Morgunblaðið - 31.12.1988, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1988
Hafnarfjörður:
Byggja nýtt
fþróttahús
ogdagvist
BÆJARSTJÓRN Hafiiarfiarðar
hefur samþykkt að byggt verði
nýtt 2.100 fermetra iþróttahús í
bænum. Bygging hússins á að
hefjast í febrúar og vera loldð i
ársbyrjun 1990. Einnig hefur
verið samþykkt bygging nýrrar
3-4 deilda dagvistunarstofiiunar.
Á bygging hennar að hefjast á
sama tima og íþróttahússins en
vera lokið næsta haust.
Guðmundur Ami Stefánsson
bæjarstjóri segir að um verði að
ræða lokað útboð í bæði verkin.
Forathugun vegna þess sé lokið og
nú sé verið að vinna að forvali á
þeim 5-6 fyrirtækjum sem gefinn
verður kostur á að bjóða í verkin.
Verður hægt að bjóða í þau bæði
í einu eða sitt í hvoru lagi.
Að sögn Guðmundar Árria • er
mikilvægt að traust fyrirtæki veljist
sem verktakar þar sem bærinn hef-
ur áskilið sér rétt að fjármagna
þessar framkvæmdir allt að 50%
með sölu skuldabréfa í eigu bæjar-
ins. Guðmundur segir að hér sé um
að ræða bréf sem bærinn fékk með
sölu Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar.
Ég hef nóg að gera o g
kvíði ekki aðgerðarleysi
— segir Sigurbjörn Sigtryggsson aðstoðarbankastjóri sem lét af störfum í gær vegna aldurs
„NÚNA hef ég nóg að gera og nógu að sinna. Ýmsum áhugamál-
uni sem ég hef orðið að láta sitja á hakanum undanfarið. Eg hef
mikinn áhuga fyrir útivist og gönguferðum, trimma og spila
badminton og sitthvað annað. Ég hef nóg að gera og kviði ekki
aðgerðarleysi,“ segir Sigurbjöm Sigtryggsson aðstoðarbanka-
stjóri i Landsbankanum aðspurður um hvað nú taki við, en hann
lét af störfúm vegna aldurs í gær, 30 desember. Sigurbjörn varð
sjötugur þann 17. nóvember síðastliðinn. Hann hefúr starfað í
Landsbankanum nærfellt hálfa öld og það er fast að því hálfúr
starfstími bankans. Landsbankinn varð 100 ára 1986. Morgun-
blaðið ræddi við Sigurbjörn í tilefni af þessum tímamótum í lífi
hans og hann var spurður hvenær hann hóf störf hjá Lands-
bankanum.
„Það var nú 9. desember 1940.“
Hvaða starfi gegndir þú fyrst
hjá bankanum?
„Ég gegndi nú bara ýmsum
störfum. Ég hef verið héma, héld
ég megi segja, svo til í öllum deild-
um bankans. Ég vann í útibúinu
á ísafirði árin 1943 til 1945, var
síðan gjaldkeri og staðgengill að-
alféhirðis frá því ég kom frá
ísafirði til 1950 og aðalfulltrúi í
gjaldeyrisdeild 1950 til 1960. ’60
til ’64 var ég útibússtjóri inni á
Laugavegi 77, í Austurbæjarúti-
búinu og ’64 varð ég aðstoðar-
bankastjóri og hef verið það síðan.
Þetta er nú það helsta um ferilinn
í bankanum."
Sigurbjöm er kennari að
mennt, en hefur aldrei stundað
það starf. Hann segist ekki hafa
fengið kennslustarf þegar hann
var nýútskrifaður frá Kennara-
skólanum og þá ráðist til Lands-
bankans, „til allra heilla fyrir mig
og kennarastéttina," segir hann
og hlær við. Eiginkona Sigur-
bjöms er Ragnheiður Viggósdóttir
formaður kvenfélagsins Hrings-
ins. Böm þeirra em Bima sem
er lögfræðingur og Hilmar sem
er viðskiptafræðingur.
Hvað stendur upp úr í minning-
unni frá starfsferlinum, þegar lit-
ið er til baka?
„Það mætti nú margt um það
segja, en ég vil gjaman að það
komi fram að ég hef umgengist
afskaplega gott fólk, bæði góða
samstarfsmenn og viðskiptavinina
yfírleitt góða, ég hef ekkert undan
þeim að kvarta á nokkum hátt.“
Sigurbjöm fór með gjaldeyris-
mál bankans á sjötta áratugnum,
„á gjaldeyriserfíðleikaárunum,"
segir hann. „Það var náttúrulega
tiltölulega erfitt starf að vera í
þetta var allt öðmvísi þá.“
hveiju hefur mesta breytingin
falist á þínum starfstíma?
„Það er náttúmlega að frelsið
er svo miklu meira í þessu núna
heldur en var. Það á sérstaklega
við um gjaldeyrismálin. Tölvu-
væðingin hefur líka breytt gífur-
lega miklu. Án hennar væri margt
óframkvæmanlegt, til dæmis
varðandi öll vinnubrögð við að
breyta vöxtum og fleira, slíkt
væri ógemingur ef ekki væm tölv-
umar.“
Hvemig líst þér svo á fjármálin
almennt núna um það leyti sem
þú ferð'frá bankanum?
„Ég vil nú sem minnst um þau
segja. Óvissan er svo mikil í þeim
öllum málum."
Finnst þér vera mikill munur á
því hve mikla peninga fólk hefur
handa í milli og hvemig það um-
gengst peninga núna miðað við
fyrstu ár þín í starfi?
