Morgunblaðið - 31.12.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 31.12.1988, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1988 HVAÐ SEGJA ÞEIR UM ÁRAMÓTIN? Amar Sigurmundsson Grípa þarf til efha- hagsráð- stafana nú þegar - segir Arnar Sig- urmundsson, formaður Sam- taka fiskvinnsl- stöðva Árið 1988 hefur verið mjög erfítt fyrir fískvinnsluna í landinu. Raun- gengi íslensku krónunnar hefur verið of hátt og hefur það valdið taprekstri í þessari undirstöðugrein þjóðarinnar. Þjóðin hefur fleytt sér áfram á erlendum lánum og hafa þau staðið undir óraunhæfum kaup- mætti og eyðslu langt umfram það sem tekjur hennar leyfa. Taprekstri fískvinnslunnar hefur verið mætt með skuldasöfnun sem leitt hefur af sér aukinn fjármagns- kostnað sem opinberar reiknistofn- anir neita að taka til greina í af- komuútreikningum sínum. Þjóð- hagsstofnun reiknar fískvinnsluna út eftir sínum hefðbundnu aðferð- um og telur afkomuna ekki vera lakari en oft áður. Á meðan gengur stöðugt á eigið fé fískvinnslufyrir- tækjanna þannig að við óbreytt ástand er víðtækt gjaldþrot í grein- inni óumflýjanlegt. Ríkisstjóm og alþingismenn sitja aðgerðarlausir þótt sumir þeirra skilji hversu alvarlegar afleiðing- amar af þessu ástandi verða. Byggðarlög víðsvegar um landið eru í hættu, sem þýðir að eignir fólks verða verðlausar og atvinnu- leysi blasir við. Afkoman á árinu, kjarasamningar og efhahagsráðstafanir 1 viðræðum fískvinnslumanna við stjómvöld um síðustu áramót var lögð á það áhersla að ekki drægist að grípa til efnahagsaðgerða er kæmu útflutningsgreinum á réttan kjöl. Svörin vom þau að efnahags- aðgerðir og væntanlegir kjara- samningar þyrftu að haldast í hend- ur, og ekki yrði gripið til þeirra fyrr en að afloknum kjarasamning- um. Stjómvöld lögðu á það áherslu að niðurstöður kjarasamninga yrðu þær, að fískvinnslufólk og fleiri hópar er ekki höfðu notið launa- skriðs í þenslunni bæm meira úr býtum í þessum kjarasamningum. I hönd fóm langir og strangir samn- ingafundir sem lauk með febrúar- samningum VSÍ og VMSÍ. En áður höfðu vinnuveitendur og verkafólk á Vestfjörðum gert kjarasamning er lagði að nokkm gmndvöll að þessum kjarasamningum. Þegar febrúarsamningurinn lá fyrir greip þáverandi ríkisstjóm til efnahagsaðgerða er áttu að koma fískvinnslunni í heild upp fyrir núll- ið. En frekari verðlækkanir á fryst- um físki erlendis ásamt miklum kostnaðarhækkunum innanlands gerðu áhrif 6% gengisbreytingar að engu á mjög skömmum tíma og fiskvinnslan var á nýjan leik komin í vemlegan taprekstur. Ofan á þetta bættist að flest verkalýðsfélög físk- vinnslufólks felldu febrúarsamning- ana og þurfti að setjast á nýjan leik að samningum. Eftir mikil ferðalög og stranga fundi náðist loks samkomulag á Akureyri um nýja lqarasamninga í lok marz sl. Þessir kjarasamningar höfðu í för með sér að meðaltali 14% launahækkun fískvinnslufólks auk áfangahækkana á samnings- tímanum, en kjarasamningar gilda til 10. apríl 1989. Stjómvöld gripu á nýjan leik til efnahagsaðgerða um miðjan maí, og var þá gengi krónunnar lækkað um 10%. Fleira skyldi fylgja á eftir til að bæta hag útflutningsgreina. Þá var lofað að fiskvinnslunni skyldi bætt 5% fískverðshækkun