Morgunblaðið - 31.12.1988, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 31.12.1988, Blaðsíða 36
ðD ______________MORGUNBLABIÐ LAUGARDAGUR 31. PESEMBER 1988_ Viðskiptabann á Suður-AMku eftir Sigþrúði Gunnarsdóttur Síðastliðið vor, eins og kannski sumir muna, gekk í gildi bann við viðskiptum milli íslands og Suður- Afríku. Samkvæmt því er óheimilt að flytja inn vörur frá Suður-Afríku eða Namibíu og einnig að flytja vörur til þessara landa. Skömmu eftir að lög þessi voru samþykkt á Alþingi voru sett á ákvæði til bráða- birgða um að kaupmenn mættu klára upplag sitt af vörum fram að áramótum en eftir 1. janúar 1989 ættu þær ekki að sjást í verslunum. Nú eftir áramótin eiga neytendur því að geta verið vissir um að þær vörur sem þeir kaupa séu ekki frá þessum löndum. Nú spyija sumir, hvers vegna allt þetta vesen? Hvers vegna ekki að leyfa þeim sem vilja að-kaupa þessar vörur? Málið er bara það að ástandið í Suður-Afríku er þannig að enginn getur verið þekktur fyrir að styðja það. f Suður-Afríku býr fjöldi fólks á stóru landsvæði og landið er auðugt af gull- og demantanámum þannig að í rauninni ætti öllum að líða vel þar. Re}mdin er allt önnur. Hvítir menn, sem eru um 20% af þjóð- inni, og innflytjendur frá Evrópu beita þeldökka íbúa landsins, sem eru um 80%, svo miklu kynþátta- misrétti að við eigum erfítt með að ímynda okkur það. Svart fólk fær hvorki almennilegt landsvæði til að búa á né viðunandi húsnæði. Það fær hvorki almennilega vinnu né mannsæmandi laun, hvorki mennt- un né heilsugæslu. Það hefur ekki einu sinni kosningarétt! í þessu auðuga landi þar sem þeir hvítu hafa allt til alls og heilsugæsla er ekkert lakari en á Vesturlöndum deyja 2 af hveijum 10 blökkuböm- um áður en þau verða tveggja ára og um helmingur liflr ekki til 5 ára aldurs. Flest þeirra deyja úr hungri. Það getur hver maður séð óréttlæt- ið í þessu, en þó er ekki öll sagan sögð. Þeir blökkumenn sem rísa upp og beijast fyrir mannréttindum sem okkur þykja sjálfsögð eiga ekki sjö dagana sæla. Þeir eru nánast und- antekningarlaust fangelsaðir, pynt- aðir, bannfærðir eða hreinlega „Hvers konar réttlæti er þetta eiginlega? Hvers konar samfélag er það þar sem maður er beittur eilífu mis- rétti.“ myrtir af stjömvöldum. Allir kann- ast við hinn þekkta blökkumanna- leiðtoga Nelson Mandela sem hefur setið í fangelsi síðustu 26 árin, þurft að sæta pyntingum og hvers kyns ofbeldi þar til nú í haust að hann var fluttur á spítala fárveikur með berkla á háu stigi. Steven Biko kannast ömgglega margir við og þá sérstaklega eftir að myndin Hróp á frelsi var sýnd í Laugarásbíói í vor. Hann barðist gegn þessari kúgun uns hann dó af völdum pynt- inga í fangelsi. Til að reyna að koma í veg fyrir mótbyr bannar stjómin öll suður-afrísk félög sem em á móti henni. Hvers konar réttlæti er þetta eig- inlega? Hvers konar samfélag er það þar sem maður er beittur eilífu misrétti, sér ástvini sína myrta með köldu blóði og getur ekkert gert nema gráta ofan í koddann þegar enginn sér? Það er ekkert líf og þess vegna láta blökkumenn bönnin sig engu skipta en rísa upp í fjölda- hreyfíngum og mótmæla þessu of- beldi. Ekki aðeins einn og einn fllefldur karlmaður heldur allir sem vettlingi geta valdið. Æska landsins hefur barist gegn lélegri menntun, vinnandi fólk hefur skipað sér í öflug verkalýðsfélög sem beijast fyrir jöfnum réttindum úti á vinnumarkaðnum og hærri launum. Konur hafa stofnað kven- félög sem rísa upp gegn kvenna- kúgun og beijast fyrir jafrirétti. Allir þessir hópar samanlagðir rísa svo upp gegn stjóm landsins og heimta mannréttindi strax. Fólkið er sterlct og gefst ekki upp þó að á móti blási og lætur ekki skipa sér fyrir verkum. En þó að þeirra hóp- ur sé sterkur jafnast hann ekki á við her stjómvalda með öll sfn nýtísku vopn og sem virðist ekki víla fyrir sér að skjóta til bana 700 böm sem fara í kröfugöngu fyrir betri menntun eins og gerðist í Soweto árið 1976. Það sem vantar á baráttuna gegn þessum ljóta glæp ér meiri alþjóðleg samstaða. Sam- staða um að kaupa ekki vömr frá Suður-Afríku, selja ekki vömr til Suður-Afríku og hafa ekki nokkur önnur sambönd við Suður-Afríku á meðan ástandið er svona. Það er það sem við viljum og stefiium að. Nú þegar hafa allmörg ríki heims- ins áttað sig á þvf hvað viðskipta- bann er þýðingarmikið og er Island eitt af þeim. Það er þess vegna sem ekki verða seldar vömr frá