Morgunblaðið - 28.12.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.12.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1988 Emil Ásgeirsson í Gröflátinn EMIL Ásgeirsaon bóndi i Gröf í Hrunamannahreppi er látinn, 81 árs að aldri. Emil var sonur Ásgeirs Sigurðs- sonar konsúls í Reykjavík og Mörtu Eiríksdóttur frá Hamrahóli í Holt- um, en hann ólst upp hjá sr. Kjart- ani Helgasyni í Hruna og Sigríði Jóhannesdóttur konu hans. Emil lauk búfræðiprófí frá bændaskólan- um á Hvanneyri 1926, og hóf bú- skap í Gröf árið 1932, þar sem hann bjó til dauðadags. Emil vann mikið að félagsmálum og leiklistarmálum með Ungmenna- félagi Hrunamanna. Hann var góð- ur áhugaleikari og leikstjóri og setti upp leiksýningar hjá félaginu. Emil stundaði einnig ritstörf, og skrifaði m.a. leikrit. Þá ritaði hann bókina Búnaðarfélag Hrunamanna 100 ára, sem kom út 1983. Árið 1961 hóf Emil jarðabóta- mælingar á Suðurlandi, á vegum Búnaðarsambands Suðurlands, og ferðaðist í mörg ár um allt Suður- land þessara erinda. Á ferðum sínum safnaði hann ýmsum gömlum munum, og þegar hann hætti kúa- búskap kom hann safninu fyrir í útihúsunum. Minjasafnið í Gröf er nú eitt stærsta minjasafn í einka- eign á landinu, og er þar margt merkilegra muna, m.a. mikið safn gamalla búvéla. Emil var sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar árið 1987 fyrir störf að félags- og menningarmálum. Emil Ásgeirsson. Eftirlifandi kona Emils Ásgeirs- sonar er Eyrún Guðjónsdóttir. Þau eignuðust fjögur börn og eru þrjú þeirra á Kfi. Agnar Kiistjánsson forstjóri látinn AGNAR Kristjánsson, for- J stjóri Kassagerðar Reykjavík- ur, lést á Landsspítalanum aðfararnótt 27. desember, 63 ára að aldri. Agnar var fæddur i Reykjavík árið 1925. Hann nam við Versl- unarskóla íslands og hóf snemma störf hjá föður sínum hjá Kassagerðinni. Þar hafði hann forystu fyrir uppbyggingu fyrirtækisins og starfaði hjá Kas- sagerðinni til dauðadags. Agnar sat í stjórn Félags íslenskra iðn- rekenda um árabil. Eftirlifandi kona Agnars er Anna Lilja Gunnarsdóttir. Þau áttu eitt bam, en Agnar lætur einnig eftir sig þrjú böm frá fyrra hjónabandi. Agnar Kristjánsson 1/EÐURHORFURIDAG, 28. DESEMBER YFIRLIT í GÆR: Búist er við stormi á Norðurdjúpi, Færeyjadjúpi og Suðausturdjúpi. Um 200 km suður af Reykjanesi er 962 mb iægð sem mun færast noröaustur yfir landið í nótt. Önnur 970 mb lægð 1.400 km suðvestur í hafi þokast aust-norðaustur og grynnist. Veður fer hlýnandi i bili en kólnar aftur á morgun. SPÁ: Á morgun verður vestan- og norðvestanátt um mest allt land, víðast kaldi eða stinningskaldi. Éljagangur verður víða norðan- lands, og sumstaðar vestantil á landinu. Á Austur- og Suðaustur- landi verður þurrt og sums staöar léttskýjað. Vægt frost um land allt. