Morgunblaðið - 28.12.1988, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Stýrimann
vélavörð og háseta vantar á mb. Hrungni
GK 50, sem fer á netaveiðar frá Grindavík.
Upplýsingar í síma 92-68755 og hjá skip-
stjóra í síma 92-68587.
Vísirhf.
Laus staða
Staða skattstjóra Austurlandsumdæmis er
laus til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa
lokið prófi í lögfræði, hagfræði, viðskipta-
fræði eða hlotið löggildingu í endurskoðun.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist fjármálaráðu-
neytinu fyrir 29. desember 1988.
Fjármáiaráðuneytið,
21. nóvmeber 1988.
Efnaverkfræðingur
Áburðarverksmiðja ríkisins ætlar að ráða
efnaverkfræðing til starfa. Starfssvið viðkom-
andi verður umsjón með rannsóknastofu fyr-
irtækisins, gæða- og framleiðslueftirlit og
vöruþróun.
Umsóknir um starf þetta ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf sendist Aburðar-
verksmiðju ríkisins, pósthólf 8353, 128
Reykjavík, fyrir 1. febrúar 1989. Nánari upp-
lýsingar veitir verksmiðjustjóri í síma 673200.
Áburðarverksmiðja ríkisins.
r—
SUÐUREYRARHREPPUR
Leikskólann
á Suðureyri vantar sem fyrst forstöðumann.
Leikskólinn er nýlegur og vel útbúinn.
Ódýrt íbúðarhúsnæði.
Upplýsingar gefur sveitarstjóri í símum
94-6122 og 94-6147 og í heimasíma
94-6137.
Lausar stöður
Við Kennaraháskóla íslands eru lausar til
umsóknar tvær eftirgreindar lektorsstöður:
1. Staða lektors í íslensku. Meginverkefni
íslensk og almenn málfræði með áherslu
á nútímaíslensku. Auk viðurkennds há-
skólaprófs í grein sinni skal hann hafa
próf í uppeldis- og kennslufræðum ásamt
þekkingu á og reynslu af íslenskukennslu.
2. Lektorsstaða á sviði upplýsingatækni og
tölvunotkunar í námi og kennslu, einkum
á grunnskólastigi. Auk fullgilds háskóla-
prófs skal umsækjandi hafa lokið prófi í
uppeldis- og kennslufræðum. Starfs-
reynsla á áðurgreindu sviði og góð þekking
á grunnskólastarfi er einnig nauðsynleg.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Gert er ráð fyrir að stöðurnar verði veittar
frá 1. júlí 1989.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
rækilega skýrslu um vísindastörf, sem þeir
hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og
upplýsingar um námsferil og störf. Þau verk,
er umsækjandi óskar að dómnefnd fjalli um,
skulu einnig fylgja.
Umsóknir skulu hafa borist menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík,
fyrir 15. febrúar nk.
Menntamáiaráðuneytið,
21. desember 1988.
Laustembætti
er forseti íslands veitir
Við Kennaraháskóla íslands er laust til um-
sóknar embætti prófessors í uppeldis- og
kennslufræði.
Auk fullgilds háskólaprófs skal umsækjandi
hafa viðurkennd kennsluréttindi eða hafa að
öðru leyti nægilegan kennslufræðilegan und-
irbúning.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt frá 1.
júlí 1989.
Umsóknir skulu hafa borist menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík,
fyrir 15. febrúar 1989.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
rækilega skýrslu um vísindastörf þau, er
þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo
og upplýsingar um námsferil og störf. Þau
verk sem umsækjandi óskar að dómnefnd
fjalli um skulu einnig fylgja.
Menntamálaráðuneytið,
21. desember 1988.
Stýrimaður
Stýrimann og vanan beitningamann vantar
á Æskuna SF 140.
Upplýsingar í síma 97-81498.
Yfirvélstjóri
Óskum eftir að ráða yfirvélstjóra á 200 tonna
bát.
