Morgunblaðið - 30.09.1988, Page 48
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988
VEW) í LAUSASÖLU 70 KR.
Millifærslulán
V erðj öfiiunarsj óðs:
Greiðsla
fellur á
ríkissjóð
HALLDÓR Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, gerir fastlega ráð
fyrir því að greiðsla þeirra 800
milljóna króna, sem verða notað-
ar til verðbóta á freðfisk og
hörpudisk, falli á ríkissjóð. Hann
sagði þetta við setningu 16. þings
Sjómannasambands íslands í gær
og sagði þá, að árið 1989 væri
gert ráð fyrir því að reka rikis-
sjóð með 1% tekjuafgangi til að
mæta greiðslu þessa láns.
Halldór sagði að með þessari lán-
töku yrði hægt að verðbæta freðfisk
um 5%, sem væri það sama og hefði
átt að vera, hefði sjóðurinn verið
virkur. Með þessari ráðstöfun og
öðrum yrði rekstur frystingar í jám-
um, en ekki talsverðu tapi eins og
undanfama mánuði.
Meðal þingfulltrúa komu fram
efasemdir um að rétt væri að nota
verðjöfnunarsjóð með þessum hætti.
I drögum að ályktun þingsins um
þetta mál komu fram mótmæli við
að greiddar yrðu bætur til fisk-
framleiðenda úr Verðjöfnunarsjóði
fiskiðnaðarins með láni, sem ætti
að greiðast með væntanlegum tekj-
um sjóðsins síðar. Þá væri það ótækt
að einn aðili að sjóðnum fengi úr
honum greiðslur án þess að aðrir
eigendur sjóðsins nytu þeirra einnig.
Sjá nánari frásögn af þingi
Sjómannasambandsins á
miðopnu.
Skipasmíðastöðin Stálvík hf.:
Beiðni um smíði tíu
IEFTIRLEITUM
Morgunblaðið/RAX
Fellibylur-
inn Helena
til Islands
FELLIBYLURINN Helena
stefnir nú til íslands frá
Karabíska hafinu. Um 2.000
km sunnan við landið samein-
ast hann mjög djúpri lægð og
dýpkar hana enn frekar og
þetta veðurkerfi fer siðan
yfir landið um helgina með
hvassviðri og stormi og mik-
illi úrkomu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofunni sameinast Hel-
ena lægðinni á hádegi í dag og
glatar þá fellibylseinkennum
sínum. Lægðin heldur síðan
áfram til íslands og nær landinu
á laugardagsmorguninn. Strax
í kvöld hvessir mjög í veðri og
eykst vindurinn allan laugar-
daginn með austan- og norð-
austanhvassviðri og stormi víða
um land auk mikillar úrkomu.
togara fyrir Marokkó
Málið lagt fyrir ríkisstjómina - Fleirí verkefiii í farvatninu
STÁLVÍK hf. hefiir borist beiðni frá Marokkó um smíði 10 togara
fyrir aðila þar í landi. Mál þetta hefiir verið kynnt í ríkisstjórninni
þar sem fyrir liggur að Stálvik þarfiiast stuðnings stjórnvalda til að
takast á hendur þetta verkefiii. Vegna þessa máls munu fiilltrúar sjö
stærstu skipasmíðastöðvanna hérlendis hittast á fundi í dag. Ef af
þessu verkefni verður má búast við að íslensku skipasmíðastöðvarnar
fái næg verkefiii frá arabalöndum næstu 15-20 árin. Málið var til
umræðu á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun og í framhaldi af því sneri
Morgunblaðið sér til forráðamanna Stálvíkur.
Jón Gauti Jónsson framkvæmda- I Stálvík víða um heiminn," segir Jón
stjóri Stálvíkur segir að undanfarið | Gauti. „Áhugi í arabalöndunum á
ár hafi verið unnið að því hörðum
höndum að markaðssetja framleiðslu
fyrirtækisins erlendis og sé þetta
m.a. árangurinn af því markaðssetn-
ingu. Hann nefnir sem dæmi um
önnur hugsanleg verkefni að stöð-
inni hafi borist útboðsgögn í smíði
14 skuttogara fyrir aðila í íran og
3 dráttarbáta fyrir aðila í Egypta-
landi.
