Morgunblaðið - 30.09.1988, Síða 47
4f-
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988
Snilklar knattspyma
ftölsku meistaranna
HANDBOLTI
Stefán
ogÓlafur
dæmaí
vetur
NÚ ÞEGAR knattspyrnuvertíð-
in er hafin víðast hvar í Evrópu
er vart talað um annað er
ítölsku meistarana AC Mflanó
með Ruud Gullit í fararbroddi.
Liðið leikur snilldar knatt-
spyrnu eins og ítalirnir vilja
hafa hana og fá iið í Evrópu
jafnast á við þetta lið sem hef-
ur heillað áhorfendur í fyrstu
leikjum vetrarins.
Sama var uppi á teningnum í
fyrsta leik liðsins í Evrópu-
keppni meistaraliða þegar liðið sigr-
aði Vitosha Sofía á útivelli. Fyrir-
hafnarlaus 2:0 sigur. Framheijinn
Marco van Basten leikur af sí-
vaxandi öryggi. Og Sacchi, þjálfari
Mflanó, hefur falið Frank Rijkaard,
sem var miðvörður Hollendinga
þegar þeir urðu Evrópumeistarar,
það hlutverk að byggja upp leikinn.
Frumkvæðið er alltaf hjá honum,
og það er þessvegna sem allt geng-
ur upp hjá Mflanó, þessvegna sem
þeir eru svo sókndjarfir — og svo
frábrugðnir öðrum ítölskum liðum
sem leika frekar varfærinn varnar-
leik.
í mínum augum hlýtur Mílanó
að vera eitt þeirra liða sem hvað
líklegust eru til að vinna Evrópubik-
arinn á yfírstandandi keppnistíma-
bili. Ekki einungis vegna hollenzku
leikmannanna í liðinu. Ancelotti,
Maldini og Donadoni eru kjaminn
í ítalska landsliðinu. Og að mínu
áliti er Franco Baresi ekki aðeins
sókndjarfasti heldur einnig bezti
framherji heims í dag. Eina spum-
ingin er hvort ítöisku meistaramir
hafí nóg úthald þegar fram í sækir
þegar þeir leggja svo hart að sér í
hveijum leik.
Stórleikur
Skemmtilegasti leikurinn í fyrstu
umferð keppninnar um Evrópubik-
arinn var háður í Austur Berlín þar
sem austur-þýzku meistaramir
Dynamo léku gegn meistumm okk-
ar Vestur tjóðveija, Werder Brem-
en.
Það var stórkostlegur leikur -
hraður og spennandi. Og þótt Werd-
er Bremen hafi tapað 3-0 voru
bæði liðin álíka sterk. Austur þýzku
sóknarmennimir Doll, Thom og
Pastor voru bara áræðnari við að
nýta sér tækifærin. Þeir þrír eru
leikmenn á alþjóða mælikvarða.
Werder hafði ekki heppnina með
sér í sóknunum, en hefði hæglega
átt að geta knúið fram 1-1 jafn-
tefli snemma í leiknum.
Annað mark Dynamo í leiknum
var dæmigert fyrir gagnsóknir sem
fínna má í öllum kennslumyndum.
Það var frábært hvemig Doll tókst
að sækja inn í vítateiginn og gefa
boltann yfír til Thoms sem skallaði
í netið. Eg er strax farinn að hlakka
til síðari leiks liðanna eftir lok
Ólympíuleikanna því Bremen er
þekkt fyrir að ná sér á strik eftir
stórtöp í fyrri umferðum.
Það kom bikarhöfum Bayer Le-
verkusen illilega á óvart þegar þeir
töpuðu 0-1 á heimavelli gegn portú-
galska liðinu Belenenses Lissabon
í UEFA keppni bikarhafa. Markið
var stórglæsilegt. Adao sótti fram
á vinstri kanti, gaf fyrir til búlg-
arska samheijans Mladenov sem
svo skallaði inn undir þverslá.
Twelr lelkmenn sem leika stórt hlutverk í liði AC Mílanó: Marco van Basten
og Frank Rikjaard.
AC Mflanó með Ruud Gullit í fararbroddi er líklega skemmtilegasta lið Evrópu.
Það sem kom okkur íjóðveijum
skemmtilegast á óvart í UEFA bik-
arkeppninni var óvæntur 2-1 sigur
nýliðanna í bikamum, FC Numberg
á útivelli gegn AS Róma, sem tap-
aði þótt í liðinu væru stjömur á
borð við Brasilíumennina Renato
og Andrade, Rudi Völler frá Vestur
Þýzkalandi og Rizitelli, dýrasta
ítalska leikmanninn til þessa. En
Niimberg liðið sýndi að það hefur
gert rétt í að kaupa Sane frá Seneg-
al, sem er léttur og snöggur leik-
maður og skoraði fyrra mark Niim-
berg með skalla.
Heimsbikarinn
Ég læt hér staðar numið um
Evrópumótin. En nokkur orð um
undanriðla heimsmeistarakeppn-
innar. í síðustu grein minni raeddi
ég um að ég hefði mikið álit á
fínnska landsliðinu. Við vorum því
meira en lítið ánægðir með fyrsta
leik landsliðs okkar í Helsinki sem
við unnum 4-0 með mörkum frá
Völler (2), Mattháus og Riedle.
Ég hef gert nokkrar mikilvægar
breytingar á landsliði okkar. Fimm
leikmenn koma frá FC Köln, svo
raunhæft er að tala um „Kölnar-
blokkina" í liðinu. Og þar sem hún
hefur reynzt svo vel kemur mér
ekki til hugar að leysa þessa blokk
upp fyrir leikinn gegn Hollandi í
Munchen 19. október ef leikmenn-
imir verða lausir við meiðsli.
