Morgunblaðið - 28.12.1988, Side 36

Morgunblaðið - 28.12.1988, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1988 GuðmundurR. Bjamason frá Aðal vík - Minning Fæddur 30. mars 1902 Dáinn 16. desember 1988 Guðmundur Rósi Bjarnason frá Látrum í Aðalvík lést 16. desember ’88 að Vífilsstöðum. Hann fæddist í Görðum í Aðalvík, en ungur að árum flyst hann með foreldrum sínum og systkinum til Látra í sömu vík. Á Látrum verða viðfangsefni hans framyfir 1940. Þaðan flytur -liánn til Tungu í Skutulsfírði á fimmta áratugnum, ásamt fjöl- skyldu sinni sem til var orðin að Látrum. í Tungu var dvalið í nokk- ur ár og þá flutt til Reykjavíkur og síðan í Kópavog, þar var lengst búið á Ásbraut 19. Gummi Rósi, en svo var hann kallaður meðal vina og kunningja, var harðduglegur athafnamaður til sjós og lands og sá sér og sínum vel farborða. Eg kom til Gumma Rósa og konu hans, frænku minnar, Pálínu Frið- riksdóttur, fyrir tæpu ári. Þá var margt riflað upp frá uppvaxtar- og hjúskaparárum þeirra á Látrum og hafði ég mikið gaman af þessari ^íreimsókn. Ég minnist þess að faðir minn hafði sagt mér frá því að þeir Gummi hefðu verið samskipa á sex- æringnum Trausta, ásamt feðrum þeirra, í kringum 1920. Formaður á Trausta var kunnur athafnamað- ur á Látrum, Sigurður Þorkelsson, en hann var giftur móðursystur Gumma Rósa. Ég nefni þetta til að sýna að oft var mikill skyldleiki meðal áhafna þessara litlu báta, sem gerðir voru út og afkoman B^jgJ'ðist á í smáum víkum Horn- stranda, þegar Gummi Rósi, vinur minn, var að byija lífshlaupið. Það var ekkert nútímalíf sem unglingamir í Aðalvík ólust upp við á fyrstu áratugum aldarinnar. Þeir urðu að Ieggja hart að sér við vinnu til sjós og lands, sér og sínum til framdráttar. Gummi Rósi varð snemma mikill athafnamaður til sjós og lands og varð sjómennskan hans aðalstarf á meðan hann átti heima fyrir vestan. Er hann kom hér suður réðst hann fljótlega til starfa hjá Áburðarverksmiðju ríkis- ins í Gufunesi, þar sem hann starf- aði þar til hann var kominn á ald- ur, en mikill starfskraftur var enn ?Sftrir hjá honum þannig að hann starfaði við ýmis störf eftir þetta. Fyrstu kynni mín af Gumma Rósa urðu í kringum 1940 er við báðir áttum heima á Látrum. Gummi Rósi var á sjó á lítilli trillu sem hann átti og gerð var út frá Látrum. Sennilega hefur pabbi ver- ið með honum, dimmt var í lofti vegna mikillar snjókomu og vart sást meira út á sjóinn en 50—100 metra þrátt fyrir að ég stæði í fjöru- borðinu. Ég fór að hugsa hvernig hann Gummi Rósi rataði að landi í svona dimmu veðri. Eldri bróður minn var með mér og biðum við í fjörunni þar til Gummi Rósi og áhöfn hans komu að landi og eftir að þeir voru komnir í land náði ég tali af formanninum og spurði hann hvemig hægt væri að rata á sjó í svona dimmu veðri. Hann svaraði og sagði, þetta var ekki svo slæmt, þú átt eftir að reyna það síðar drengur minn. Lengi dáði ég Gumma Rósa eftir þennan atburð. Mörg ár liðu frá því að við Gummi Rósi yfirgáfum Aðalvíkina okkar og fundum okkar bar saman að ný. Þá var ég orðinn