Morgunblaðið - 19.10.1988, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988
ísland endaði í níunda sæti í
sínum riðli á Olympíumótinu
Bnds:
Feneyjum, frá Guðmundi Eiríksayni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÍSLENSKA bridslandsliðið varð í 9. sœti af 28 þjóðum í sinum riðli
í undankeppni Ólympíumótsins í brids í Fenevjum en Qórar efstu
þjóðimar úr hvorum riðli keppa til úrslita um OlympíumeistaratitU-
inn. Þessar þjóðir eru Grikkland, Austurríki, Bandarikin og Sviþjóð
úr A-riðli, og Ítalía, Danmörk, Bretland og Indland úr B-riðli. Frakka
vantaði eitt stig til að komast áfram i riðlinum. Liðin spila 64 spila
útsláttarleiki i Qórðungsúrslitum sem hefjast á morgun. íslenska
kvennaliðið varð i 11. sœti af 12 í sínum riðli.
íslenska karlaliðið átti enn mögu-
leika á að komast í úrslitakeppnina,
áður en það spilaði við Ítalíu á
mánudagskvöld. ítaiimir spiluðu
mjög vel og unnu leikinn 23-7. ís-
land tapaði síðan 6-24 fyrir Bretum
á þriðjudagsmorgun í frekar illa
spiluðum leik á sýningartöflunni,
íslenska liðið kærði sfðan úrslit eins
spilsins úr leiknum gegn Bretum
og vann kæmna þannig að leikurinn
endaði 7-22. ísland gerði loks jafii-
tefli, 15-15 við Brasilíu í síðasta
leik undankeppninnar og endaði
með 489 stig í 9. sæti riðilsins, eða
í 17.-18. sæti af 56 þjóðum alls.
Hjalti Elfasson fyrirliði karlaliðs-
VEÐUR
ins sagði við Morgunblaðið að þessi
árangur væri ekki slæmur í sjálfu
sér en liðið hefði ekki haft nægilega
mikla einbeitingu; ef vondu spilun-
um hefði fækkað um svo sem eitt
í leik hefði liðið verið komið lang-
leiðina í úrslitin. „Okkar tími er
ekki kominn enn, en við þurfum
aðeins að halda áfram á sömu
braut," sagði Hjalti.
Kvennaliðið vann óvæntan sigur
á Hollandi á mánudagskvöldið,
25-5, og var þá komið f 8. sætið f
sfnum riðli. í gær tapaði Iiðið sfðan
fyrir Argentfnu, 5-25, og síðan fyr-
ir Svíþjóð, 9-21, og fór niður í 11.
sætið.
Jakob R. Möller, fyrirliði kvenna-
liðsins, sagði við Morgunblaðið að f
kvennabrids væri gjáin milli sterk-
ari þjóðanna og þeirra veikari miklu
breiðari en í karlabrids. Sterkustu
kvennaliðin spiluðu afbragðs brids
sem væri tæknilega jafngóður og
góður brids í karlaflokki, en veikari
þjóðimar ættu ákaflega margt ólært
og það ætti við um íslenska liðið.
Hann sagði að íslensku konumar
hefðu þó átt góða leiki inn á milli.
Fjórðungsúrslitin hefjast í dag og
þá spila saman Grikkland og Ind-
land, Austurríki og Bretland,
Bándaríkin og Danmörk og Ítalía
og Svfþjóð. Þau lið sem vinna sína
leiki halda áfram í undanúrslit. Þau
lið sem ekki komust í úrslit, bæði f
opnum flokki og kvennaflokki, geta
tekið þátt f aukamóti, sem hefet í
kvöld. Það er 8 umferðir með 16
spila leilgum og verður sveitunum
raðað saman eftir monrad-fyrir-
komulagi. Bæði fslensku liðin munu
taka þátt f mótinu.
I DAG kl. 12.00:
/ / / /
/ / / / /
/ / / / /
///////
/./////////
/ / // // // //
Heimild: Veöurstofa Islands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR IDAG, 18. OKTÓBER
YFIRUT ( GÆR: Yfir Skandinavíu er 1.034 mb hœö og hæðar-
hryggur í átt til Grænlands. Skammt veatur af (rlandi er 990 mb
lægð sem dýpkar og hreyfist norðnorðvestur. Hlýtt verður áfram.
SPA: Austan- og norðaustanátt um land allt, víðast kaldi eða stinn-
ingskaldi. Rigning eða súld með köflum sunnanlands, en að mestu
þurrt norðanlands. Hiti ó bilinu 6—10 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR A FIMMTUDAG OG MIÐVIKUDAG: Austanátt. Dálftil
rígning við suður- og austurströndina en þurrt norðanlands og
vestan. Fremur hlýtt, þó ef til vill næturfrost ó stöku stað norðan-
lands.
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* *
* * * * Snjókoma
* * ■*
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
rrs Þoka
— Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyrl Raykjavlk hltl 7 7 veður ekýieó akýiað
Bargan 12 hei&sklrt
Hslalnkl 6 þoka
Kaupmannsh. 11 þokumóða
Naraaaratuaq 44 Mttakýjað
Nuuk 44 skýjað
Oaló 12 Mttakýjað
Síokkhólmur 6.9 þokumóða
Pórahöfn 10 alakýjað
Algarve 16 rlgnlng
Amaterdam 12.7 þokumóða
Barcelona 23 akýjað
Chlcago 8.3 alakýjað
Feneyjar 16.6 þokumóða
Frankfurt 16 þokumóða
Qlaagow 12 mlatur
Hamborg 12 skýjað
Laa Palmaa 23 akýjað
London 18 miatur
Loa Angalaa 18 þokumóða
Lúxemborg 16 þokumóða
Madrfd 16 þokumóða
Malaga 17 akúr
Mallorca 24 akýjað
Montraal 16 akúr
New York 16 þokumóða
Parla 20 akýjað
Róm 23 þokumóða
San Dlego 18 akýjað
Wlnnlpeg 1,6 alakýjafi
Morgunblaðið/Sverrir
Unnið að uppsetningu þjófevaraakerSs á Lögmannastofunni sf., þar
sem brotist var inn að kvöldi sunnudags eða að&ranótt mánudags.
