Morgunblaðið - 18.11.1988, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1988
45
Nær verðstöðvunin
til sölu veiðileyfa?
Dýrustu dagar sumarsins komnir á
annað hundrað þúsund
Veidi
Guðmundur Guðjónsson
Margir stangveiðimenn hafa
jafhan áhuga á því að fylgjast
með hvernig laxveiðileyfin eru
verðlögð milli ára. Samningar,
verðbólga, vísitölur og eftir-
spurn ráða þar að stærstum
hluta, en síðustu árin hefur verð
veiðileyfa yfirleitt hækkað í takt
við almenna verðbólgu og vísitöl-
ur. Það þýðir í raun að hægt
hefur verulega á hækkun veiði-
leyfa, því þær fylgdu engum lög-
málum svo árum skipti, verðlagið
rauk upp langt umfiram verð-
bólgu og skipti engu þótt afla-
brestur yrði nokkur sumur. Nú
hafa fleiri orðið til að spyija
hvert stefiiir heldur en nokkru
sinni fyrr, því þann 27. ágúst var
sett á verðstöðvun hér á landi
og heyrst hefiir að margir álíti
að veiðileyfi eigi að heyra undir
þær reglur. Umsjónarmaður
veiðiþátta Morgunblaðsins hler-
aði nokkra aðila um þetta mál-
efiii.
Fyrst skal greina frá skoðun
ónafngreinds stórveiðimanns sem
gómaði undirritaðan á förnum vegi
fyrir skömmu og vakti athygli á
málinu. Hann sagðist sjálfur hafa
rætt við verðlagsstofnun og fengið
þau svör að verðlagning veiðileyfa
ætti að falla undir þessar reglur,
Erindium
gagnrýna
hugsun
PÁLL Skúlason prófessor heldur
opinberan fyrirlestur laugardag-
inn 19. nóvember klukkan 14 á
vegum Norræna sumarháskólans
í Lögbergi, Háskóla íslands, og
jafhframt verður starfsemi
Norræna sumarháskólans kynnt.
Páll Skúlason ræðir um efnið
„Hvað er gagnrýnin hugsun?“ Hann
mun rekja mismunandi skilgrein-
ingar á gagnrýnni hugsun og velta
upp spurningum um það í hvaða
mæli slíka hugsun er að finna í
nútíma vísindum og háskólum. Páll
Skúlasori hefur kennt heimspeki við
Háskóla íslands síðan 1972 og þar
hefur hann unnið brautryðjenda'-
starf við að vekja gagnrýnar spum-
ingar um hinar ýmsu fræðigreinar
háskólans og viðfangsefni þeirra.
Norræni sumarháskólinn er sam-
tök áhugafólks á öllum Norðurlönd-
um og starfsemi hans er styrkt af
Norðurlandaráði. Á vegum hans
starfa hópar í öllum háskólaborgum
Norðurlanda að sameiginlegum við-
fangsefnum. Þessi viðfangsefni em
ólík, en eiga það sameiginlegt að
taka til margra fræðigreina og jafn-
framt til hagnýtra viðfangsefna.
Sem dæmi um hópa sem nú starfa
á íslandi má nefna hóp um norræna
kvikmyndagerð og hóp um efna-
hagsmál, sem einkum veltir fyrir
sér Evrópubandalaginu og hugsan-
lega aðild fleiri Norðurlandaþjóða
að því. Þá er starfandi hópur um
evrópska menningu, hvað það er í
menningararfi, hugarfari og
pólitískum veruleika samtímans
sem sameinar og sundrar Evr-
ópubúum á ýmsa vegu og í sam-
vinnu við Félag áhugafólks um bók-
menntir starfar hópur að nýjustu
kenningum um bókmenntir. Enn-
fremur starfar hópur um siðfræði-
leg vandamál sem tengjast nýjustu
tækni á sviði erfða. Þá getur verið
að fleiri hópar taki til starfa í vetur.
