Morgunblaðið - 19.10.1988, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988
29
Utandagskrárumræður í neðri deild:
Harðar deilur um viðskilii-
að síðustu ríkisstjórnar
ALLHARÐAR umræður áttu sér stað utan dagskrár í neðri deild
Alþingis í gær um viðskilnað síðustu ríkisstjórnar. Þorsteinn
Pálsson gagnrýndi ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar þess e&i-
is, að ýmsar ákvarðanir síðustu ríkisstjórnar ættu sök á því, að
staða ríkissjóðs yrði mun verri um næstu áramót en gert hafði
verið ráð fyrir. Þorsteinn spurði Ólaf, hvort tölur firáfarandi Qár-
málaráðherra Jóns Baldvins Hannibalssonar um Qárlagahailann
um næstu áramót væru rangar og bað Ólaf að leiðrétta þær ef
svo væri. Ólafur ásakaði Þorstein um að skjóta sér undan ábyrgð
á verkum fráfarandi rikisstjórnar og sagði ljóst, að afkoma ríkis-
sjóðs yrði verri en við var búist I sumar.
Utandagskrárumræðumar í
neðri fóru fram að ósk Þorsteins
Pálssonar (S.Sl.). Hann gerði að
umtalsefni ræðu, sem ólafur Ragn-
ar Grímsson fjármálaráðherra hélt
á fundi Alþýðubandalagsins í
Garðabæ um síðustu helgi og sagði
að þar hefðu komið fram ásakanir
um að Jón Baldvin Hannibalsson
hefði gefíð rangar upplýsingar um
stöðu ríkissjóðs, þegar síðasta ríkis-
stjóm lét af störftim. Þorsteinn vitn-
aði einnig í viðtöl við Ólaf í fjölmiðl-
um, þar sem kemur fram, að auka
þurfi skattheimtu um 5 til 9 millj-
arða króna vegna viðskilnaðar
síðustu stjómar, meðal annars til
að auka millifærslu til atvinnuveg-
anna.
Þorsteinn
Pálsson
ólafur Ragnar
Grímsson
Voru tölur Jóns Bald-
vins rangar?
Þorsteinn rifjaði upp, að í byijun
september hefði þáverandi fjár-
málaráðherra, Jón Baldvin Hanni-
balsson, sagt að fjárlagahallinn yrði
um 700 milljónir króna. Ekki hefðu
komið fram nýjar tölur hvað þetta
varðar. „Nú kemur fram af hálfu
hæstvirts fjármálaráðherra að um
sé að ræða allt aðrar og hærri tölur
um viðskilnaðinn í ijármálaráðu-
neytinu. Ég vil því spyija hæstvirt-
an fjármálaráðherra, hvort þær töl-
ur, sem forveri hans gaf upp í ríkis-
stjóm hafí verið rangar."
Ólafur Ragnar Grímsson Qár-
málaráðherra sagði í upphafi máls
síns, að tilgangur Þorsteins með
spumingunni hefði eingöngu verið
sá að koma höggi á Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra að
honum fjarverandi og væri ræða
Þorsteins því að vissu leyti misnotk-
un á þeim rétti þingmanna, að taka
til máls utan dagskrár af brýnu til-
efni. Ólafur sagði að nú sem áður
bæri forsætisráðherra hverrar ríkis-
stjómar höfuðábyrgð á ríkisstjóm-
inni. „Þess vegna mun það lítt duga
fyrir Þorstein Pálsson að rejma að
skjóta sér undan ábyrgð á því sem
misfarist hefur í hans forsætisráð-
herratíð." Ólafur sagði ljóst, að af-
koma ríkissjóðs yrði mun lakari en
áður hefði verið gert ráð fyrir og
stafaði það af afleiðingum stefiiu
fráfarandi ríkisstjómar. Hann sagði
að þær tölur sem hér væri um að
ræða lægju ekki endanlega fyrir,
en hann myndi gera grein fyrir
þeim á næstu dögum.
Lagafrumvarp
um verðbréfa-
viðskipti
JÓN Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra mælti í gær fyrir laga-
frumvarpi um verðbréfaviðskipti
í neðri deild Alþingis.