„Við höfum verið í samvinnu við
fyrirtæki í Danmörku, Svíþjóð og
Bretlandi um markaðssetningu og
þeir hafa sent gögn og skýrslur um
að fá skip héðan er skiljanlegur í
ljósi þess að þeir hafa ekki byggt
upp neina útgerð að ráði þrátt fyrir
auðug fiskimið undan ströndum
landanna. Okkur hefur ennfremur
borist til eyma að arabamir vilji
helst ekki skipta við önnur lönd en
ísland og Noreg í fískiskipakaupum.
Þeir telji sig ekki fá gæðaskip nema
frá þessum löndum."
í máli Jóns Gauta kom fram að
togarasmíðin fyrir Marokkó yrði
þriggja ára verkefni og ljóst að það
þyrfti að vinna með í samvinnu við
aðrar íslenskar skipasmíðastöðvar.
Þær skipasmíðastöðvar, auk Stálvík-
ur, sem senda fulltrúa á fundinn á
morgun em Þorgeir og Ellert á
Akranesi, Skipavík í Stykkishólmi,
Skipasmíðastöð Marsellíusar á
ísafirði, Slippstöðin á Akureyri, Vél-
smiðja Seyðisfjarðar, Skipalyftan í
Vestmannaeyjum og Skipasmíða-
stöð Njarðvíkur.
Sjómaður slasast í Hull
SKIPVERJI á Álftafelli frá
Stöðvarfirði slasaðist alvarlega
er verið var að Ianda úr togaran-
um í HuII á mánudag. Gekkst
hann undir skurðaðgerð á
sjúkrahúsi í Hull en hefur ekki
enn komist til meðvitundar.
Slysið mun hafa orðið með þeim
hætti að þegar verið var að landa
úr togaranum féll skipveijinn af
togþilfarinu og ofan í lestina, en
það er um sex metra hátt fall.
Missti hann þegar meðvitund en
hann mun hafa höfuðkúpubrotnað,
rifbeinsbrotnað og hlotið alvarleg
innvortis meiðsl.
Samdráttur í tekjum ríkissjóðs:
Skuld við Seðlabanka
nemur 11 milljörðum
SKULD rikissjóðs við Seðlabankann nemur nú 11 milljörðum króna
og hefur staðan versnað um 6 milþ'arða króna frá sama tima i
fyrra. Ástæður fyrir þessari skuld eru m.a. minni tekjur rikissjóðs
af söluskatti en gert var ráð fyrir, og einnig hefiir innlausn spari-
skirteina verið umfram sölu nýrra.
Að sögn Bolla Bollasonar skrif-
stofustjóra fjármálaráðuneytisins
hefur almennur samdráttur í efna-
hagslífinu undanfarið komið niður
á ríkissjóði þar sem lítið dregur
úr útgjöldum en áætlaðar tekjur
skila sér hins vegar ekki, og þá
sérstaklega söluskattstekjur. Það
hafi hins vegar þau áhrif að við-
skiptahalli virðist vera að minnka
en í þjóðhagsáætlun í júlí var reikn-
að með að viðskiptahallinn yrði 11
milljarðar eða 4>/2% af landsfram-
leiðslu.
Ekki liggur fyrir yfirlit um
greiðslustöðu ríkissjóðs en sam-
kvæmt síðasta yfirliti í júlí var
reiknað með að halli ríkissjóðs yrði
um 700 milljónir en nú er gert ráð
fyrir að hallinn verði mun meiri.
Bolli sagði að þá þegar hefði verið
bent á að breytingar gætu orðið
til hins verra, vegna þess m.a. að
ekki höfðu verið teknar ákvarðanir
um auknar niðurgreiðslur vegna
verðhækkana, og aukin útgjöld í
heilbrigðismálum.