Morgunblaðið - 18.11.1988, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1988
Líbanon:
Starfsmanni Rauða
krossins rænt í Sídon
VOPNAÐIR menn rændu í gær svissneskum starfsmanni Al-
þjóðanefndar Rauða krossins í Líbanon, Peter Winkler, og pa-
lestínskir embættismenn sögðu að mannránið hefði verið framið
til að grafa undan áliti palestínskra leiðtoga, sem lýst hafa yfír
siálfstæði Palestínu.
Sídon. Reuter.
Lögregluyfírvöld sögðu að þrír
grímuklæddir menn hefðu miðað
byssum að Svisslendingnum og
numið hann á brott eftir að hafa
elt og stöðvað bifreið hans í einu
úthverfa Sídon.
Sjónarvottar sögðu að þremenn-
ingamir hefðu dregið Winkler úr
bíl sínum inn í baksætið á BMW-
bifreið. Þeir hefðu sleppt bílstjóra
hans og ekið á miklum hraða til
Seldu Svíar
þunga vatnið
frá Noregi?
flóttamannabúðanna Ain al-Hil-
weh, þar sem ýmsar skæruliðafylk-
ingar Palestínumanna og öfgasinn-
aðir múslimar ráða ríkjum. Engin
þessara fylkinga hefur lýst yfír
ábyrgð á mannráninu. Talsmaður
Alþjóðanefndar Rauða krossins í
Genf, Francoise Derron, sagði að
fulltrúar hennar í Líbanon hefðu
haft samband við allar skæruliða-
fylkingamar til að leita aðstoðar.
Líbanskir og palestínskir emb-
ættismenn fordæmdu mannránið.
Abu Saeed, talsmaður Lýðræðis-
fylkingarinnar fyrir frelsi Palestínu,
DFLP, sagði að mannránið hefði
átt sér stað „eftir sjálfstæðisyfírlýs-
inguna til að koma umheiminum til
að halda að Palestínumenn séu ekki
friðelskandi þjóð.“
Líbanskir starfsmenn Alþjóðanefndar Rauða krossins rannsaka bif-
reið sem Svisslendingurinn Peter Winkler (á innfelldu myndinni) var
í þegar honum var rænt í gær.
Pakistan:
Bhuttoóumdeilanlegiir
leiðtogi Þjóðarflokksins
BENAZIR Bhutto er óumdeilanlegur leiðtogi Þjóðarflokksins í
Pakistan, sem stendur sameinaður að baki henni, meðan valdabar-
átta á sér stað innan íslömsku lýðræðisfylkingarinnar. Þessar
tvær megin stjórnmálafylkingar börðust um völd í þingkosningun-
um, sem fram fóru í Pakistan í fyrradag.
Ósl6. Reutcr.
NORSKA útvarpið sagði frá því
á þriðjudag að Svíar hefðu flutt
út þungt vatn, framleitt í Nor-
egi, án samþykkis norskra stjórn-
valda. Sænska útvarpið flutti
svipaðar fréttir en hvorug út-
varpsstöðin nefndi heimildir fyr-
ir þessum ásökunum. Norsk
stjórnvöld sögðust í gær ætla að
kanna hvað hæft væri í fréttum
þessum.
í frétt norska útvarpsins sagði
að eftir að Svíar hefðu hætt við
áætlun um kjamorkurannsóknir á
sjöunda áratugnum hefðu þeir flutt
birgðir þungs vatns úr landi en efn-
ið er hægt að nota við gerð kjam-
orkusprengja. Svíar fluttu inn 82
tonn af þungu vatni á sjötta ára-
tugnum frá Noregi. í samningi milli
ríkjanna var ákvæði um að Svíar
yrðu að greina Norðmönnum frá
öllum útflutningi þunga vatnsins til
þriðja aðila. Árið 1974 gáfu norsk
stjómvöld Svíum leyfí til að selja
52 tonn til Kanada. „Við vitum
ekki hvað varð um afganginn,"
sagði Sigrid Romundseth, talsmað-
ur norska utanríkisráðuneytisins, í
gær.
