Morgunblaðið - 19.10.1988, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988
fclk í
fréttum
ROKKSKÓR OG BÍTLAHÁR Á HÓTEL ÍSLANDI:
Brúðarslör og bjartir drættir
Skemmtanir
Friðrik Indriðason
Íðandi mannkösin á hótel ís-
landi getur verið bæði hrífandi
og hrollvekja. Spurningin er ein-
faldlega hvernig þú ert stemmd-
ur á miðnætti laugardags. Ég var
þá orðinn ágætlega stemmdur.
En kvöldið hófst ekki með mik-
illi stemmingu.
Klæddur í dökku jakkafötin og
einu silkiskyrtuna sem ég á banka
ég uppá í anddyri Hótels íslands
stundvíslega klukkan níu um kvöld-
ið. Kynni mig og segi erindið sem
er að fylgjast með sýningunni
Rokkskór og bítlahár. Spyr eftir
manni nokkrum sem á að bjarga
öllum mínum málum á staðnum.
„Hu?“ svarar þrekvaxinn og
brúnaþungur dyravörður.
Ég endurtek alla rununa. Fæ
sama svarið. Og nú er hann farinn
að horfa grunsemdaraugum á
skyrtuna mína. Mér dettur í hug
að segja það sem flýgur í hugann:
„Já mig grunar líka að hún sé saum-
uð á Tævan." En það er ekki bæt-
andi á brúnaþyngd mannsins. Ég
spyr því um einhvem yfirmann
þama á staðnum.
Næsti starfsmaður sem ég á
samskipti við er ungur dökkleitur
maður, mjög stressaður. Hann
kannast ekki við neitt en biður mig
að bíða í anddyrinu. Eftir snögga
ferð á barinn sest ég þar niður.
Gestir á sýninguna Rokkhár og
bítlaskór eru af öllum stærðum og
gerðum, aldri og atvinnu. Þeir sem
gaman hafa af mannlífsstúdíum
hafa úr nógu að moða í andddyri
hótelsins fyrir sýningu. Það sem
vekur mesta athygli mína eru brúð-
hjón sem leið eiga frá anddyrinu inn
í einhvem hliðarsalinn. Hún í að-
skomum mjalihvítum brúðarkjól
með efnismikið brúðarslörið aftur á
hæla. Hann í nettum hvítum smók-
ing.
Annað sem vekur athygli mína
er hópur af ungu fólki í æpandi
bleikum fötum. Fyrst held ég að
um einhverja hljómsveit sé að ræða
því að fólkinu fjölgar stöðugt er
líður nær sýningunni. Ég er í þann
mund að fara að kanna þetta mál
er sá stressaði segir mér að borðið
sé tilbúið.
Haukur Morthens og félagar
leika „dinner" tónlist fyrir gesti.
Haukur nýtur mikillar hylli meðal
eldri kynslóðarinnar. Hann syngur
mörg af sínum þekktustu lögum og
þegar „Litla fiugan" ómar í salnum
má heyra konur á óræðum aldri
hvía af hrifningu. Og þegar „Til eru
fræ“ fylgir í kjölfarið stendur par
eitt upp frá súpudiskunum og tekur
að dansa meðal borðanna framan
við sviðið.
Á næsta borði við mig er hópur
fólks utan af landi. Meðan Haukur
skemmtir gestum tekur fólkið fram
skyndimyndavélar og festir hvert
annað á filmu í gríð og erg. Verður
þessi ferð á Hótel ísland fest í fjöl-
skyldualbúmið og geymd um
ókomna framtíð. Og þá hefst sjálf
rokksýningin.
ROKKHÁR og bítlaskór, sýning-
in sem nú skekur sali Hótels Is-
lands um helgar er um margt
skondin úttekt á rokktímabilinu
svokallaða. Sýningin spannar árin
uppúr 1950 og fram á tímabil ’68
kynslóðarinnar. Hún hefst á hinu
kröftuga „Rock around the clock"
og síðan fylgja þessir gömlu smellir
hver á fætur öðrum, „Heartbreak
Hotel", „Great Balls of Fire“ og
„Twist and Shout" svo dæmi séu
tekin. Framan af er þetta hörkugóð
skemmtun en hinsvegar verður
mikið spennufall upp úr henni miðri
þegar til sögunnar eru kallaðir
menn sem vart verða taldir til rokk-
söngvara eins og Tom Jones eða
dúkkur á borð við Paul Anka.
Margir bjartir drættir eru í dag-
skránni þar sem þeir sem að sýning-
unni standa gera það af mikilli inn-
lifun og gleði og bætir það mikið
fyrrgreinda hnökra á henni. Klæðn-
aðurinn fellur vel að sýningunni og
dansatriðin eru upp til hópa vel
útfærð. Fyrir þá sem gaman hafa
af því að rifja upp gömlu rokkárin
er ferð á Hótel íslands vel þess virði.
Hljómsveit hússins tekur við að
leika undir dansi eftir sýningu og
er ég geng út eru brúðarhjónin að
dansa saman vals við mikla hrifn-
ingu viðstaddra.
Morgunblaðið/ Þorke
“Great Balls of Fire“ hamrað á píanóið af mikilli tilfínningn.
VESTMANNAEYJAR:
Starfsfólk
Tangans í
helgarferð
VeHÍrnannacyjum.
Það færist I vöx ár frá ári að
starfshópar og félagasamtök
fari til Reykjavíkur í skemmtiferð-
ir, svokallaðar helgarferðir.
Starfsfólk verslunarinnar Tang-
ans í Vestmannaeyjum skellti sér í
slíka ferð á dögunum. Farið var
með flugi frá Eyjum kl. 18.15 á
föstudegi og var handagangur í
öskjunni við að komast af stað því
versluninni var ekki lokað fyrr en
kl. 18.00. En á höfuðborgarsvæðið
komst liðið og skoðaði menningar-
staði jafnt sem öldurhús.
Heim á leið hélt sfðan hópurinn
á sunnudagskvöldið „hress" og end-
umærður eftirskemmtilega helgi í
Reykjavík.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Starfsfólk Tangans í Vestmannaeyjum að leggja af stað til Reykjavíkur í helgarreisu.
Dansatriðin eru upp til hópa vel útfærð.
Eins og sjá má skemmtu gestir sér hið besta.