(Fréttatílkynning)
en rétt væri að viðkomandi ráðu-
neyti ætti síðasta orðið um það. Þá
vaknar sú spuming hvort að regl-
umar falli ekki eingöngu á þær ár
sem ekki em í samningsbundinni
útleigu eða þar sem endursamið var
um leigu á árinu. Jón G.Baldvinsson
formaður Stangaveiðifélags
Reykjavíkur sagði eftirfarandi:
„Við fómm af stað og kynntum
okkur þetta mál, ræddum m.a. við
Verðlagsstofnun og Hagstofuna.
Og þeir sem túlka þessi lög ríkis-
stjórnarinnar hafa sagt okkur að
verð veiðileyfa í þeim ám sem em
samningsbundnar heyri ekki undir
þessi nýju verðstöðvunarlög, þar
sem samningar um hækkanir sam-
kvæmt ákveðnum forsendum vom
gerðir áður en verðstöðvunin tók
gildi. Öðm máli gegndi ef að geng-
ið var frá slíkum samningum eftir
að reglurnar tóku gildi“.
Rafn Hafnljörð formaður Lands-
sambands Stangaveiðifélaga kom
aðeins inn á þetta mál í ársskýrlu
sinni á ársþingi LS í Munaðarnesi
fyrir nokkm. Hann sagði m.a.: „En
hver verður þróunin á verði veiði-
leyfa fyrir næsta sumar? Verðstöðv-
un var sett á þann 27.ágúst og gild-
ir að minnsta kosti til 28. febrúar.
* /■
Eg vona að veiðiréttareigendur líti
til þess eins og aðrir er selja vöm
og þjónustu.“ Svo mörg vom. þau
orð.
Svo er að heyra að þetta fari eink-
um eftir því hvort að viðkomandi
laxveiðiár em í samningum sem
gerðir vom fyrir verðstöðvun. Falla
margar ár undir það og því má
búast við „eðlilegum" hækkunum
fyrir komandi vertíð. Hvað er svo
eðlileg hækkun má svo alltaf spyija,
en eftir reynslu síðustu ára er það
trúlega hækkun sem tekur til árs-
verðbólgu og einhverrar vísitölu
sem samningsaðilar hafa komið sér
saman um. Ef það er rétt mat, þá
telst hún líklega óeðlileg hækkunin
sem nær til dýmstu daga Laxár á
Ásum. Síðasta sumar kostuðu þeir
allt að 65.000 krónur ein dags-
stöng. Nú hefur umsjónarmaður
þessara veiðiþátta aflað sér ömggra
heimilda fyrir því nokkrir af dýr-
ustu dögunum hafi verið seldir á
106.000 krónur dagsstöngin. Í ein-
hveijum tilvikanna að minnsta kosti
munu útlendingar hafa boðið bænd-
um þá upphæð til þess að ná dögum
úr höndum innlendra viðskiptavina.
Og að sjálfsögðu er hæsta boði tek-
ið, við því er ekkert að segja. -gg.
• ASTIG
*
Gíjáandi
HARKA
með
Kópal
Geisla
oq siyrkléik!
í hájiiaiM.
Veldu Kópal
með gljáa vid hæfi.
MONTEIU
Snyrtivörukynning í dag frá kl. 13.00 - 18.00.
Verið velkomin.
Snyrtivörurverslunin Glæsibæ.
Léttar, hlýjar, danskar vetrarkápur
Stærðir 38-48
i
I___I
lympli
Laugavegi 26, s. 13300 — Glæsibæ, s. 31300
1
UPPHAF GÓÐRAR MALTIÐAR
MOULINEX SAFAPRESSA
FERSKUR SAFI ÚR
ÁVÖXTUM EÐA GRÆNMETI
Á HVERJUM MORGNI.
< I
^ I
O I
CO
■msmmmæmiMmi'
M