Ég gerði tilraun með að setja
Illgner frá Köln í markið í stað
Immels vegna þess að hann kom
betur út úr æfingum og vegna þess
að Immel hafði verið frá æfíngum
í þijár vikur vegna meiðsla.
Miðvörðurinn Kohler frá Köln
hefur átt fast sæti í landsliðinu
undanfarin tvö ár. Það virtist skyn-
samlegt að fá Görtz frá Köln inn á
miðjuna með honum vinstra megin
þar sem þeir eru vanir að leika
saman. Rökrétt afleiðing af þvi var
svo að fá Littbarski frá Köln á
miðjuna hægra megin. Ekki sízt af
því mig langaði einnig til að reyna
nýliðann Hássler frá Köln á miðj-
unni.
Hássler hafði sannað getu sína
með Ólýmpíuliðinu, og í sameigin-
legum æfingaleikjum sýndist mér
hann eiga skilið að komast í lands-
liðið. Hássler er fæddur í Berlín,
lágvaxinn, frakkur, öruggur með
sig, drífandi og leikinn með knött-
inn. Það er unun að horfa á hann
leika.
Ég gaf einnig öðrum nýliða, Fach
frá Bayer Uerdingen, tækifæri til
að leika í stöðu framheija. Sóknar-
maðurinn Rudi Völler hefur á ný
náð sér á strik, og þeir Mattháus
og Brehme hafa öðlazt aukið sjálfs-
traust eftir skiptin frá Bayem
Munchen yfír til Inter Mílanó. Allt
þetta leiddi til þess að Olaf Thon,
nýi fyrirliðinn hjá Bayem Miinchen
(áður hjá Schalke 04), verður að
láta sér nægja sæti á varamanna-
bekk.
En Thon hefur að undanfömu
sýnt meiri sóknarhörku í leik sínum
þar sem hann þráir að komast á ný
í landsliðið. Allt þetta gerir mig
bjartSýnan á að þrátt fyrir kvíðvæn-
legan styrk hollenzka landsliðsins
muni okkur engu að síður takast
að komast í úrslitakeppnina um
heimsbikarinn á Ítalíu.
Franz
Becken-
bauer
skrífar
fyrir
Morgun-
blaðið
STEFÁN Arnaldsson og
Ólafur Haraldsson, bestu
handknattleiksdómararnir
tvö undanfarin ár að mati
leikmanna, munu dæma í
vetur. Þeir höfðu áður
ákveðið að hætta en breyt-
ing á skipulagi dómaramála
hefur hefur fengið þá til að
hætta við að hætta.
Það hafa verið gerðar breyt-
ingar á þessum málum og
framkvæmdin er okkur að skapi.
Því höfum við ákveðið að draga
fram flautumar fyrir veturinn,"
sagði Stefán Amaldsson, í sam-
tali við Morgunblaðið.
„Gunnar Gunnarsson mun
hafa sljóm með dómaramálum
og hann hefur í hyggju að færa
þau til betri vegar. Það á til
dæmis að jafna hlutfallið á
landsbyggðinni og skipta leikj-
unumjafnar á milli dómara. Auk
þess verða haldin þrekpróf og
fundir. Veturinn leggst því vel
í okkur og við munum mæta
aftur til leiks," sagði Stefán.
ÍHénR
FOLK
■ IVAN Lendl og Pat Caab eru
hættir við þátttöku í ástralska inn-
anhúss meistaramótinu í tennis.
Lendl sem vann mótið í fyrra eftir
úrslitaleik við Cash, hætti við vegna
meiðsla í öxl. Þau hlaut hann í
opna bandaríska tennismótinu fyrr
í þessum mánuði. Cash á einnig
við meiðsli að stríða. Mótið hefst í
Sydney 9. október og ætla móts-
haldarar að reyna að fá þá Mats
Wilander, Henry Laconte og„
Jimmy Connors til þess að taka
sæti tvímenninganna.
■ NORWICH, enska fyrstu
deildar liðið, sem svo óvænt leiðir
deildina, leikur á heimavelli gegn
Charlton á laugardag. Gengi
Charlton í deildinni hefur verið
slæmt til þessa og á því Norwich
góða möguleika á að halda toppsæt-
inu. Liverpool er þó aðeins tveimur
stigum neðar, og á einnig heimaleik
í næstu umferð; gegn Newcastle,
en liðið vermir botnsæti deildarinn-
ar ásamt Wimbledon.
■ HOWARD Kendall, fram-
kvæmdastjóri Athletic Bilbao sem
er nú í efsta sæti 1. deildarinnar á
Spáni, hefur fengið tilboð frá Le-
eds. Honum var boðið að taka við
liðinu en eftir að hafa hugsað sig
vel um ákvað hann að vera áfram
á Spáni. Hann sagðist þó vera upp
með sér vegna tilboðsins en vildi
ekki hætta með spánska liðið.
UPAUL Davis, miðvallarleikmað-
ur hjá Arsenal, hlaut þungan dóm
fyrir að kjálkabijóta Southampton-
leikmanninn Glenn Cockerill,
þegar liðin mættust fyrr í þessum
mánuði. Davis var dæmdur í níu
leikja bann og þarf auk þess að
greiða um 240.000 krónur í sekt.
™ 1 rsuv ^apeui, Zi> ara oku)
í Formula I, fékk glæsilegt úr
gjöf frá japönskum milljónamærii
eftir að hafa náð öðru sæti í kaf
akstrinum f Estoril. Japanski aðc
andinn heitir Akagi og hefur allt
haft mikla trú á hinum unga Ca
elli. Úrið sem hann færði honi
að gjöf er metið á eina og há!
milljón krónur.