Morgunblaðið - 28.12.1988, Side 37

Morgunblaðið - 28.12.1988, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1988 37 Bette er seig Reuter Bette er seig Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Bette Davis, ásamt Michael Herskowitz: This’n that Útg. Berkley 1988 Bette Davis getur með réttu sagt, að hún sé ein fárra leikkvenna sem hefur orðið goðsögn í lifanda lífi. Hún er nú rösklega áttræð og leik- ur enn, þrátt fyrir slag fyrir nokkr- um árum og aðskiljanleg beinbrot á síðustu árum. Bette Davis hafði ákveðna sér- stöðu í Hollywood á yngri árum. Þegar hún var að ryðja sér braut til frægðar og frama var hún ákaf- lega ólík þeirri dæmigerðu Holly- wood-stjömu sem þá var í tísku.. Hún var hvorki fögur né æsandi, en á hinn bóginn þótti hún snemma afburða góð leikkona. Hún vann til tveggja Óskarsverð- launa á ferli sínum og ótal margra annarra viðurkenninga, hér og hvar um heiminn. Einna frægust margra frægra mynda er Hvað kom fyrir Baby Jane, sem þær íjandvinur, hún og Joan Crawford, gerðu að ógleymanlegu listaverki. Bette hefur alla tíð þótt skap- mikil, vinnusöm, fræg fyrir að keðjureykja og geta verið hin kvik- indislegasta. Hún hefur komist upp með flest í skjóli hæfileika sinna. Fyrir nokkrum árum tók dóttir hennar sig til og skrifaði bókina „My Mother’s Keeper" og fékk Bette þar hina ferlegustu útreið, dóttirin sakaði hana um andlega og líkamlega grimmd, drykkjuskap og ég man ekki hvað. Þeirrar bókar var getið hér í dálkunum, en ég man að mér þótti ekki mikill veigur í henni. Bette segist hafa verið búin að skrifa This’n that þegar bók dóttur hennar kom út, en hún hafi bætt við bréfinu til dótturinnar aftast í bókinni en öðru ekki. Það er hæpin fullyrðing, svo mikið beinir Bette tali sínu til dótturinnar í þessari bók. Hér segir þó einkum frá Bette og reynslu hennar á seinni árum, þegar Elli kerling ræðst að henni, en tekst ekki nema um stundarsak- ir hverju sinni að koma henni á kné. Síðan er langur kafli um dótt- urina og tilhugalíf hennar, út af fyrir sig fróðlegur, en á skjön við fyrri hluta bókarinnar. Fyrri hlut- inn, þegar hún veltir fyrir sér hlut- skipti sínu, aldri og ástalífi er skemmtilegur. Það er mikil seigla í þessari kellingu. Og enn leikur hún af list. TIIBOÐ Tll ARAMOTA: HÆRRI ÁVÖXTUN Á SPARISKÍRTEINUM RÍKISSJÓDS Til áramóta býður Verslunarbankinn þriggja, fimm og átta ára spariskírteini ríkissjóðs með 8% ávöxtun. Spariskírteini í eigu einstaklinga eru tekju- og eignar- skattsfrjáls. Hér býðst því, í skamman tíma, óvenju hagkvæm og örugg ávöxtunarleið. Láttu fjármuni þína vaxa við bestu skilyrði. Fjárfestu í spariskírteinum ríkissjóðs fýrir áramót. VERSLUNRRBRNKINN -(AÍ*t*ucivHeðfién,( BANKASTRÆTI 5 LAUGAVEGI 172 GRENSÁSVEGI 13 ÞARABAKKA 3 UMFERÐARMIÐSTÖÐINNI VATNSMÝRARVEGI 10 HUSI VERSLUNARINNAR KRINGLUNNI 7 ÞVERHOLTI 6, MOSFELLSBÆ VATNSNESVEGI 14, KEFLAVÍK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.