — ekki drifín
áfram á fáum einstaklingum.
Unglingaástundun hefur hins
vegar minnkað, sérstaklega í
Reykjavík, og fyrirsjáanleg lítil
endumýjun er áhyggjuefni. Sumir
segja réttilega að karfan hafi tap-
að fyrir handboltanum, sem verð-
ur sífellt vinsælli hjá yngra fólki,
enda á skömmum tíma búið að
gera að þjóðaríþrótt. Snúa verður
blaðinu við, en hvemig?
Auka verður aðdráttarafl
körfuknattleiks fyrir fyrirtæki,
sem framleiðslu sinnar vegna
gætu haft hag af að kosta „leik-
mann mánaðarins", „vamarmann
mánaðarins" eða „ ... ársins“.
Athyglisvert fordæmi fyrir KKÍ
er einnig breytingin á 1. deildinni
í knattspymu í SL deild.
Kynna körfuna betur almenn-
ingi, t.d. með því að ná betra sam-
bandi við dagblöð. Stefna mark-
visst að fræðslu og sérhæfíngu
þeirra sem fjalla um körfu. Ná
samningum við sjónvarps- og út-
varpsstöðvar um lýsingar. Körfu-
knattleikur er hraður leikur og
sé hann rétt framborinn í fjölmiðl-
um er hann afbragðs íþróttaefni.
Taka upp almennilega tölfræði-
vinnslu á körfunni. Körfuknatt-
leikur nýtur þeirra yfírburða yfír
aðrar boltaíþróttir að tölfræði-
vinnsla fyrir helstu þætti hans er
spennandi efni fyrir fylgjendur,
blaðamenn og blátt áfram nauð-
synieg fyrir þjálfara. Vel má
hugsa sér samstarf við við tölvu-
fyrirtæki við lausn á þessu máli.
Öflugt unglingastarf
Ég sagði fyrr að karfan væri
búin að tapa vinsældum hjá ungl-
ingum sem velja handbolta sem
íþrótt. Þetta er hægt að vinna
aftur.
Stefna verður að samstarfi við
skólayfírvöld og íþróttakennara
um kynningu á körfubolta. Eitt-
hvað hefur þetta verið gert, en
gera má betur. Sumarþjálfun
gegnir mikilvæg^u hlutverki og hér
í Reykjavík eins og annars staðar
verður að opna íþróttahúsin á
sumrin og bæta útistöðu. Allir
sem leikið hafa körfu þekkja
hversu stórt hlutverk útikarfan
leikur í þjálfun unglinga. Kosta
má í samvinnu við sveitarstjómir
og borgaryfírvöld uppsetningu á
útikörfum á skólalóðum þar sem
þær eru ekki fyrir og tryggja við-
hald þeirra sem fyrir eru.
Aðstoða félögin með unglinga-
þjálfara og kosta kennslu þeirra.
Það er alltof algeng sjón að sjá
yngri flokka íþróttafélaganna (og
framtíð þeirra) verða homreka
vegna þjálfaraskorts eða hljóta
slaka þjálfun af hendi einhvers
meistaraflokksmanns sem var
grátbeðinn að þjálfa „litlu strák-
ana“. Takist að lokka unglinga
til körfuboltaiðkunar má ekki
eyðileggja það starf (svo ekki sé
talað um efnileg ungmenni) með
lélegri þjálfun. Körfuknattleikur
er ein skemmtilegasta, þróaðasta
og erfíðasta íþrótt sem hægt er
að stunda. Gera verður því bæði
kröfur til þátttakenda og þjálfara.
Flestir vita að norskur körfu-
knattleikur hefur tekið stórstígum
framfömm. Aðeins em örfá ár
síðan Islendingar gátu bókað sig-
ur gegn Norðmönnum, en nú er
svo komið að engin Norðurlanda-
þjóð á sigurinn vísan gegn þeim.
Hvemig náðu þeir svona langt?
M.a. með öflugu unglingastarfí,
þar sem bryddað var uppá á þeim
nýjungum hjá norskum félagslið-
um að fá foreldra til þátttöku í
félagsstarfí með unglingunum.
Getum við lært af þeim?
Þetta em aðeins nokkur af
mikilvægustu málum körfubolt-
ans. Eftir síðasta keppnistímabil
þar sem ég varð oft vitni að ótrú-
lega slakrí dómgæslu sem bók-
staflega var til að skemma leiki
tel ég reyndar fá mál mikilvægari
en þjálfun dómara eða, það sem
best væri, innflutning á þeim.
Leikmenn og félög hafa sjaldan
undirbúið sig eins vel og fyrir
þetta keppnistímabil, sem vænt-
anlega býður uppá jafn hraða og
góða leiki og sáust í síðustu úrsli-
takeppni. Þess vegna er áríðandi
að kröfur til dómara séu auknar.
Asamt dómarastarfi á embætti
tímatökumanna og skrifara leik-
skýrslu að vera hafíð yfír gagn-
rýni og njóta virðingar, sem nokk-
uð skortir á núna.
Ég hef hér bent á nokkur verk-
efni sem að mínu mati bíða úr-
lausnar. Stjóm KKÍ hefur leyst
úr þjálfaramálum landsliðsins, að
því er virðist með sóma. Þess
vegna er óskandi að það sé aðeins
upphafið og að hvergi verði slegið
slöku við að rífa körfuknattleikinn
upp úr þeirri ládeyðu sem ríkir,
því leikurinn á vellinum endur-
speglar ekki aðeins ástand leik-
manna heldur einnig ástand
stjómunar körfuknattleiksins.
Höfundur er framkvæmda-
stjóri Miðlunar h.f.
NOREGUR
Morgunblaðiö/Sigurjón Einarsson
Teitur Þórðarson, þjálfari Brann,
stjómar liði sínu á Ullevall leikvangin-
um í næsta mánuði í úrslitaleik bikar-
keppninnar gegn Rosenborg.
Uppselt
á bikarieik
Brannog
Rosenborg
Verða Bjarni Sig-
urðsson ogTeitur
Þórðarson norskir
bikarmeistarar?
GÍFURLEGUR áhugi er hér í
Noregi fyrir úrslitaleik bikar-
keppninnar í knattspyrnu milli
Brann og Rosenborg. Leikurinn
fer fram 23. október og er nú
þegar orðið uppselt á leikinn.
Ulleval leikvangurinn í Oslo, þar
sem leikurinn fer fram, tekur
23.000
norska
Frá
Sigurjóni
Einarssyni
iNoregi
áhorfendur. Skiptiborð
knattspymusambandsins
heftir staðið rauð-
glóandi alla daga,
og hefur sambandið
mátt neita pöntun-
um upp á 15.000
miða.
„Við gætum selt 100.000 miða á
þenna leik ef við bara ættum þá.“
Þetta var haft eftir talsmanni knatt-
spymusambandsins. Stemmningin
á bikarúrslitaleikjum hér í Noregi
er engu lík, og án efa mikil upplif-
un fyrir Teit Þórðarson, þjálfar
Brann, að sitja á bekknum og stýra
liði sínu fyrir framan 23.000 þúsund
áhorfendur.
4 Ford Bronco - 30 Fiat Uno
Dregið 7. októker.
Heíldarverómœti vinninga 16,5 milljón.
/j/tt/r/mark