Morgunblaðið - 19.10.1988, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988
17
Indisk Risi
Námstefha
um fískeldi
á Islandi
NÁMSTEFNAN „Fiskeldi á ís-
landi — foglegar forsendur, að-
stæður og reynsla okkar til þessa“,
sem haldin er í samvinnu endur-
menntunarnefiidar Háskóla ís-
lands og Landsambands fiskeldis-
og hafbeitarstöðva, verður i Borg-
artúni 6 dagana 27. og 28. október
næstkomandi.
Markmið ráðstefnunnar er að gefa
alhliða yfírlit yfír helstu líffræði- og
tæknilega þætti fískeldis. Menn úr
atvinnugreininni og þeir sem veita
fræðilega- og tæknilega þjónustu
flytja erindi, segja frá reynslu sinni
og skiptast á skoðunum við þátttak-
endur. í frétt um námstefnuna segir
að áhersla verði lögð á að efla tengsl
manna með mismunandi þekkingu
og auðvelda fagleg samskipti þeirra.
Einnig verður fjallað um markaðsmál
og hugmyndir um stöðlun í fískeldi.
Leitast verður við að fá fram hagnýt
atriði, sem geta nýst fiskeldismönn-
um í starfí. Stefnt er að því að náms-
stefnan verði undanfari námskeiða
þar sem ítarlegar verður farið í ein-
staka líffræðilega, tæknilega og hag-
fræðilega þætti.
Námsstefnan er ætluð öllum
fræðimönnum og rekstraraðilum sem
fást við eða tengjast fískeldi. Nám-
skeiðsgjald er 5.000 krónur. Umsjón-
armenn eru Oddur B. Bjömsson
verkfræðingur og Valdimar K. Jóns-
son prófessor.
Rynkeby
HREINN
APPELSÍNUSAFI
ÁN ALLRA
AUKAEFNA
Norrænu tækniverð-
launin til Finnlands
Norðurlandaráð hefiir ákveðið
að veita Pertti TörmáTa, prófess-
or við Tækniháskólann í Tamm-
erfors, Norrænu tækniverðlaun-
in 1988, fyrir þróun sína á
líflræðilega leysanlegum lífræn-
um efiium, til notkunar við hand-
lækningar.
Norðurlandaráð ákvað í mars
síðastliðnum, í tilefni af Norrænu
tækniári 1988, að veita sérstök
tækniverðlaun að upphæð 125.000
danskar krónur, auk heiðursskjals.
Verðlaunin verða afhent í lokahófí
Norræna tækniársins í Kaup-
mannahöfn, 15. desember næst-
komandi.
Tilgangur verðlaunanna er meðal
annars að undirstrika þýðingu
tækninnar fyrir samfélagsþróunina
á Norðurlöndum, og skulu þau jafn-
framt vera viðurkenning fyrir mikil-
væga tæknivinnu, sem einkennist
af sköpun og frumleika. Hvert
Norðurlandanna mátti tilnefna tvö
verkefni í þessa samkeppni, og vom
öll verkefnin kynnt hér í blaðinu
síðastliðinn laugardag.
Líffræðilega leysanlegu lífrænu
efnin, sem Pertti Törmálá hefur
þróað ásamt samstarfsmönnum
sínum, em álíka hörð og stál, en
þau mýkjast og leysast smám sam-
an upp, við þær aðstæður sem ríkja
í líkamsvefjum. Hægt er að ráða
því með efnasamsetningu hve lengi
efnin halda hörku sinni, en venju-
lega er það um 6 mánuðir til þrjú
ár. Því næst taka þau að leysast
upp og breytast í næringu fyrir
frumur líkamans, uns þau em al-
gjörlega horfín. Þessi efni em því
mjög heppileg til notkunar við
læknisaðgerðir vegna beinbrota, því
þá þarf ekki að framkvæma nýja
aðgerð til að fjarlægja viðgerðar-
efnin.
Fyrstu læknisaðgerðimar þar
sem þessi efni vom notuð, vom
framkvæmdar árið 1984. Nú em
þessi efni notuð á sjúkrahúsum víða
um heim, og skipta aðgerðir þær,
sem framkvæmdar hafa verið með
þeirra hjálp, nú þegar þúsundum.
GIRNILEGIR HRÍSGRJÓNARÉTTIR FRÁ KNORR
nrr..
KNORR’S EKSOTISKE
Orientalsk Rii
KNORR’S EKSOTISKE i
ly
Mexicansk Risret
KNORR'S EKSOHSKE K0KKEN
Knorr hrísgrjónarétt-
irnir eru framleiddir úr
völdum hrísgrjónum,
kryddjurtum og grænmeti.
Þeir eru blandaðir eftir æva-
gömlum, framandi uppskriftum sem lagaðar
eru að smekk okkar.
Með hverjum pakka þarf aðeins 250 g
af kjöthakki til að elda girnilega máltíð fyrir
3-4 - á aðeins 30-40 mínútum.
FRÁ INDLANDI;
Indversk matargerðarlist er einstök.
Útlitið er girnilegt og bragðið svíkur engan.
Indverski hrísgrjónarétturinn frá Knorr færir
þig nærþessari listgrein.
FRÁ MEXÍKÓ:
Þegar þú hefur smakkað
mexíkanska hrísgrjónaréttinn
frá Knorr veistu hvers vegna mexí-
kanskur matur er rómaður um allan heim.
Framandi kryddjurtir og grænmeti gefa
nákvæmlega rétta bragðið.
FRÁ AUSTURLVNDUM:
Yfir Austurlöndum hvílir heillandi dulúð
sem endurspeglast í austurlenskum mat. Þú
kynnist henni þegar þú bragðar austurlenska
hrísgrjónaréttinn frá Knorr. '
KNORR HRÍSGRJÓNARÉTTIR HEILLA ALLA FJÖLSKYLDUNA 'XéhcWl
NORDSJÖ
málning
oglökk
í þúsundum lita, úti og inni.
Höfn, Hornafirði
Kaupfélag
Austur-Skaftfellinga
S: 97-81206
Blaóió sem þú vakrnr vió!