Morgunblaðið - 18.11.1988, Blaðsíða 53
i.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NOVEMBER 1988
53
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
ERÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . .
Óhóflega saltað
Sveitakona hringdi:
„Eg vil þakka fyrir góða grein
sem birtist í Velvakanda föstudag-
inn 11. nóvember og bar fyrirsögn-
ina „Um mislukkaðan matvælaiðn-
að“. Þetta var þörf grein því margt
þyrfti að taka til endurskoðunar í
íslenskum matvælaiðnaði. Sérstak-
lega er saltausturinn slæmur því
flestar matvörur hér eru óhóflega
saltaðar. Gaman væri ef einhver
kjötiðnaðarmaður eða matvæla-
fræðingur tæki sig til og svarði
þessari grein."
Lokaorðin heyrðust ekki
Húsmóðir hringdi:
„Viðtalsþátturinn í sjónvarpinu
við Auði Auðuns var frábær. Hitt
þótti mér mjög miður að lokaorð
Auðar köfnuðu í hávaðamúsík sem
sett var á í lok þáttarins. Þótti
mér þetta skemma þennan góða
viðtalsþátt og vil benda sjónvarp-
inu á að endurtaka ekki mistök
sem þessi.“
Guðlast
Kona hringdi:
„Ég skora á presta og safnaðar-
formenn að mótmæla kvikmynd-
inni Síðasta freisting Krists og
krefjast þess að hún verði bönnuð.
I þessari kvikmynd er nafn frelsar-
ans dregið niður í svaðið með
svívirðilegum hætti. Guðlast sem
þetta er bannað samkvæmt
íslenskum lögum og við hljótum
að kreijast þess að þeim sé fram-
fyigt-“
Leiðrétting
Vísa eftir K.N. birtist í Velvak-
anda sl. laugardag og kom prent-
villupúkinn þar við sögu. Rétt er
vísan þannig:
Vor yngri kynslóð yrkir nú í prósa,
eins og skáldin fyrr, á dögum Mósa
rímlaust bull í ræðuformi þylur
á rósamáli, sem að enginn skilur.
Parketthlífar
Haft var samband við Velvak-
anda frá Skóvinnustofu Sigur-
bjöms í Austuveri vegna greinar
sem birtist sl. þriðjudag um
skemmdir á parketti. Skóvinnu-
stofa Sigurbjöms hefur til sölu
parketthlífar úr plasti sem setja
má undir skóhæla og hefur dreift
þessum hlífum til skósmiða og
einnig til margra byggingavöm-
verslana.
Hæltappar
Kona hringdi:
„Fyrir skömmu birtist í Velvak-
anda klausa um skemmdir á par-
ketti sem urðu vegna nagla í skó-
hælum. í flestum byggingavöm-
verslunum fást tappar sem notaðir
em undri húsgögn en þá má eins
setja undir skóhæla. Þetta ráð
hefur gefist mér og mörgum öðmm
mjög vel og vil ég því benda á
það.“
Barnareiðhjól
Appelsínugult barnareiðhjól
með silfurgjörðum og hvítum pet-
ulum fannst í grennd við verslun-
ina Byko í Kópavogi fyrir um það
bil hálfum mánuði. Upplýsingar í
síma 76181.
Hringir
Tveir gullhringir og þrír silfur-
hringir töpuðust í baðhúsi Bláal-
ónsins sunnudaginn 13. þ.m.
Hringir þessir em persónulegir
munir og er þeirra sárt saknað.
Síminn hjá eigandanum er 33713
en eins má skila hringunum í af-
greiðslu Bláalónsins.
Týnd læða
Mísa, sem er flekkótt læða
tveggja og hálfs árs gömul, fór
að heiman frá sér fyrir viku. Þeir
sem hafa orðið varir við hana em
vinsamlegast beðnir að hringa í
síma 10972.
Læða í Seljahverfi
Hálfvaxin læða fannst í Stallas-
eli, hún er steingrá með móbrúnum
flekkjum. Aðeins ljósari á fram-
fótum. Þeir sem kannast við hana
vinsamlegast hringið í síma 76417.
Eru allir skírðir heilagir?
Kæri Velvakandi.
