Morgunblaðið - 28.12.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.12.1988, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1988 , 12 Rosalegur rostí á fjöllum Leiklist Jóhanna Kristjónsdóttir vart „stöðu“ konunnar mætti ætla að flestar konur kynnu að þekkja ýmsa drætti í Höllu. Þjóðleikhúsið frumsýndi Fjalla- Eyvind og konu hans eftir Jó- hann Sigurjónsson. Tóniist: Leifúr Þórarinsson. Leikmynd og búningar: Sigurjón Jóhannsson. Lýsing: Páll Ragnarsson. Sýningarstjóri: Jóhanna Norð- Qörð. Leikstjóri: Bríet Héðinsdóttir. Sagan um Fjalla-Eyvind og Höllu hefur orðið höfundum hugleikin og leikrit Jóhanns Siguijónssonar hef- ur margsinnis verið tekið til sýning- ar hérlendis frá því höfundur lauk því, eftir að hafa raunar gert þó nokkrar útgáfur af því. Halla er verðugt viðfangsefni sem slík, konan sem fómar öllu, leggur allt í sölumar og fylgir manninum sem hún elskar upp í fjöllin og deilir með honum kjömm löng og erfið ár. Þessi kvenlýsing er leikkonu spennandi viðfangsefni, og hvað sem líður breyttu aldar- fari, öðrum hugsunarhætti gagn- í ágætri grein Sverris Hólmars- sonar í leikskrá segir að ætlun höf- undar hafi ekki verið að endurskapa persónur þjóðsögunnar heldur nota söguna sem ramma til að setja inn í persónur með nútímalegri skírskotun og fja.lla um almennan tilvistarvanda. Kannski má segja að vandi og togstreita mannsins sé alltaf eins, en þó er leikrit Jóhanns Siguijónssonar tímabundið verk ef kenning Sverris er rétt og ég get út af fyrir sig fallist á hana. Því fínnst mér að það hefði verið spenn- andi að gera tilraun nú, og færa þetta margra áratuga gamla verk upp á samtíðina án þess að ég eigi við að það hefði átt að stílfæra það hvað þá heldur skrumskæla. En það hefði gert verkið forvitnilegt og frisklegt í stað þessa langdregna, sveitalega melódrama sem áhorf- endur sáu á sviði Þjóðleikhússins nú. Leikritið í þessari mynd hefur ekki staðist tímann, nema að vissu marki og eru þó ýms forkunnarfög- BJOÐUM VK> OG KÓPERÍNGU UÓSMYNDABÚBIM LAUGAVEGI 118 VIÐ HLEMM S. 27744 Sviðsmynd úr leiknum, fyrir utan réttina. ur og snjöll tilsvör í því, en féllu flöt vegna þess úrelta og gamaldags leikmáta sem leikstjóri virðist hafa valið. En hvað um það, leikstjóri hefur sem sé kosið að þræða samvisku- samlega troðnar leiðir í uppfærsl- unni, raunsæið er allsráðandi, og því kemur atriðið í lok 3. þáttar eins og skrattinn úr sauðarleggn- um; byggðamenn hafa safnað liði og ætla að hremma útilegufólkið. Skyndilega víkur allt raunsæi í fá- einar mínútur, furðuljós flökta um svið, leikarar svífa um í bláleitri birtu, Halla grípur bamungann Tótu, sem aldrei æmtir né skræmt- ir og kemur okkur lítið við, og varp- ar henni með miklum og dramatísk- um hljóðum í fossinn. Svo kemur að síðasta þættinum, enn eru liðin ár, Kári og Halla eru farin að hat- ast, og skyldi engan furða, Halla er orðin gömul og ljót en Kári er enn í sæmilegum blóma. Þau rugla og rífast og rifja upp liðna tíð. Sulturinn ætlar þau lifandi að drepa og Halla vill ekki að Kári yfírgefi sig. Þegar hún hefur lýst yfír því að ást hennar á honum sé dauð hverfur hún út í hríðina. Það er í samræmi við það sem hún segir fyrr í leikritinu; málið er ekki hvort Kári elskar hana, ef hún hættir að elska hann deyr hún. Hún er því sjálfri sér samkvæm. Harmur þeirra útlaganna skilaði Ofnhreinsir með íslenskum leiðbeiningum. Fjarlægir föst óhreinindi fljótt og vel. Einkaumboö íslensk ///// Ameriska Erlingur Gíslason sem Björn hreppstjóri og Lilja Guðrún Þorvalds- dóttir í hlutverki Höllu. sér ekki, þessi yfirdrifni leikháttur sem hefði átt við fyrir nokkrum áratugum varð vandræðalegur og oftast beinlínis óþægilegur. Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir átti erfítt kvöld, í þessari túlkun var Halla lítið heillandi í upphafínu, beiskja hennar og reiði í seinni hlutanum stirðleg og framsögnin ótrúlega langt frá atvinnumennsku. Kári Þórarins Eyfjörð var leikinn á hljóðlátari nótum. Það er forsenda þess að þetta verk snerti mann að Höllu og Kára takist að sýna hvað knýr Höllu til að fylgja á fjöll íðil- manninum Kára sem hefur það eitt til saka unnið að stela einum sauð og fær fyrir vikið margra ára fang- elsisdóm. Er það ástin, gimd og ástríða, ævintýraþrá, verndartil- fínning, hin umtalaða fómarlund konunnar sem stýrir gjörðum Höllu. Hvað það var komst ekki tii skila og þar með fór dramað fyrir lítið. Hákon Waage fór með hlutverk Amesar, kaupamanns og flækings, sem síðar hrekst í fjöllin og verður um stund í búskapnum með Höllu og Kára. Durgslegt gervi hans var ágætt en að öðru leyti lék hann af sama bægslagangi og hafði meðvit- aða rostaframsögn eins og fleiri. Erlingur Gíslason var þó hófsamur sem Bjöm hreppstjóri og Ævar Kvaran átti stjömuleik í litlu hlut- verki Amgríms holdsveika. Leikmyndin var þung og bar ekki vott um hugmyndaauðgi en má segja að hún hafí því verið í réttum anda við sýninguna. Tónlist Leifs Þórarinssonar var býsna hag- lega unnin, einkum hugnaðist mér lokakaflinn. Að sýningu lokinni ávarpaði Gísli Alfreðsson afmælisbamið Ævar Kvaran sem á árinu 1988 átti 50 ára leikafmæli. Viðfelldnara hefði verið að Gísli hefði lagt á sig að læra textann utan að. Mér er ekki alveg ljóst, hveijir gætu haft gaman að sýningu Þjóð- leikhússins á Fjalla-Eyvindi nú. Þó mætti segja mér að þeir sem sáu leikinn fyrir nokkmm áratugum, vilja átök, hávaða og tröllkallalega framsögn og hreyfingar gætu skemmt sér. Og þegar upp er stað- ið er lofsvert í sambandi við þessa sýningu að þar er haldið sama stíl, alla sýninguna út í gegn að undan- skildum þessum nefndu mínútum í lok þriðja þáttar. Það er því greini- legt að leikstjóri hefur valið þessa leið og það er í sjálfu sér vert allr- ar virðingar, hvort sem maður er sáttur við hana eða ekki. Leiðrétting í VIÐTALI við Leó Jónasson á Svanavatni í Skagafírði, sem birtist í Morgunblaðinu á að- fangadag sl., voru vegna mistaka í tölvuvinnslu, fáeinar villur. í fyrsta lagi var föðumafn Leós ranghermt í tvígang. Leó er sonur Jónasar Jónssonar bónda í Hróars- dal í Skagafirði. í annan stað var maður Sæunnar á Hegrabjargi, systur Leós, Ólafur Eiríksson, en hann er rangnefndur í viðtalinu. Þessar villur leiðréttast hér með og jafnframt er beðist velvirðingar á þeim. Einnig er rétt að fram komi að Intemational traktor, sá sem talað er um í viðtalinu, keypti Búnaðarfé- lag Rípurhrepps og var hann nýttur af Leó og sveitungum hans m.a. til ræktunarstarfa. Traktor þessum ók lengi Vilhjálmur, bóndi á Ytri- Brekkum, bróðir Leós.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.