„Það hefur auðvitað verið
sveiflukennt að því leyti að fólk
því.
Morgunblaðið/Bjami
Sigurbjöm Sigtryggsson aðstoðarbankastjóri Landsbankans við
skrifborð sitt í bankanum í gær, síðasta starfsdaginn eftir nær-
fellt hálfrar aldar starf í þjónustu bankans.
hefúr haft misjafnlega mikla pen-
inga. Ég var héma á stríðsárunum
og þá hafði fólk mikla peninga.
Síðan kom árabil sem fólk hafði
litla peninga og eftir það hefur
þetta verið svona dálítið í sveifl-
um. Almennt mundi ég segja um
viðskiptamenn að þeir vilja reyna
að standa í skilum. Þó að vanskil
komi fyrir hjá peningastofnunum,
þá er það ekki þannig að menn
séu beint að svíkja út peninga,
heldur bregðast þá áætlanir þann-
ig að þeir geta ekki staðið í skilum
þótt þeir vilji gera það.“
Mönnum hefur orðið tíðrætt um
kreppu að undanfömu. Finnst þér
ástandið nú bera einhver slík ein-
kenni, til dæmis sambærilegt og
var fyrir um tveimur áratugum
síðan?
„Hvenær er ekki talað um
kreppu? Það er ósköp erfitt að
skilgreina það hvað er kreppa.
Það gengur allt í bylgjum hjá
okkur."
Að lokum, þú kveður nú Lands-
bankann eftir nær hálfrar aldar
þjónustu, kveður þú með söknuði?
„Já, það geri ég á vissan hátt.
Það er ósk mín og von að í framt-
íðinni háfi Landsbankinn jafnan á
að skipa atorkusömum og dug-
andi stjómendum og starfsfólki
svo að hann geti rækt það mikil-
væga hlutverk hér eftir sem hing-
að til að vera í reynd hið sterka
afl í þjóðfélaginu sem vinnur landi
og lýð til heilla," sagði Sigurbjöm
Sigtryggsson að lokum. Þ.J.
Flensborgarskólinn brautskráði 30 nemendur 21. desember sl.
Flensborgarskóli í Hafinar-
fírði brautskráir stúdenta
4V2 árs fangelsi
fyrir hrottalega
nauðgun og árás
Flensborgarskófinn braut-
skráði 29 stúdenta og 1 nemanda
með verslunarpróf miðvikudag-
inn 21. desember, en þá fóru slit
haustannar fram í skólanum við
hátíðlega athöfii. Flestir stúdent-
anna brautskráðust af viðskipta-
braut.
Auk skólameistara, Kristjáns
Bersa Ólafssonar, tók Steingrímur
Þórðarson skólanefndarmaður til
máls við athöfnina og færði Hall-
dóri G. Ólafssyni kennara sérstakar
þakkir fyrir störf hans í þágu skól-
ans, en hann lætur af störfum um
áramótin eftir 32 ára starf.
Einnig flutti einn úr hópi hinna
nýju stúdenta, Kristín Loftsdóttir,
ávarp og kór Flensborgarskólans
söng jólalög undir stjóm Margrétar
J. Pálmadóttur.
(Fréttatilkynning)
24 ÁRA gamall Reykvíkingur,
Skúli Helgi Skúlason, hefúr ver-
ið dæmdur til 4*/2 árs óskilorðs-
bundinnar fangelsisvistar fyrir
að hafa í septembermánuði
siðastliðnum ráðist hrottalega á
31 árs gamla konu á heimili
hennar í Reykjavík, nauðgað
henni tU samræðis við sig og
veitt henni lífshættulega áverka
með því að slá krepptum hnefa
í kvið hennar. Þurfti konan að
gangast undir bráða læknisað-
gerð vegna áverkanna og var
líf hennar talið í hættu um tíma.
Manninum var gert að greiða
konunni 400 þúsund króna
skaðabætur.
Maðurinn neitaði að hafa veitt
konunni áverkana og að hafa
þröngvað henni til samræðisins en
dómurinn taldi það engu að síður
sannað með framburði konunnar
og ýmsum verksummerkjum.
Maðurinn hefur áður hlotið nokkra
refsidóma en engan vegna svipaðs
máls. Þegar þessi verknaður var
framinn var hann laus til reynslu
úr fangelsi og taldist því hafa rof-
ið skilorðið. Sá tími sem hann átti
þar óafplánaðan, 405 dagar, telst
innifalinn í þessum 4V2 árs fang-
elsisdómi, sem Sverrir Einarsson
sakadómari kvað upp á fimmtu-
dag.
Islands-
kynning í
Amsterdam
DAGANNA 8. janúar til 12. febr-
úar fer fram íslandskynning á
Pulitzer hótelinu í Amsterdam.
Það eru Arnarhóll og Amarfiug
sem standa að kynningunni auk
hótelsins. Pulitzer er fimm
stjömu hótel og talið eitt af þeim
bestu í Amsterdam.
Skúli Hansen yfirmatreiðslumað-
ur á Amarhóli segir að fyrsta hálfa
mánuðinn af kynningunni muni
einn af veitingasölum hótelsins ein-
göngu bjóða upp á íslenskan mat
en fram til 12. febrúar verður kynn-
ing á íslenskri myndlist á hótelinu.
Vegna matarkynningarinnar mun
Skúli fara með þijá kokka með sér
út og þjónustulið.
í tenglsum við kynninguna mun
Amarflug bjóða upp á sérstakt til-
boð á flugi og hótelgistingu í Amst-
erdam.