fulltíða maður með breytt viðhorf til tilverunnar. Okkur Gumma Rósa var þó eitt sameiginlegt að við höfðum báðir mikinn áhuga fyrir átthögum okk- ar, en þeir fóm í eyði árið 1952. Til átthaganna hefur verið farið mörg sumur sl. ár og síðast hitt- umst við Gummi Rósi á Látmm á liðnu sumri. Þar dvaldi hann í ný- byggðu sumarhúsi dóttur sinnar og fjölskyldu hennar. Er ég kom í hennsókn nefndi hann húsið „Beggubæ" og bauð mig velkominn í þann bæ. Tvær dætur Gumma vom í „Beggubæ" er ég kom þang- að, við settumst við kaffídrykkju og veitingar, horfðum yfir víkina, þar sem hún skartaði sinu fegursta. Margt kom upp í hugan á þessum stað og sagði Gummi okkur margt frá uppvaxtaárum sínum á Látmm, mér virtist honum líða mjög vel í þessu umhverfí. Oft minntist hann á æskuvin sinn og móðurbróður minn, Finnboga Friðriksson, það var sem einhver hula hvíldi yfir æskudögum þeirra þarna norður frá, í frásögninni. Gummi Rósi var léttur og kátur í allri framkomu, sérstaklega hjálp- samur og mátti ekki vamm sitt vita í neinu. Ég minnist þess að hún mamma sagði mér, er þær stelpurn- ar frá Ystabæ vom að fara á dans- leik í Aðalvík, að hefði oft verið betra að leita til Gumma Rósa ef þær vantaði fyrir aðgangseyri, en bræðra hennar. Gummi Rósi var mjög virkur fé- lagi í Átthagafélagi Sléttuhrepps hér syðra. Hann mætti á alla fundi og skemmtanir félagsins fram á síðasta ár, en þá mun heilsuleysi hans hafa verið farið að segja til sín og þess vegna hefur ekki verið mætt. Eins og fyrr kemur fram var Gummi Rósi giftur frænku minni, Pálínu Friðriksdóttur frá Látmm, og lifir hún mann sinn ásamt fjórum dætmm þeirra. Einnig ólu þau upp systurson Pálínu, Valdimar Valdi- marsson. Vini mínum, Gumma Rósa, óska ég velfarnaðar á nýrri slóð. Mér er nær að halda að æskuvinur hans hafí tekið á móti vini sínum. Þakka ég samfylgdina. Friðrik Hermannsson frá Látrum. Mágur minn, náinn vinur og frændi, Guðmundur Bjarnason, Ás- braut 19, Kópavogi, var kvaddur hinstu kveðju í gær, þriðja í jólum. Hann leið út af eftir hádegi 16. þessa mánaðar, aðeins fáeinum mínútum eftir að hann hafði talað við konu sína. Hann hafði dvalist í sjúkrahúsinu á Vífilsstöðum síðustu sex vikumar, sem hann lifði. Með Guðmundi mági mínum er genginn einstæður maður. Eins og gefur að skilja á ég margs að minn- ast frá langri vináttu og vegferð. Verður aðeins fátt eitt tíundað í þessum línum, en ég vona samt, að mér auðnist að bregða upp sannri mynd af þessum vini mínum. Guðmundur fæddist á Látrum í Aðalvík þann 30. mars 1902 og var því á 87. aldursári er hann féll frá. Hann var 2ja ára, þegar hann flutt- ist með foreldrum sínum að Görð- um. Þeir voru Bjargey Sigurðar- dóttir, Gíslasonar hreppstjóra og formanns í Látrum, og Bjarni Dósó- þeusson, útvegsbóndi frá Görðum. Þau fluttu aftur að Látrum, þegar Guðmundur var 12 ára, og reistu sér hús í nábýli við foreldra mína. Guðmundur var elstur tíu al- systkina, en foreldrar hans áttu hvort um sig hjónaband að baki, þegar þau giftust. Bjargey, móðir hans, hafði átt þtjár dætur með