Ráðherra sagði meðal annars, að
mikil gróska hefði verið í þessum
viðskiptum að undanfömu og því
væri þörf á reglum um þau. Nokkr-
ar umræður urðu að lokinni ræðu
hans. Benti Friðrik Sopliusson
(S.Rvk) m.a. á, að ráðherrar Al-
þýðubandalagsins hefðu ekki
gert neinn fyrirvara um stuðning
sinn við frumvarpið, sem undir-
búið hefði verið í tíð síðustu rikis-
stjóraar.
Sighvatur Björgvinsson
(A.Vf.) tók næstur til máls og sagði
að ljóst væri, að ýmsir þættir ytri
aðstæðna hefðu valdið því, að for-
sendur fjárlaga hefðu breyst. Fjár-
lögin byggðu á spám og breytingar
á tekjuöflunarkerfí ríkisins hefðu
valdið ónákvæmni í slfkum spám á
þessu ári.
Ólafur vill kenna
síðustu stjórn um
skattahækkanir
Birgir ísleifur Gunnarsson
(S.Rvk) benti á að í tíð síðustu ríkis-
stjómar hefði Jón Baldvin Hanni-
balsson látið fjármálaráðuneytið
grannskoða spár um fjárlagahall-
ann og niðurstaðan hefði verið sú,
að hallinn yrði um 700 milljónir.
Birgir sagði ennfremur, að Olafur
vildi sverta stöðu ríkissjóðs nú, til
þess að geta kennt ríkisstjóm Þor-
steins Pálssonar um þær skatta-
hækkanir, sem hann ætlaði að koma
í framkvæmd.
Málmfríður Sigurðardóttir
(Kl.Ne.) talaði um að yfirleitt hefði
ekki þurft að krefja Ólaf Ragnar
Grímsson sagna um stöðu ríkis-
fjármálanna að undanfömu. Hún
sagði einnig, að auðvitað bærí Jón
Baldvin að hluta til ábyrgð á fjár-
lagahallanum. Ragnhildur Helga-
dóttir (S.Rvk) talaði um þá lítils-
virðingu sem ríkisstjómin sýndi
Alþingi með. því að setja bráða-
birgðalög örfáum dögum fyrir þing-
setningu, auk þess sem forsendur
laganna væm óljósar. Hún sagði
að ekki væri hægt að skilja orð
Ólafs Ragnars öðmvísi en sem
harkalega gagnrýni á Jón Baldvin
og því væri ljóst, að núverandi ríkis-
stjóm væri hvorki starfhæf né sam-
starfshæf.
Umræður í flarveru
Qármálaráðherrans
fyrrverandi
Ólafur Þ. Þórðarson (F.Vf.)
furðaði sig á því að þessi utandag-
skrámmræða færi fram að fyrrver-
andi fjármálaráðherra fjarverandi.
Hann spurði hvemig síðasta stjóm
hefði skilið við atvinnuvegina og
taldi, að aldrei hefði verið unnið
jafn hratt að þjóðnýtingu hér á
landi, því að atvinnufyrirtæki um
allt land væm að lenda í höndum
opinberra sjóða. Friðrik Sophus-
son (S.Rvk) sagði að kjaminn í
ræðu fjármálaráðherra hefði verið
sá, að forsætisráðherra bæri ábyrgð
á gerðum Qármálaráðherra og
bætti því við, að í ljósi þess gætu
menn getið sér til um hvert fram-
haldið yrði i stjómarsamstarfinu.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagði greinilegt að
Þorsteini Pálssyni og Friðriki Sop-
hussyni liði illa vegna afleiðinga
stjómarstefnu þeirra og þeir reyndu
greinilega að flýja fortíðina. Hann
bætti því við að þeir Jón Baldvin
væm ekki alltaf sammála, en gætu
þrátt fyrir það unnið saman. Þor-
steinn Pálsson tók aftur til máls
og sagði Ólaf ekki hafa svarað
spumingu sinni. Hann sagðist ekki
víkja sér undan ábyrgð á gerðum
stjómar sinnar og því hefði hann
vakið athygli á ummælum Ólafs
Ragnars á fundinum í Garðabæ.