Tóku skjöl en enga peninga
Þjófevamakerfi
sett upp í gær
ÞÚSUNDIR króna í reiðufé freistuðu ekki þeirra sem brutust inn
í Lögmannastofuna sf., Skipholti 50b, milli klukkan 19 á sunnu-
dag og 9 á mánudagsmorgun. Peningarnir voru geymdir i ólæstri
hirslu. Hins vegar var ýmsum skjölum stolið af borðum Qögurra
lögfræðinga, sem þjá stofunni starfe, og úr skjalaskáp.
Þar var einkum um að ræða gögn þyrfti að fá skjölin ógild, en kröf-
sem varða vinnu lögmannanna, svo
sem stefimr og innheimtubréf,
ásamt ljósritum frumgagna. Fáein
frumgögn, svo sem víxlar, munu
þó hafa verið á borðum lögmann-
anna, en slík skjöl voru að öðru
leyti geymd í rammgerðum, læstum
peningaskáp. Þetta er annað inn-
brotið í lögmannastofu í Reykjavík
á nokkrum vikum.
Þjófurinn hefur að líkindum klifr-
að upp á þak einnar hæðar verslun-
arálmu, sem er við húsið, og þaðan
faríð inn um glugga á afgreiðslu
stofunnar. Þjófavamakerfi var ekki
í stofunni og töldu lögmennimir að
slfkur búnaður væri fremur sjald-
gæfur í fyrirtækjum sem þessu.
Ur því var bætt í gær er starfs-
menn frá Securitas settu upp þjófa-
vamakerfi, sem pantað hafði verið
skömmu fyrir innbrotið.
Gunnar Jóhann Birgisson héraðs-
dómslögmaður sagðist þess fullviss
að ^jón skjólstæðinga lögmannanna
yrði lítið sem ekkert, frum,
væm langflest enn til staðar.
fáu tilfellum sem svo væri
ngögnm
r. I þeim
ekki
una viðurkennda með dómi. Hins
vegar væri í þeim skjölum og bréf-
um, sem þjófurinn hefði haft á brott
með sér, afrakstur ótaldra vinnu-
stunda starfsmannanna og það tjón
kostaði tíma og vinnu að bæta.
Gunnar Jóhann sagðist ekki geta
ímyndað sér hver eða hveijir þama
hefðu verið að verki en sú spuming
hlyti að vakna hvort einhver hefði
viljað reyna að eyðileggja mál eða
kröfu á hendur sjálfum sér.
Auk almennra lögfræðistarfa og
innheimtu skulda fyrir einstaklinga
og fyrirtæki annast Lögmannastof-
an sf innheimtu stöðumælagjalda
fyrir Reykjavíkurborg. Að sögn
Gunnars Jóhanns vom slcjöl því við-
komandi látin ósnert.
Rannsóknalögregla ríkisins vinn-;
ur nú að málinu. Þeir, sem orðið
hafa gmnsamlegra mannaferða
varir í nágrenni Skipholts 60b á
fyrrgreindum tíma eða búa yfír
öðmm vísbendingum, sem að gagni
geta komið við rannsóknina, em
beðnir að snúa sér til hennar.
Ólafur Hafsteinn Ein-
arsson kennari látinn
ÓLAFUR Hafeteinn Einarsson
kennari, Reynimel 90 f Reykja-
vík, lést sunnudaginn 16. október
sl. 80 ára að aldri.
Ólafur fæddist í Reykjavík 1.
ágúst 1908. Foreldrar hans vom
þau Guðríður Eiríksdóttir, sem ætt-
uð var frá Reykjum á Skeiðum, og
Einar Þórðarson frá Efra Seli á
Stokkseyri.
ólafur Hafsteinn Einarsson
starfaði mikið að félagsmálum um
dagana. Hann gegndi einnig hinum
ýmsu trúnaðarstörfum á ferli sínum
sem gagnfræðaskólakennari, en
það var hans aðalstarf í áratugi.
ólafur var meðal annars formað-
ur Landssambands framhaldsskóla-
kennara um árabil. Hann sat einnig
í stjóm Norræna félagsins á ámm
áður.
Ólafur var á sínum tíma einn af
stofnendum Sameiningarflokks Al-
þýðu, Sósíalistaflokksins, og einnig
var hann fyrsti ritstjóri málgagns
þéirra, Nýs lands.
Ólafur var einnig um árabil einn
nánasti starfsmaður Héðins Valdi-
marssonar, forstjóra Olfuverslunar
íslands, og var hann sérstakur er-
Ólafur Hafeteinn Einarsson
indreki Olfuverslunarinnar erlendis
um tíma.
Ólafur Hafsteinn hætti störfum
sem gagnfræðaskólakennari í
kringum 1974 og helgaði sig þýð-
ingum hin sfðari ár.
Eftirlifandi eiginkona ólafe er
Gréta Sigurborg Guðjónsdóttir og
eiga þau ijögur böm.