í júní með 3% gengisbreytingu í kjölfarið. Við þetta var ekki staðið. Niðurfeersluleiðin Skipan sérstakrar ráðgjafar- nefndar um efnahagsmál í byijun ágúst sl. var skynsamlegt útspil hjá ríkisstjóminni. Tveir fiskvinnslu- menn áttu sæti í nefndinni, sem skilaði einróma áliti til ríkisstjómar- innar 23. ágúst sl. Samtök fískvinnslustöðva fjöll- uðu um álit efnahagsnefndarinnar á aðalfundi sínum í Stykkishólmi 9. september sl. í ályktun fundaríns var mælt með áliti nefndarinnar og að farin skyldi svokölluð niður- færsluleið. Þá var einnig tekið undir það með nefndinni að hallalaus rekstur ríkissjóðs væri ein aðalforsenda þess að hægt væri að draga úr hinni miklu þenslu sem hafði ríkt undan- farin tvö ár. Niðurfærsluleiðinni hefðu fylgt mikil átök við að ná niður öllum kostnaði í þjóðfélaginu, jafnt verð- lagi, launakostnaði og vöxtum. Engu að síður töldu fískvinnslu- menn að þetta hefði verjð skásti kosturinn í stöðunni. Því miður náði þáverandi ríkis- stjóm ekki samkomulagi um tillög- ur efnahagsnefndarinnar, og þeir stjómmálamenn sem þá töldu sig stuðningsmenn niðurfærslu hafa nú fallið frá þeim stuðningi. Þessi ágreiningur innan þáverandi ríkis- stjómar leiddi til afsagnar hennar 17. september sl. Ný ríkisstjórn Með nýrri ríkisstjóm er tók vié völdum í lok september sl. var grip- ið til 3% gengisbreytingar sem lofað var í júní sl. Þá var ákveðin 5% verðuppbót á frystar afurðir í gegn- um Verðjöfnunarsjóð er greidd verður fram á næsta vor. Lofað var lækkun nafn- og raunvaxta og 25% lækkun raforkuverðs til fiskiðnað- ar. Eftir 3% gengisbreytinguna í lok september sl. fór Bandaríkjadollari í rúmlega 48 krónur. En skömmu síðar féll dollarinn á nýjan leik og hefur hann verið í kringum 46 krón- ur að undanfömu. Þá setti núver- andi ríkisstjóm á fót sérstakan At- vinnutryggingasjóð útflutnings- greina. Sjóðnum er ætlað að veita útflutningsfyrirtækjum skuldbreyt- ingalán og sérstök lán sem ætluð em til hagræðingar og sammna fyrirtækja. Er þetta er skrifað hafa mörg fyrirtæki sótt um lán hjá sjóðnum, en mikil óvissa er ríkjandi varðandi skuldabréf sjóðsins og hefur reynst erfitt að fá banka og sjóði að veita þeim viðtöku sem hluta af greiðslu frá útflutnings- fyrirtækjum. Þessar efnahagsaðgerðir duga skammt til að koma fiskvinnslunni á eðlilegan rekstrargmndvöll. Ekk- ert lát er á áframhaldandi tap- rekstri í fískvinnslunni. Niðurstöður úttektar endurskoðenda á 30 físk- vinnslufyrirtækjum sýna svo ekki verður um villst að frystingin hefur verið rekin með tæplega 11% tapi fyrstu 9 mánuði þessa árs og salt- fiskurinn er kominn undir núllið. Miðað við að velta allra fískvinnslu- fyrirtækja í landinu verði á þessu ári rúmlega 28 milljarðar stefnir í að hallinn á fískvinnslunni verði um 2 milljarðar á árinu 1988. Þessar niðurstöður em í samræmi við full- yrðingar fiskvinnslumanna um að tölur Þjóðhagsstofnunar um tap- rekstur á þessu ári séu allt of lágar. Hvaðertilráða? Það er ekki bjart framundan í íslenskum sjávarútvegi um þessi áramót. Vemlegur samdráttur í afla á næsta ári kemur mjög illa við útgerð og fiskvinnslu. En skyn- samleg nýting fískimiða okkar hlýt- ur að hafa forgang. Stjómvöld þurfa nú