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á FIMMTUDAG: Norðaustanátt um norðanvert landið en vestanátt um landið sunnanvert. Él víða um land nema á Aust- urlandi, þar verður fremur bjart veður. Hiti um frostmark sunnan- lands. Frost um 5 stig norðanlands. HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg breytileg átt og léttskýjað nema noröaustanlands. Þar verða dálítil ól. Frost um allt land. x, Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * # * ■J0° Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir V Él = Þoka = Þokumóða ?, ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur [7 Þrumuveður m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti vaður Akureyri #3 skýjað Reykjavík +1 alskýjað Björgvin 7 skúr Helsinki +9 snjókoma Kaupmannah. 8 skýjað Narssarssuaq +16 heiðskírt Nuuk +15 Iðttskýjað Ósló 2 þoka I grennd Stokkhólmur 1 slydda Þórshöfn 7 skýjað Algarve 14 skýjað Amsterdam 10 léttskýjað Barcelona 11 mistur Berlin 9 rigning Chicago 3 rigning Feneyjar vantar Frankturt 9 skýjað Glasgow 9 úrkoma I gr. Hamborg 8 skýjað Las Palmas 20 rykmistur London 10 léttskýjað Los Angeles 4 heiðskfrt Lúxemborg 7 skýjað Madríd 7 heiðskirt Malaga 16 skýjað Mallorca 16 léttskýjað Montreal +11 alskýjað New York +2 alskýjað Orlando 15 heiðskírt Parfs 8 skýjað Róm vantar San Diego 5 heiðskfrt Vln 6 skýjað Washington 3 alskýjað Winnipeg +16 snjókoma Lýður Guðmundsson fv. hreppsijóri í Litlu Sandvík látinn LÝÐUR Guðmundsson fyrrver- andi hreppstjóri og bóndi I Litlu Sandvík, lést í Sjúkrahúsi Suðurlands á þorláksmessu, 23. desember, 91 árs að aldri. Hann verður jarðsunginn frá Selfoss- kirkju föstudaginn 30. desem- ber kl. 13. Lýður Guðmundsson fæddist 18. nóvember 1897 í Litlu Sandvík í Sandvíkurhreppi, sonur Guðmundar Þorvarðarsonar bónda og hreppstjóra þar, og konu hans Sigríðar Lýðsdóttur frá Hlíð í Gnúpveijahreppi. Lýður lauk búfræðinámi á Hvanneyri og var bóndi í Litlu Sandvík 1937 til 1982, síðari árin í félagsbúi við Pál son sinn. Lýður var hreppstjóri Sandvík- urhrepps frá 1939 til 1982 og oddviti þar 1946-1970. Hann var formaður Flóaáveitufélagsins í 12 ár, og sýslunefndarmaður Sandvíkurhrepps 1946-70. Hann var formaður Nautgriparæktarfé- lags Ámessýslu frá stofnun þess Lýður Guðmundsson. 1943 um 12 ára skeið. Lýður var fyrsti heiðursborgari Sandvíkur- hrepps frá 18. nóvember 1977. Eftirlifandi eiginkona Lýðs er Aldís Pálsdóttir. Þau eignuðust íjögur böm. Ólafíir Gunnarsson urlátínn ÓLAFUR Gunnarsson, sálfræð- ingur, er látinn, 71 árs að aldri. Ólafiir starfaði sem kennari og sálfræðingur hér á landi og er- lendis og samdi meðal annars rit um starfsval, „Hvað viltu verða?“, sem komið hefiir út í fjölmörgum útgáfum. Ólafur fæddist á Stafafelli í Lóni í Austur-Skaftafellssýslu þann 30. ágúst 1917. Hann lauk kennara- prófí árið 1938 og stundaði nám í tungumálum, norrænum bók- menntum og sálfræði í Danmörku. Hann tók Cand. Psych. próf frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1950. Ólafur kenndi við skóla á íslandi og í Danmörku á árunum 1938-’47 og vann sálfræðistörf hjá Reykjavíkurborg 1951-’65. Ólafur Ólafúr Gunnarsson var skólasálfræðingur í Vármland í Svíþjóð 1966-’77, en fluttist síðan til íslands. Eftir Ólaf liggur fjöldi greina í íslensk og erlend blöð og tímarit og bókaþýðingar á íslensku og dönsku. Olafur var formaður Menn- ingarsamtaka háskólamanna frá stofnun þeirra til 1964 og vann að veitingu Silfurlampans fyrir besta leik hvers leikárs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.