Morgunblaðið - 31.12.1988, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1988
__i—i- ‘ -V------1—r—i ----i 1
15
fasteignamat verið hækkað um
27% þótt allir viti að verð fasteigna
fari lækkandi eins og annað í þess-
um samdrætti. Allt hlýtur þetta að
leiða okkur í hin mestu vandræði
eða eins og segir í málshættinum:
„Hörð eru óyndisúrræðin." Er þetta
þeim mun undarlegra þar sem öll
efnahagsþróun í heiminum snýst
nú í frjálsræðisátt eins og ég sagði
áður. En þetta er það verð sem við
verðum að borga fyrir pólitíska
upplausn í þessu landi.
Ef ég mætti biðja um eitthvað
öðru fremur þessari þjóð til handa
á næsta ári þá er það stjórnmálaleg
og efnahagsleg kjölfesta.
Sá tími er liðinn þegar nægjan-
legt er að eyða bara meira til þess
að verða efnaðir. Nú verðum við
að hætta að ganga á höfuðstólinn
með aukinni skuldasúpu og lifa á
tekjunum. Við verðum að byggja
efnahag okkar upp að nýju og
styrkja hann verulega. Pjárhagsleg
staða þjóðarbúsins er orðin allt of
veikburða og brothætt. Það þarf
að snúa við blaðinu, frá agaleysi
til sjálfsaga. Þröng fjárhagsstaða
okkar minnkar það svigrúm sem
við höfum til þess að taka áhættu
til framfara. Meiri kröfur þarf að
gera til þess að það sem gert er
skili hagnaði. Alltof oft heyrist að
allt sem til þurfi sé einungis meira
fé. Stórauka þurfi fjárframlög til
þessa eða hins, sérstaklega mennt-
unar, heilsugæslu, líknarmála
o.s.frv. alveg án tillits til þess hvort
ýtrustu kröfu til afkasta sé gætt.
Með því að krefjast arðs er hægt
að fá meiri árangur út úr hverri
krónu sem til málanna er varið.
Skilvirkni er krafan í dag. Margir
hafa áhyggjur af framvindu lýð-
ræðisins í heiminum, sérstaklega
Bandaríkjunum. Famar eru að
heyrast raddir sem vilja gera þær
breytingar að forseti þess ríkis svo
og öldungadeildarþingmenn séu
aðeins kjömir einu sinni til 6 ára
í senn og megi ekki bjóða sig fram
til endurkjörs. Svo mjög er sumum
farið að blöskra sú lausung er því
fylgir að ná hylli kjósenda aftur í
stað þess að fulltrúar fólksins snúi
sér að því að leysa þau verkefni
sem fyrir hendi em hveiju sinni.
Hagfræðingurinn heimsfrægi, Fri-
edrich August von Hayek, hefur
af þessu áhyggjur nokkrar og seg-
ir að lýðræðið sé orðið trúaratriði.
Ríkisvaldinu sé farið að leyfast
nánast hvað sem er, ef það aðeins
geti skrapað saman meirihluta fyr-
ir því sem það er að gera hveiju
sinni. Nýsett skattalög okkar virð-
ast bera þessari skoðun vitni.
Hayek leggur til að löggjafar-
þingið gæti fyrst og fremst gmnd-
vallarréttinda og þingfulltrúar séu
kosnir einu sinni til 15 ára af jafn-
öldmm sínum 45-60 ára. Þannig
taki aidur og reynsla við af flokks-
hollustu. Ekki treysti ég mér til að
leggja mat á þéssar hugmyndir, en
ljóst má vera að hugsandi mönnum
blöskrar lýðskramið. Eitthvað þarf
til bragðs að taka. Alltof mikið er
um skammtíma ráðstafanir í þessu
þjóðfélagi. Ég legg til að komið
verði á fót efnahagsráði þar sem
mætast fulltrúar atvinnuveganna,
ríkisvaldsins, launþega og neyt-
enda, þar sem a.m.k. 3-7 ára þróun
efnahagslífsins er skoðuð og þess
freistað að samræma svo krafta
þjóðarinnar að ná megi hámarks-
árangri hveiju sinni.
En þrátt fyrir allt er full ástæða
til bjartsýni. Við lifum á skemmti-
legum tímum. Sjaldan hefur verið
friðvænlegra í heiminum en einmitt
um þessi áramót. Heilsufar aldrei
betra. Tækni og vísindum fleygir
fram. Samgöngur batna. í Evrópu
gerast stórir hlutir. Dönsku sundin
verða brátt brúuð. Byijað er að
grafa jarðgöng undir Ermarsund.
Til Asíu hefur Sæviðar&und verið
brúað tvisvar og á jóladag var til-
kjmnt að Afríka yrði tengd Evrópu
með brú yfír Njörvasund. Einhvem
tíma hefðu menn verið ásakaðir um
ofmetnað gagnvart guðunum fyrir
minna.