þegar að grípa til efnahagsaðgerða er tryggi rekstrargmndvöll fískvinnslunnar. Eins og málum er nú háttað er ekki önnur leið sjáanleg en leiðrétt- ing á gengi krónunnar ásamt hliðar- ráðstöfunum er komi í veg fyrir að árangur hennar verði að engu á skömmum tíma. í lokin sendi ég öllum þeim er vinna við íslenskan sjávarútveg, svo og landsmönnum öllum, bestu ný- ársóskir, með þeirri von að þrátt fyrir dökkt útlit megi árið 1989 verða landsmönnum til hagsældar. Orð skulu standa - segirAsmund- ur Stefánsson? forseti ASÍ Lögmál náttúrunnar og heimsviðskiptanna Við höfum vanist því að náttúra- öflin stjómi lífí okkar. Við verðum að aðlaga okkur að snöggum um- skiptum í veðurfari og náttúran ákveður aflabrögð. Úti í hinum stóra heimi skammta markaðslög- mál okkur síðan verð á útflutnings- vömnum. Nú er okkur sagt að við stöndum við lok góðæris. Framundan sé svartnættis kreppa og enginn annar kostur en að beygja sig fyrir lög- málum náttúmnnar og alheimsvið- skiptanna. Það er fullyrt að við komumst ekki hjá því að bera hærri skatta og draga úr kaupgetu enn ffekar en orðið er. Ásmundur Stefánsson Við lifum á laununum Við emm í vanda. Hann hefur þó ekki orðið vegna aflabrests og verðfalls afurða. Hann á rætur að rekja til þess að við höfum ekki fjár- fest í samræmi við þarfír framleiðsl- unnar og ekki heldur skipulagt reksturinn nægilega vel. Til við- bótar þessu hefur ijármagnsmark- aðurinn komið okkur í öngstræti. Að undanfömu hefur almennt launafólk orðið fyrir alvarlegri tekjurýrnun. Stjómmálamenn og atvinnurekendur, sem þekkja vel rætur efnahagsvanda þjóðarinnar, viðurkenna í öllum viðræðum að launin séu fjarri því að vera þjóð- félagsmein. Það er því undarlegt að þeir skuli nú boða nauðsyn kjara- skerðingar hver á eftir öðmm. Ég vil minna þessa menn á að laun em ekki bara kostnaðarliður í bókhaldi fyrirtækja. Launin em lifíbrauð okkar og nánast eini kostnaðarliðurinn í rekstri fyrir- tækjanna sem við viljum hækka eins mikið og kostur er. Ég vil líka minna þessa sömu menn á þá einföldu staðreynd að mörg fyrirtæki lifa á laununum okkar. Ef við höfum ekki ráð á því að skipta við þau geta þau ekki starfað lengur. Kjaraskerðing ofan í þann samdrátt sem þegar er orð- inn mun því auka á rekstrarvanda atvinnulífsins. Kjaraskerðing mun ekki aðeins auka á ójöfnuðinn í þjóðfélaginu heldur auka hættuna á alvarlegu heimatilbúnu atvinnu- leysi. Ég vil þó sérstaklega ítreka að orsakir vandans em aðrar en of há laun. Ef við ætlum að leysa vand- ann verðum við að takast á við hin- ar eiginlegu orsakir. Það hefur verið sýnt fram á að hlutur launa í fiskvinnslu óx um 4% frá árinu 1987 á sama tíma og hlutur fjármagnskostnaðar jókst um 150%. Þrátt fyrir þetta heyrist enn til manna sem halda áfram að benda á launakostnað í fískvinnsl- unni sem höfuðvandann. Þeir em ekki aðeins að leggja til að við hlaupum frá vandanum heldur em þeir beinlínis að rangfæra hann. Horfumst í augu við þá staðreynd að það er ranghugmynd ráðherra að þjóðin sé gjaldþrota. Það er kjaraskerðingarpólitík núverandi ráðherra og ráðherra margra und- anfarandi ríkisstjóma sem er gjald- þrota. Sú þráhyggja að kjaraskerð- ing leysi allan vanda hefur beðið