fyrri manni sínum, sem hún missti eftir stutta sambúð. Bjarni, faðir Guðmundar, hafði átt tvo syni með fyrri konu sinni. Komst annarþeirra til fullorðinsára en fórst með báti frá ísafirði haustið 1924. Eins og ég nefndi á sínum tíma í minningargrein um yngri bróður Guðmundar, Gísla, sem andaðist í vor, var heimili þeirra Bjargeyjar og Bjama mitt annað heimili, þegar þau voru komin í nábýli við okkur. Ég kom að kalla daglega til þeirra og ég held, að það hafi ekki verið til, sem Bjargey vildi ekki fyrir mig gera. Það varð fljótt ljóst, hvert manns- efni Guðmundur var, og aðeins 19 ára réðst hann í skipsrúm hjá Magn- úsi Kjæmested, sem var þá skip- stjóri á togara frá Hafnarfírði. Guð- mundur var að vísu ekki kominn til þess þroská, sem krafist var af togarakörlum þeirra daga, en Magnús sá hvað í honum bjó og treysti þvf, að hann brygðist ekki. Það kom líka á daginn, að Guð- mundur stóð jafnfætis hveijum sem var í dugnaði og úthaldi á dekki. •Magnús hafði alist upp á Læk, næsta bæ við Garða, þar sem Guð- mundur átti sín fyrstu bemskuár og þekkti því vel til fólks hans og ætta. Magnús valdi Guðmund úr mörg- um liðtækum af tveim ástæðum. I fyrsta lagi var honum kunnugt um heimilisaðstæður hjá Guðmundi, sem orðinn var önnur tveggja fyrir- vinna tólf manns, þar sem menn gátu vart gert sér vonir um að gera betur en að skrimta. Hin ástæðan var sú, að Magnús var sannfærður um, að þótt Guð- mundur væri ekki stór maður vexti væri hann eitilharður, fylginn sér í öllum efnum og þá þegar vanur að ganga í hvert það verk, sem honum bauðst. Vistin á síðutogurunum forðum daga var sannarlega engin ungl- ingavinna, áður en vökulögin vom sett. Oftar en ekki var staðið við aðgerð í 18—20 klst. á sólarhring og jafnvel lengur, ef svo fiskaðist. Þótt vinna þessi væri sannkallaður þrældómur komust jafnan færri að en vildu. Hraustir, fullharðnaðir karlmenn stóðu í biðröðum til að komast í skiprúm og ekki síst ef um dugandi, aflasæla skipstjóra var að ræða. Guðmundur kom jafnan heim í Aðalvíkina, þegar hann hafði tök á, því að sú byggð var honum kær eins og mörgum, sem hafa átt þar rætur. Hún var mönnum löngum strangur skóli en lífsbaráttan þar var þeim og ómetanlegt veganesti fyrir framtíðina. Ég tel, að ungir menn hafi trauðla getað óskað sér betri undirbúnings fyrir harða lífsbaráttu en þar var að fá. Við biðum þess alltaf með til- hlökkun, að Guðmundur kæmi í heimsókn, því að hann hafði alltaf frá einhveiju óvenjulegu að segja, ef ekki svaðilför þá einhveiju öðru forvitnilegu. Og jafnvel þótt hann hefði í rauninni frá litlum tíðindum að segja var frásögn hans ætíð skemmtileg. Hann var einn þeirra manna, sem fá frásagnarhæfileik- ann í vöggugjöf. Upp úr 1930 venti Guðmundur sínu kvæði í kross, ef svo má að orði komast, því að þá gerðist hann háseti á togurum ísfirðinga. Hann var einnig árum saman formaður á mótorbátum, sem gerðir voru út frá Látrum. Meðal þeirra var mb. Ófeigur, sem við keyptum af útgerð Einars Guðfinnssonar í Bolungarvík árið 1933. Ári síðar reisti hann myndarlegt