Morgunblaðið - 19.10.1988, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988
23
Reuter
Blindir nuddarar i Suður-Kóreu mótmæltu í gær nýjum lögum sem heimila jurtalæknum og nálarstungu-
læknum að beita nuddi. Mótmælendumir stöðvuðu umferð klukkustundum saman áður en lögregla
dreifði hópnum.
Suður-Kórea:
Blindir nuddarar mótmæla
Seoul. Reuter.
UM 350 blindir suður-kóreskir
nuddarar og ættingjar þeirra
stöðvuðu umferð i miðborg Seo-
ul í gær þegar þeir mótmæltu
nýjum lögum sem þeir segja að
ógni starfegrein þeirra. Boðað
var til mótmælanna þegar heil-
brigðisráðherra Suðiu*-K6reu
kvaðst ætla að samþykkja lög
sem heimila jurtalæknum og
nálarstungulæknum að beita
nuddi.
í Suður-Kóreu hefur nudd verið
starfsgrein blindingja í aldanna
rás. Talsmaður suður-kóreskra
nuddara sagði við fréttamann að
ríkisstjóm landsins ætlaði að taka
einu lífsbjörgina frá þeim blindu.
„Þannig koma gestgjafar
Ölympíuleika fatlaðra fram við
öryrkja." Nú standa einmitt yfír
Ólympíuleikar fatlaðra í Seoul þar
sem 3.200 íþróttamenn keppa.
„Ef lögin öðlast gildi jafngildir
það að biðja blindan íþróttamann '
að etja kappi við sjáandi andstæð-
ing. Hver heldur þú að vinni?“
spurði talsmaðurinn.
Lögregla dreifði hópnum og
kom í veg fyrir að mótmælendur <
kæmust að heilbrigðisráðuneytinu.
Talsmaður nuddaranna sagði að
mótmælin yrðu endurtekin í dag.
Forsetakosnmgarnar í Bandaríkjunum:
George Bush með
17%-stiga forskot
Boston, frá Óla Birni Kárasyni, fréttaritara Morgfunbiaðsina.
GEORGE Bush, varaforseti og
frambjóðandi repúblikana i for-
setakosningunum, hefur 17%-
stiga forskot á keppinaut sinn
Michael Dukakis, frambjóðanda
demókrata, samkvæmt skoðana-
könnun The Wall Street Joumal
og NBC-sjónvarpsstöðvarinnar.
Fylgi Bush er 55% en 38% kjós-
enda segjast ætla að kjósa Duk-
akis.
Skoðanakönnunin leiðir í ljós að
71% kjósenda telja að Bush sé full-
trúi hefðbundins gildismats banda-
rísku þjóðarinnar. Aðeins 48% að-
spurðra sögðu að Dukakis stæði
einnig fyrir hefðbundnu gildismati.
En það sem veldur demókrötum
mestum áhyggjum er hversu lítið
álit bandarískir kjósendur hafa á
Dukakis. Helmingur kjósenda hafa
neikvæðar hugmyndir um Dukakis
en aðeins 36% eru jákvæðir í hans
garð. Um 55% eru hins vegar já-
kvæðir gagnvart Bush en 33% nei-
kvæðir. Þessar töiur gefa góða
vísbendingu um það hversu erfítt
það verður fyrir Dukakis að vinna
upp forskot Bush.
Dan Quayle, varaforsetaefni
Bush, nýtur iítils álits meðal kjós-
enda, samkvæmt könnuninni og
41% hafa neikvæðar hugmyndir um
hann og helmingi fleiri telja að
Lloyd Bentsen, varaforsetaefni
Dukakis, yrði betri forseti en
Quayle, ef forsetinn félli frá.
Mikill meirihiuti Bandaríkja-
manna vill að Bush verði við stjóm
í Hvíta húsinu á hættutímum og
hann nýtur meira fylgis en Dukak-
is jafnt meðal karlmanna og kven-
manna. Um helmingi fleiri karl-
menn ætla að kjósa Bush en Dukak-
is og í fysta skipti fylgja fleiri kon-
ur Bush að málum.
Thailand:
Fegurðar-
dísum hitnar
\ hamsi
Bangkolc. Reuter.
Fegurðarsamkeppni í Thailandi
vöktu upp hinar verstu hvatir hjá
þátttakendum. Stúlkumar sem
töpuðu i keppninni náðu ekki upp
í nef sér fyrir reiði, ruddust inn
i svitu sigurvegarans, sturtuðu
veldissprota og herðaslá hennar
niður um salernisskálina og
rændu gullinni Búddastyttu,
lausafé og persónuskilrikjum.
Fegurðardrottning Thailands heit-
ir Paphassara Chutanupong, 19 ára
gömul. Keppinautum hennar þótti
hún augsýniiega ekki nógu vel úr
garði gérð til að keppa fyrir Thai-
lands hönd í Miss World-keppninni í
Lundúnum.
Fyrir tveimur árum gerðist það
að kóróna og sigursveigur voru rifin
af sigurvegaranum í Ungfrú Thai-
land keppninni og það í beinni út-
sendingu.
áritar nýútkomna skáldsögu sína,
HÚSIÐ MED BLINDU GLERSVÖLUNUM, í
íslenskrí þýðingu Hannesar Sigfússonar
í bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18.
Herbj0rg Wassmo hefur áunnið sér sess meðal allra
fremstu rithöfunda Norðmanna. Hún hlaut
bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1987.
—nn—
Bókalmð
LMÁLS & MENNINGAR J
LAUGAVEG118, SÍMI 24240
Sendum einnig árituð eintök í póstkröfu.