Er það ekki skírn sem helgar
okkur? Jú. Em þá allir sem em
skírðir heilagir? Það em kannski
meira en U/2 milljarður af mönnum
skírðir. Em þeir allir alltaf heilagir,
aðeins vegna þess, að þeir vom
skírðir sem börn eða fullorðnir? Var-
ar Páll postuli ekki söfnuð sinn,
Galatamenn, sem vom skírt fólk, við
holdsins verkum, sem em frillulífi,
óhreinleiki, fjandskapur, deilur, met-
ingur, reiði, eigingirni, tvídrægni,
flokkadráttur, öfund, ofdrykkja,
svall og annað líkt? Hann bætir við:
„Og það segi ég yður fyrir, eins 'og
ég hef sagt áður, að þeir sem slíkt
gjöra, munu ekki erfa Guðs ríki.“
Er allt skírt fólk frjálst frá þessum
syndum? Er þá ekki skírt fólk ljós
heimsins, borg á fjallinu, saltjarðar?
Jesús varar oss við: „Ef saltið
dofnar, það er þá til einskis nýtt,
menn fleygja því og troða undir fót-
um.“ Það er ekki gott að sleppa
þessu, þegar vér prédikum guðspjal-
lið. Um hvað spyr Jesús, þegar hann
dæmir allar þjóðir (sbr. Mt. 25)?
Ekki um skím okkar, heldur góð
verk. Skímin leysir okkur ekki frá
góðum verkum. Jesús sagði: „Ef þú
vilt inn ganga til lífsins, þá haltu
boðorðin." Og líka: „Skírið allar
þjóðir og kennið þeim að halda allt
það, sem ég hef boðið yður.“ Er þá
ekki skím og trú nóg?
Páll postuli segir „að trú án verka
er dauð“, og Jesús segir: „Ekki mun
hver sá, sem við mig segir: „Herra,
herra," ganga inn í himnaríki, heldur
sá einn, er gjörir vilja föður míns.“
Nú segir Páll postuli: „Þér emð orðn-
ir viðskila við Krist, þér sem ætlið
að réttlætast með lögmáli," og hann
segir líka: „Guð tilreiknar réttlæti
án tillits til verka.“ Vér emm sam-
málar Sköpuð vera getur ekki kraf-
ist einhvers af Guði, sérstaklega
ekki þess sem er yfirnáttúmlegt,
þ.e. himnaríki. En má Guð sjálfur
ekki gera sáttmála og skuldbinda
sig, til að gefa okkur himnaríki ef
vér höldum boðorðin hans? Jú. Vér
erum búin að heyra: „Ef þú vilt inn
ganga til lífsins, þá haltu boðorðin."
Og Jesús mun bjóða til eilífs lífs,
þeim sem unnu góð verk, en þeir
sem unnu ekki góð verk fóru til
eilífðarrefsingar (Mt. 25). Er Páll
sjálfur sammála því? Jú, hann segir:
„Ég hef barist góðu baráttunni."
Ém það ekki öll verkin hans? Og
þá heldur hann áfram: „Og nú er
mér geymdur sveigur réttlætisins,
sem Drottinn, hinn réttláti dómar-
inn, mun gefa mér og þeim á þeim
degi.“ Sá sem prédikar eitthvað ann-
að virðist gera eins og Páll segir í
sama kafla: „Þann tíma mun að
bera, er menn þola ekki hina heil-
næmu kenning, heldur hópa þeir að
sér kennumm eftir eigin fysnum
sínum til þess að heyra það, sem
kitlar eymn.“ Eða eigum vér að
segja, að líf, t.d. systranna í klaustr-
um og líf þeirra, sem gjöra sig sjálfa
vanhæfa vegna himnaríkis (Mt. 19)
sé bara til einskis?
J. Habets
II o HEILRÆÐI
Foreldrar: Látið börnin bera endurskinsmerki. Notkun þeirra
tryggir öryggi bamanna í umferðinni.
Kennarar: Brýnið fyrir bömunum að fara varlega í umferð-
inni og gefið þeim góð ráð í þeim efnum.
Vegfarendur: Hvert fótmál í umferðinni krefst umhugsunar og
aðgæslu.
Okumenn: Ljósker bifreiðanna verða að vera hrein og ljósin
rétt stillt til þess að ljósmagnið nýtist sem best
við aksturinn. Rétt notkun stefnuljósa auðveldar
alla umferð.
SPRENGÍDAGUR
í DACU
í Skífunni Borgartúni 24.
Skífan kynnir sprengidaginn. í dag seljum við
allar vörur í verslun okkar í BORGARTÚNI 24
með 10% afslætti. Auk þess bjóðum viðfjöldan
allan af plötum með 25% afslætti og 12 tomm-
ur á hálfvirði. STÓRKOSTLEG VERÐSPRENGING!
Framvegis verður sprengidagur í Skífunni
Borgartúni 24 mánaðarlega. Merktu við þessa
daga í dagatalinu þínu:
SKOÐAÐU ÍSKTFUNA’
KRINGLUNNI • BORGARTUNI • LAUGAVEGI
KÁTAMASKlNAN/SEK