Morgunblaðið - 28.12.1988, Side 15

Morgunblaðið - 28.12.1988, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1988 15 er jrfrið nóg eftir, 14 mismunandi bréf tíu hlutafélaga sem rekin eru af fímm fyrirtækjum. Þetta eru daggengisbréfín, svo trúlegt sem daggengi virðist. Að auki má fá yfír 50 mismunandi skuldabréf hjá Verðbréfaþingi Islands og einhver hlutabréf sem tvö fyrirtæki selja og kaupa. Umsvif Ávöxtunar sf. voru að- eins hluti af því ófafé sem þama er í umferð. Talað héfur verið um allt að tvö þúsund milljónir. Það er því ekki um neina smáupphæð að ræða ef verðbréfahrun verður. Þetta verðbréfaæði er orðið það um- fangsmikið að það fer að vaxa öllu raunhæfu eftirliti yfír höfuð. Bankaeftirlit virðist ekki skorta heimildir til eftirlitsins, hvort það annar því gæti verið spurning. DV segir frá fréttatilkjmningu Banka- eftirlits í september: Bankaeftirlitið segir í fréttatil- kynningu sinni í gær að á grund- velli þeirra upplýsinga sem nú liggja fyrir telji það ekki ástæðu til að ætla annað en að fjárhags- og rekstrarstaða annarra verðbréfa- sjóða sé með þeim hætti að þeir geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart viðskiptamönnum sínum. (DV 6.9. 1988.) Nú verður manni á að hugsa sem svo: Á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma í fréttatilkjmningu Bankaeftirlits telst ekki ástæða til að ætla annað en að framkvæmd athugana og eftirlits Bankaeftirlits- ins sé með þeim hætti að það geti ekki staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt lögum. Fréttatilkjmning Bankaeftirlits- ins virðist, lauslega þýdd og endur- sögð, vera svona: Miðað við það sem við vitum núna höldum við að staða annarra fyrirtækja sé þannig að þau geti staðið við skuldbindingar sínar. Þetta er óneitanlega traustvekj- andi. í upphafí greinarinar segir að alvarlegast sé að enginn virðist sýna áhuga á að vemda hagsmuni þeirra einstaklinga sem eiga fé í sjóðum Ávöxtunar sf., annar en skilanefnd. Henni ber auðvitað skylda til þess og er launuð af sjóð- unum. Aðrir opinberir aðilar hafa ekki sýnt tilburði í þá átt. „Umboðs- maður almennings í þessu landi“ virðist hafa lokið hlutverki sínu í þessu máli. Pélag sparifjáreigenda er hljótt sem gröfin. Hin ýmsu al- menningssamtök hafa látið á sér kræla af minna tilefni en þessu. En kannski er ékki útséð enn, hvort öllum er sama um þessa ein- staklinga. Umboðsmaður Alþingis starfar í þágu almennings, eða á að gera. Hann mun hafa heimild til að taka mál upp að eigin frum- kvæði telji hann ástæðu tiL Óskandi væri að hann sjái eitthvað athuga- vert þegar hundruð einstaklinga eru prettaðir undir eftiriiti hms opin- bera. Fari sem horfír er ekki von á góðu. Þá verður greitt úr Ávöxtun- arsjóðunum með afföllum ein- hvemtima eftir dúk og disk, og skilanefnd þá búin að taka sitt af óskiptu. Þá verða væntanlega margar hendur á lofti, reiðubúnar að ávaxta afganginn úr sjóðunum. Dr. Pétur Blöndal býður væntanlega hagstæð bréf, tryggir „hæstu mögulega ávöxtun", sem „jafnaðarlega verður innleyst samdægurs“. Vafalítið get- ur hann þá tryggt „öryggi við ævi- kvöld“ fyrir afganginn. Framkvæmdastjóri Fjárfestinga- félagsins hefur þá væntanlega upp á sitthvað að bjóða, en þvi miður ekki fyrr en þá. En fari sem horfir, mun félag sparifjáreigenda harma hvemig fór, — en því miður... Þá mun Bankaeftirlitið telja það miður, það bar nefnilega hag ein- staklinganna fyrir brjósti, — en því miður... Þá mun Jón Sigurðsson við- skiptaráðherra trúlega verða fullur samúðar svo útúr flóir, — en því miður . . . Og fari sem horfir, munu margir velta því fyrir sér hvort lög og rétt- ur þjóni íslensku þjóðfélagi, — eða íslensku þjófafélagi. V estmannaeyjar: Níu ný- stúdentar V estmannaeyj um. Níu stúdentar braut- skráðust frá Framhalds- skóla Vestmannaeyja nú í desember. í skólanum stunda nú nám á þriðja hundrað nemendur og hafín er bygging verkmennta- húss við skólann ,en það verk- efni komst af stað við af- greiðslu fjárlaga fyrir árið 1987. -Grímur. Meðfylgjandi mynd er af nýstúdentunum frá Fram- haldsskólanum í 'Vest- mannaeyjum. Morgunt’ iðið/Sigurgeir I Eyjum. \ falke j® 0* ■ ■ falke Einu sinni falke alltaf falke \ falke Góðar og þægilegar. Gefa glæsilegt útlit. Snið sem passar. Þýsk gæðavara. falke UMBOÐIÐ -HEILDVERSLUN HÁALEITISBRAUT 68 SÍMI 84240 Höfíindur er loftskeytamnður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.