Morgunblaðið - 18.11.1988, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1988
43
Ölympíumótið í skák í Grikklandi:
Barátta á toppnum o g
teflt gegn meisturunum
Skák
Bragi Kristjánsson
Ólympíuskákmót hófst í Salon-
iki í Grikklandi sl. sunnudag. ís-
lendingar senda geysisterka sveit
á mótið, flóra stórmeistara og tvo
alþjóðlega meistara. Jóhann
Hjartarson teflir á 1. borði, Jón
L. Ámason á öðru, Margeir Pét-
ursson á því þriðja, Helgi Ólafsson
á §órða, og varamenn eru Karl
Þorsteins og Þröstur Þórhallsson.
Þröstur Þórhallsson teflir nú á
sínu fyrsta Ólympíuskákmóti, en
Guðmundur Siguijónsson, stór-
meistari, gaf ekki kost á sér til
fararinnar. íslendingar vænta
mikils af þessari sveit, því hana
skipa ungir meistarar í mikilli
framför, og nægir í því sambandi
að benda á, að Jóhann er kominn
í 2. umferð Áskorendakeppninnar,
og þar með í hóp tuttugu bestu
skákmeistara heims.
íslendingar hafa heiður að veija
á mótinu, því þeir náðu 5. sæti í
Dubai fyrir tveim árum. íslenska
sveitin þarf að skjóta mörgum
sterkum þjóðum aftur fyrir sig til
að ná einu af fimm efstu sætun-
um. Sovétmenn eru líklegastir til
sigurs, en þeir tefla fram þeim
Kasparov, Karpov, Jusupov,
Salov, Beljavskíj og Ivantsjúk.
Englendingar senda Short, Speel-
man, Nunn og Chandler sem aðal-
menn, Júgóslavar hafa Ljubojevic,
P. Popovic, Velimirovié, V.
Kovacevic, I. Sokolov og P. Nik-
olic, Hollendingar verða að vera
án Timmans: van der Wiel, Sos-
onko, van der Sterren, J. Piket,
M. Kuijf, Bandaríkjamenn hafa
Seirawan, Gulko, Benjamin,
Christiansen, Kudrin, Rohde,
Vestur-Þjóðveijar hafa ekki Hub-
ner að þessu sinni: Hort, Lobron,
Kindermann, Hickl, Lau, Bischoff
og Svíar senda þá Andersson,
Schussler, Wedberg, Hellers,
Ernst og Hector.
íslenska sveitin hefur byijað
ágætlega á mótinu, er í öðru sæti
með 12V2 vinning eftir 4 um-
ferðir. Sovétmenn hafa 13V2 v.
Búlgarar eru jafnir íslendingum
með 12'/2 v. 4.-5. Hollendingar
og Ungveijar, 12 v. 6. Danir með
IIV2 v.
Danir hafa staðið sig vel, unnu
Bandaríkjamenn 3—1 í 4. umferð.
Urslit íslendinga til þessa eru
eftirfarandi:
1. umf.:ísl. — PeurtoRico, 4—0
2. umf.: ísl. — Kanada, 2V2—IV2
3. umf.: ísl. — Brasilía, 2V2— IV2
4. umf.: ísl — Grikkland, 3V2—V2
Þessi frammistaða er í heild
góð, þótt menn séu sjálfsagt mis-
jafnlega ánægðir með einstök úr-
slit. Nú er því takmarki náð, að
tefla við Sovétmenn snemma í
mótinu, og verður sú viðureign í
dag. í Saloniki fyrir fjórum árum
unnu Sovétmenn nauman heppn-
issigur, 2V2—IV2, en í Dubai fyr-
ir tveim árum varð jafnt, 2—2.
Sovétmenn hafa að sögn teflt
mjög vel á mótinu til þessa, svo
að líklega er ráðlegt að vera hóf-
lega bjartsýnn, en okkar menn
eru líka sterkir og til alls vísir!
Jón L. Amason hefur teflt mjög
vel á mótinu og skulum við nú
sjá, hvemig hann launar gestrisni
heimamanna.
4. umferð:
Hvítt: Jón L. Arnason
Svart: Skembris (Grikk-
landi)
Frönsk vöm
1. e4 - e6, 2. d4 - d5, 3. Rc3
— Rfli, 4. Bg5 — dxe4, 5. Rxe4
- Be7, 6. BxflS - gxflB!?
Grikkinn tekur á sig veikleika
í peðastöðu til að flækja taflið.
Ömggara var 6. — Bxf6.
7. Rf3 -
I 3. einvígisskák Fischers og
Petrosjans 1971 reyndi sá fyrr-
nefndi 7. g3, en fékk verra tafl
eftir 7. - f5, 8. Rc3 - Bf6, 9.
