Morgunblaðið - 18.11.1988, Page 56
/VY/ /
SÍMANÚMER
606600
/OTnWíprry
TRYGGINGAR
Slðumúla 39 • Slml 82800
FOSTUDAGUR 18. NOVEMBER 1988
VERÐ I LAUSASOLU 70 KR.
Reykjavíkurborg:
Framkvæmdir
fram úr áætlun
Frá slysstaðnum í Túngötu.
Morgunblaðið/Sverrir
Roskin kona beið bana
Fjögur gangbrautaslys hafa orðið á þremur dögum
ROSKIN KONA beið bana í
umferðarslysi á Garðastræti,
skammt norðan Túngötu, á
sjötta timanum í gær.
Konan var á leið yfír gangbraut
á Garðastræti við Hallveigarstaði
þegar stórri sendibifreið á leið
niður Túngötu var beygt inn á
Garðastræti og ekið á konuna.
Hún var látin þegar á sjúkrahús
var komið.
Ekki er unnt að greina frá nafni
konunnar að svo stöddu.
Fjórum sinnum frá því á þriðju-
dag hefur verið ekið á gangandi
vegfaranda á gangbraut í miðborg
Reykjavíkur. I hin skiptin munu
nokkur meiðsli hafa hlotist af en
ekki lífshætta.
Reykjavík:
Maður stungínn til
bana í Vesturbænum
Grunaður maður í haldi lögreglu
KOSTNAÐUR vegna bygginga-
framkvæmda á vegum Reykja-
víkurborgar verður líklega rúm-
lega 125 milljón krónum hærri á
þessu ári heldur en gert var ráð
fyrir í fjárhagsáætlun.
Þessar upplýsingar koma fram í
greinargerð, sem dreift var á fundi
borgarstjómar í gær. Þar er áætl-
að, að heildarstofnkostnaður borg-
arinnar vegna byggingafram-
kvæmda verði rúmlega 1.444 millj-
ónir króna en í fjárhagsáætlun fyr-
ir 1988 var gert ráð fyrir tæplega
1.319 milljói.a kostnaði.
Kostnaður vegna ráðhússins
hækkar samkvæmt þessari áætlun
um 70 milljónir miðað við fjár-
hagsáætlun, eða úr 180 milljónum
í 250 milljónir. Davíð Oddsson borg-
arstjóri skýrir þá hækkun með því
að breytingar hafi verið gerðar á
áætlun um byggingu hússins. Með-
al annars hafí verið gerðar auknar
á 4-500 kr.
RJÚPNAVEIÐI hefur geng-
ið vel fram að þessu, og er
allt útlit fyrir að framboð
verði meira nú en mörg und-
anfarin ár. Samkvæmt upp-
lýsingum kjötkaupmanna er
reiknað með að verð á óham-
flettri ijúpu verði á bilinu
400-500 krónur stykkið út úr
búð.
Rjúpur eru nú komnar í
nokkrar verslanir, og eru kaup-
menn sammála um að framboð
nú sé mun meira en í fyrra,
og útlit sé fyrir að það verði
meira en mörg undanfarin ár.
Verðlagning er ekki ljós ennþá,
en kaupmenn segjast reikna
með að algengt verð á óham-
flettri ijúpu verði á bilinu
400-500 krónur, en það kunni
þó að breytast ef veiðamar
ganga illa það sem eftir er
veiðitímabilsins.
ráðstafanir til að hindra leka, ný
steypa tekin í notkui. og bílastæð-
um fjölgað. Þessar breytingar leiði
til aukins kostnaðar við 1. áfanga
hússins.
Davíð sagði að þessi hækkun
ætti ekki að koma á óvart, því verk-
efnisstjórn hafi sent frá sér greinar-
gerð um þessar breytingar í sumar.
Riða á Austfjörðum:
35 þúsund
fjár skorin
Egilsstöðum.
FJORTÁN þúsund fjár verða
skorin niður á Austurlandi í haust
til vamar útbreiðslu riðuveiki, en
alls verða um 35 þúsund Qár skor-
in niður í fjórðungnum af þessum
orsökum.
Skipulagður niðurskurður vegna
riðuveiki hófst á Austurlandi haustið
1986. Þá voru skomar 3.000 kindur.
í fyrra vom skomar 15 þúsund kind-
ur og næsta haust er áformað að
skera 3 þúsund fjár. Þá er lokið nið-
urskurði alls fjár á svæði sem af-
markast af botni Reyðarfjarðar að
sveitarmörkum Valla og Skriðdals á
Héraði norður að Lagarfljóti.
Af einstökum sveitum var flest fé
fellt í Breiðdal, um 14 þúsund. Þar
verður eftir fé á 5 bæjum sem ekki
verður skorið niður á nema riðuveiki
komi þar upp. A þeim bæjum sem
skorið er niður á vegna riðuveiki
verður að vera fjárlaust í tvö til þijú
ár. Á þeim tíma em gripahús sótt-
hreinsuð og tréverk endumýjað.