Suður- Afríku í fslenskum verslunum eftir áramótin. Við viljum minna þá sem reka verslanir á að innan fárra daga verður ólöglegt að hafa þessar vör- ur á boðstólum og eins og stendur í 3. grein í lögum um bann gegn viðskiptum við Suður-Afríku og Namibíu varða brot á ákvæðum þessara laga sektum eða allt að þriggja mánaða fangelsi þegar sak- ir em mikiar. Við í Suður-Afríkusamtökunum munum fylgjast með gangi mála í þágu neytenda og passa að þessar vömr séu hvergi á boðstólum. Höfundur er varaformaður Suð- ur-A fríkusamtakanna gegn „apartheid smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Hvrtasunnukirkjan Ffladelfía Gamlársdagun Áramótasam- verustund kl. 21.00. Nýársdagur: Hétiöarsamkoma kl. 16.30. Ljósbrot syngur. Ræðumaður: Sam Glad. VEGURINN Kristið samfélag Þarabakka 3 Samkoma verður nýársdag kl. 20.30. Eiður Einarsson predikar. Allir velkomnir. Vegurinn. Trú og I íf Smiðjuvcgl 1. Kópavogl Nýársdagur: Hátíðarsamkoma kl. 17. Ath. breyttan tíma. Miðvikudagur: Unglingasam- koma kl. 20.00. Gleðilegt árl Auðbrekku 2.200 KáfQVDgur Sameiginlegur nýársfagnaður með Veginum verður á nýárs- nótt og hefst kl. 1.00 eftir mið- nætti aö Þarabakka 3. Nýársdagun Samkoma kl. 20.30. Gleðilegt ár. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma á nýársdag kl. 16.00. Hjálpræðis- herinn / Kirfcjustræti 2 Nýársdag kl. 16.00: Nýársfagn- aður. Kapteinarnir Anne Marie og Harold Reinholdtsen flokks- foringjar stjórna og tala. Miðvikudag 4. jan. kl. 20.00: Jólafagnaður hjálparflokksins. Verið velkomin. Gleðilegt nýtt ár! Hjálpræðisherinn. f£unhjálp I dag kl. 16 er almenn samkoma í Hlaögerðarkoti. Fjölbreytt dag- skrá með miklum söng. Ræðu- maður Óli Ágústsson. Allir vel- komnir. Þökkum liðandi ár og óskum ykk- ur Guðs blessunar á komandi ári. Samhjálp. KFUM og KFUK Nýárssamkoma félaganna verð- ur haldinn á nýársdag 1. janúar kl. 20.30 á Amtmannsstíg 2b. Upphafsorð: Anna Hilmarsdóttir. Ræðumaður séra Jónas Gislason. Mikill söngur. Allir velkomnir. atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna ýmislegt Til viðskiptavina Fjárheimtunnar hf. Opnunartími um áramótin 2/1 1989. Lokað Gleðilegt ár. Fjárheimtan hf. Auglýsing frá Útvarpsréttarnefnd Öllum sem starfsrækja útvarpsstarfsemi, hvort heldur er um þráð eða þráðlaust (kapal- kerfi) ber að sækja um rekstrarleyfi til Út- varpsréttarnefndar. Dreifing dagskrárefnis handa almenningi með rafsegulöldum, hvort heldur í tali, tónum eða myndum, um þráð eða þráðlaust er óheimil sbr. útvarpslög nr. 51/1985, nema að fengnu leyfi Útvarpsréttarnefndar. Vakin er athygli á, að það telst eigi útvarp í skilningi útvarpslaga ef útsending nær ein- ungis til þröngs hóps innan heimilils eða húsakynna fyrirtækis eða stofnunar, svo sem í sjúkrahúsi, gistihúsi, skóla eða verksmiðju sbr. 2. mgr. 1. gr. útvarpslaga nr. 68/1985, eða ef móttaka þess er bundin íbúðarsam- steypu, 36 íbúðir eða fleiri, sem eru innan samfellds svæðis. Umsóknum um ofangreint efni skulu sendar Útvarpsréttarnefnd, Hverfisgötu 4-6, 150 Reykjavík. Útvarpsréttarnefnd. Tilboð óskast í bifreiðar sem eru skemmdar eftir umferðar- óhöpp. Þær verða til sýnis mánudaginn 2. janúar á milli kl. 9.00 og 17.00. Tilboðum sé skilað fyrir kl. 17.00 sama dag. TJÓNASKOBUNARSTttBIN SF. Smiöjuvegur 1 - 200 Kópavogi - Sími 641120 ÆÍTíitsítiet? tryggingar BRUnHBttT bátar — skip \ Fiskiskip Til sölu 113 tonna stálskip, 101 tonna stálskip, 88 tQnna stálskip, 81 tonna stálskip, 40 tonna stálskip, skipti á stærri eða minni, 26 tonna stálskip. Vantar 120-350 tonna skip fyrir góða kaup- endur. Höfum til sölumeðferðar aflakvóta. Vantar þokkalegan stálbát, 70-100 tonna kvótalausan. Skipasalan Bátar og búnaður, sími 622554. Fiskiskip Til sölu 69 tonna eikarbátur, skipti á 20-30 tonna bát, 64 tonna eikarbátur, 56 tonna eikarbátur, 17, 16, 15, 14, 12 og 10 tonna eikar-, plast- og álbátar. Skipasalan Bátar og búnaður, sími 622554. Borgarmálaráðstefna: Starfshópurinn um atvinnumál og nýsköpun atvinnulífs heldur opinn fund þriðjudaginn 3. janúar kl, 17.30, í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Fundurinn er opinn öllu sjálfstæðisfólki. Starf hópsins er liður í undirbúningi fyrir borgarmálaráðstefnu og kynningu sem haldin verður 28. janúar nk. Hópstjóri er Ragnar Guðmundsson. Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna i Reykjavik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.