Upplýsingar í símum 92-37691 og 92-12305.
Sölumaður
óskast til starfa hjá gamalgróinni fasteigna-
sölu í miðborginni.
Framtíðaratvinna fyrir traustan og dugleg-
an sölumann.
Góð menntun og dugnaður skilyrði.
Eiginhandarumsókn með upplýsingar um
aldur, menntun og fyrri störf sendist auglýs-
ingadeild Mbl. fyrir kl. 15.00 nk. fimmtudag
29. þ.m. merkt: „Framtíðaratvinna - 8157“.
Sólheimar
í Grímsnesi
óska eftir að ráða starfsmann með áhuga á
meðferðar- og umönnunarstörfum. Um er
að ræða umsjón með starfi á heimilisein-
ingu. Húsnæði og fæði á staðnum. Vinnutími
samkvæmt vaktkerfi. (Unnið í 4 daga, frí í 4
daga). Starfsreynsla æskileg.
Nánari upplýsingar gefur aðstoðarforstöðu-
maður í síma 98-64432.
Aðstoð
óskast á tannlækningastofu í miðborginni frá
áramótum.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
31/12, merktar „A - 6977“.
Grunnskólar
Kópavogs
Ræstingafólk og gangaverði vantar við
grunnskóla Kópavogs.
Upplýsingar á skólaskrifstofu Kópavogs í
símum 41988 og 41863.
Skólafulltrúinn í Kópavogi.
BORGARSPÍTALINN
Lausar Stðdur
Öldrunardeildir
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
Á hjúkrunardeild Hvítabandsins
v/Skólavörðustíg er laus 70% staða hjúkr-
unarfræðings frá 1. janúar 1989. Dagvinna
og unnið er þriðju hverja helgi.
Á öldrunardeild B-6
eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga á kvöld-
vaktir. Unnið er þriðju hverja helgi. Einnig
eru lausar stöður sjúkraliða á morgunvaktir.
Á hjúkrunar- og endurhæfingardeild E-63
á Heilsuverndarstöð eru lausar stöður hjúkr-
unarfræðinga og sjúkraliða. Möguleiki er á
k-stöðu hjúkrunarfræðings.
Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu hjúkrun-
arforstjóra starfsmannaþjónustu í síma
696356 og hjá Önnu Birnu Jensdóttur, hjúkr-
unarframkvæmdastjóra, í síma 696358 alla
virka daga.
Hugbúnaðarmaður
óskast
Hugbúnaðarmaður óskast. Þarf að geta haf-
ið störf snemma í janúar. Starfið felst í aðlög-
un og uppsetningu erlends hugbúnaðar,
meðal annars bókhaldskerfis. Forritunarmál
eru: Assembler, Business BASIC, C og Pas-
cal. Sjálfstætt og krefjandi starf hjá traustu
fyrirtæki.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um nám
og fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „BB - 6328“ fyrir 31. desember.
Ferðaskrifstofan Pólaris hf., óskar að ráða
gjaldkera í sal
eigi síðar en 1. febrúar 1989.
Umsóknum er greini menntun, aldur og fyrri
störf, sé skilað á skrifstofu okkar á Kirkju-
torgi 4, þar sem umsóknareyðublöð liggja
frammi, eigi síðar en 6. janúar 1989.
FERÐASKRIFSTOFAN
POLARIS
Fósturfjölskyldur
óskast
Óskum eftir að komast í samband við fjöl-
skyldur sem vilja taka að sér börn í skamm-
an tíma vegna erfiðleika á heimilum. Viðkom-
andi fjölskylda gæti þurft að taka barn á
heimili sitt með stuttum fyrirvara.
Laun samkomulag.
Einnig viljum við gjarnan komast í samband
við fjölskyldur sem óska eftir að taka börn
í fóstur til langs tíma.
Upplýsingar gefa félagsráðgjafar í síma
45700 kl. 9.00-15.00, daglega.
Félagsmálastofnun.