Rge2 - Rc6, 10. d5 - exd5!, 11.
Rxd5 — Bxb2, 12. Bg2 — 0-0,
13. 0-0 - Bh8, 14. Ref4 - Re5,
15. Dh5 — Rg6 o.s.frv.
7. - f5
Önnur leið er hér 7. — b6, 8.
Bc4 - Bb7, 9. De2 - c6, 10.
0-0-0 - Dc7, 11. Kbl - Rd7,
12. Hhel - 0-0-0, 13. Ba6 -
Bxa6,14. Dxa6n— Db7 og hvítur
hefur lítið eitt betri stöðu.
8. Rc3 - BflS, 9. Dd2 - c5
Svartur getur einnig leikið hér
9. — 0-0!?, t.d. 10. g4 — fxg4,
11. Hgl - e5!, 12. Bd3! - Bg7,
13. dxe5 - Kh8, 14. 0-0-0 -
f5!, 15. exf6 — e.p. og jafntefli
var samið í skákinni Gipslis-Tsj-
émin, St. John 1988.
10. d5 -
í skák Sokolovs og Anderssons
í Brussel fyrr á þessu ári varð
framhaldið 10. Bb5+ — Bd7 (10.
- Ke7!?), 11. dxc5 - a6, 12.
Bxd7+ - Rxd7, 13. 0-0-0 - Dc7,
14. Dd6 - Hc8, 15. Rd5 - Dxc5,
16. Rxf6n— Rxf6, 17. Dxc5 með
jafiitefli.
10. - exd5, 11. De3+!? -
Eftir 11. Rxd5 — Bxb2!? keinur
upp óljós staða.
11. - Be6
Eða 11. - Be7 (11. - De7,
12. Dxe7+ ásamt 13. Rxd5), 12.
De5 — 0-0,13. Rxd5 og nú geng-
ur 13. — He8 ekki vegna 14. Rc7!.
12. Dxc5 - Rd7, 13. Bb5 -
Hc8, 14. De3 - a6?!
Eðlilegra virðist að leika 14. —
0-0, því þá má svara 14. Rd4 með
14. — He8 eða jafnvel 14. — Kh8.
15. Bxd7+ - Dxd7, 16. Rd4 -
Hg8
Svartur hefði betur hrókað
stutt í þessari stöðu, því draumar
hans um sókn verða aldrei að
veruleika.
17. 0-0 - Bxd4
Grikkinn lætur biskupaparið af
hendi og viðurkennir þar með
baráttulítið, að hann er með verri
stöðu. Biskupaparið var eina mót-
vægi svarts gegn veikri kóngs-
stöðu og tætingslegri peðastöðu.
Svartur átti þó ekki auðvelt með
að finna góðan leik, því 17. —
Hc4 væri einfaldlega svarað með
18. Hadl o.s.frv.
18. Dxd4 - Hc4, 19. De5 - d4,
20. Hadl - Dc6
a b c d • t q h
21. Db8+ - Bc8, 22. Hfel+ -
Kf8, 23. g3! - Kg7
Eða 23. - dxc3, 24. Hd8+ -
Kg7, 25. De5+ - f6 (25. - Df6,
26. Hxg8+), 26. De7+ ásamt 27.
Hxg8 og vinnur.
24. De5+ - flB
Eftir 24. - Df6, 25. Dxf6+ -
Kxf6, 26. Rd5+ — Kg7 hefur
svartur mun verra endatafl, en
það hefði þó verið skárri kostur.
25. De7+ - Kh6
Eða 25. - Kh8, 26. Rd5! -
Dxd5, 27. Dxf6+ - Hg7, 28.
He8+ og vinnur og 25. — Kg6
er slæmt vegna 26. Re2 ásamt
27. Rf4+ o.s.frv.
26. Hxd4 - Hxd4, 27. De3+ -
f4, 28. Dxd4 - Bh3, 29. Rd5 -
Hd8, 30. Dxf4+ - Kg7, 31.
He7+ — Kg6, 32. Dh4 og svart-
ur gafst upp, því hann er gjörsam-
lega vamarlaus.
Minning:
Jónas G. Jóhannes■
son bifreiðastjóri
Fæddur 13. júní 1960
Dáinn 12. nóvember 1988
Ég ætla í örfáum fátæklegum
orðum að kasta hinstu kveðju á
nágranna minn og vin, Jónas Gunn-
ar Jóhannesson. Jónas fæddist á
Akranesi 13. júní 1960, sonur
Kristjönu Kristjánsdóttur og Jó-
hannesar Þorsteinssonar. Hann var
kvæntur Ellen Rósu Jones og reynd-
ist bömunum hennar fjómm sem
besti faðir.