steinhús á Látrabrekkunni, rétt ut- an við barnaskólann. Gerði hann það með aðstoð Sigurðar, bróður síns, sem lært hafði trésmíði á ísafirði. Þangað fluttist hann síðan með Pálínu, systur minni, er þau gengu í hjónaband 30. des. 1934. í því húsi áttum við Unnur, kona mín, margar góðar stundir, þegar við komum vestur tii að opinbera trúlofun okkar í heimahögum mínum. Þetta var í september 1938. Gekk Pálína, systir mín, þá með sitt annað bam og var það rétt svo að hún gæti tekið þátt í trúlofunar- veislunni á heimili foreldra okkar. Við settum upp hringana 24. sept- ember en Pálína ól dóttur fjórum dögum síðar. Mér eru og verða alltaf minnis- stæðar daglegar ferðir okkar úr Nesinu til Guðmundar og Pálínu. Þar var að jafnaði margt um mann- inn, því að þau voru óvenjulega vin- sæl, enda gestrisin með afbrigðum og stóð heimili þeirra öllum opið er að garði bar. Þau höfðu sannar- lega tileinkað sér gestrisni og höfð- ingslund ömmu okkar og föður, en Nesið var orðlagt fyrir að standa alltaf opið gestum og gangandi. Unni, konuefni mínu, féll strax mjög vel við systur mína og mág og lét vart nokkum dag líða svo að hún skryppi ekki í heimsókn til þeirra. Þótt mannlífíð á Látmm væri um margt óvenjulegt og ógleymanlegt og menn yndu þar glaðir við sitt fór svo um síðir, að fólkið hrökkl- aðist þaðan vegna óvenjulegs afla- brests. Árið 1943 var algert afla- leysi í Aðalvík og tóku þau Guð- mundur og Pálína sig þá upp með dætur sínar þrjár, þá yngstu ný- fædda, og fluttust til ísafjarðar. Þar keyptu þau sér hús inni í Tungu við ísafjörð. Árið 1944 eignuðust þau yngstu dótturina þar. Frá Tungu, sem er stutt frá ísafirði, gat Guðmundur stundað vinnu í kaupstaðnum. Er þau höfðu búið þama í átta ár fluttu þau til okkar á Grenimel 13 í Reykjavík og bjuggu hjá okkur í tvö ár eða þangað til þau höfðu byggt sér hús ásamt fóstursyni sínufn, Valdimar Kr. Valdimars- syni, á Álfhólsvegi 36 í hinum nýja kaupstað, sem þar var þá að rísa, Kópavogi. Guðmundur, sem var bæði duglegur og fylginn sér, var fljótur að koma sér fyrir og aðlag- ast nýju umhverfi. Hann var m.a. um tólf ára tíma- bil vélgæslumaður í Áburðarverk- smiðjunni í Gufunesi. Síðan var hann í tugi ára verkstjóri hjá Kaup- vogskaupstað, en er aldurinn færð- ist yfír hann réð hann sig sem bað- vörð í íþróttahúsi Kársnesskóla og þar starfaði hann, meðan kraftar entust. Við öll þau störf, sem hann tók að sér var hann einkar vel lið- inn, bæði af vinnufélögum og vinnu- veitendum, enda maður með af- brigðum duglegur og samviskusam- ur. Þegar þau Pálína og Guðmundur höfðu búið nær 10 ár við Álfhóls- veginn byggðu þau sér einkar rúm- góða og bjarta íbúðarhæð á Ás- braut 19 og þar bjuggu þau í 23 ár við mikla ástúð barna sinna, fóst- ursonar og barnabarna, sem eru nú 11 talsins. Þegar Guðmundur er nú farinn frá okkur eru ekki nema tvö af hin- um stóra systkinahópi eftir. Þau eru Sigrún, sem býr í Bolungarvík, hún er ekkja Sölva Betúelssonar frá Höfn. Bjuggu þau á Hesteyri og voru síðustu íbúarnir, sem yfirgáfu Sléttuhrepp 1. nóv. 