En þrátt fyrir allt hvet ég menn
til bjartsýni og óska mönnum gleði-
legs nýárs.
Gunnar J. Friðriksson
Þáttaskil í
efnahags-
legri fram-
vindu
- segir Gunnar J.
Friðriksson,
formaður Vinnu-
veitenda-
sambands fslands
Fyrir ári kvöddum við eitt gjöful-
asta ár, sem þjóðin hefur lifað.
Reyndar hafði árið þar á undan
einnig verið okkur mjög hagstætt,
því á þessum tveimur ámm jukust
þjóðartekjur okkar íslendinga um
15%.
Það ár, sem við nú kveðjum sýn-
ist marka þáttaskil í efnahagslegri
framvindu. . Þjóðartekjur verða
lægri í ár en á síðasta ári og mun-
ar þar mestu um lækkandi verð á
sjávarafurðum og minni þorskafla.
Hækkandi verð á kísilmálmi og áli
hefur þó dregið úr áhrifum þessa,
þannig, að þrátt fyrir allt hefur
þjóðin búið við hagstæð ytri skil-
yrði á þessu ári, og í sögulegu sam-
hengi hlýtur árið 1988 að teljast
mjög gott.
Frá 1980 er ætlað, að kaup-
máttur ráðstöfunartekna hafí auk-
ist um ríflega 30%, en á sama tíma-
bili hafa þjóðartekjur aðeins aukist
um nálega 13%. Þetta bil hefur til
bráðabirgða verið brúað með auk-
inni skuldasöfnun erlendis og tap-
rekstri í atvinnulífi. Líður nú vart
sá dagur, að ekki hætti eitt eða
fleiri fyrirtæki starfsemi og gildir
það jafnt um nýgræðinginn og gam-
algróin fyrirtæki. Staðreyndin er
ótvírætt sú, að hlutur launa af þjóð-
artekjunum hefur vaxið langt um-
fram það, sem atvinnulífið fær búið
við. Hallarekstur í einstökum grein-
um atvinnulífsins um skamma hríð
er ekki óvenjulegt ástand hér á
landi, en þegar þorri fyrirtækja í
flestum greinum atvinnulífsins er
rekinn með tapi um lengri tíma
hljótum við að sigla í efnahagslegt
strand áður en varir.
Spyija má, hvað valdið hefur
þessum umskiptum. Svarið er
margþætt, því að þótt jafnvægis-
leysi sé sjálfsagt það hugtak, sem
best lýsir vandanum, felst ekki í
því greining á aðstæðum, orsökum
og afleiðingum.
Nú er ljóst, að uppsveiflan í efna-
hagslífínu 1986 og 1987 varð miklu
kröftugri en menn höfðu vænst.
Áætianir um framvinduna urðu af
þessum sökum rangar og meiri
þrýstingur varð á launamarkaði en
dæmi em um síðustu áratugi.
Launahækkanir fóm með öllu úr
böndum og kjarasamningar, sem
gerðir vom við þessar aðstæður
hlutu að verða marklaus plögg. Við
þessar aðstæður hefði verið afar
brýnt, að ríkisvaldið beitti stjórn-
tækjum sínum til að vinna á móti
þenslunni með það að markmiði að
jafna út hagsveifluna. Þetta brást,
því að stjómmálamennirnir tóku
þátt í dansinum, og í stað þess að
draga úr útgjöldum hins opinbera
vom þau aukin til samræmis við
þá þenslu, sem almennt var í hag-
kerfínu. Opinber útgjöld í viðtæk-
ustu merkingu mögnuðu þensluna,
en slógu ekki á hana.
Nú er vöxturinn að baki og sam-
dráttarskeið hafið. Við þær aðstæð-
ur er eðlilegt, að ríkisvaldið hagi
aðgerðum sínum í samræmi við
breyttar aðstæður; slaki á skatt-
heimtu og freisti þess að draga úr
útgjöldum, svo að atvinnulífinu gef-
ist tóm til að rétta við.
Almennt em menn samdóma um
það, ekki síst stjómmálamenn, að
veik eiginijárstaða íslenskra at-
vinnufyrirtækja og tilsvarandi láns-
fjárþörf sé ein af orsökum aðsteðj-
andi erfiðleika þeirra. Eðlileg við-
brögð væm að beita skattareglum
á þann veg, að hvatt væri til aukn-
ingar á eigin fé í atvinnurekstri.