Af kynnum mínum og Jónasar á
ég ekkert nema ljúfar minningar.
Hann var glaðvær og fjörlegur pilt-
ur, en alltaf raungóður þegar eitt-
hvað bjátaði á. Þegar ég lít um öxl
koma upp ótal stundir sem við átt-
um saman, bæði í starfi og leik,
veiðitúrar, spilakvöld, ferðimar í
Hreppslaugina. Þótt hugurinn sé
fullur af söknuði og trega, get ég
ekki annað en brosað þegar mér
verður hugsað til kvöldanna þegar
við fóram saman í Borgames að
spila félagsvist. Þá vora þær líka
með, Helga, Svava og Jóa, sem
einnig hefur verið numin burt frá
okkur vinum sínum.
Þrátt fyrir veikindin og alla erfið-
leikana var ekki annað að sjá en
Jónas væri fullur af lífsgleði allt
þar til yfir lauk. Því hvarflaði það
aldrei að manni að tími hans á
meðal okkar væri á enda. Þótt veik-
indin væra kunn okkur vinum hans,
kom fregnin á óvart, eins og reyiíd-
ar flestar harmafregnir.
Það verður mikill söknuður að
Jónasi fyrir okkur öll. Við getum
þó leitað okkur huggunar í þeirri
trú og von að þau geti tekið í spil
þarna hinum megin, hann og Jóa.
Megi algóður Guð vera með þér
á þessum erfiðu tímum, Rósa mín.
Ásgeir V. Hlinason
í dag verður til moldar borinn
frá Akraneskirkju frændi minn Jón-
as G. Johannesson, bifreiðastjóri.
Foreldrar Jónasar era Kristjana
Kristjánsdóttir frá Innraleiti á
Skógarströnd og Jóhannes Þor-
steinsson frá Siglufirði. Jónas ólst
upp hjá foreldram sínum á Akra-
nesi, ásamt uppeldissystur sinni,
Elísabetu Ámadóttur og hálfbróð-
ur, Kristjáni Heiðari Baldurssyni.
Aðrir hálfbræður Jónasar eru Jó-
hann Norðfjörð Jóhannesson í Vest-
mannaeyjum og Karl Hilmars Jó-
hannesson á Akranesi.
Árið 1983 kvæntist Jónas Rósu
Jones frá Reykjavík og gekk þrem-
ur bömum hennar í föðurstað, Emu
Björk, f. 7.11. 1970, Stefáni Pétri,
f. 11.1. 1979 og Berglindi f. 17.12.
1979.
Þau Jónas og Rósa bjuggu á
Grandarfirði og unnu í fiski í upp-
hafi hjúskapar síns, albúin að tak-
ast á við það basl sem ungu fólki
er búið til að sjá fyrir heimili og
koma sér upp húsnæði. En það
vora bara nokkrir mánuðir liðnir
af þeirra hjónabandi þegar Jónas
veiktist, að því er virtist ekki alvar-
lega, en sjúkdómurinn leiddi þó til
þess að hjartalokur skemmdust.
Gekkst Jónas undir hjartaaðgerð
haustið 1984, sem heppnaðist vel
að öðru leyti en þvi að eitrun komst
í sárið og var Jónas lengi að ná sér
eftir hana. Þessi veikindi urðu til
þess að þau Rósa urðu að gefa frá
sér þá von að koma undir sig fótun-
um á Grundarfirði.
Síðustu árin virtist bjartari tíð
framundan hjá þeim hjónum. Jónas
mátti að vísu ekki vinna átaka-
vinnu, en hóf að starfa sem bifreiða-
stjóri, og vora þau búin að koma
sér upp leigubíl. Þau vora að koma
sér upp húsnæði á Akranesi og
lögðu hart að sér. Hún vann á hótel-
inu en hann keyrði leigubílinn og
vann líka sem bensínafgreiðslumað-
ur.
Hjartaáfallið sem leiddi til dauða
Jónasar kom óvænt. Hann var á
leiðinni til Reykjavíkur í bfl sínum
ásamt dótturinni, Berglindi og
Magnúsi, syni Elísabetar, uppeldis-
systur sinnar. Magnús er 18 ára
og var Jónas uppáhaldsfrændinn
hans. Jónas missti strax mátt en
neytti síðustu krafta til að halda
bílnum á veginum og það tókst
þeim Magnúsi í sameiningu.
Jónas var opinskár og glaðlynd-
ur. Hann var mikill dungaðarforkur
og gekk glaðbeittur til allra verka.
í veikindum hans og erfíðleikum
sem af þeim leiddu kom i ljós
hvflíkur mannkostamaður hann var.