Ætla að setja Sjálfstæð-
isflokkinn til hliðar
Fjármálaráðherra tók enn til
máts og sagðist ekki ræða stöðu
ríkisfjármálanna í umræðum af
þessu tagi. Hann sagði að Þorsteinn
vildi reka fleyg milli þeirra Jóns
Baldvins en það þýddi ekki, því
þeir ætluðu í sameiningu að koma
í veg fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn
næði forystuhlutverki í íslenskum
stjómmálum. Stefán Valgeirsson
(SJF.Ne.) sagði að ekki væri van-
þörf á að ræða viðskilnað fráfar-
andi ríkisstjómar, því útlitið í at-
vinnumálum væri slæmt.
Hvor fjármálaráð-
herrann hefixr rétt
fyrir sér?
Albert Guðmundsaon (B.Rvk)
sagði að Ólafur Ragnar hefði kom-
ist í rökþrot er hann var spurður
hvort Jón Baldvin hefði farið með
rangt mál. Hann bætti því við að
það munaði þjóðina miklu hvor fjár-
málaráðherrann hefði rétt fyrir sér.
Geir H. Haarde (S.Rvk) sagði það
dæmigert að fjármálaráðherra vildi
frekar gera grein fyrir þessu máli
á fundi Alþýðubandalagsins í
Garðabæ heldur en á Alþingi. Hann
sagði að það markmið, að setja
Sjálfstæðisflokkinn til hliðar í
íslenskum stjómmálum, myndi
aldrei ná fram að ganga. Þorsteinn
Pálsson sagði það sýna virðingu
ólafs Ragnars fyrir Alþingi að hann
vildi ekki svara hver fjárlagahallinn
væri í raun. Ólafur Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra tók
sfðastur til máls í þessari umræðu.
Sagðist hann ætla að gera grein
fyrir þessu máli seinna.
Bráðabirg’ðalögin lögð fram í efri deild:
„Islenskt atvinnulíf komið nær
bjargbrúninni en oftast áður“
— segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra mælti i gær fyrir
fjórum lagafrumvörpum í efri deild Alþingis, til staðfestingar á
bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar um fyrstu aðgerðir í efna-
hagsmálum.
Forsætisráðherra ræddi um erf-
iðleika útflutningsatvinnuveganna
og þær leiðir er ræddar vom í frá-
farandi ríkisstjóm til að leysa úr
þeim. Forsætisráðherra fjallaði um
slæmt atvinnuástand og gjaldþrot
fyrirtælda og sagði hann í því sam-
bandi: „íslenskt atvinnulíf er komið
nær bjargbrúninni en oftast áður.“
Steingrímur gerði síðan grein
fyrir efni laganna. Þau fjalla í fyrsta
lagi um aðgerðir til að bæta afkomu
atvinnuveganna, t.d. með verðjöfn-
un til fiskiðnaðarins og stofnun
Atvinnutryggingarsjóðs útflutn-
ingsgreina. F öðm lagi fela lögin í
sér verðstöðvun til 28. febrúar á
næsta ári. í þriðja lagi gera lögin
ráð fyrir iaunafrystingu til 15. febr-
úar næstkomandi og afnámi samn-
ingsréttar til þess tíma. Aðgerðir
ríkisstjómarinnar miða að vaxta-
lækkun og fela þær einnig í sér
breytingar á gmndvelli lánskjara-
vfsitölu, með það fyrir augum að
auka vægi launa við útreikning
hennar.
Steingrímur sagði, að markmið
þessara aðgerða væri að losa efna-
hagslífið úr víxlverkun launa, verð-
lags, vaxta og gengis. Koma ætti
í veg fyrir misgengi launa og vaxta
rfieð auknu vægi launa í lánskjara-
vísitölunni. „Það er ekki hægt að
búa við vísitölutryggingu fjármagns
ef launin em ekki vísitölutryggð,"
sagði hann.
