Morgunblaðið - 31.12.1988, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 31.12.1988, Qupperneq 30
,30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1988 AKUREYRI 400 böm hafa fæðst á árinu FJÖGUR hundruð börn hafa feeðst á feeðingardeild Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri á árinu, og gætu orðið tveimur til þremur fleiri áður en árinu lýkur að sögn Friðriku Árnadóttur, yfirljósmóður, í gær. í ár hafa þrennir tvíburar fæðst á Akureyri, þannig að fæðingar voru í gær orðnar 397. Þetta er talsvert meira en í fyrra, en þá voru fæðing- ar 363 — og bömin 364. Þá fædd- ust sem sagt einir tvíburar á deild- inni. 1980 voru fæðingar 432. Árið Mikiljóla- verslun KAUPMENN á Akureyri sem Morgunblaðið hefiir tekið tali nú milli jóla og nýárs eru sammála um að jólaverslunin hafi verið mjög mikil að þessu sinni, þrátt fyrir svartsýnisspár margra. „Það hefur mikið verið rætt um samdrátt og kreppu, en ég varð ekki var við það. Verslun í desem- ber 1987 var 100% meiri en í desem- ber árið áður og jólaverslunin hjá mér nú var enn meiri en í fyrra, þó ekki hafi það verið mjög mikið," sagði kaupmaður j bænum í sam- tali við blaðið. „Ég er því mjög ánægður — viðskiptin vom meiri en ég bjóst við,“ sagði þessi tiltekni verslunareigandi og aðrir tóku í sama streng. Kaupmenn sögðust margir hverj- ir hafa verið nokkuð hræddir í bytj- un desember um að samdráttur yrði í jólaversluninni, en annað hefði síðan komið á daginn. Notkun greiðslukorta töldu menn hafa verið heldur meiri en 1 fyrra, en þó ekki „óeðlilega" mikla eins og sumir komust að orði. Hagkaup stækkar FORRÁÐAMENN Hagkaups hafa ákveðið að stækka verslunar- húsnæði sitt við Norðurgötu á Akureyri. Að sögn Jóns Ásbergssonar, for- stjóra, ætla þeir að stækka húsið út í Norðurgötuna og einnig verður byggt svolítið við í austur — út á bílaplanið. „Við verðum tilbúnir í framkvæmdir strax í vor, en sjáum svo til hvað við gemm. Það er ekki ákveðið hvenær við hefjumst handa," sagði Jón í samtali við Morgunblaðið. Verslun Hagkaups stækkar um 500 fermetra eftir að byggt hefur verið við húsið. Útgerðarfélag Akureyringa: Tveirtogarar á veiðar í gær -TVEIR togarar Útgerðarfélags Akureyringa, Harðbakur og Kaldbakur, létu úr höfii í gærdag og verða því á veiðum um ára- mót, en allir togarar félagsins voru inni um jólin. Svalbakur heldur síðan út mánu- daginn 2. janúar, en Sléttbakur, sem verið hefur í viðgerð hjá Slippstöð- inni hf. undanfarið, verður þar eitt- hvað áfram. Samheiji semur um smíði frystitogara á Spáni Á að kosta tæpar 386 milljónir króna SAMHERJI hf. á Akureyri hefiir samið um smíði nýs frystitogara, með fyrirvara um samþykki Fiskveiðasjóðs. Togarinn verður smíðaður í skipasmíðastöð í borginni Viga á Spáni og verður kaupverð 55 milljónir norskra króna — eða um 386 milljónir íslenskra króna. Samningur um smíði skipsins var undirritaður nú milli jóla og nýárs. Þorsteinn Már Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri Samheija, hitti þá forráðamenn spönsku skipasmiðj- unnar í Osló og gengið var frá málinu. Togarinn verður 61 metri á lengd, jafn stór og frystitogarinn Akureyrin EA sem Samheiji hf. gerir nú út — og er um að ræða mjög svipað skip og Akureyrina. Samheiji gerir einnig út Margréti EA og einnig Oddeyrina, sem er í eigu Oddeyrinnar hf. sem Samheiji hf. er einn eigenda að. Nýi togarinn er teiknaður á Ak- ureyri hjá Teiknistofu Karls Þór- leifssonar, en að sögn Þorsteins Más Baldvinssonar er hér um að ræða samstarfsverkefni Samheija hf., Teiknistofu Karls og norsks verkfræðifyrirtækis. Samið var um smíði hans með fyrirvara um sam- þykki Fiskveiðasjóðs, og sagðist Þorsteinn Már vonast til að jákvætt svar fengist fljótlega frá sjóðnum. Samkvæmt samningi við spönsku skipasmíðastöðina á þessi nýi frysti- togari Samheija hf. að vera tilbúinn fyrir mitt ár 1990. Hrafhar að leik írokinu Morgunblaðið/Rúnar Þór Hrafiiar fara oft á stjá á Oddeyrinni þegar suðaustan strekkingur er á Akureyri eins og var í gær. Nota þeir sér uppstreymið frá húsunum, svífa um og leika sér. Stjarnan heyrist áfram á Ákureyri ÚTVARPSSTÖÐIN Stjarnan heldur áfram að senda út til Akureyrar, að sögn Ólafs Hauks- sonar útvarpsstjóra, en sögu- sagnir hafa verið á kreiki í bæn- um að stöðin muni hætta að senda út þangað um áramótin. Frétt um það kom reyndar í svæðisútvarpinu fyrir nokkrum dögum. „Það er ekkert til í þessum sögu- sögnum. Við könnuðum að vísu hjá Pósti og síma hve mikið við mynd- um spara með því að hætta að senda norður; það er óhjákvæmilegt að kanna stöðugt hvernig rekstrinum er best komið, en það er ekki satt að við höfum sagt upp línunni norð- ur hjá Pósti og síma,“ sagði Ólafur í samtali við Morgunblaðið. Útvarpshlustendur á Akureyri hafa úr nógu að velja því eigi færri en sjö stöðvar ná eyrum þeirra. Eru það rásir 1 og 2 Ríkisútvarpsins, auk svæðisútvarps ríkisins sem sendir út eina klukkustund að morgni og aðra síðari hluta dags, Hljóðbylgjan, Bylgjan, Stjarnan og loks útvarp Ólund, sem hóf útsend- ingar í bænum fyrr í þessum mán- ......................... 1984 fæddust 305 börn á deildinni, tveimur fleira 1985, 367 böm 1986 og 364 í fyrra. Að sögn Friðriku fæða allar konur frá Dalvík og Ólafsfirði á fæðingar- deild FSA, einnig af Grenivík og úr sveitunum í kring. Þá er nokkuð um að konur komi til Akureyrar frá Siglufirði og Sauðárkróki til að fæða, og stundum frá Húsavík og jafnvel Egilsstöðum. Akureyrin EA, flaggskip Samherja hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.