Thorvald Stoltenberg, utanríkis-
ráðherra Noregs, tilkynnti í síðustu
viku að hann væri fylgjandi banni
við útflutningi þungs vatns frá
landinu eftir að fréttir bárust um
að efnið hefði gengið kaupum og
sölum á alþjóðavettvangi.
Ifyrir annarri fylkingunni fór ung
kona og reynslulaus í pólitík en
fyrir hinni þrír þrautreyndir stjóm-
málamenn. Bhutto tók við flokki
föður síns, Zulfíkars Ali Bhutto,
fyrrum forsætisráðherra, árið 1979.
Það ár lét Zia-ul-Haq, hershöfð-
ingi, lifláta Bhutto, sem hann
steypti af stóli tveimur árum áður.
Fórst ungfrúnni forystan misvel úr
hendi fyrst um sinn. Hún hratt
mörgum samstarfsmenn föður síns
frá sér og gengu sumir þeirra
íslömsku lýðræðisfylkingunni á
hönd, en megin markmið þess
flokks er að koma í veg fyrir að
Þjóðarflokkurinn komist til áhrifa
í Pakistan.
Með tímanum hefur Bhutto
þroskast sem flokksleiðtogi og
tekizt að gæta tungu sinnar betur
en fyrr. Lét hún t.a.m. ýmsa trúar-
leiðtoga og kennimenn, sem héldu
því fram að kona gæti ekki orðið
leiðtogi múslimaríkis, ekki setja sig
út af laginu. Svar hennar var á
þessa leið: „Kosningamar eru ekki
uppgjör milli karla og kvenna; valið
stendur milli lýðræðis og einræðis".
Bhutto fæddist 21. júní 1953 og
er því aðeins 35 ára. Hún er komin
af landeigendum og hlaut menntun
sína í trúboðsskólum kristinna
manna en lagði síðan stund á há-
skólanám í Bretlandi og. Banda-
rílqunum. Var henni oftlega stungið
inn á fyrstu fímm árum sínum sem
flokksleiðtogi en árið 1984 hélt hún
til Evrópu og stjómaði flokknum
þaðan. Tveimur árum síðar sneri
hún heim og hlaut móttökur sem
sæmt hefðu þjóðhöfðingja. Þrátt
fyrir gagmýni á vestræna lifnaðar-
hætti hennar og reynsluleysi þykir
hún hafa stýrt flokki sínum í gegn-
um hatramma kosningabaráttu með
glæsibrag.
Þegar faðir hennar var hengdur
ákvað Bhutto að hefna aftökunnar
með því að beijast gegn einræði
Zia-ul-Haqs og beita sér fyrir því
að teknir yrðu upp lýðræðislegri
stjómarhættir í landinu. Setti hún
sér það takmark að verða forsætis-
ráðherra Pakistans því það væri sá
dómur yfír verkum Zia-ul-Haqs,
sem allir skildu.
Að sögn stjómmálaskýrenda nýt-
ur Bhutto vinsælda föður síns, sem
enn er ekki horfinn úr minningu
landsmanna. Vonir hennar glædd-
ust þegar Zia beið bana í flugslysi
í ágúst í sumar, þvf að arftaki hans,
Ghulam Ishaq Khan, forseti, ákvað
að leyfa stjómmálaflokkum en ekki
aðeins einstaklingum að bjóða fram
við þingkosningamar, hinar fyrstu
í Pakistan í 11 ár.
Khan ávarpaði þjóð sína í sjón-
varpi á þriðjudag og hvatti kjósend-
ur til þess að sýna stillingu á kjör-
dag og gefa lýðræðinu tækifæri í
kjölfar mistaka fortíðarinnar. Var-
aði hann við ásökunum um kosning-
asvindl og tilraunum til að draga
úrskurð þjóðarinnar í efa. Sagði
hann að hart yrði brugðist við yfír-
lýsingum af því tagi. Voru dómarar
settir yfír kjörstjómir til þess að
koma í veg fyrir kosningasvindl,
sem viðgengist hefur í fyrri þing-
kosningum. í sama skyni stóðu
her- og lögreglumenn vörð við kjö-
staði.