Viðbrögðin em hins vegar með
gagnstæðum hætti, því að skatta-
reglum er breytt og það með aftur-
virkum hætti á þann veg, að tekju-
og eignaskattar fyrirtækja em
hækkaðir stórkostlega, svo að þeir
takmörkuðu möguleikar, sem verið
hafa á sveiflujöfnun innan fyrir-
tækjanna og uppbyggingu á eigin
fé þeirra em nánast þurrkaðir út.
Lengi hefur verið ljóst, að mjög
vel mætti ganga svo að fjárfesting
í atvinnurekstri skilaði sama arði
og í boði er, ef fjárfest er t.d. í
spariskírteinum ríkissjóðs. Eftir
nýsamþykktar skattahækkanir má
það heita með öllu útilokað.
Efnahagsstefna núverandi ríkis-
stjómar á það því sammerkt með
stefnu fyrri stjóma, að hún vinnur
með hagsveiflunni, en ekki móti
henni svo að samdrátturinn verður
enn meiri en ytri aðstæður gefa
tilefni til.
íslenskt atvinnulíf getur áfram
staðið undir góðum lífskjömm. For-
sendur þess em þó þær, að stjóm-
völd bregðist af raunsæi við breytt-
um aðstæðum. í því felst m.a., að
viðurkenna verður, að kaupmáttur
þjóðarinnar í erlendri mynt er orð-
inn hærri en útflutningsgreinamar
fá risið undir. Því verður að færa
gengi krónunnar á nýjan gmndvöll
og miða efnahagsráðstafanir við
það. Þær ráðstafanir verða að miða
að auknum stöðugleika og lágri
verðbólgu, því að hvorki þjóðin né
atvinnulíf hennar fá þrifíst við þann
óstöðugleika í efnahagsmálum, sem
hér hefur lengst af ríkt.
Sú þróun mála í umheiminum,
ekki síst í Evrópu, sem miðar að
greiðari viðskiptum milli ríkja, og
birtist m.a. í samræmingu og ein-
földun skattareglna og öflugum
hvata til uppbyggingar í atvinnu-
rekstri hlýtur einnig að setja mark
sitt á þróun mála hér á landi og
undirstrika enn frekar nauðsyn á
stöðugleika í hagstjórn. Nýjar og
breyttar áherslur í skattamálum hér
á landi ganga þvert á alþjóðlega
strauma og fá því ekki staðist. Þær
hljóta því að teljast slys, sem leið-
rétta verður hið allra fyrsta.
Atvinnulffíð hefur þegar eftir
föngum bmgðist við breyttum að-
stæðum með hagræðingu og spam-
aði. Fyrirtækin hafa dregið úr yfír-
vinnu og staðið að margháttuðum
aðgerðum, sem lækkað geta fram-
leiðslukostnað í framtíðinni. Minna
hefur farið fyrir hagræðingu hjá
hinu opinbera, þó að fjálglega hafi
verið talað um nauðsyn á hagræð-
ingu í atvinnulífinu.
Ljóst er, að kjaraviðræður munu
mjög setja mark sitt á næsta ár,
þótt efni til kauphækkana séu fyrir-
sjáanlega engin. 15. febrúar falla
úr gildi bráðalög, sem að stofni til
vom sett í maí sl. og breytt í sept-
embermánuði sl. Þá verða samning-
ar opinberra starfsmanna lausir,
svo og sjómanna og landverkafólks
á Vestfjörðum. Samningar aðildar-
félaga Verkamannasambands og
Landssambands iðnverkafólks
verða lausir 10. apríl nk. og loks
Hljómsveit
flrvais Kristjánssonai
Leikum eldhressa danstónlist við hvers
konar tækifæri hvar sem er7
hvenær sem er.
Slóið ó þróðinn í síma 92-15856
og sjóum hvað setur.
PS. Geymið auglýsinguna
. - t.i, — ... - '' ■■ ' —
fitsala
hefst mánudaginn 2. janúar.
40-50%
afsláttur
Theódóra,
Skólavörðustíg 5.
HEIMILISLÆKNAR
FLYTJA í UPPSALI
3. hæð Kringlunnar, 2. janúar 1989
Tímapantanir og upplýsingar kl. 9-17 ísíma 687770.
Guðmundur B. Guðmundsson, læknir
Símaviðtalstími kl. 9-10 í síma 680930.
Gunnar Baarregaard, læknir
Símaviðtalstími kl. 9-10 í síma 680684.
Hafsteinn Skúlason, læknir
Símaviðtalstími kl. 8.15-9.15 í síma 680683.
ísak G. Hallgrímsson, læknir
Símaviðtalstími kl. 8.15-9.15 í síma 680667.
Ólafur F. Magnússon, læknir
Símaviðtalstími kl. 9-10 í síma 680682.
HEIMILISLÆKNASTÖÐIN
UPPSÖLUM, KRINGLUNNI 8-12, SÍMI 687770.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á^^íöum Moggans!