Forsætisráðherra gerði grein fyr-
ir reglugerð um Atvinnutryggingar-
sjóð útflutningsgreina og sagði að
einhver gmndvöllur yrði að vera
fyrir rekstri þeirra fyrirtækja, Sem
fyrirgreiðslu ættu að fá hjá sjóðn-
um. Sagði hann að lokum, að ólík-
legt væri, að öllum illa stöddum
fyrirtækjum yrði forðað frá stöðv-
un, þrátt fyrir þessar aðgerðir.
Halldór Blöndal (S.Ne) tók til
máls að Iokinni ræðu forsætisráð-
herra. Gagnrýndi hann setningu
bráðabirgðalaganna f Ijósi þess að
ekki lægi fyrir nægur stuðningur
við þau í báðum þingdeildum.
Spurði hann hvort forsætisráðherra
hefði fullvissað forseta lýðveldisins
um að lögin hefðu nægan stuðning
í deildum þingsins.
Halldór Blöndal rakti sfðan þær
umræður, sem fram fóm f síðustu
ríkisstjóm um efnahagsaðgerðir.
Minnti hann á tillögur Sjálfstæðis-
flokksins og sneri sér sfðan að efiii
bráðabirgðalaga ríkisstjómar ■
Steingríms Hermannssonar og taldi
þau ófullnægjandi til að bæta stöðu
atvinnufyrirtækjanna. Spurði hann
hvort stefnt væri að nýrri gengis-
fellingu strax eftir áramót og hvort
ráðherrar Alþýðubandalagsins
væra sammála framsóknarmönnum
um nauðsyn stórrar gengisfellingar.
Halldór sagðist andvfgur stofnun
Atvinnutryggingarsjóðs, þvf skyn-
samlegra væri að bæta eiginfjár-
stöðu fyrirtækja en að drekkja þeim
í lánsfé. Einnig sagði hann að sjálf-
stæðismenn væm ósáttir við að
stjóm sjóðsins hefði verið verslunar-
vara f stjómarmyndunarviðræðun-
um. Hann sagðist líka andvígur
því, að afla sjóðnum tekna með
svokölluðum tekjuskattsauka. í lok
ræðu sinnar sagði Halldór Blöndal
að frumvarpið til laga um efnahags
aðgerðir endurspeglaði úrræðaleys
ríkisstjómarinnar.
FYRSTA FLOKKS
BANKAÁBYRQÐIR
Áhættufé - Fasteignaviðskipti
- Fjármögnun viðskipta -
Bankaábyrgðir og aðstoð við
ábyrgðir vegna hvers kyns
framkvæmdaáætlana.
Engin umboðslaun fyrr en fé
erfengið.
Miðlarar eru verndaðir.
UMBOÐSMANN
þarf til að skapa tengsl fyrir
okkur til aö framkvæma fjár-
mögnun.
Vinsamlegast skrifiö til okkar
á ensku.
VENTURE CAPITAL
CONSULTANTS
Investment Bankers
16311 Ventura Blvd., Suite
999, Encino, California
91436, U.S.A.
Telex: 651 355 Vencap LSA
Fax nr.: (818) 905-1698
Sími: (818) 789-0422
Honda
Civic
CRX
130 hestöfl
Verð frá 893 þúsund,
miðað við staðgreiðslu á gengi 1. okt. 1988
NÝ AFBORGUNARKJÖR
ÁN VAXTA OG VERÐBÓTA.
W HORfDA
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SfMI 689900
BÍLAVERKSTÆÐI!
Vorum aðfá
MÓTORLYFTUR
á hagstæðu verði.
Höfum einnig fyrirliggjandi:
Mótahreinsivóíar.
RafstöAvar.
Rafmagnstaiíur.
Steypuhrærivólar.
Verkstæöiskrana.
Loftþjöppur.
SALA-SALA-SALA-SALA
LEIGA-LEIGA-LEIGA-LEIGA
ts
VÉLA- OG PALLALEIGAN
Sími 687160.
Fosshálsi 27,
Reykjavík.