Grikkland:
Mútaði jafiit þingmönnum
sem knattspymudómurum
Fékk þó að flýja úr landi á snekkju sinni
Der Spiegel.
ANDREAS Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, hefúr látið und-
an þrýstingi stjómarandstöðunnar og stokkað upp ríkisstjórn sósfalista
en ráðherrar í henni era bendlaðir við mesta mútuhneyksli landsins
frá stríðslokum. Tasos Sheiotis, öiyggismálaráðherra, hefiir sagt af
sér og Agamemnon Koutsoyrgas, dómsmálaráðherra, var gerðui- að
aðstoðarforsætisráðherra en hann hefiir verið sakaður um að hylma
yfir með hflnknmanniniim George Koskotas og hjálpa honum að flýja
úr landi. Stjórnarandstaðan gerir lftið úr ákvörðunum forsætisráð-
herrans og segir að ekki hafí nóg verið að gert og verið sé að „verada
þjófana".
Fyrir tíu árum var Koskotas
óþekktur í heimalandi sínu Grikk-
landi. 14 ára gamall hafði hann flust
með foreldrum sínum til Banda-
ríkjanna. Árið 1979 sneri hann heim,
sagðist hafa komist f álnir með kaup-
hallarviðskiptum og hóf viðskiptafer-
il sem á sér í'á fordæmi. Koskotas
gaf sig alla tíð út fyrir að vera mik-
ill föðurlandsvinur sem vildi fíárfesta
auð sinn í heimalandi sínu. Hann
náði tökum á Krítarbanka og byggði
upp fjölmiðlastórveldi með þremur
dagblöðum, fimm tímaritum og út-
varpsstöð. Auk gjaldþrota banka og
hótela keypti hann hið vinsæla knatt-
spymufélag Olympiakos Pireus (sem
lék gegn KR í Evrópukeppni bikar-
hafa 1968). Fyrsta verk Koskotas
var að kaupa ungverska leikmanninn
Lajos Detari frá Eintracht Frankfurt
fyrir sem svarar 400 milljónum
íslenskra króna. Koskotas var jafnan
þögull þegar spurt var hvaðan honum
kæmi féð og stómvöld veltu ekki
vöngum yfir því enda var hann á
nokkrum árum orðinn einn stærsti
atvinnurekandi landsins utan ríkis-
geirans með rúmlega þtjú þúsund
manns í vinnu.
Kirkjan og kommúnistar
ekki undanskilin
Koskotas ræktaði jafnan tengslin
við ráðamenn. Hann sá til þess að
háttsettir menn hjá .hinu opinbera
fengju vellaunaða vinnu við sitt hæfi
þegar þeir yfírgáfu ríkisgeirann. Eig-
inkona dómsmálaráðherrans fékk
íbúð á besta stað fyrir lítið fé hjá
banka Koskotas. Kommúnistaflokk-
urinn þáði hagstætt lán fyir málgagn
sitt, Rizospatis. Einhverra hluta
vegna greiddi Krítarbanki jafnvel 2%
hærri vexti af sjóðum rétttrúnaðar-
kirkjunnar heldur en af öðm fé.
„A listanum yfír þá sem þáðu
mútur," heldur dagblaðið Avriani
fram „em nær allir stjómmálaflokk-
George Koskotas hreiðraði um sig í grísku viðskiptalífí með mútum
og fölsuðum inneignarnótum. Myndirnar eru úr safini bandarísku
lögreglunnar.
ar Grikklands, 20 dagblöð, 15-20
knattspymulið, 10 knattspymudóm-
arar, 40 þingmenn, rúmlega 30 há-
skólakennarar og menntamenn auk
100 blaðamanna."
Þegar Koskotas sneri sér að út-
gáfustarfsemi var mörgum nóg boð-
ið. Papandreou, forsætisráðherra, sá
sig tilneyddan að skipa rannsóknar-
nefnd til að fara í saumana á við-
skiptum Koskotas. 19. október
síðastliðinn lagði Dimitris Chalikias,
seðlabankastjóri, ffarn mikilvægt
sönnunargagn. Samkvæmt póstfaxi
frá verðbréfafyrirtækinu Merrill
Lynch í Bandaríkjunum var kvittun,