- Bjöm
ísafjarðardjúp:
Selur olli
stórtjóni
Kaldalónl.
TÍU til tólf tonn af eldislaxi sluppu
í hafíð hjá íslaxi á Nauteyri við
ísafjarðardjúp, eftir að selur nag-
aði gat á kvíamar.
Ekki tókst að bjarga nema tveim-
ur til þremur tonnum af laxi. Tjónið
hefur ekki verið metið, en það gæti
hugsanlega legið á bilinu 3-4 milljón-
ir króna. Laxinn var settur í eldi í
vor og hafði gengið mjög vel, fískam-
ir orðnir 3-10 pund á þyngd.
Jens
67 ÁRA gamall maður fannst
myrtur á heimili sínu í Vestur-
bænum í Reykjavík laust fyrir
klukkan ellefu í gærmorgun.
Hann hafði orðið fyrir hrotta-
legri árás. Síðdegis í gær hand-
tók lögregla 38 ára gamlan
mann, sem grunaður er um
verknaðinn.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er talið að maðurinn hafí
orðið fyrir hrottalegri árás með
eggvopni og að hann hafi verið lát-
inn í um tvo sólarhringa þegar að
var komið. Maðurinn bjó einn í
húsi sínu. Ekki er unnt að skýra
frá nafni hans að svo stöddu.
Síðdegis í gær handtók lögregla
38 ára gamall mann, sem grunaður
er um að hafa orðið manninum að
bana. Ekki fékkst gefið upp hvort
eða hvemig hann tengist hinum
látna en ekki mun vera um fjöl-
TALIÐ ER að allt að 8 þúsund
tonn af kartöflum hafi komið
upp úr görðum kartöflubænda
skyldutengsl að ræða. Játning
mannsins liggur ekki fyrir. Yfir-
heyrslur voru ekki hafnar í gær-
kvöldi og krafa um gæsluvarðhald
hafði þá ekki verið lögð fram. Rann-
sóknalögregla ríkisins varðist allra
frétta af rannsókninni, sem var
sögð á frumstigi.
í haust. Er það um það bil helm-
ingi minni uppskera en á síðasta
ári, sem var metár.
Páll Guðbrandsson formaður
Landssambands kartöflubænda
segir að þó uppskeran sé um það
bil helmingi minni en í fyrra geti
hún talist slök meðaluppskera. ís-
lensku kartöflurnar ættu að duga
fram á vor.
Agnar Guðnason yfirmatsmaður
garðávaxta segir að kartöflurnar
virðist yfirleitt í góðu ásigkomu-
lagi. Þó vissi hann ekki nema
geymsluþol á kartöflum á Eyja-
fjarðarsvæðinu, sem er annað
helsta ræktunarsvæði landsins,
væri skert vegna þess hvað seint
hefði verið hægt að ljúka upp-
skerustörfum þar. Páll sagði að
uppskeran hefði verið svipuð um
land allt, nema í Múlasýslum, þar
sem hún væri léleg.
1% yfir nótt
Dollar féll um
80-90 milljóna tap fyrir frystinguna miðað við heilt ár
KAUPGENGI dollars féll um
48 aura í fyrrinótt, eða um
rúmlega 1%. Gengi dollarsins
hefur farið lækkandi undan-
farnar vikur, en að sögn Sig-
urðar Arnar Einarssonar hjá
Seðlabankanum var þetta
stökk eitt hið stærsta að und-
anförnu. Hann sagði aðspurð-
ur að ekki hefði komið til tals
að fresta gengisskráningu
vegna þessa.
Þegar dollarinn lækkar hækk-
ar gengi annarra gjaldmiðla á
móti, en þar sem mjög stór hluti
utanríkisviðskipta íslendinga er í
dollurum eru heildaráhrifin á
þjóðarbúskapinn slæm, að sögn
Þórðar Friðjónssonar, forstjóra
Þjóðhagsstofnunar. Friðrik Páls-
son, forstjóri Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, sagði að 1%
lækkun dollarans þýddi gróft
reiknað um 80-90 milljóna króna
tekjutap fyrir frystinguna á ári.
Hann sagði að fiskframleiðendur
hefðu áhyggjur af spám sérfræð-
inga um áframhaldandi lækkun
dollarans á næstu mánuðum.
Dollarinn fór hækkandi eftir
því sem á leið gærdaginn þegar
seðlabankar víða um heim keyptu
dollara til að bjarga honum frá
frekara falli. Dollarinn hefur
lækkað um 10% frá því í sumar
gagnvart öðrum helstu gjaldmiðl-
um heims.
Um mánaðamótin september/-
október var kaupgengi dollarans
skráð á 48,16 krónur, en var í
gær 45,26 krónur. Það hefur því
lækkað um 6% á einum og hálfum
mánuði.
Islensku kartöflurn-
ar duga fram á vor