1952. Eftirlif- andi er líka Siguijón, sem dvelur á Hrafnistu í Reylqavík. Guðmundur var einkar dagfars- prúður maður og glaðlyndur, svo að hann var sérstaklega vel látinn af öllum, er af honum höfðu ein- hver kynni. Þeim Guðmundi og Pálínu varð fjögurra dætra auðið, eins og þegar hefur sagt verið. Elst er Matthildur, kennari við Laugamesskóla, gift Jóni Frey Þór- arinssyni, skólastjóra þar. Ema fæddist rétt eftir trúlofun okkar Unnar, eins og ég gat um áður. Hún er kennari í Njarðvíkum, gift Emi Gunnarssyni húsgagna- bólstrara. Þá er Bjargey, gift Jakobi Jóns- syni, húsasmið. Hún tók verslunar- skólapróf og starfar við Verðbréfa- markað Iðnaðarbankans. Yngst er Kristín, sem lauk einnig verslunarskólaprófí _og er starfs- maður Landsbanka Islands. Eigin- maður hennar er Guðmundur Þórð- arson, umsjónarmaður Laugarnes- skóla. Með Guðmundi Bjarnasyni er genginn sérstakur, heilsteyptur maður með góða náttúmgreind, sem lærði það á löngu og breytilegu lífshlaupi, að það er flestu dýrmæt- ara að vera sannur maður. Hann ólst upp við kröpp kjör og í köldu umhverfi, þar sem bjargarskortur beið við hvers manns dyr. Með þrautseigju og fyrirhyggju tókst honum að sigla fleyi sínu heilu í höfn. Kæmstu minningar hans vom tengdar æskustöðvunum og fram á þetta ár fór hann vestur til að skoða sig um. Þá hafði systurdóttir okk- ar, Magga, sem ólst upp hjá okkur á Nesinu, en er nú búsett í Banda- ríkjunum, komið til landsins, einu sinni sem oftar, og Guðmundur far- ið með Bob, manni hennar, til Að- alvíkur til að fá enn einu sinni litið þann stað, sem var honum kærari en allir aðrir. Þar hafði hann byggt sér og konu sinni fallegt heimili og þar hafði Pálína alið honum þijár af fjórum dætranna, sem líf þeirra hjónanna snerist um að vemda og koma til þroska. Þennan góða samferðamann, frænda og mág kveðjum við Unnur mín með söknuði, og um leið send- um við systur minni hugheilar sam- úðarkveðjur. Megi það almætti, sem hún amma okkar kenndi okkur að treysta á, þegar að syrti, styrkja þig, kæra systir, í sorg þinni. Gunnar Friðriksson t Eiginmaftur minn og faðir okkar, LÝÐUR GUÐMUNDSSON fyrrv. bóndi og hreppstjóri, Litlu-Sandvík, sem lóst í Sjúkrahúsi Sufturlands, Selfossi 23. desember, verftur jarftsunginn frá Selfosskirkju föstudaginn 30. desember kl. 13.00. Bílferð verftur frá Umferðarmiðstöðinni i Reykjavík kl. 11.30. Aldís Pálsdóttir, Sigríftur Lýðsdóttir, Páll Lýðsson, Ragnhildur Lýðsdóttir, Guftmundur Lýftsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug vift andlát og útför SIGURÐAR ÁGÚSTS HERMANNSSONAR húsgagnabólstrara, Bollagötu 6. Ardts Erlendsdóttir, Gerftur Sigurðardóttir, Þorsteinn Sœberg, Fjóla Sigurðardóttir, Jakob Óskar Sigurðsson, Svava Sigurðardóttir, Sigurður Sœberg, Hrafnhildur Sœberg, foreldrar, tengdaforeldrar og systkini. t Þakka innilega auðsýnda samúð og vinarhug vift andlát og útför mannsins míns, SÆMUNDAR G.ÓLAFSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunardeildar Landspítalans, Hátúni 10B.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.