skipbrot. Við verðum að vinna okkur út úr vandanum Við eigum ekki að svara þeim samdrætti sem nú gengur yfír með því að sýta heldur með því að sækja fram og byggja upp af krafti það sem hefur hmnið. Við verðum að endurskipuleggja jafnt verslun sem sjávarútveg með það fyrir augum að nýta fjárfesting- ar betur og draga úr kostnaði. Við verðum að auka framleiðslu- verðmæti á öllum sviðum. Við meg- um sfst gleyma því að sjávarafurðir em yfir 70% útflutningsverðmætis og við verðum að ná hámarks- gæðum og hámarksverðmætum úr hverju tonni físks. Við verðum að auka fjölbreytni í útflutningi og nýta án tafar alla möguleika sem gefast. Við verðum að reka markvissa atvinnustefnu. Lítil íslensk fyrir- tæki em þess sjaldan megnug að standa undir traustri tækniþróun ein og sér eða sókn á nýja erlenda markaði. Þess vegna þarf hið opin- bera að beita sér fyrir samræmdum aðgerðum og vera fmmkvæðisaðili á þessum sviðum. Við verðum að tryggja okkur hagkvæman aðgang að erlendum mörkuðum án þess að missa tökin á fiskimiðunum. Samningar við Evrópubandalagið em forgangs- verkefni sem verður að taka mið af þessari staðreynd. Við verðum að koma jafnvægi á fjármagnsmarkaðinn. Það stendur enginn atvinnurekstur til lengdar undir þeim vöxtum sem nú þjaka þjóðina. Ég tel raunar að beita eigi handafli á þessu sviði til að knýja niður vextina á gráa markaðinum. Við verðum að tryggja það jafn- vægi í efnahagslífínu að fmm- vinnslugreinamar geti haldið sínum hlut og þensla dragi ekki fjármun- ina frá þeim yfir í þjónustugreinarn- ar, ryðji upp vöxtum eða hagnaði og launum einstakra hópa. Við verðum á sama hátt að tryggja að samdráttur magnist ekki og leiði yfír okkur atvinnuleysi. Einmitt núna er hætta á því. Atvinnustefna framtíðarinnar er stanslaus leit að leiðum og mark- viss nýting þeirra tækifæra sem bjóðast. Lögmál náttúmnnar og aðstæður á heimsmarkaði ákveða ekki allt sem gerist. Við getum sjálf ráðið því hvemig fer. Fmmkvæði okkar og dugnaður em ráðandi öfl. Samningsréttur og lýðræði Við ætlumst til þess að hver og einn standi við það sem hann hefur lofað. Við virðum það siðalögmál að hver og einn standi við gerða samninga. Ríkisstjómir telja sig þó yfír það hafnar og segja aðeins: „Brýn nauðsyn kallar á bráða- birgðalög." Ekkert náttúmlögmál kallar á það að samningum sé rift. Þaðan af síður á bann við samningagerð. Ef við ætlum að búa í friði í þjóð- félaginu verðum við að geta treyst hvert öðm og lifað eftir því lög- máli að orð skulu standa. Víst er ráðherra hollt að fara í námsferð til Póllands. Hann þarf hins vegar að læra að mannréttindi ber einnig að virða hér á landi, þar sem hann ræður því ásamt félögum sínum í ríkisstjóminni hvort verka- lýðssamtökin fá að starfa með eðli- legum hætti. Síðustu 10 ár hafa launahækkan- ir sem samanlagt nema 90% verið felldar burtu með lögboði stjóm- valda. Það er mál að linni, ekki aðeins banni við kjarasamningum heldur einnig eyðileggingu gerðra samninga. Kjarasamningar framundan Verkalýðssamtökin verða a standa saman um samningsréttinn. Við skulum vera minnug þess að lögboðaðar kjaraskerðingar koma harðast niður á lágtekjufólki sem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.