Hversu mikið sem á móti blés átti
hann alltaf brosið og vonina. Svo
átti hann líka hana Rósu sína, sem
reýndist honum hinn besti lífsföra-
nautur.
Með söknuði horfum við á bak
þessa indæla vinar og frænda, Rósa
ög bömin, foreldrar og systkin og
við öll hin.
Ragnar Stefánsson
Það var mjög erfitt að sætta sig
við þá upphringingu er ég fékk
aðfaranótt sunnudagsins 13. nóv-
ember sl. og mér tjáð að Jónas
hefði látist fyrr um kvöldið. Þetta
var eitt það erfiðasta símtal sem
ég hef fengið um dagana, og átti
lengi erfítt með að trúa þessari stað-
reynd.
Jónas var fæddur á Akranesi 13.
júní 1960 sonur Johannesar Þor-
steinssonar og Kristjönu Kristjáns-
dóttur. Ég kynntist Jónasi er hann
kvæntist æskuvinkonu minni Ellenu
Rósu Jones 3. desember 1983. Þá
stra bar hann þann þokka sem
hveijum manni sæmir. Hann tók
við bömum Rósu eins og hans eigin
og gera fáir betur. Jónas reyndist
börnum Rósu hinn besti faðir, enda
þótti þeim mjög vænt um hann og
íitu á hann sem sinn eigin föður.
Rósa og Jónas bjuggu fyrstu árin
í Grandarfirði, en fluttu síðan til
Akraness og stofnuðu fyrst heimili
á Garðabrautinni, en keyptu sér
síðan íbúð að Lerkigrand 2. Þetta
heimili er eitt það yndislegasta sem
ég hef komið á, þar ríkti alltaf ást
og gleði og allir vora þar jafnvel-
komnir hvort sem um nótt eða dag
var að ræða, við öllum var tekið
og boðið í bæinn. Þó svo að langt
væri á milli okkar fyrstu árin, var
síminn mikið notaður og mikið talað
saman, mér fannst eins og ég hefði
þekkt Jónas frá blautu bamsbeini.
Ef talað var um Rósu var Jónas
alltaf nefndur á nafn og öfugt, þau
vora eitt. Ekki er lengra en hálfur
mánuður síðan að við töluðum sam-
an og ákváðum að hittast mjög
fljótlega og gera okkur glaðan dag.
Stutt er síðan að þau hjónin sátu
við eldhúsborðið hjá mér og þá var
talað og talað og hlegið. Það var
alltaf svo stutt í glens og grín, og
brosið var ekki langt undan. Og enn
styttra er siðan að ég var hjá þeim
og allt var gert fyrir mig, það var
spurt hvað viltu og hvað vantar.
Svona var Jónas alltaf fyrstur
manna til að vilja gera öðrum
greiða.
Jónas var harðduglegur maður, f -
hann var sívinnandi og var ekki
bara í einni vinnu heldur mörgum.
Hann var leigubílstjóri, vann á
bensínstöð, keyrði hljómsveitir út
um allar sveitir og var með útlend-
inga út um allt land á sumrin.
Hann var alltaf á ferðinni og ég
held helst að hann hafí ekki kunnað
að sitja auðum höndum.
Það er erfitt að sætta sig við
staðreyndir, en eitt sinn skal hver
deyja, eins og sagt er, en það virð-
ist óréttlátt og óskiljanlegt þegar
komungir menn era teknir í burtu
frá konu og bömum.
Elsku Rósa mín og böm, inni-
legustu samúðarkveðjur frá mér og
bömum mínum og megi góður gufl^-
gefa ykkur styrk og trú og megið
þið eiga yndislegar minningar um
góðan dreng sem genginn er af
lífsins braut.
Þyrí
Hólel Saga Sími 1 2013
Kransa-og
kistuskreytingar.
Heimsendingarþjönusta.
Sími 12013.
Opið laugardaga
tilkl. 18.00.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
PÁLÍNA MARGRÉT GUÐJÓNSDÓTTIR
húsfreyja, '
Hólakoti, Hrunamannahreppi,
verður jarðsungin frá Hrepphólakirkju laugardaginn 19. nóvember
kl. 14.00. Blóm vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast
hennar er vinsamlega bent á orgelsjóð Hrepphólakirkju eða
Sjúkrahús Suöurlands.
Unnur Ásmundsdóttir, Hinar Valdimarsson,
Guðjón Ásmundsson, ina Stefánsdóttir,
Hjalti Asmundsson, Jónfna Gísladóttir,
Halldóra Asmundsdóttir, Einar Jónsson,
Elínborg Ásmundsdóttir, Hjálmtýr Júlíusson,
barnabörn og barnabarnabörn.