Morgunblaðið - 19.10.1988, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 19.10.1988, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988 „Ger&u upp ftug p'inn, HQrvildur. ftverrl okknr viLtu hoJda.á.-fram úfo vera. g'iftur ?•' TM R®g. U.S. Pat Off. — all nghts reserved ° 1988 Los Angeles Times Syndicate Ást er... ... dagdraumar um hana. ))" 7-2 ? Skipulagið getur verið of mikið Til Velvakanda. Á tímum skipulags og malbiks hefur Reykjavík skipt um svip og án efa til hins betra. Það held ég að þeir sem muna eftir hvemig borgin var fyrir 40 eða 50 árum verði að skrifa undir. Þó hefur ýmisiegt horfíð sem maður hlýtur að sakna. Jafnvel braggamir gömlu höfðu sinn svip og sumir hverjir sérlega rómantískt yfirbragð. En þannig hlýtur þetta að vera, gamli tíminn víkur fýrir hinum nýja. En stundum fínnst manni skipu- lagið full ágengt. Þannig fínnst mér að Örfirisey hafi verið skemmd með of miklu skipulagi. Aftur hefur Ægirssíðan sloppið við hramm skipulagsins fram til þessa og væri óskandi að skipulagssérfræðingam- ir kæmust þangað aldrei með klæmar. Þar ríkja grásleppukarl- amir og hafa lengi gert. Megi svo verða um ókomna tíð. Gamall sjómaður Að hlæja við og hlæja að Kunna þuigmenn ekki mannasiði? 10. októbcr. BorgarfirM eyatra Ég var að horfa á fréttir Sjón- varpsins áðan og ég get ekki sagt annað en að mér bráþegar ég sá svipmynd úr Dómkirkjunni þar sem guðsþjónusta fór fram áður en þing- setning hæfist. Þar sátu kirkjugest- ir, það er þingmenn og ráðherrar, hlæjandi og slíkt held ég að sé sem betur fer sjaldgæft í kirkju. Þama sátu þingmenn, núverandi og fyrrverandi ráðherrar skælbros- andi og spumingamar suðu á mér. Bera þessir menn enga virðingu fyrir þeim stað sem þeir voro 'stadd- ir á? Kunna þeir takmarkaða mannasiði? Og gátu þeir ekki á þessari stundu leynt sínum innri manni? Sverrir Haraldsson Að gefnu tilefni vil ég taka fram að ég ber sjálfur einn ábyrgð á því að bros læddist fram á varir kirkju- gesta minna í guðsþjónustu fyrir þingsetningu. Vil ég nota tækifærið og þakka þeim fyrir lifandi athygli sem ég met mikils. Sjálfur er ég vanur því að sóknarböm mín brosi f kirkjunni. Ég sé hins vegar eftirá að þetta þetta gat auðveldlega mis- skilist vegna glefsu sem sýnd var frá guðsþjónustunni í sjónvarpi. Það sýnir okkur hvað sjónvarpið er sterkur miðill, og getur auðveldlega gert fólki rangt til. Eitt er að hlæja að og annað að hlæja við einhverj- um. Sfðara tilfellið átti sér stað í þessari guðsþjónustu, samanber vísuna góðu: Sólskríkjan mín situr þama á sama steini og hlær við sínum hjartans vini honum Páli Ólafssyni. Sr. Úlfar Guðmundsson sóknarprestur á Eyrarbakka. Víkverji skrifar HÖGNI HREKKVÍSI Alaugardaginn var í sjónvarpinu þáttur á vegum Fræðsluvarps um Brasilíu. Sérstaklega var tekið fram í kynningu að þátturinn væri ætlaður til útlána hjá Námsgagna- stofnun. Víkveiji hefði ætlað að við gerð slíkra þátta yrði sérstaklega vandað til þýðinga, en svo var því miður ekki. í þættinum var t.d. talað um að búpeningurinn hefði dáið. Einnig var talað um að strákamir væm að selja appelsínur til að eiga fyrir vasapeningum. Og svo flutti fólkið úr sveitinni í kaupstaðinn. Þar var einnig talað um allar konur oní litl- ar stúlkur. Það skal tekið fram að þessi dæmi eru valin af handahófí. Enn og aftur þykir Víkveija ástæða til að benda á mikilvægi þess að vanda til þýðinga og þá sérstaklega þegar um er að ræða efni ætlað bömum og unglingum. Þessi dæmi sýna að þama er pottur brotinn. XXX Bæklinga tvo hefur rekið á fjör- ur Víkveija. Þeir era frá fyrir- tæki sem selur Sovehjerte-rúm og dýnur. Þýðingin á bæklingunum er með eindæmum og engu líkara en „þýðandinn" hafí lítið sem ekkert kunnað’ í íslenzku. Og ekki bætir úr skák að prentsmiðjan hefur ekki átt séríslenzka stafí og notar t.d. o í stað Ö. Nokkur dæmi: Sú besta dýna fyrir bamið þitt að sofa á. Sængur okkar heita Sovehjerte og þekkjast á ótal tæknilegum gæðaatriðum sem enginn annar framleiðandi get- ur vísað á. Hægt er að velja allt frá einfoldustu og ódýrastu vatns- rúmum og til þess frábærasta hvað snertir stfl, þægindi og meistara- lega honnun. Hjá okkur getur þú vænst þess að fá leiðbeiningu hjá duglegum, reyndum sérfræðingum. Þú færð fullan rétt til að skila rúm- inu aftur innan 60 daga, og auk þess 5 ára ábyrgð. Sovehjerte vatnsrúm getur þú fengið að prófa í þessa 60 daga til að sjá hvort þú sért ánægður. Hinir mjúku svamp- kantar gera Sovehjerta Softsider að ennþá notalegra rúmi að lifa í. Ekki verða tínd til fleiri dæmi úr þessum subbulegu bæklingum. Víkveiji varð illur þegar hann las þá og jafnvel falleg mynd af Feg- urðardrottningu íslands á forsíð- unni gat ekki mýkt hans skap! Arsþing íþróttabandalags Reykjavíkur var haldið um síðustu helgi. Þingið sátu margir fulltrúar, þeirra á meðal vora Thor Vilhjálmsson rithöfundur, formaður Júdófélags Reykjavíkur, og Hregg- viður Jónsson alþingismaður, full- trúi ungtemplarafélagsins Hrannar. Thor flutti ræðu á þinginu og skömmu síðar sté Hreggviður í pontu. Hann vísaði m.a. í ræðu Thors og nefndi hann Sigurð Magn- ússon. Undranarsvipur kom á þing- heim og þá sérstaklega Thor, sem kallaði upp: Ertu að meina Sigurð A. Magnússon? Menn máttu vart mæla í salnum af hlátri og var Hreggviður þá snöggur uppá lagið og sagði við Thor um leið og hann bað hann afsökunar: Ég meinti auðvitað Sigurður A. Magnús- son.(H) Komst þá þingforseti að Hreggviði í ræðustól og leiðrétti hann og sagði honum að hann hefði verið að tala til Thors Vilhjálmsson- ar. Þegar Hreggviður sté úr pontu fór hann til Thors og bað hann af- sökunar á þessum mistökum og sagði að þetta hefði verið „black- out“ í ræðustól. Sagði Thor þá með þunga í röddinni. Þetta var

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.